Morgunblaðið - 15.09.2005, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 15.09.2005, Blaðsíða 28
28 FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN ÉG ER ekki sammála því – og þar tala ég fyrir munn stórs hóps félaga í Snarfara – að öryggiskröfur Sigl- ingastofnunar séu svo stífar að þeir sem eiga skemmtibáta þurfi að hrekjast á minni báta sem ekki þarf að skoða. Miðað við umfjöllun um Snarfara og öryggismál skemmtibáta í fjölmiðlum undanfarin tvö ár mætti halda að í þeim fé- lagsskap séu eingöngu menn sem sætti sig engan vegin við gild- andi reglur og treysti sér þar af leiðandi ekki til að fara eftir þeim. Hið rétta er að þetta er tiltölulega fámennur hópur sem hefur mjög hátt. Það eru ýmsar ástæður fyrir því að menn kaupa frekar lít- inn bát en stóran, svo sem mikill verðmunur. Samt dettur mér ekki í hug að hafna því að í einhverjum tilfellum séu menn að reyna að sleppa undan skoð- unarreglum Siglingastofnunar. Á hinn bóginn eru einnig margir með sama eða jafngóðan björgunarbúnað í bát undir 6 m eins og krafist er í bát sem er yfir 6 m á meðan aðrir eru ekki með tilskilinn búnað í skoð- unarskyldum býsna stórum bátum. Ég get því ekki tekið undir það að öryggið sé í fyrirrúmi hjá öllum sem gera út skemmtibáta. Það sést best á öllum þeim fjölda báta sem ekki hafa gilt haffærisskírteini. Sem betur fer hefur ekki orðið al- varlegt slys í 30 ára sögu Snarfara fyrr en það hörmulega slys sem varð um síðustu helgi. En það þýðir ekki það að aldrei hafi hurð skollið nærri hælum. Ég hef verið meðlimur í Snarfara í sex ár og gert út skemmti- bátinn Golu í jafn langan tíma. Ef frá er talið slysið um helgina, hafa á síð- ustu sex árum orðið þrjú óhöpp sem hefðu getað orðið stórslys. Það var þegar bátur strandaði í Laugarnesi, bátur strandaði í Hvammshöfða og bátur keyrði á bryggjuna í Þerney og sökk. Þetta sýnir að ekki veitir af að hafa tilskilinn öryggisbúnað í lagi, því enginn veit hver verður næstur. Það er mikilvægt að láta skoða skemmtibáta, en menn eiga ekki að gera það sjálfir eftirlitslaust. Mér líst vel á þá tillögu Siglingastofnunar að menn geri þetta sjálfir, en fjórða hvert ár skoði skoðunarstofa og beitt verði skyndiskoðunum. Eðlilega hafa ekki allir skemmtibátaeigendur mikla þekkingu á bát- um eða siglingum, því sjómennska, eins og svo margt annað, lærist með reynslu. En því miður eru margir sjálf- skipaðir sérfræðingar í okkar röðum þar sem kunnáttan ekki alveg í samræmi við getuna. Því mætti spyrja hvort um sé að kenna van- þekkingu eða kæruleysi hjá þeim ekki standast örygg- iskröfur. Ég fagna því ef Siglingastofnun ætlar að athuga hvort hægt sé að hagræða tilhögun skoðana til að lækka kostnað við þær. En ég geri ekki lítið úr séríslenskum kröfum varðandi björgunarbáta. Margar endurbætur og framfarir í öryggi björgunarbáta hafa verið gerðar vegna kröfu um úrbætur frá Íslandi. Ég vil ekki fullyrða að óþarfi sé að skoða björgunarbátinn árlega þó svo að sumir af mínum félögum í Snar- fara geri það. Björgunarbáturinn er jú það eina sem ég hef til að fleyta mér og mínum ef Gola flýtur ekki lengur. En vissulega fagna ég því ef rannsóknir Siglingastofnunar leiddu í ljós að lengra mætti líða á milli skoðana. Á þessu ári kostaði rúm 60.000 kr. að skoða björgunarbátinn hjá mér. Það var stór skoðun, m.a. var skipt um rafhlöður í neyðarsendi, neyðarblys og hamar í sjálfvirkum sleppibúnaði, en það eru nokkuð dýr- ir