Morgunblaðið - 10.09.2005, Page 22

Morgunblaðið - 10.09.2005, Page 22
22 LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LÍF S igga Beinteins ferðast ekki bara um Ísland til að dæma í Idolinu þessar vikurnar. Leið hennar liggur einnig oft til Noregs þar sem hún rekur söngskóla. Hún er nú stödd í Ósló í Noregi þar sem í dag verður opnað með pomp og prakt annað útibú söngskólans Toneart sem Sigga rekur ásamt systur sinni Halldóru sem búsett hefur verið í Noregi á þriðja áratug. „Við opnuðum skólann í Asker, nágranna- sveitarfélagi Ósló, fyrir tveimur árum og þetta hefur gengið svo vel að við ákváðum að færa út kvíarnar,“ segir Sigga í símanum frá Ósló. Gamalt lagerhúsnæði Í bakgrunninum heyrast hamarshögg iðn- aðarmannanna sem eru að leggja lokahönd á innréttingar í þessu 300 fm húsnæði við Bygdøy Allé á besta stað í höfuðborg Noregs. Um er að ræða gamalt lagerhúsnæði sem syst- urnar fundu fyrir tilviljun í sumar og hentar vel fyrir skólastarfsemi eftir endurbæturnar. Halldóra, systir Siggu, er menntuð sem hjúkr- unarfræðingur og starfaði við það í Noregi þar til hún fékk Siggu í lið með sér og stofnaði skólann í Asker fyrir tveimur árum. Þá langaði hana að stofna eigið fyrirtæki og sá markað í Noregi fyrir söngskóla af því tagi sem Sigga hafði rekið á Íslandi. „Dóra systir hætti ekki fyrr en ég samþykkti að prófa þetta með henni og ég sé ekki eftir því. Hún hefur séð um markaðssetningu, uppbyggingu og daglegan rekstur en ég kem af og til út og kenni.“ Flottasti staðurinn í borginni Að sögn Siggu er Toneart fyrsti skóli sinnar tegundar í Noregi og hún segir greinilega hafa verið markað fyrir hann því aðsóknin er mikil. Við skólann í Asker hafa verið um 320 nem- endur á ári og nýi skólinn getur tekið við 400– 500 nemendum til viðbótar. Toneart hefur lítið sem ekkert auglýst heldur hefur starfsemin spurst út frá nemendunum sem flestir eru á aldrinum 10–25 ára. Asker er mjög stórt sveit- arfélag og til greina kom að stækka skólann þar en Sigga segir að þær systur hafi viljað komast inn á enn stærri markað sem Ósló er. „Og þetta er flottasti staðurinn í borginni. Ef okkur gengur vel hér, er markmiðið að opna fleiri útibú í Noregi,“ segir Sigga en gefur ekki frekari yfirlýsingar. Tvöföld safnplata í vændum Sigga rak söngskóla á Íslandi ásamt Maríu Björk Sverrisdóttur í yfir áratug en hefur nú sagt skilið við þann rekstur. „Þetta var bara orðið of mikið. Ég hef nóg að gera bæði í söngnum, Idolinu og skólarekstrinum hér.“ Fyrir næstu jól kemur út tvöföld safnplata með Siggu Beinteins sem með því heldur upp á 25 ára afmæli sitt í bransanum. Við Toneart kenna Íslendingar og Norð- menn, söng, framkomu, dans og leiklist. Flestir nemendurnir eru á unglingsaldri og aðal- áherslan er á tónlist sem þeim finnst skemmti- leg. Oft eru það því lög af vinsældalistunum, söngleikjatónlist, auk blús og jazz sem hljómar í Toneart. „Þetta er ekki klassískur söngskóli, heldur er áherslan á popp,“ segir Sigga. Kenn- ararnir eru allir vel menntaðir, nokkrir frá Paul McCartney-skólanum í Englandi, og með reynslu af að koma fram fyrir fjölda fólks. Mikill máttur býr í tónlistinni Að sögn Siggu er sálfræðilega hliðin mjög mikilvæg þegar framkoma er annars vegar. „Við leggjum mikið upp úr því að byggja nem- endur upp sálfræðilega og að styrkja sjálfs- myndina. Það er ótrúlegt hve mikill máttur býr í tónlistinni. Á meðal nemenda eru krakkar sem eru mjög feimnir og lokaðir og það er frá- bært að sjá muninn á þeim eftir eitt námskeið. Yfirleitt er kennt í fjögurra manna hópum sem er ákjósanleg stærð fyrir kennslu af þessu tagi, þ.e. krakkarnir þjálfast í að koma fram fyrir aðra en hópurinn er ekki of stór. Við leyf- um krökkunum sem eru feimin í byrjun að gera þetta á sínum hraða. Þau byrja hægt, æfa sig heima, syngja án hljóðnema til að byrja með og svo framvegis. Stundum tekur það meira en eitt námskeið en það er stórkostlegt að sjá breytingarnar og þá finnur maður hvað þetta er gaman,“ segir Sigga. Það geta allir sungið Hún segir marga eiga við það vandamál að etja að líða illa þegar þeir þurfa að koma fram fyrir stóran hóp af fólki. Hún er handviss um að söngnámskeið af þessu tagi jafnist full- komlega á við ræðunámskeið ef einhver vill þjálfun í framkomu og segir gaman að læra að tjá sig í gegnum tónlistina. Þótt nemendahóp- urinn samanstandi aðallega af unglingum eru alltaf einhverjir fullorðnir sem slæðast með og Sigga vill gjarnan taka á móti nemendum á öll- um aldri. „Það geta allir sungið,“ segir hún ákveðin. „Það kostar vinnu en ef áhuginn er fyrir hendi geta allir lært það.