Morgunblaðið - 15.09.2005, Qupperneq 1
Hvaðan fá
börn járnið?
Járninnihald í barnagrautum
umfram leyfileg mörk | Daglegt líf
Viðskipti, Íþróttir og Málið
Viðskipti | Erlend skuldabréf Sá hlær best ... Gagnaflutningar
Íþróttir | Valskonur vekja athygli Keane frá í þrjár vikur
Málið | Valdir dagskrárliðir Unnur Birna Bókaveisla við Tjörnina
TÍSKU
DAGAR
15.-25.
SEPTE
MBER
NÝTT
KORTATÍMABIL
OPIÐ TIL
21 Í KVÖLD
AURSKRIÐA féll á íbúðarhverfi í Björgvin í Noregi í fyrrinótt. Við það lést
kona á sextugsaldri og níu slösuðust, þar á meðal fjögurra ára barn. Skrið-
an, sem var um 40 metra breið, setti daglegt líf Björgvinjarbúa úr skorðum
og var fólki ráðlagt að halda sig heima, enda margir vegir lokaðir.
Björgunarmenn á staðnum þurftu að grafa fórnarlömbin upp úr aurnum
með höndunum og skóflum. Ekki var hægt að notast við gröfur eða annan
búnað því illfært var að rústunum. Slökkviliðsstjóri borgarinnar sagði
þetta hafa verið erfitt og hættulegt verk.
Björgunarmennirnir grófu upp fjögurra ára gamalt barn og konu á þrí-
tugsaldri, en þau höfðu hlotið alvarleg meiðsl. Annar illa slasaður maður
var einnig grafinn upp úr rústunum. Konan sem lést fannst um hálf-
áttaleytið að staðartíma í gærmorgun en aurskriðan féll um klukkan 1.30,
23.30 að ísl. tíma. Fyrstu slökkviliðsmennirnir voru mættir á staðinn aðeins
örfáum mínútum síðar.
Kona lét lífið í
skriðu í Björgvin
Reuters
Skriðan sem féll á raðhúsin í Björgvin var um 40 metra breið. Áfram var
spáð rigningu í gær en þó virtist sem mesti vatnselgurinn væri að minnka.
Stokkhólmi. AFP. | Dýrustu pylsur
heims verða boðnar falar í Stokk-
hólmi í dag og er það liður í verkefni
sem vekja á athygli á mismunandi
kjörum manna í heiminum. Verk-
efnið er haldið í tilefni af leiðtoga-
fundi Sameinuðu þjóðanna í New
York sem nú stendur yfir.
Hefðbundnar pylsur, sem og græn-
metispylsur, verða í dag seldar í mið-
borg Stokkhólms í sérstökum sölubás
fyrir 999 sænskar krónur stykkið, en
það nemur rúmum 8.000 íslenskum
krónum. Markmiðið er að vekja at-
hygli á fátækt í heiminum með því
að notast við einfaldar líkingar. Með
því að selja pylsur, sem er eitt af
grunnatriðum sænska fæðuhrings-
ins, á uppsprengdu verði vonast þeir
sem standa að baki verkefninu til
þess að fólk geri sér grein fyrir því
hvernig það er að eiga ekki nægan
pening fyrir helstu nauðsynjum.
Samkvæmt skýrslu Þróunaráætl-
unar Sameinuðu þjóðanna (UNEP)
er rúmur milljarður manna í heim-
inum sem hefur innan við 60 krónur
til að lifa af á dag. Klas Wal-
denstroem, talsmaður UNEP á
Norðurlöndum, segir að ekki sé að-
eins um það að ræða að fólk eigi í
fjárhagserfiðleikum, heldur sé um
lamandi fátækt að ræða. „Fyrir
þann sem lifir á 60 krónum á dag er
það jafnómögulegt að kaupa pylsu á
venjulegu verði, 200 krónum, eins
og það er fyrir meðal Svía að kaupa
sömu pylsu á 8.000 krónur,“ segir
hann.
Heimsins dýrustu pylsur
HLUTABRÉF
lækkuðu í verði í
Kauphöll Íslands í
gær, þriðja dag-
inn í röð. Lækk-
unin í gær var enn
meiri en í fyrra-
dag en úrvalsvísi-
tala Kauphallar-
innar lækkaði um
2,2% í gær, 1,8% í
fyrradag og 1,0% á mánudaginn. Sér-
fræðingar á fjármálamarkaði segja
ekkert óeðlilegt við það að verð á
hlutabréfum lækki nú. Lækkunina
megi meðal annars skýra sem við-
brögð við þeirri umræðu sem verið
hefur um efnahagsumhverfið undan-
farna daga. Einnig er nefnt að verð
hlutabréfa hafi verið orðið hátt.