hlutir. Félagi minn var með minni skoðun og greiddi hann 34.000 kr. Skoðunin hleypur því á 34-65 þús. eftir eðli skoðana. Helvíti mikill pen- ingur, en ekki svo dýr líftrygging fyr- ir þá sem eru um borð. Mér er kunn- ugt um að það er hægt að fá leigða björgunarbáta og kostar það 60.000 krónur á ári og er skoðun innifalin, en leigusamning þarf að gera til fimm ára. Ég vona að þetta hörmulega slys um helgina og umræða um öryggi við siglingu skemmtibáta undanfarið verði ekki til þess að farið verði að íþyngja okkur með auknum kröfum um búnað. Betra væri að byrja á að fylgja því eftir að allir fylgi þeim reglum sem þegar eru í gildi. Nauð- synlegt er að björgunarbátur og slökkvitæki séu yfirfarin árlega, skipt um rakettur og neyðarblys á þriggja ára fresti, sjúkrakassi yf- irfarinn árlega. Ýmis annar búnaður þarf einnig að vera til staðar sem ekki þarf að endurnýja kerfisbundið. Kostnaður við þetta allt, þar með tal- in skoðun á bát og skipagjöld, er að meðaltali um 100 þúsund kr. á ári m. vsk. Krafist er svipaðs öryggisbúnaðar í skemmtibát og í fiskibát af sam- bærilegri stærð, eðli málsins sam- kvæmt. Slysahættan er sú sama, s.s. við árekstur við rekald, íkveikju og strand. Það sem krafist er umfram í fiskibát er sjálfvirkur sendir tilkynn- ingarskyldu, flotbúningar og 6 kílóa slökkvitæki í stað 2 kílóa í skemmti- bát. Margir eigendur minni skemmti- báta eru þó með 6 kg slökkvitæki og flotbúninga og dæmi eru um að menn séu með sjálfvirkan sendi tilkynning- arskyldu í skemmtibátum. Skemmtibátaeigendur eru síður að flækjast á sjó í jafn vondum veðrum og fiskibátar og því eru gerðar mun meiri kröfur um styrkleika og annað þegar fiskibátur er smíðaður. Enda er fiskibátur mun dýrari nýsmíði en skemmtibátur af sambærilegri stærð, þrátt fyrir að mun meiri íburð- ur og betri aðbúnaður sé í vist- arverum skemmtibáta. Öryggismál skemmtibáta Árni Pálsson fjallar um öryggisbúnað skemmtibáta ’Mér líst vel á þá til-lögu Siglingastofnunar að menn geri þetta sjálfir, en 4. hvert ár skoði skoðunarstofa og beitt verði skyndiskoð- unum.‘ Árni Pálsson Höfundur gerir út skemmtibátinn Golu RE Það rifjast margt upp þegar við hugsum til ömmu Ingu. Þegar við vorum börn var heimili ömmu og afa okkar annað heimili og við eigum margar skemmtilegar minningar frá þeim tíma. Amma var trúuð kona og lagði áherslu á að við færum með bæn- irnar okkar á kvöldin. Hún kenndi okkur bænarunu og þar sem við vissum að hver einasta bæn væri algerlega nauðsynleg urðu foreldrar okkar að læra bænirnar líka. Við munum eftir mörgum sólríkum dögum í stóra garðinum, þar sem öll frænd- systkinin léku sér á meðan amma og afi unnu í garðinum. Stundum hjálpuðum við börnin til og það var alveg jafn gaman. Við munum eftir heimagerðu loftkökunum sem einkenndu jóla- undirbúninginn og við höfum ekki fengið að smakka síðan á síðustu jólunum sem amma bakaði. Við munum eftir glaðlegum og hlýjum móttökum og brosinu sem alltaf mætti okkur þegar við komum til hennar eða hún til okkar. Við munum eftir súkkulaðirúsínum í skápnum sem við freistuðumst oft til að stelast í en vitum núna að það var það sem til var ætlast. Amma vildi alltaf að manni liði vel, og því munum við eftir henni sem óeigingjarnri, lífsglaðri, frá- bærri ömmu. Það var mikil gjöf að eyða æsk- unni með ömmu Ingu. Takk fyrir allt, elsku amma. Þín barnabörn, Hrönn, Hilmar og Snorri Jökull. INGA JÓHANNA ÓLAFSDÓTTIR ✝ Inga JóhannaÓlafsdóttir fæddist í Reykjar- firði í Norður-Ísa- fjarðarsýslu 22. júlí 1923. