Morgunblaðið - 15.09.2005, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 15.09.2005, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2005 27 UMRÆÐAN Er löggiltur fasteignasali a› selja eignina flína? sími 530 6500fax 530 6505www.heimili.isSkipholti 29A105 Reykjavík opi› mánudagatil föstudaga 9-17 Hjá Heimili fasteignasölu starfa fjórir löggiltir fasteignasalar sem hafa áralanga reynslu af fasteigna- vi›skiptum. fia› er flví löggiltur fasteignasali sem heldur utan um allt ferli›, allt frá flví eignin er sko›u› og flar til afsal er undirrita›. Metna›ur okkar á Heimili er a› vi›hafa vöndu› og fagleg vinnu- brög› sem tryggja flér besta ver›i› og ábyrga fljónustu í samræmi vi› flau lög og reglur sem gilda um fasteignavi›skipti. Finbogi Hilmarsson lögg. Fasteignasali Einar Gu›mundsson lögg. Fasteignasali Anney Bæringsdóttir lögg. Fasteignasali Bogi Pétursson lögg. Fasteignasali Hafdís Björnsdóttir Ritari Dagskrá: Kl. 13.30 Gestir boðnir velkomnir: María Th. Jónsdóttir, formaður FAAS. Kl. 13.45 Eklar á Íslandi: Séra Bragi Skúlason. Kl. 14.15 Baráttumál eldri borgara: Margrét Margeirsdóttir, formaður Félags eldri borgara. Kl. 14.50 Hugleiðingar heimilislæknis og kynning á bæklingi með ráðum til aðstandenda sjúklings með heilabilun: María Ólafsdóttir, læknir. Bjarni Sigurðsson, lyfjafræðingur. Kl. 15.30 Kaffiveitingar í boði félagsins. Fundarstjóri Soffía Egilsdóttir. Allir velkomnir! Fræðsludagur í tilefni af Alþjóðadegi alzheimersjúklinga verður haldinn laugardaginn 17. september nk. kl. 13.30 í safnaðarheimili Langholtskirkju, Sólheimum 13, Reykjavík Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali Höfum verið beðnir að leigja út um 250 fm götuhæð á góðum stað í Skeifunni. Húsið er í góðu ástandi. Góð aðkoma og góðir sýningar- og verslunargluggar. Laust fljótlega. Allar nánari upplýsingar veita Sverrir og Þorleifur SKEIFAN – PLÁSS TIL LEIGU ÞAR kom að því að Friðriki Soph- ussyni, forstjóra Landsvirkjunar, þótti skorta á að upp- lýst væri um stað- reyndir varðandi Kára- hnjúkavirkjun. Undirritaður varð harla glaður, þegar hann frétti að loks legði forstjórinn „stað- reyndir málsins“ á borðið í 14 liðum í Mbl., sl. mánudag. En ánægjan var skammvinn, þegar í ljós kom að engar nýj- ar upplýsingar um hin- ar „sögulegu stór- framkvæmdir á Austurlandi“ komu fram í grein Friðriks, heldur ein- ungis áréttaðar fyrri fullyrðingar um að allt væri í himnalagi og fyr- irsjáanlegur stórfelldur hagnaður af stærstu framkvæmd Íslandssög- unnar! Hvers vegna rekur hann ekki gang einstakra framkvæmdaþátta, eins og t.d. hvernig gangagerðinni vindur fram? Samkvæmt áætlun LSV, sem enn er sögð standast fylli- lega, bæði að því er tíma- og kostn- aðaráætlun varðar, var samkvæmt útboðsgögnum LSV gert ráð fyrir tveimur risaborvélum. Impregilo notast hins vegar við þrjár risabor- vélar. En ekkert gengur að bora. Þannig hefur ein þessara firnadýru risaborvéla verið meira og minna stopp í samtals 23 vikur af 35 vikum á þessu ári! Með sama áframhaldi mun það taka þetta 1.100 tonna ferlíki 120 vikur að bora þá 7.848 metra, sem enn eru óboraðir í göngum þeim sem hún nú, að því er virðist, sit- ur gikkföst í. Ef tekið er mið af gangi borfer- líkjanna þriggja, það sem af er þessu ári, er ljóst að borun verður ekki lokið fyrr en eftir nær 1½ ár eða um það leyti sem til stóð að hefja sölu rafmagns til álbræðsl- unnar á Reyðarfirði (1. apríl 2007), skv. samningi. Þau 40 km göng, sem hér um ræð- ir, liggja milli Hálslóns og raf- orkuversins við Teigsbjarg. Til við- bótar borun ganganna þarf að yfirfara þau og sjá til þess að þau hvorki leki vatni inn eða út, skv. skil- yrði umhverfisráðherra, þegar úr- skurði skipulagsstofnunar var snúið við og framkvæmdin heimiluð. Sig- urður Arnalds, yfirverkfræðingur LSV, taldi í viðtali fyrir tveimur mánuðum æskilegt að sex mánuðir gæfust til að gera göngin klár til notkunar, eftir borun. Þetta þýðir að þrátt fyrir þrjár