Morgunblaðið - 15.09.2005, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 15.09.2005, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR UPPSÖFNUÐ ÖRBIRGÐ Kofi Annan varaði í gær við því að „uppsafnaður vandi örbirgðar“ hefði skapast í heiminum. Skort hefði samvinnu um að berjast markvisst gegn þessum vanda. Annan minnti samt á að geysimikill árangur hefði náðst síðasta aldarfjórðung við að draga úr fátækt en leiðtogar al- þjóðasamfélagsins yrðu að standa við fögur fyrirheit sín undanfarin ár. Aurskriða í Noregi Kona lést og níu slösuðust er aur- skriða féll á raðhúsalengju í Björg- vin í Noregi í fyrrinótt. Björgunarmenn komu á staðinn nokkrum mínútum eftir að skriðan féll og grófu þeir fólk upp úr rúst- unum með höndum og skóflum. Var fólki sagt að halda sig heima, enda margir vegir lokaðir. Invent farma í Vatnsmýri Tillaga um að íslenska lyfjafyr- irtækið Invent farma verði gefið vil- yrði fyrir lóð í Vatnsmýrinni verður væntanlega samþykkt í borgarráði í dag. Invent farma hyggst setja upp rannsóknar- og þróunardeild í Vatnsmýrinni í tengslum við fyrir- hugað svæði Háskólans í Reykjavík. Hlutabréf lækkuðu enn Hlutabréf lækkuðu í verði í Kaup- höll Íslands í gær, þriðja daginn í röð. Lækkunin í gær var enn meiri en í fyrradag en úrvalsvísitala Kaup- hallarinnar lækkaði um 2,2% í gær, 1,8% í fyrradag og 1,0% á mánudag- inn. Íslandsveröld í bígerð Víglundur Kristjánsson vinnur að því að reisa svonefnda Íslandsveröld þar sem hægt verður að skoða og lifa sig inn í Íslandssöguna allt frá vík- ingaöld til vorra daga. Y f i r l i t Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi, orri@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir, ingarun@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkju- starf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is                                  ! " # $ %     &         '() * +,,,              GH -S N 05 08 00 2 Munið nýja stórglæsilega vörulistann okkar sem sýnir á yfir 500 síðum hið mikla úrval raflagnaefnis og lýsingarbúnaðar sem við höfum á boðstólum. Komið í heimsókn og fáið eintak. Í dag Fréttaskýring 8 Umræðan 26/28 Erlent 14/15 Bréf 27 Minn staður 16 Minningar 28/32 Höfuðborgin 18 Hestar 33 Akureyri 18 Myndasögur 36 Suðurnes 19 Dagbók 36/38 Austurland 19 Staður og stund 38 Neytendur 20/21 Leikhús 40 Daglegt líf 22 Bíó 42/44 Menning 23, 40/41 Ljósvakamiðlar 46 Forystugrein 24 Veður 47 Viðhorf 26 Staksteinar 47 * * * „ÉG HELD að það væri varhuga- vert að gera það akkúrat á þessari stundu þegar við erum að fá þetta verðbólguskot að því er virðist,“ segir Árni M. Mathiesen, verðandi fjármálaráðherra, aðspurður hvort hann telji ástæðu til að draga tíma- bundið úr gjaldtöku ríkisins af elds- neyti. Föst krónutala „Verðbólguskotið byggist á mik- illi eftirspurn og ef við færum að minnka gjaldtöku ríkisins á bensín- gjaldi þá myndi það auka frekar á eftirspurnina. Þannig að út frá því sjónarmiði einu væri það ekki skyn- samlegt eins og er.“ Rifjar Árni upp að ríkisstjórnin hafi fyrir fáeinum árum breytt gjaldtöku á bensíni úr því að vera prósentutala yfir í fasta krónutölu. „Það var gert við svipaðar aðstæð- ur og eru núna í olíuverðsmálum, en við aðrar aðstæður í efnahagslíf- inu hvað varðar þenslu og verð- bólgu, ef ég man rétt. Það er allt í lagi að halda því til haga að við er- um nýbúin að lækka gjaldið á dísil- olíunni í tengslum við breytingarn- ar á gjaldheimtu á dísilolíu og það var til lækkunar, vegna þess hversu óhefðbundin hlutföll hafa verið á mörkuðum á milli bensíns og dísil- olíu. Þannig að það væri mjög ósanngjarnt að halda því fram að ríkið væri á þessum tímum að ganga til hins ýtrasta í því að inn- heimta gjald af eldsneyti,“ segir Árni. „Ekki skynsamlegt að minnka gjaldtöku ríkisins af eldsneyti“ LAUNAGREIÐSLUR hafa að meðaltali hækkað um 10% á einu ári ef marka má tölur sem hagdeild Sambands íslenskra sveitarfélaga hefur tekið saman, en hækkunin er mjög mismunandi eftir einstökum sveitarfélögum eða allt frá því að vera tæp 5% að meðaltali á Vest- fjörðum og Norðurlandi vestra og upp í rúm 17% á Austurlandi. Hagdeildin bendir