“  SKÓLI | Sigríður Beinteins og systir hennar Halldóra opna í dag söngskóla í Ósló Allir geta lært að syngja Eftir Steingerði Ólafsdóttur steingerdur@mbl.is Morgunblaðið/Árni Torfason Sigga Beinteins mun sjálf kenna við söngskólann í Ósló þegar hún fær tækifæri til að taka sér frí frá Idol keppninni heima á Íslandi. Systurnar Sigríður og Halldóra hafa staðið í ströngu undanfarna daga við að undirbúa opnun söngskólans sem þær opna formlega í dag í Ósló. Frekari upplýsingar um söngskólann er að finna á www.toneart-sang.no SÉRFRÆÐINGAR vara við þeim vana að raka hár af kynfærum þar sem hann getur minnkað líkur á full- nægingu, að því er m.a. kemur fram á vef Aftenposten. Bent er á að þessi vani er orðinn jafnalgengur hjá kon- um og körlum. Ole Fyrand, prófessor í húð- sjúkdómum, segir að raksturinn geti valdið skaða á kynfærunum og gert kynlífið minna spennandi. Hann bendir á að kynörvandi lykt festist í hárunum en hverfi ef hárin eru ekki fyrir hendi. „Ef þú vilt þurrara og verra kynlíf með minni möguleika á að ná fullnægingu er óhætt að mæla með því að raka burtu kynhárin. Ef ekki, ættirðu að hugsa þig vandlega um,“ segir Fyrand. Ritstjórinn Cecilie Kjensli er leið á áherslunni á hárlaus kynfæri. „Ef fólk ætlar að halda sér hárlausu, end- ar það með því að húðin lítur út eins og frosinn kjúklingur,“ segir hún. Rakstur neðan beltis varasamur  KYNLÍF Endurtekin þunglyndisköst geta verið jafnhættuleg hjartanu og reykingar, að því er ný sænsk rann- sókn hefur leitt í ljós. Í Göteborgs Posten kemur fram að samband þunglyndis og hjartasjúkdóma er nokkuð sterkt jafnvel þótt leiðrétt sé fyrir öðrum áhættuþáttum eins og blóðfitu og lífsstíl. Engin skýring hefur þó fundist á þessu sambandi, að sögn Anders Ahlbom, prófessors við rannsóknarstofnunina sem framkvæmdi rannsóknina, Inst- itutet för miljömedicin. Verið getur að persónuleiki, fyrri sýkingar eða jafnvel þunglyndislyfin hafi eitthvað að segja að hans sögn. Áður var þekkt að þeir sem feng- ið hafa hjartaáfall eru í meiri áhættu en aðrir að verða þunglynd- ir, einnig að þunglyndi er algengara meðal þeirra sem koma á sjúkrahús með alvarlega hjartaverki en meðal annarra, að því er fram kemur í GP. Í rannsókninni voru bornir sam- an tveir hópar, annars vegar 1.799 manns á aldrinum 45–70 ára sem höfðu fengið hjartaáfall og hins vegar 2.339 manns á sama aldri. Í ljós kom að þeir sem höfðu fengið læknishjálp vegna þunglyndis áttu þrisvar sinnum frekar á hættu að fá hjartaáfall en hinir. Áhættan jókst eftir því hve oft viðkomandi hafði verið lagður inn vegna þunglyndis. Ef manneskja hafði verið lögð inn fjórum sinnum vegna þunglyndis var áhættan sjöföld á við þann sem aldrei hafði verið lagður inn. Áhættan var fyrir hendi þótt ára- tugir liðu á milli þunglyndisins og hjartaáfallsins. Þunglyndisköst hættuleg hjartanu Morgunblaðið/Ásdís  HEILSA Ein af hverjum fimm konum sem máta föt í verslunum kaupir þau á meðan sjö af hverjum tíu körl- um koma í verslun, máta og kaupa. Um þetta er fjallað í vefútgáf- unni Nettavisen.no Karlar eru markvissari þegar þeir fara í búðarleiðangur en konur fremur að leita eftir til- breytingu með því að kíkja í búð- ir. Ástæðan fyrir verslanaleið- angri er oft ólík hjá kynjunum. Konur eru kannski að dreifa hug- anum frá amstri dagsins á meðan karlar fara til að ná í eitthvað sem þá vantar. Konur máta en karlar kaupa  KYNIN Morgunblaðið/Arnaldur

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.