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð laugar- daginn 3. septem- ber síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Kópavogs- kirkju 13. septem- ber Amma í Kópavogi var einstök.Hún hafði ómetanlegan hæfileika til að gera gott úr öllu, svo að ekki var annað um að ræða en að hlæja með henni að því sem gengið hafði á. Í leikjunum á Kópa- vogsbraut 86 gekk nú oft á ýmsu og þar var iðulega mikið líf og fjör. Heima hjá ömmu og afa var sannarlega best. Amma var líka best. Minningarnar hellast yfir, nú þegar hún hefur kvatt okkur. Þeim fylgir tregi, en yfir þeim er ljósið sem fylgdi ömmu hvar sem hún var. Í sólskini að stússast í garðinum, í eldhúsinu að þeyta rjóma eða vaska upp, inni í stofu með hannyrðir eða að vökva blómin. Ömmu féll aldrei verk úr hendi, en hún hafði þó alltaf tíma til að sinna okkur krökkunum. Við spiluðum á spil og skiptumst á að lesa upphátt úr blöðum og bókum, en það endaði ósjaldan í miklum hlátri. Stundum sagði hún skondnar sögur af hestaferð- um og gömlum dögum. Hún lum- aði líka á sætindum í eldhússkáp- unum, sem hvergi fengust annars staðar. Maður kom aldrei að tóm- um kofunum. Ferðalög með ömmu voru líka mjög eftirsókn- arverð, því hún var bara svo skemmtileg. Ekki eru þær síðri minning- arnar um hana uppáklædda og glæsilega á mannamótum, leik- andi á als oddi. Hún amma var sú jákvæðasta, örlátasta og kátasta af öllum. Hún hafði sérlega góða nær- veru og laðaði hvarvetna að sér fólk, þeir sem þekktu hana taka hiklaust undir það. Það eru forréttindi að hafa átt hana ömmu. Ég sakna hennar og þakka fyrir allt það sem hún gaf. Ég trúi því að jákvæðnin, húm- orinn og dugnaðurinn sem ein- kenndi hana lifi áfram í fjölskyldu okkar um ókomna tíð. Hlín. MINNINGAR Í FJÖLMIÐLUM hefur verið til umræðu starfsmannaskortur á leik- skólum og reyndar einnig á frístunda- heimilum Reykjavík- urborgar. Hafa skýringar vegna þessa verið margar en fáar fjallað um raunveruleg- an vanda leikskólanna. Þar þarf að verða breyting á og umfjöllun að verða af ábyrgð og ígrunduð til lengri framtíðar. Það er ljóst að bæði foreldrar leik- skólabarna og stjórn- endur leikskólanna vilja auka við mennt- unarkröfur sem gerðar eru til starfsmanna leikskólanna en það er rétta leiðin til þess að stuðla að stöðugleika í starfsmannahaldi. Leikskólakennarar hafa undanfarið horfið til annarra starfa. Ástæður þessa eru að þeir fá svipuð laun eða hærri í öðrum störfum sem þeim bjóðast. Leikskólakennarar hafa jafnvel bætt við sig einu námsári við Kennarahá- skóla Íslands til þess að starfa við grunnskóla en þar eru betri launa- kjör. Þetta launabil verður að leið- rétta. Það er á valdi kjörinna borg- arfulltrúa að ákvarða að á fyrsta skólastiginu, leikskólunum ráðist til starfa fólk sem hefur menntun og reynslu af störfum með börnum. Svo virðist sem lítið hafi þokast í þessum málum undanfarna áratugi. Lausn þessa máls, stöðugleiki í starfsmannahaldi leikskólanna, er það grundvallaröryggi sem allir reykvísk- ir foreldrar setja efst á forgangslista. Án þess öryggis geta þeir ekki staðið við eigin skuldbindingar auk þess sem börnin þurfa öruggt leikumhverfi undir handleiðslu reyndra starfsmanna. Einnig ber að standa við þau loforð sem gefin hafa verið þannig að tryggt sé að öll reykvísk börn sitji við sama borð. Á meðan óvissa og óör- yggi ríkir í þessum mál- um