Morgunblaðið - 10.09.2005, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 2005 39
UNDANFARIÐ hefur framganga
Hjörvars Steins Grétarssonar (1926)
vakið mikla athygli enda hefur hann
einungis tólf ára gamall tryggt sér
rétt til að taka þátt í landsliðsflokki
Skákþings Íslands á næsta ári. Þessi
árangur þýðir að hann getur orðið
Íslandsmeistari í skák á næsta ári
sem er svipað því þegar knatt-
spyrnulið í fyrstu deild vinnur sér
rétt að ári til að taka þátt í efstu deild
Íslandsmótsins í knattspyrnu. Sumir
fjölmiðlamenn virðast halda að
Hjörvar sé orðinn landsliðsmaður í
skák með þessum árangri sínum en
það stenst ekki þar eð rétt eins og
knattspyrnulið sem vinnur sér rétt
til að taka þátt á meðal þeirra bestu
hefur árangur Hjörvars það ekki
óumflýjanlega í för með sér að hann
verði valinn í landsliðið. Eigi að síður
er árangur hans eftirtektarverður og
vonandi heldur hann áfram að vaxa
og dafna sem skákmaður.
Á þetta er hér minnst þar sem úti í
hinum stóra heimi virðast undra-
börnin spretta upp eins og gorkúlur.
Misjafnt er hvaðan undrabörnin
koma en sé rennt yfir lista þeirra 20
stigahæstu skákmanna heims sem
eru tvítugir eða yngri kemur í ljós að
flestir þeirra eru frá A-Evrópu og þá
aðallega frá lýðveldum sem áður til-
heyrðu Sóvetríkjunum. Þannig eru
fjórir Rússar á listanum, jafnmargir
Úkraínumenn og sami fjöldi Azera.
Stigahæstur af ungmennunum er
Azerinn Teimour Radjabov (2.682)
en sá yngsti er hinn 15 ára Sergey
Karjakin (2.645) frá Úkraínu. Sá
stigalægsti á listanum er Azerinn
Gadir Guseinov með 2.585 stig. Að
sjálfsögðu segja stig svo ungra skák-
manna ekki allt um möguleika þeirra
til að verða þeir bestu í heimi og t.d.
má nefna það að undrabarnið norska,
hinn 15 ára Magnus Carlsen, er ekki
á listanum en hann hefur 2.528 stig.
Það væri hægt að telja lengi áfram
þá sem eru ekki á listanum en munu
án efa verða á meðal þeirra bestu í
heimi á næstu árum. Hins vegar má
slá því föstu að fjölmennustu ríki
heims, Kína og Indland, hljóti að
eignast fleiri skákmenn í fremstu röð
innan nokkurra ára. Indverjar hafa í
dag sjálfsögðu Vishy Anand en hann
er sigurstranglegur í heimsmeistara-
móti FIDE sem hefst innan tíðar í
Argentínu. Hinn 24 ára Saskhiran
(2.652) og heimsmeistari unglinga,
hinn 19 ára Harikrishna (2.645), eru
einnig að banka á dyrnar á meðal
þeirra allra bestu. Heimsmeistari
kvenna í skák um langt árabil kom
frá Kína þar til fyrir skömmu og kín-
verska liðið í kvennaflokki hefur oft
unnið ólympíumótið í skák. Karlpen-
ingurinn kínverski hefur verið öllu
rólegri í tíðinni og hefur engum
þeirra tekist að verða á meðal þeirra
allra bestu þó að margir þeirra hafi
yfir 2.600 skákstig. Fyrir nokkrum
árum kom fram á sjónarsviðið undra-
barnið Bu sem vann marga sigra
þegar hann var fimmtán ára gamall
árið 2000. Frami hans hefur ekki ver-
ið eins skjótur og menn bjuggust við
þá en eigi að síður hefur hann nú
2.632 stig.
Það lítur út fyrir að Kínverjar séu
að eignast nýtt öflugt undrabarn sem
heitir Wang Hao (2.512). Þrátt fyrir
háa stigatölu hefur hann engan titil
fengið á vegum FIDE en á hinn bóg-
inn hefur hann sýnt listir sínar fyrir
utan landsteina kínverska alþýðu-
veldisins. Á alþjóðlegu móti sem lauk
fyrir skömmu í Malasíu þar sem 13
stórmeistarar tóku þátt fékk Wang
þessi hvorki fleiri né færri en tíu
vinninga af ellefu mögulegum. Í loka-
umferðinni tefldi hann með svörtu
gegn ástralska stórmeistaranum Ian
Rogers sem þurfti á sigri að halda til
að ná öðru sætinu.