Slæmar fréttir ekki borist
Þórður Pálsson, forstöðumaður
greiningardeildar KB banka, segir að
ekki hafi borist slæmar fréttir úr
rekstri fyrirtækjanna. Þvert á móti
megi gera ráð fyrir að uppgjör flestra
skráðra fyrirtækja á þriðja ársfjórð-
ungi verði góð. Enn sé töluvert langt í
að þau uppgjör verði birt og hugs-
anlegt að einhverjar lækkanir verði
fram að því. „Ég tel ólíklegt að vænt-
ingar fjárfesta snúist alfarið við nema
að slæmar fréttir berist af rekstri fyr-
irtækjanna,“ segir Þórður.
Skapar kauptækifæri
Ingólfur Bender, forstöðumaður
Greiningar Íslandsbanka, segir að
lækkunin í Kauphöllinni nú svipi
nokkuð til þess sem gerðist í október í
fyrra. Nokkur lækkun hafi þá orðið á
gengi hlutabréfa, tímabundið, og eng-
in ástæða sé til að ætla annað en að
svo verði einnig nú. „Lækkunin skap-
ar kauptækifæri sem mun væntan-
lega leiða til þess að gengi bréfa
hækki að nýju,“ segir Ingólfur.
Að sögn Eddu Rósar Karlsdóttur,
forstöðumanns greiningardeildar
Landsbanka Íslands, er næsta víst að
umræðan um þenslu og ýmis hættu-
merki í efnahagslífinu að undanförnu
hafi áhrif á fjárfesta og auki sveiflur á
hlutabréfamarkaði. „Ég hef hins veg-
ar enga ástæðu til að ætla að hrun sé
framundan á þessum markaði,“ segir
hún.
Hlutabréf
lækkuðu
þriðja dag-
inn í röð
Efnahagsumræðan | B1
KOFI Annan, framkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna, varaði í ræðu
sinni á leiðtogafundi í tilefni af 60 ára
afmæli samtakanna í gær við því að
„uppsafnaður vandi örbirgðar“ hefði
skapast í heiminum. Skort hefði
samvinnu um að berjast markvisst
gegn þessum vanda. Annan minnti
samt á að geysimikill árangur hefði
náðst síðasta aldarfjórðung við að
draga úr fátækt en leiðtogar alþjóða-
samfélagsins yrðu að standa við fög-
ur fyrirheit sín undanfarin ár.
Annan gagnrýndi að ekki hefði
tekist samkomulag um aðgerðir til
að sporna við frekari útbreiðslu ger-
eyðingarvopna. „Þetta er ófyrirgef-
anlegt,“ sagði hann. „Gereyðingar-
vopn eru mikil ógnun við okkur öll,
einkum í veröld sem er hótað af
hryðjuverkamönnum sem láta til sín
taka um allan heim og láta ekkert
stöðva sig.“
George W. Bush Bandaríkjafor-
seti sagði þjóð sína leggja áherslu á
að berjast gegn fátækt í heiminum,
að sögn AFP-fréttastofunnar. „Það
er siðferðisleg skylda okkar að
hjálpa öðrum,“ sagði forsetinn.
Hann sagði Bandaríkin reiðubúin að
taka þátt í að fella niður allar nið-
urgreiðslur, tolla og aðrar viðskipta-
hindranir í landbúnaði sem koma
hart niður á kjörum margra fátækra
þjóða og meina þeim aðgang að
mörkuðum ríkra. „Með því að efla
viðskipti ýtum við undir vonir og
fjölgum tækifærum hvarvetna í
heiminum og veitum um leið hryðju-
verkamönnum, sem notfæra sér
reiði og andúð fólksins, þung högg,“
sagði Bush.
Niðurstaðan varð útvötnun
Samkomulag náðist um málamiðl-
un í öryggisráðinu á þriðjudag eftir
sex mánaða reiptog um metnaðar-
fullar tillögur Annans sem vill gera
róttækar umbætur á skipulagi og
starfi samtakanna. En niðurstaðan
varð útvötnun á tillögunum. Gagn-
rýnt var m.a. í gær að ekki skyldu
vera samþykktar tillögur um nýjar
aðgerðir gegn fátækt. Ekki náðist
heldur samkomulag um aukna
áherslu á mannréttindi og sameig-
inlega skilgreiningu á hryðjuverk-
um. Sumir múslímaleiðtogar neita að
fordæma hryðjuverk palestínskra
vígahópa gegn Ísraelum og segja að
um lögmætan hernað sé að ræða.
Kofi varaði
við örbirgð
í heiminum
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
George Bush: „Það er siðferðisleg
skylda okkar að hjálpa öðrum.“
Reuters
Kofi Annan: „Uppsafnaður vandi
örbirgðar hefur skapast.“
STOFNAÐ 1913 249. TBL. 93. ÁRG. FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is