á að útsvars- tekjur séu rúm 60% af tekjum sveit- arfélaga og það skipti því verulegu máli fyrir afkomu þeirra hvernig tekjuþróunin sé í hverju sveitarfé- lagi fyrir sig. Bornar eru saman launagreiðslur fyrstu sex mánuðina í fyrra og fyrstu sex mánuðina í ár í saman- burði hagdeildarinnar. Það virðist einkum vera þrennt sem getur haft áhrif á tekjur einstakra sveitarfé- laga í þessum efnum, þ.e.a.s. hækk- andi tekjur einstaklinga, tilflutning- ur fólks milli sveitarfélaga og aukin atvinnuþátttaka. Fram kemur svo dæmi séu tekin að tekjur í Reykjavík hækka um 9,5% á þessu tímabili, en hækkunin á höfuðborgarsvæðinu að öðru leyti er næstum fjórðungi meiri eða rúm 12%. Þannig hækka tekjur í Garða- bæ um rúm 16% milli ára og í Bessastaðahreppi um 19%. 62% hækkun í Fljótsdalshreppi Meðalhækkun launa er mest á Austurlandi eins og fyrr sagði þegar litið er til einstakra landshluta eða rúm 17%, en það helgast fyrst og fremst af þeim miklu framkvæmd- um sem þar standa yfir núna. Þann- ig aukast launagreiðslur í Fljóts- dalshéraði um 36% milli ára og Fljótsdalshreppi um 62%. Í flestum sveitarfélögum austanlands er hækkunin hins vegar mun minni eða 12,5% í Fjarðabyggð og Fáskrúðs- fjarðarhreppi og rúm 10% í sveitar- félaginu Hornafirði og í Djúpavogs- hreppi. Lækkun sums staðar Í mörgum sveitarfélögum úti á landi er hins vegar um lækkun á launagreiðslum að ræða milli ára, samkvæmt tölum hagdeildarinnar. Það er til dæmis tilfellið með tvö sveitarfélög fyrir austan Vopna- fjarðarhrepp, þar sem launa- greiðslur dragast saman um 1,5% og Skeggjastaðahrepp, þar sem þær dragast saman um 3,5%. Einnig lækka launagreiðslur í Raufarhafn- arhreppi, Skútustaðahreppi, Höfða- hreppi, Sveinsstaðahreppi, Tálkna- fjarðarhreppi, Saurbæjarhreppi, Helgafellssveit og Hvalfjarðar- strandarhreppi. Lækkunin í þessum sveitarfélögum milli ára er frá rúm- um 4% og upp í rúm 12%. Launagreiðslur hækkuðu um 10% að meðaltali milli ára Mest hækkun í kragan- um og á Austurlandi Eftir Hjálmar Jónsson hjalmar@mbl.is NÝ stjörnuspá birtist frá og með deginum í dag í Morgunblaðinu. Höfundur hennar er Holiday Mat- his, en hún mun hafa lært stjörnu- speki í gegnum kynni sín af stjörn- um af holdi og blóði, það er undir leiðsögn Joyce Jillson „stjörnuspek- ings stjarnanna“. Holiday Mathis hjálpaði Jillson við að liðsinna hinum þekktu viðskiptavinum sínum og sér- hæfði sig með tímanum í kort- um fólks úr tón- listariðnaðinum í Bandaríkjunum, svo sem fram- leiðendum, listamönnum og stjórn- endum útgáfufyrirtækja. Spáði hún meðal annars fyrir um heppilega útgáfudaga og samvinnu metsölu- listamanna og -framleiðenda. Holiday Mathis hlaut styrk til tónlistarnáms við Nevada-háskóla á sínum tíma og hefur gefið út þrjár barnabækur og skrifað handrit að gamanþáttum fyrir kvikmynda- framleiðendur. Stjörnuspekidálkur hennar birt- ist í dagblöðum víða í Bandaríkj- unum, til að mynda í Boston Herald, Chicago Sun-Times, Los Angeles Times, Star Tribune og Washington Post svo dæmi séu nefnd. Ný stjörnuspá í Morgunblaðinu Holiday Mathis HALLDÓR Ásgrímsson forsætisráðherra situr leið- togafund Sameinuðu þjóðanna í New York þessa dag- ana. Í dag mun hann ávarpa leiðtogafundinn. Með Hall- dóri á myndinni eru Sigurjóna Sigurðardóttir, eiginkona hans, og Heimir Hannesson, aðalræðismaður í New York. Halldór ávarpar fund SÞ LEIT að Friðriki Ásgeiri Her- mannssyni, sem saknað er eftir sjóslysið á Viðeyjarsundi að- faranótt laugardags, bar ekki árangur í gær, fimmta leitar- daginn. Samkvæmt upplýsing- um frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg var leitað á tveim- ur slöngubátum í gærmorgun, einkum á svæðinu á milli Eng- eyjar og Viðeyjar og átti að leita fram á kvöld með neðan- sjávarmyndavélum. Að sögn Harðar Jóhannes- sonar, yfirlögregluþjóns hjá lögreglunni í Reykjavík, stend- ur rannsókn á tildrögum slyss- ins enn yfir. Teknar voru skýrslur af eftirlifendum úr slysinu og hefur atburðarásin í aðdraganda slyssins skýrst nokkuð en ekki fengust nánari upplýsingar um þau atriði. Fimmti leitardag- urinn bar ekki árangur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.