Hvítt: Ian Rogers (2.569)
Svart: Wang Hao (2.512)
1. c4 e5 2. Rc3 Rf6 3. Rf3 Rc6 4. e3
Bb4 5. Dc2 d6 6. a3 Bxc3 7. Dxc3 e4
8. Rg1?!
Rökréttara var að hafa riddarann
á miðborðinu með því að leika 8. Rd4
en að leika honum aftur upp í borð.
8. … Re5 9. b4 b6!
Góður leikur sem gefur svörtum
kost á að skásetja biskup sinn. Hvít-
ur bregst nú rangt við sem leiðir tafl
hans í miklar ógöngur.
10. f4? exf3 11. Rxf3 Re4!
Svartur hrekur nú hvíta kónginn á
vergang.
12. Dd4 Rxf3+ 13. gxf3 Dh4+ 14.
Ke2 Df2+ 15. Kd3 Dxf3 16. Dxg7
Bf5! 17. Dxh8+ Ke7 18. Dg7
Svartur hefur fórnað hrók en vinn-
ur með næsta leik drottningu hvíts
gegn því að fórna öðrum hrók til.
18. … Hg8!? 19. Dxg8 Rf6+ 20.
Kc3 Rxg8 21. Hg1 Df2! 22. Hxg8
Dxf1
Hvítur ræður ekki við veikleikana
á hvítu reitunum enda menn hans illa
samæfðir og er það athyglisvert að
hvorki hrókurinn né biskupinn á
drottningarvæng hreyfa sig alla
skákina.
23. e4 Be6 24. Hg3 Dxc4+ 25. Kb2
Dxe4 26. Hc3 Kd7 27. d3 De2+ og
hvítur gafst upp. Fróðlegt verður að
fylgjast með Wang í framtíðinni en
nánari upplýsingar um þetta mót í
Malasíu er að finna á heimasíðu
mótsins, http://www.malaysiaopen.-
net/, en einnig er að finna áhugaverð-
an pistil um það á heimasíðu chess-
base, www.chessbase.com.
Róbert gengur vel í Búdapest
Róbert Harðarson (2.361) gaf sér
ekki mikinn tíma til að hvíla sig eftir
erfitt Norðurlandamót í skák sem
lauk fyrir skömmu í Finnlandi held-
ur dreif hann sig til Ungverjalands
þar sem hann teflir í fyrstu laugar-
dagsmótaröðinni. Honum hefur
gengið vel og þegar þessar línur eru
ritaðar er hann á meðal efstu manna
með 3½ vinning af 5 mögulegum.
Vefsíðan www.skak. fylgist með
gangi mála í Búdapest og þaðan er
hægt að komast inn á heimasíðu
mótshaldaranna.
Íslandsmótið í atskák
fer fram um helgina
Á morgun mun það ráðast hverjir
það eru sem tefla til úrslita á Íslands-
mótinu í atskák en það hófst í gær,
föstudaginn 9. september. Teflt er
eftir útsláttarfyrirkomulagi og gátu
allir tekið þátt í því sem skráðu sig
tímanlega til þátttöku. Teflt er í
húsakynnum Taflfélags Reykjavíkur
og er öllum velkomið að koma og
fylgjast með gangi mála. Nánari
upplýsingar um dagskrá mótsins er
að finna á vefsíðunni www.skak.is.
Eru undrabörn fram-
leidd á færibandi?
SKÁK
UM SKÁK OG UNDRABÖRN
Hinn 16 ára Wang Hao með sigur-
launin á mótinu í Malasíu.
HELGI ÁSS GRÉTARSSON
daggi@internet.is
FRÉTTIR
Jóhannes Ásgeirsson hdl., lögg. fasteignasali
F A S T E I G N A S A L A
SUÐURLANDSBRAUT 10, 2. HÆÐ F. OFAN BLÓMASTOFU FRIÐFINNS, 108 REYKJAVÍK
SÍMI 533 1616 FAX 533 1617
FRÓÐENGI 14 – ÚTSÝNI
OPIÐ HÚS MILLI KL. 16 OG 18
Björt og falleg íbúð á efstu hæð í 3ja hæða fjölbýli ásamt stæði í bílageymslu.
Fallegt útsýni. Flísalögð forstofa, góðir skápar, 3 herbergi með skápum, baðher-
bergi með baðkari, rúmgóð stofa/borðstofa m. útgengi á góðar suðursvalir, eld-
hús með ljósum innréttingum og góðum borðkrók. Þvottahús innaf eldhúsi. Góð
sameign. Stutt í alla þjónustu m.a. Borgarholts- og Engjaskóla, leikskóla,
Spöngina o.fl. Verð 22,9 millj.
OPIÐ Á LUNDI FRÁ KL. 12-14 LAUGARD. OG SUNNUD.
Vörubílar
Carnehl. Til sölu nánast nýr
Carnehl malarvagn. Hardox
skúffa með seglyfirbreiðslu, lyfti-
öxull. Gerður fyrir háan stól eða
framdrifsbíl. Til afhendingar
strax. Sími 898 3612.
