Morgunblaðið - 15.09.2005, Blaðsíða 4
4 FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
edda.is
„Algjörlega frábær“
Metsölubók um öll
Norðurlönd
„Mikil og spennandi saga sem þú leggur
ekki frá þér.“
- Information
„Algjörlega frábær skemmtun.“
– Børsen
Mögnuð saga um konu í heimi
stjórnmálanna, þar sem átök um völd,
misnotkun fjölmiðla og launráð eru
brugguð í hverju skúmaskoti.
Hanne-Vibeke Holst
Bókmenntahátíðin:
Hanne-Vibeke Holst verður í
eftirmiðdagsspjalli í Norræna
húsinu í dag kl.15 og les upp
í Iðnó í kvöld kl. 20
- Allir velkomnir!
Penninn Eymundsson
og Bókabú›ir MM
7. – 13. sept.
1.
Skáldverk
ÁRNI M. Mathiesen,
sjávarútvegsráðherra
og verðandi fjármála-
ráðherra, hefur selt
stofnfjáreign sína í
Sparisjóði Hafnar-
fjarðar. Spurður um
ástæðu þess að hann
veldi að selja hlut sinn
sagði Árni að hann
teldi mál innan Spari-
sjóðsins hafa þróast á
veg sem hann væri
ósáttur við og nefndi í
því samhengi þá miklu
leynd sem hvílir yfir
því sem er að gerast
innan sjóðsins.
„Ég held að mál muni frekar halda
áfram að þróast á þá lund sem ég
mun ekki verða alls kostar sáttur
við,“ sagði Árni í samtali við Morg-
unblaðið og tók fram að sér fyndist
ekki ganga upp sem starfandi stjórn-
málamaður að skipta sér af fjármála-
stofnunum. „Þeir tímar eru liðnir að
stjórnmálamenn geti verið að skipta
sér mikið af fjármálastofnunum og í
stofnun eins og Sparisjóðnum þar
sem aðeins eru rétt rúmlega fjörutíu
stofnfjáraðilar þá er eiginlegar
ómögulegt að vera þar
stofnfjáraðili án þess
að taka að einhverju
leyti þátt í því sem þar
er að gerast,“ segir
Árni.
Gefur ekki
upp verðið
Spurður hversu stór
hlutur hans hafi verið
svarar Árni því til að
hann hafi verið jafn
stór og stofnfjárhlutar
annarra stofnfjáraðila.
Aðspurður vildi Árni
ekki gefa upp hvaða
verð hefði fengist fyrir
hlutinn. „Það hefur ekki tíðkast í
þessum viðskiptum að gefa upp
verðið og þess vegna mun ég ekki
gefa það upp.“ Inntur eftir því hver
hafi keypt hlut hans segir Árni það
ekki verða upplýst fyrr en salan sé
formlega um garð gengin, en stjórn
Sparisjóðsins á eftir að fjalla um söl-
una og samþykkja hana, en það verð-
ur líklega gert á stjórnarfundi síðar í
vikunni. Nokkrir stofnfjáreigendur í
sparisjóðnum hafa selt hluti sína á
síðustu vikum og mánuðum.
Árni M. Mathiesen selur stofnfjárhlut
Ósáttur við
þróun mála
Árni M. Mathiesen
HÆSTIRÉTTUR hefur úrskurðað að fjárnám
sem Sýslumaðurinn í Kópavogi gerði hjá Byggða-
þjónustunni ehf. að upphæð rúmlega fjórar millj-
ónir króna skuli standa, en í málinu var deilt um
skattskyldu. Fjórir dómarar stóðu að dóminum en
einn dómari taldi að fella ætti fjárnámið úr gildi.
Í málinu var deilt um heimild Byggðaþjónust-
unnar til að draga frá tekjum af starfsemi sinni
kostnað tengdan húsnæði, sem hefur verið nýtt til
íbúðar af framkvæmdastjóra og stjórnarformanni,
en sá síðarefndi er líka eigandi að helmingshlut.
Í dómi meirihluta Hæstaréttar segir að sam-
kvæmt skattalögum megi draga frá tekjum lög-
aðila rekstrarkostnað, þ.e. þau gjöld sem eigi á
árinu að ganga til að afla teknanna, tryggja þær og
halda þeim við. „Af gögnum málsins verður skýrt
ráðið að húsnæðisins var ekki aflað í því skyni að
það nýttist í rekstri sóknaraðila né hefur það verið
nýtt með slíkt fyrir augum. Skiptir þess vegna
engu þótt framangreindir einstaklingar, sem
höfðu húsnæðið til umráða, hafi staðið skil á leigu
til sóknaraðila. Var sóknaraðila því óheimilt að
draga kostnað tengdan húsnæðinu frá tekjum sín-
um,“ segir síðan.
Að úrskurði meirihlutans stóðu dómararnir
Markús Sigurbjörnsson, Árni Kolbeinsson, Hrafn
Bragason og Ingibjörg Benediktsdóttir.
