Morgunblaðið - 15.09.2005, Page 6
Þetta er ekki spurning umhvort heldur hvenær þettaverður að veruleika,“ segirVíglundur Kristjánsson
með sannfæringarkrafti þegar við
hittum hann að máli við kirkjuna á
Odda á Rangárvöllum, þar sem
hann er að leggja hellur ásamt sam-
starfsmanni sínum til margra ára,
Birni Hrannari Björnssyni. Ungur
að aldri fór Björn að starfa hjá Víg-
lundi, sem er einn okkar fremstu
hleðslumanna og á að baki um 30
ára starfsreynslu innan þessarar
ört minnkandi stéttar. Saman ætla
þeir að reisa Íslandsveröld og fá
fleiri til liðs við sig, enda um stórt
verkefni að ræða. Þrátt fyrir meira
en 15 ára gamla hugmynd hefur
hún ekki farið hátt en nú segist Víg-
lundur vera tilbúinn að deila henni
með öðrum.
En um hvað snýst Íslandsveröld
og hvernig kom hugmyndin til?
„Fyrst fékk ég þessa hugmynd
þegar lítið var að gera í steina- og
torfhleðslunni og þá langaði mig að
reisa víkingaskála. Síðan óx hug-
myndin, ég bætti við burstabæjum
og fleiru og fór að hugsa af hverju
við ættum ekki að setja upp stórt
og lifandi safn eða afþreyingargarð
þar sem öll okkar menningarsaga
yrði sögð á einum stað. Við erum
það einstök þjóð að við getum sett
allt okkar menningartímabil á einn
stað,“ segir Víglundur. Smátt og
smátt fjölgaði húsunum og mann-
virkjunum sem hann sá fyrir sér á
einum stað, stað sem hann kaus
strax að nefna Íslandsveröld, svona
líkt og Disney-world og álíka stór
söfn og ævintýragarðar.
Innsýn í líf fyrri tíma
Hugmynd Víglundar hefur með
tímanum stækkað og nú er svo
komið að mannvirkin sem hann vill
sjá í Íslandsveröld telja hátt á sjö-
unda tuginn. Er þá miðað við að
þau sýni Íslandssöguna í þremur
tímabilum allt fram á okkar daga,
jafnt til sjós og lands. Hugmyndin
er einnig að bjóða gestum og gang-
andi upp á fræðslu og kennslu um
ýmsa forna verkþekkingu, t.d. torf-
og grjóthleðslu og fyrri bústörf,
þannig að fólk geti jafnvel gist inn-
an Íslandsveraldar um hríð í litlum
kofum að fornum sið og fengið við
brottför skrautritað skjal og skinn
um dvöl sína þar. Yrði Íslandsver-
öld opin allt árið um kring og hlut-
verkið fjölbreytt, jafnt sem
skemmtigarður, kennslustofnun,
fræðasetur og minjasafn.
Þá sér Víglundur fyrir sér uppá-
komur margskonar; leikþætti, hús-
lestur, þorrablót, sveitaböll, íþrótta-
mót og sýningar, allt sem geti gefið
nútímafólki innsýn í líf og búskap-
arhætti Íslendinga á fyrri öldum.
Hægt verði að fara í göngur og
réttir, í veiðiferðir og fylgjast með
leiknum bændaferðum á borð við
hópreiðina þegar lagningu símans
var mótmælt á sínum tíma. Íslenski
jólasveinninn mun fá sinn veglega
sess, og þá daglega á aðventunni,
og efna á til hátíðar til heiðurs álf-
unum um áramót, þegar talað var
um á fyrri tímum að þeir flyttu bú-
ferlum. Auk jólasveina og álfa fá
gestir garðsins einnig að fylgjast
með „ráðherrum“ og „þingmönn-
um“ að störfum.
Engir hamborgarar
Veitingar verða að sjálfsögðu á
boðstólum og þær þjóðlegar.