Eurotrailer. Nýir 2ja öxla malar-
vagnar á lager. Gámagrindur 3ja
öxla á tvöföldu og vélavagnar
með skömmum fyrirvara.
Th. Adolfsson ehf., s. 898 3612.
Ökukennsla
Ökukennsla Reykjavíkur ehf.
Ökukennsla akstursmat.
Gylfi K. Sigurðsson
Suzuki Grand Vitara,
892 0002/568 9898.
Snorri Bjarnason
BMW 116i, nýr,
892 1451/557 4975.
Sverrir Björnsson
Volkswagen Passat, '05
892 4449/557 2940.
Vagn Gunnarsson
Mersedes Benz,
894 5200/565 2877.
Ævar Friðriksson
Toyota Avensis '02,
863 7493/557 2493.
Gylfi Guðjónsson
Subaru Impreza,
696 0042/566 6442.
Tjaldvagnar
Fellihýsi, tjaldvagnar og fleira.
Geymum fellihýsi og tjaldvagna
í upphituðu rými í Borgarfirði. Að-
eisn 95 km frá Reykjavík. Sann-
gjarnt verð.
Upplýsingar s. 577 4077.
Lyftarar
NH brettalyftur, lyftuborð, lyftur
og ýmis tæki til að létta störfin.
Ávallt til á lager. Léttitækni ehf -
Stórhöfða 27, www.lettitaekni.is.
s. 567 6955.
Hreingerningar
Fyrirtæki, stofnanir og heimili
Við hreinsum allar tegundir af
gardínum. Gerum tilboð.
Upplýsingar í síma 897 3634.
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Nissan Forklift Europe hefur
falið Léttitækni ehf. að annast
sölu og þjónustu á nýrri kynslóð
Nissan lyftara á Íslandi. Kynning-
arverð í gangi. Verð: 7.500 krónur
með vsk.
Ótal útfærsur á nettum lyfturum
og stöflurum. Léttitækni ehf -
Verslun Stórhöfða 27. Allar upp-
lýsingar á www.lettitaekni.is eða
í síma 567 6955.
Smáauglýsingar
sími 569 1100
Stokkseyri | Gunnar Gränz
alþýðulistmálari á Selfossi
heldur nú septembersýn-
ingu í Menningarverstöð-
inni Hólmaröst á Stokks-
eyri. Gunnar hefur haldið
fjölda einkasýninga og sam-
sýninga um dagana, en síð-
ustu árin hefur hann helgað
sig málaralistinni alfarið.
Hann er einn af stofnendum
Myndlistarfélags Árnesinga
og heldur úti vef með mynd-
um sínum. Á sýningunni
sýnir Gunnar myndir unnar
með margvíslegri tækni, vatnslitum,
olíu, plastefnum, svo og skúlptúra.
Sýningin er á kaffistofunni á þriðju
hæð Menningarverstöðvarinnar,
sömu hæð og Draugasetrið. Aðspurð-
ur sagði Gunnar nábýlið við móra og
skottur leggjast vel í sig. Sýningin er
opin frá 14–18 um helgar.
Gunnar Gränz sýnir í
Menningarverstöðinni
Morgunblaðið/Jóhann Óli
Gunnar Gränz stillir sér upp á sýningunni.
LANDSSAMBAND sjálfstæðis-
kvenna hefur sent frá sér yfirlýsingu
þar sem fagnað er ákvörðun Þor-
gerðar Katrínar Gunnarsdóttur
menntamálaráðherra að bjóða sig
fram til embættis varaformanns
Sjálfstæðisflokksins á landsfundi
flokksins sem haldinn verður 13.–16.
október nk.
„Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
hefur átt sæti á Alþingi Íslendinga
frá árinu 1999. Hún tók sæti í rík-
isstjórn Íslands 31. desember 2003
og hefur gegnt embætti mennta-
málaráðherra frá þeim tíma.
Þorgerður Katrín hefur í störfum
sínum fyrir Sjálfstæðisflokkinn á
síðustu árum starfað ötullega í anda
sjálfstæðisstefnunnar og fylgt henni
eftir af festu og öryggi. Hún hefur
axlað síaukna ábyrgð á vettvangi
stjórnmála og sýnt að hún er trausts-
ins verð. Þorgerður Katrín nýtur
virðingar og víðtæks stuðnings með-
al flokksmanna.
Nú hefur Þorgerður Katrín lýst
því yfir að hún sækist eftir að gegna
embætti varaformanns Sjálfstæðis-
flokksins.
LS telur mikilvægt að fulltrúar
karla og kvenna gegni æðstu emb-
ættum innan flokksins.“
Fagna framboði
Þorgerðar Katrínar