Ekki dulbúin hlunnindi
Í sératkvæði Jóns Steinars Gunnlaugssonar
segir að útleiga íbúðarhúsnæðis í atvinnurekstri
sé vel þekkt starfsemi og þekkist dæmi um að hún
sé aðalstarfsemi fyrirtækja. Engu máli geti skipt
„um skattlagningu starfseminnar þótt leigjandi
húsnæðis tengist viðkomandi skattaðila nánum
böndum, sé eigandi hans eða stjórnandi. Einungis
þarf að gæta að því að ekki felist í útleigunni
dulbúin hlunnindi, sem færð séu undan skattlagn-
ingu,“ segir í sératkvæðinu. Síðar segir. „Í skatt-
lagningu felst skerðing á eignarréttindum. Stjórn-
arskráin hefur að geyma skýr fyrirmæli um að
skattlagning verði að byggjast á settum lögum,
sbr. 1. mgr. 40. gr. og 77. gr. Í settum lögum er það
hvergi gert að skilyrði fyrir gjaldfærslu kostnaðar
við tekjuaflandi starfsemi lögaðila, að um sé að
ræða aðalstarfsemi hans. Þá eru heldur hvergi í
settum lögum reistar skorður við því, að atvinnu-
fyrirtæki eigi íbúðarhúsnæði og leigi það starfs-
mönnum sínum og eigendum gegn endurgjaldi og
færi útgjöld vegna slíks húsnæðis til gjalda ... Af
fyrrgreindum ákvæðum stjórnarskrár sem og
hinni almennu jafnræðisreglu 65. gr. hennar leiðir
að ekki var heimilt að fella niður rekstrarkostnað
sóknaraðila af framangreindum sökum. Ber því að
mínu áliti að fallast á kröfu hans um ógildingu
hinnar umdeildu aðfarargerðar að því leyti sem
skattkrafan stafar af þessu.“
Hæstiréttur úrskurðar um fjárnám sýslumannsins hjá Byggðaþjónustunni
Óheimilt að draga frá
kostnað tengdan húsnæði
Ógilda átti aðfarargerðina vegna ákvæða stjórnarskrár, segir í sératkvæði
TURN Kísiliðjunnar í Mývatnssveit
féll seinnipartinn í gær og vantaði
eitt ár upp á fertugsafmælið því
hann var reistur sumarið 1966.
Fljótt og vel gekk að fella turninn.
Hafist var handa klukkan fimm og
tók það ekki nema tæpar tuttugu
mínútur að fella hann. Starfsmenn
Hringrásar unnu verkið. Klipptu
þeir og skáru sundur stálbita og tog-
uðu samtímis í stálvíra sem festir
höfðu verið ofarlega í turninn. Það
verður síðan hægurinn hjá Hring-
rásarmönnum að hluta turninn í
sundur þegar búið er að fella hann.
Turn Kísiliðjunnar fallinn
Morgunblaðið/BFH
SÝSLUMAÐURINN í Reykjavík
hafnaði í gær lögbannskröfu Krist-
ins Helga Benediktssonar ljósmynd-
ara á útgáfu, prentun og dreifingu
bókarinnar Fiskisagan flýgur, en
Kristinn segir að framsetning ljós-
mynda sinna í bókinni vegi að höf-
undarheiðri hans.
Sýslumaður telur að hagsmunir
Kristins séu tryggðir með rétti hans
til að fara með málið fyrir dómstóla.
Þegar sé búið að prenta bókina og
því athöfnin sem farið er fram á lög-
bann við þegar farið fram og verði
ekki aftur tekin. Ekki er talið að
Kristinn hafi sannað eða gert senni-
legt að lögvarður réttur muni fara
forgörðum við það að bíða eftir nið-
urstöðu dómstóla, og því kröfu um
lögbann hafnað.
Kristinn ætlar að áfrýja úrskuð-
inum til héraðsdóms.
Lögbanns-
kröfu var
hafnað
ALLS vantar 10–15 manns í störf
hjá McDonalds-veitingastöðunum í
Reykjavík og íhugar Lyst ehf., sem
rekur staðina, að leita út fyrir land-
steinana eftir starfsfólki. Hjá
McDonalds vinna 100 manns, þar af
50 í fullu starfi.
Að sögn Magnúsar Ögmunds-
sonar, framkvæmdastjóra Lystar,
hefur ástandið ekki verið jafnslæmt
í fimm ár. Fyrirtækið íhugar nú að
fá fólk frá Portúgal eða öðrum
löndum í A-Evrópu. Ýmist verður
leitað í gegnum starfsmannaleigur
eða útlendingar sem vinna á Mc-
Donalds beðnir að kanna hvort ein-
hverjir landar þeirra séu á lausu.
McDonalds vill
útlendinga í störf
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hef-
ur dæmt konu á þrítugsaldri í 3
mánaða skilorðsbundið fangelsi og
til að greiða 100 þúsund króna sekt
fyrir að falsa ávísanir og skipta
fölsuðum ávísunum, að hluta til í
samvinnu við tvo karlmenn. Sam-
tals námu upphæðir sem um var að
ræða um 120 þúsund kr. Ákærða
var einnig fundin sek um að eiga 10
gr af amfetamíni í fórum sínum.
Brotin voru framin á 2003 og
2004. Fram kemur í dóminum, að
ákærða hafi áður fengið sektir fyrir
þjófnað og fíkniefnabrot.
Ákærða játaði brot sín greiðlega
og hefur undirgengist fíkniefna-
meðferð og er á leið í háskólanám.
Málið dæmdi Arnfríður Einars-
dóttir settur héraðsdómari. Verj-
andi var Sveinn Andri Sveinsson
hrl. og sækjandi Guðjón Magnússon
frá lögreglustjóranum í Reykjavík.
Fangelsi fyrir
ávísanafals
UMFERÐARÓHAPP varð á
Strandarheiði á Reykjanesbraut-
inni rétt fyrir klukkan sjö í gær-
kvöldi. Ökumaður jeppabifreiðar
missti bíl sinn út af veginum þar
sem hann valt síðan. Samkvæmt
upplýsingum lögreglunnar í Kefla-
vík festist ökumaður í bifreiðinni
og þurfti að klippa hann út, en öku-
maður slapp vel og hlaut aðeins
minniháttar meiðsl. Er bifreiðin tal-
in gjörónýt eftir slysið.
Jeppi valt á
Reykjanesbraut