borvélar í stað áætlaðra tveggja er þess ekki að vænta að virkjunin verði gangsett fyrr en hálfu ári eftir áætlaðan tíma. Eflaust liggja sér- fræðingar LSV nú yfir því dæmi, hvernig megi með tilsvarandi stór- felldum aukakostnaði ná að stytta sem verða má þá töf, sem orðið hefur á framkvæmdum til þessa. Ekkert verður til sparað, því mikið liggur við að lenda ekki í skömm gagnvart ALCOA-álrisanum, sem af rausn hefur heitið að gefa eyjarskeggjum tré til gróðursetningar, en spara sem verða má allar mengunarvarnir, enda loftgæði svo mikil yfir eyjunni að engu skiptir að spúa út 26-földu því magni brennisteins-tvíildis, sem Norsk Hydro ráðgerði að losa út í andrúmsloftið. Staðreyndir um Kárahnjúkavirkjun Sveinn Aðalsteinsson svarar grein Friðriks Sophussonar ’Þannig hefur ein þess-ara firnadýru risabor- véla verið meira og minna stopp í samtals 23 vikur af 35 vikum á þessu ári!‘ Sveinn Aðalsteinsson Höfundur er viðskiptafræðingur. AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111 „HÖFUM við efni á ellinni?“ er yf- irskrift alþjóðlegrar ráðstefnu við- skipta og hagfræðideildar Háskóla Íslands, sem hófst í gær. Þekktir hagfræð- ingar koma fram á ráðstefnunni, þeirra á meðal Robert Muntell sem hefur hlotið Nóbelsverðlaun í greininni. Hækk- andi meðalaldur þjóða og áhrif hans á útgjöld til heilbrigðismála verða til umræðu á ráðstefnunni, auk þess sem spurningunni um hvort þróunin muni valda veruleg- um erfiðleikum í efnahagsmálum var velt upp. Ráðstefnunni lýkur síðdegis í dag.“ Þessa frétt mátti lesa fyrir nokkru um „Ráðstefnu um öldrun“. Er ellin of dýr? Of dýr fyrir hvern? Mín fyrsta hugsun var þegar ég las þessa frétt var: Þarf ekki bara úrrýmingarbúðir fyrir þennan hóp sem hefur náð 67 ára aldri? Hrokinn og það hvernig er talað niður til þessa fólks er að verða óþolandi. Það gengur svo langt að margt af þessu fólki sem hefur eins og allir vita átt sinn þátt í að byggja upp það þjóðfélag sem við lifum í er farið að líta á sig sem enhverjar vanmetakindur. Landssamband eldri borgara hélt landsfund 9. og 10. maí 2005. Ég fullyrði að þar sátu engar „vanmetakindur“ en samt gerðu þeir kröfu til ríkisstjórnar um að grunnlífeyrir yrði alltaf und- anþeginn sköttum! Grunnlífeyrir er 21.993 krónur! Eldri borgarar hafa greitt sérstakt almannatrygging- argjald án þess að hafa fengið það dregið frá sköttum. Grunnlífeyrir er endurgreiðsla þessara framlaga og er því um tvísköttun að ræða að inn- heimta tekjuskatt nú af grunnlíf- eyri. Það er ótrúlegt að ríkisvaldið sem allt vill fyrir alla gera og sam- anstendur af hinum mestu gæða- og gáfumönnum skuli ekki enn hafa fundið ráð til að hætta að skattpína gamalt fólk. Hvaða sanngirni er t.d. í að svokallaðir fjármagnseigendur greiði aðeins 10% skatt á meðan eldri borgarinn þarf að greiða 37,73% af ellilaununum frá Trygg- ingastofnun? Fyrir nokkrum dögum kom ungur þingmaður fram með þá hugmynd að skipa þyrfti nefnd til að rannsaka þunglyndi meðal gamals fólks. Þetta er auðvitað vel meint en nefndir kosta töluvert. Ég held að ekki þurfi nefnd til að skilja að það veldur engri gleði hjá fólki á öllum aldri hvað þá eldra fólki að vera gert ófærtt um að sjá sér farborða vegna ranglátra skatta sem á það er lagt. En einu sinni var sagt: Viljinn er allt sem þarf. Nú legg ég til að nýta þann góða vilja sem alltaf brýst út þegar kosningar eru í nánd, að gera gamla slagorðið „Búum öldruðum áhyggjulaust ævikvöld“ að veruleika. Áhyggjulaust ævi- kvöld felst í að geta séð um sig og verið sjálfum sér nógur sem lengst. Að innheimta ekki hærri skatt af þeim en borgaður er af fjármagns- tekjum 10% væri strax spor í áttina. Munið. Viljinn er allt sem þarf. UNNUR LEIFSDÓTTIR, Skagabraut 39, 300 Akranesi. Er ellin of dýr? Frá Unni Leifsdóttur, eldri borgara á Akranesi: Unnur Leifsdóttir BRÉF TIL BLAÐSINS Morgunblaðið Kringlunni 1 103 Reykjavík  Bréf til blaðsins | mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.