Morgunblaðið - 10.09.2005, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 10.09.2005, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 2005 21 MINNSTAÐUR Raufarhöfn | Farfuglarnir eru í óða önn að búa sig undir að kveðja landið. Krían er löngu farin og aðrir fuglar eru farnir að hópa sig og æfa flug yfir hafið. Einn er sá farfugl, sem fyrst sást hér á landi 1981 og hefur komið hér árvisst síðan 1985. Honum hefur skotið upp kollinum allstaðar á land- inu síðan þá og er mörgum minn- isstæður og hjartfólginn. Það sem gerir hann mjög sérstakan er að hann er ekki fleygur. Í staðinn kemur hann og fer með Norrænu. Þetta er hann Josef Niederberger, frá Sviss. Eða Jósep í rauðu tjaldi og á gulu hjóli eins og hann kynnir sig. Jósef er 67 ára, fæddur í litlu þorpi nálægt Luzern í Sviss. Hann er með- almaður á hæð, grannur og kvikur í hreyfingum. Grátt hár og alskegg minnir mann dálítið á jólin. Þegar hann brosir birtast sterklegar hvítar tennur, sem er óvenjulegt hjá manni á hans aldri. Augun eru hvöss og at- hugul. Síðastliðin 30 ár hefur hann búið í litlu þorpi nálægt Bern, sem er í 700 metra hæð yfir sjávarmáli. Þar er engin kirkja, ekkert pósthús, eng- in verslun. En þar er kaffitería, sem gegnir mikilvægu hlutverki í þorpinu. Hann er rafvirki að mennt og starfaði í Bern á meðan heilsa leyfði. Hann hætti að vinna 60 ára vegna smá kvilla í hjarta. Sem hreina loftið á Ís- landi hafi læknað, og kveðst hann ekki hafa kennt sér meins undan- farið. Undirritaður mælti sér mót við hann á tjaldsvæðinu á Raufarhöfn, hvar hann hefur haldið til undanfarna daga og er í óða önn að undirbúa brottför sína þetta haustið. Hann var að þvo sér um hendurnar upp úr köldu vatni er undirritaðan bar að. „Blessaður,“ sagði undirritaður þegar við hittumst. „Blessaður,“ svaraði hann til baka og heilsaði með handabandi og bað mig að út- skýra hvernig hann eigi að ávarpa konur með þessari kveðju. Síðan sýndi hann bún- að sinn. Gult hjól með drátt- arkrók, aftanívagn, rauða tjaldið, sem hann hefur sett á stóran útsýnisglugga og end- urbætt með loftræstigötum. Lofthitamælir utan á tjaldinu og hitamælar inni vöktu at- hygli. Hann kvaðst taka veðrið oft á dag og skrá það hjá sér í dagbók, sem hann sýndi mér. Þar var hver dagur merktur inn. Hitastig með tölum, skýjafar og annað var teiknað myndrænt, eins og sjá má í sjónvarpi. Hann kvaðst hafa haldið svona veð- urdagbók á öllum sínum ferðum um Ísland, auk þess sem hann færir ít- arlega dagbók fyrir hvern dag. Þú hefur tekið þér löng sumarfrí, þegar þú hefur heimsótt Ísland? „Vinnuveitandi minn sagði það betra að hafa mig brosandi í vinnunni í níu mánuði, en fúlan í tólf. Hann hvatti mig til að taka löng frí og nota lífs- kraftinn sem ég fékk í fríinu til að drífa mig áfram í vinnunni þess á milli.“ Hversvegna gult pósthjól? „Fyrsta árið sem ég kom til Íslands notaði ég venjulegt hjól. Það var ein- faldlega ekki nógu sterkt fyrir þessar aðstæður. En ég vissi að póstþjón- ustan í Sviss gerði upp og seldi notuð hjól. Þau hjól eru mjög sterk og eru ætluð fyrir mikið álag. Ég keypti eitt slíkt og hef notað í 20 ár. Það hefur aldrei sprungið, né bilað á annan hátt. Fyrstu tólf árin tók ég það með mér heim, en núna geymi ég það á Ís- landi yfir veturinn. Hvernig heldurðu að ferðaþjón- ustan á Íslandi væri, ef allir ferðuðust eins og þú? „Ég held að það gæti aldrei geng- ið,“ sagði hann og brosti breitt. Hann horfði andartak fram fyrir sig hugs- andi. „Ferðaþjónustan yrði of einhæf. Hún verður að byggjast á fjölbreytni. Annað gengur ekki. Allir verða að geta ferðast á þann hátt, sem þeim hentar best. Þessi ferðamáti hentar mér, öðrum ekki. Ég er ekki verri ferðamaður en hver annar. Ég kaupi allar nauðsynjar á Íslandi. Ég tek ekkert með mér að heiman, nema föt- in mín og persónulega muni. Annað kaupi ég hér.