„Þarna verða engir hamborgarar,“
segir Víglundur og telur upp þjóð-
legan mat eins og súrt slátur,
lundabagga, hangikjöt og harðfisk.
Reisa á mannvirkin í Íslandsver-
öld öll frá grunni og mun þar að
mestu reyna á þekkingu og kunn-
áttu hleðslumanna eins og þeirra
Víglundar og Björns, sem viðrað
hafa hugmyndina við nokkra starfs-
bræður sína við góðar undirtektir.
Hefur Víglundur einnig notið að-
stoðar eiginkonu sinnar við hug-
myndavinnuna, hennar Ernu
Hrannar Ásgeirsdóttur, listakonu á
Hellu.
Þegar Víglundur er spurður um
hvað svona verkefni kostar og hvað
það taki langan tíma í vinnslu segist
hann reikna með fimm til tíu árum í
uppbygginguna og kostnaður geti
verið í kringum þrjá milljarða
króna. Þar miðar hann við að halda
kostnaði sem mest niðri, m.a. með
þátttöku sjálfboðaliða. Hefur Víg-
lundur kynnst alþjóðlegu starfi Ver-
aldarvina, þar sem ungmenni hafa
komið til landsins og unnið ýmis
verk gegn fæði og húsaskjóli.
Íslandsveröld þarf stórt land-
svæði, ekki undir 300 hekturum, og
hefur Víglundur nokkra staði á
landinu í huga. Helst langar hann
að reisa Íslandsveröld undir Eyja-
fjöllum, enda hafa heimamenn í
Rangárþingi tekið vel í hugmynd-
ina, en einnig horfir hann til staða
eins og Ægissíðufossa við Hellu,
Krísuvíkur, Hvalfjarðar og Eyja-
fjarðar.
„Þetta getur orðið okkar stóriðja
í ferðaþjónustunni,“ segir Víg-
lundur og bendir á að Íslandsveröld
geti skapað um 70 ársverk á rekstr-
artíma og sjálf uppbyggingin kalli á
enn meiri mannskap. Hann vill ekki
hafa lokaorðið um staðsetninguna,
fjárfestar verði eðlilega að fá að
ráða einhverju um það.
Hugmynd Víglundar miðar við að
Íslandsveröld laði ekki síst til sín
erlenda ferðamenn, líkt og innlenda,
enda sýni spár Ferðamálaráðs
mikla fjölgun ferðamanna til lands-
ins á næstu árum og áratugum.
Þetta sé einnig það stórt verkefni
að sem flestir aðilar innan ferða-
þjónustunnar á Íslandi þurfi að
koma að því. Raunhæft markmið sé
að fá í Íslandsveröld þrjá af hverj-
um fjórum ferðamönnum sem til
landsins koma.
Áformin hafa m.a. verið kynnt
sveitarstjóra Rangárþings ytra,
Guðmundi Inga Gunnlaugssyni,
sem sagði sveitarstjórnina styðja
þau heilshugar, og Víglundur hefur
einnig notið aðstoðar frá Eymundi
Gunnarssyni, atvinnu- og ferða-
málafulltrúa Rangárþings og Mýr-
dals. Þá hefur Víglundur kynnt
þetta í Ferðamálaráði, hjá Flug-
leiðum og fengið upplýsingar frá
Háskóla Íslands um hvernig sækja
megi um styrki í verkefnið í gegn-
um Leonardo da Vinci-áætlun Evr-
ópusambandsins.
„Þú ert skemmtilega
geggjaður“
Viðtökurnar hafa alls staðar verið
jákvæðar og nú ætlar Víglundur að
kynna fjársterkum aðilum hug-
myndina. Flugleiðir hafa boðist til
að styrkja hann til utanferðar til að
skoða sambærilega afþreying-
argarða og stefnir Víglundur á að
fara til Bandaríkjanna í vetur í
þeim tilgangi.