hjá leikskólum Reykjavíkurborgar er óþarfi að vera með yf- irboð nýrra loforða um gjaldfrjálsa leikskóla. Slík loforð sem ýjað hef- ur verið að hjá R- lista- flokkum er í raun ákvörðun um skatta- hækkanir og nýjar álög- ur á allt almennt launa- fólk. Foreldrar spyrja fyrst um öryggi og gæði þjón- ustunnar áður en þeir huga að verði. Þetta ber að hafa í huga þegar ákvarðanir eru teknar. Umræðan núna á því að vera um hvernig hægt sé að koma til móts við starfsfólk leik- skólanna. Leikskólar Reykja- víkur – rétta leiðin Ragnar Sær Ragnarsson fjallar um áhyggjur af ástandi í leik- skólum borgarinnar Ragnar Sær Ragnarsson ’Foreldrarspyrja fyrst um öryggi og gæði þjónustunnar áður en þeir huga að verði.‘ Höfundur er menntaður leikskóla- kennari og fyrrverandi sveitarstjóri. Jónína Benediktsdóttir: Sem dæmi um kaldrifjaðan siðblindan mann fyrri tíma má nefna Rockefeller sem Hare telur einn spilltasta mógúl spilltustu tíma Sturla Kristjánsson: Bráðger börn í búrum eða á afgirtu svæði munu naumast sýna getu sína í verki; þeim er það fyrirmunað og þau munu trúlega aldrei ná þeim greindarþroska sem líf- fræðileg hönnun þeirra gaf fyr- irheit um. Kristján Guðmundsson: Því miður eru umræddar reglur nr. 122/2004 sundurtættar af óskýru orðalagi og í sumum tilvikum óskiljanlegar. Sigurjón Bjarnason gerir grein fyrir og metur stöðu og áhrif þeirra opinberu stofnana, sem heyra undir samkeppnislög, hvern vanda þær eiga við að glíma og leitar lausna á honum. Þorsteinn H. Gunnarsson: Nauðsynlegt er að ræða þessi mál með heildaryfirsýn og dýpka umræðuna og ná um þessi málefni sátt og með hagsmuni allra að leiðarljósi, bæði núver- andi bænda og fyrrverandi. Aðsendar greinar á mbl.is www.mbl.is/greinar Hjarta mitt er harmi slegið. Hornsteinn lífs míns nú á braut. Hvorki get ég hreyft mig, legið, hellist yfir lífsins þraut. Mikið gafstu með gleði þinni, gjörsigraðir huga manns. Eftirlést í hverju sinni, birtu og hlýju sólargeislans. Þín dóttir Benta M. Briem. Elsku Magga frænka, okkur er afar mikill missir að þér, þú sem varst svo mikill áhrifavaldur í lífi okkar allra. Þú varst burðarstólpi fjölskyldunnar, hélst okkur saman eins og traustur klettur. Við gátum alltaf leitað til þín með það sem okkur lá á hjarta og þú hafðir ein- SESSELJA MARGRÉT MAGNÚSDÓTTIR ✝ Sesselja Mar-grét Magnús- dóttir fæddist í Reykjavík 28. jan- úar 1956. Hún lést á heimili sínu 28. ágúst síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Neskirkju 2. september. stakt lag á að fá mann til að sjá hlut- ina frá öðrum sjón- arhornum. Smitandi hlátur þinn og gríp- andi frásagnarhæfi- leikar þínir veittu manni innblástur í daglegu lífi. Þú varst svo létt í lund, gast alltaf slegið á létta strengi og hvar sem þú komst varstu hrókur alls fagnaðar. Okkur hlakkaði alltaf mikið til að sjá þig, faðma og knúsa því þú áttir svo mikið í okkur öllum. Hlýja þín, styrkur og kærleikur geislaði frá þér. Þú varst og verður áfram fyr- irmynd okkar systranna þar sem þú varst svo sterk og heilsteypt kona. Elsku Magga, við kveðjum þig með djúpum söknuði og sorg í hjarta. Hugur okkar er með ykkur, elsku Óli, Eiríkur, Anna Magga, Benta og Þóra. Ómaðu, sál mín, líkt og lind í haga. Í lygnum þínum speglast himininn með skýjadýrð og litaljóma sinn. Lofgjörð um vorið sé þín ævisaga. (Tómas Guðm.) Kristín Andrea, Gunnhildur og Brynhildur Þórðardætur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.