“ Hann fletti upp í möppu og dró út blað og sýndi mér. Kostnaðurinn í ár var kominn yfir 150.000. „Ég eyði eins og aðrir ferða- menn, en geri það á lengri tíma.“ Hjólreiðamenn frá Hollandi undr- uðust yfir því, að póstbíllinn stansaði og setti póst í póstkassann þinn, á meðan þeir dokuðu við hjá þér. Hvernig stendur á því? „Ég fékk 40 bréf í póstkassann minn í sumar, sem er búinn til úr Cheerios-pakka. Bréfin voru stíluð á pósthúsið á Þórshöfn. Hann Indriði bílstjóri tók þau og skilaði í póstkass- ann. Oft voru þar nýbakaðar kleinur og annað bakkelsi, sem konan hans bakaði. Veiðimenn komu og færðu mér fisk, þegar þeir áttu leið um. Ég fékk einnig margar heimsóknir frá vinum mínum. Sumir komu alla leið frá Sviss.“ Þú ert alltaf eitthvað að sýsla, ef þú ert heimavið. Er svona mikið að gera? „Ég er aldrei aðgerðarlaus. Ef ég er ekki úti að skoða náttúruna, þá finn ég mér eitthvað til að gera. Þvo, elda, færi dagbók, teikna og skrifa bréf. Ég á marga vini, sem ég skrifa reglulega.“ Hvað ertu að teikna? Hann opnaði dagbókina sína, þar sem voru margar myndir af landslagi, blómum og fuglum. „Ég teikna allt sem mér finnst athyglivert. Ef þú tekur mynd, þá virðir þú myndefnið fyrir þér and- artak, tekur mynd og gleymir hvernig það lítur út. Ef þú teiknar það, þá virðir þú það fyrir þér lengi og myndin festist í huga þér, jafnframt sem þú getur deilt því með öðrum, sem þú sást. Nú hefur þú ferðast um allt Ísland. Hver er fallegasti staður á Íslandi? spurði undirritaður og vonaðist hálf- partinn eftir að svarið yrði byggðar- laginu hagstætt, svona fyrir kurteis- issakir. „Þar sem ég er hverju sinni, finnst mér fallegast. Það gerir nær- veran við náttúruna, sem er ætíð sterkari en minningin um aðra fal- lega staði. En þið á Raufarhöfn eigið fallegasta tjaldsvæði á Íslandi. Hér er allt svo hreint og umhverfið í kring er einstakt. Sjáðu,“ sagði hann og benti út. „Mýrin, Kottjörnin, höfnin og Höfðinn. Þetta er einstakt. Svo eru húsin hér svo fallega máluð. Fólkið er einstakt og börnin vinaleg. Allir heilsa mér og spjalla við mig.“ Kemurðu næsta sumar? „Ef ekkert gerist, sem breytir mín- um högum, þá kem ég. Ég er orðinn 67 ára. Það er orðið erfitt að ferðast með 120 kíló á sjálfum sér.“ Eitthvað að lokum? „Já, skilaðu þakklæti mínu til allra, sem hafa boðið mér heim og fallegu barnanna, sem segja „hæ, Jósef“ þegar þau mæta mér.“ Þegar við vorum að smokra okkur út úr tjaldinu, vall himbrimi úti á höfninni. Jósef lagði við hlustir, gekk upp á vindmönina og skimaði eftir honum. „Þarna er hann,“ sagði hann og brosti breitt. „Það eru svona hlutir sem gera Ísland sérstakt land.“ Jósef í rauða tjaldinu og á gula hjólinu Dagbókin hans Jósefs er hin skrautlegasta. Jósef hefur komið hingað til lands árlega síðan 1985 og sefur ætíð í tjaldi. Morgunblaðið/Erlingur Thoroddsen Gula hjólið keypti Jósef af svissneska póstinum. Hjólið er 20 ára gamalt. Eftir Erling B. Thoroddsen ebt@vortex.is LANDIÐ

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.