Víglundur segist eiga Steini Lár-
ussyni hjá Flugleiðum mikið að
þakka en þangað leitaði hann fyrst
með hugmyndina fyrir um 15 árum.
„Steinn hlustaði á mig af andakt í
símanum og þegar ég var búinn að
romsa þessu öllu út úr mér kom
bara þögn. Ég hélt að hann væri
farinn úr símanum en þá sagði
Steinn: „Þú ert skemmtilega geggj-
aður en ég hef gaman af geggjuðum
mönnum.“
Síðan bauð hann mér á fund og
eftir þetta hefur Steinn stutt mig
dyggilega, hefur komið mér í sam-
band við ýmsa góða menn,“ segir
Víglundur, sem er staðráðinn í að
gefast ekki upp fyrr en hugmyndin
verður að veruleika, jafnvel þó að
hann verði kominn á efri ár. Ekki
lætur hann það heldur trufla sig
þótt einhverjir telji hann geggj-
aðan. Á meðan heilsa leyfir ætlar
hann a.m.k. ekki að hætta hleðslu-
vinnunni fyrr en um sjötugt, líkt og
afi hans, Sigurþór Skæringsson,
sem kenndi honum fagið á sínum
tíma.
„Við eigum að búa til stað þar
sem hægt er að sýna alla Íslands-
söguna. Við eigum að gera þetta.
Við erum að glata þeirri verkþekk-
ingu sem til þarf, eftir 50 eða 100 ár
verður þetta ekki hægt,“ segir þessi
stórhuga hleðslumaður og ekki ann-
að hægt en að hrífast með. Orð eru
til alls fyrst en nú vill Víglundur
láta verkin fara að tala.
Hann vill lifa þann dag að draum-
urinn um Íslandsveröld verði að
veruleika.
Stórhuga áform um að reisa Íslandsveröld með lifandi safni, fræðasetri og afþreyingargarði
Ekki spurning
um hvort
heldur hvenær
Skissa af Íslandsveröld eins og Víglundur hugsaði sér hana í upphafi. Síðan
þá hefur mannvirkjum fjölgað en er Víglundur bauð Jóni Hlíðberg teikn-
ara greiðslu fyrir verkið var hún afþökkuð eitthvað á þessa leið: „Ég von-
ast til að fá laun hjá guði á himnum þegar og ef þetta verður að veruleika.“
Þegar Víglundur Kristjánsson, steinahleðslu-
maður á Hellu, viðraði fyrst hugmynd sína um
Íslandsveröld horfðu menn á hann spurn-
araugum. Björn Jóhann Björnsson og Ragnar
Axelsson heimsóttu Víglund og komust að því
að hugmyndin er gríðarstór og maðurinn er
bæði skemmtilegur og ákveðinn.
6 FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
INNAN Íslandsveraldar sér
Víglundur fyrir sér nokkra
víkingaskála, víkingaskip,
hringhlaðið hof að heiðnum
sið, burstabæi, baðhús, fjós,
hesthús, útihús, hlöðu, kirkju,
myllu, fornbíla, þingsetur,
ráðherrabústað, dráttarvélar,
timburhús, skreiðarhjalla, sjó-
búðir, hákarlabúðir, vita,
manngerðan eða náttúrulegan
helli, hestvagna, fjárrétt og
ýmis önnur mannvirki, að
ógleymdum búpeningi eins og
hestum, sauðfé, kúm, geitum,
hænsn, hundum og köttum.
Ein allsherjar Íslandsver-
öld, frá víkingaöld til vorra
daga.
Frá víkingaöld
til vorra daga
Morgunblaðið/RAX
Víglundur Kristjánsson og Björn Hrannar Björnsson við steinvegg sem þeir hlóðu í sumar við Hótel Rangársel,
þar sem efniviðurinn var m.a. gömul bæjarhús sem stóðu þarna áður. Saman ætla þeir að reisa Íslandsveröldina.
bjb@mbl.is