Morgunblaðið - 15.09.2005, Side 16
!
!
" #
"## !
$ $%
& "
' ( )
% & ' (
$
*
+
% ) ! $
( , -(
* ! !
%
. (
+
,
*!! -./ #! -./
-/
* (! $
( 0
* ( $ (
MÁLIÐ ER
Í MIÐJUN
NI Á MOG
GANUM Í
DAG
Skagaströnd | Þær vinkonur
María og Viktoría, 6 ára, voru að
koma heim úr skólanum er þær
rákust á hvolpinn Káralind þar
sem hann var á lóð heimilisins
síns. Stóðust vinkonurnar ekki
mátið og vildu endilega klappa
hvolpinum sem líkaði greinilega
vel við vinahót þeirra Maríu og
Viktoríu. Stelpurnar kunna aug-
ljóslega afar vel við hunda og
var Káralind hin hressasta við
heimsókn af þessu tagi, enda lít-
ið gaman að vera bundinn í
snúru og geta lítið gert.
Morgunblaðið/Alfons
Káralind kætist
Vinahót
Akureyri | Höfuðborgin | Austurland | Suðurnes
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi
Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Margrét Þóra Þórsdóttir,
maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís
Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, aust-
urland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is,
sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Úr
bæjarlífinu
HÉÐAN OG ÞAÐAN
Lægstu tilboðin | Múlatindur á Ólafsfirði
átti þrjú lægstu tilboð í átta sjúkrabifreiðar
sem Ríkiskaup auglýstu fyrir hönd Rauða
kross Íslands. Það kemur í ljós nú seinna í
vikunni hver hreppir hnossið, segir í frétt á
vefnum dagur.net. Alls komu 12 tilboð í
smíði bílanna frá fimm aðilum. Fjórða
lægsta tilboðið kemur frá Try Star í Kan-
ada og munar 3% á því og lægsta tilboði
Múlatinds. Um að ræða verk upp á 46 millj-
ónir en bifreiðunum á að skila 1. desember
á næsta ári.
Hátíð hjá Tungnamönnum | Þótt fjár-
laust sé á Tungnamannaafrétti, láta
Tungnamenn ekki deigan síga því nú á
laugardag, 17. september verður haldin há-
tíð í Tungnaréttum og hefst hún kl. 11.
Að venju munu Kvenfélag Bisk-
upstungna og Ungmennafélag Bisk-
upstungna sjá um veitingasölu.
Haldið verður hrossauppboð.
Boðið verður uppá heimasoðið léttmeti til
að auðga andann og að sjálfsögðu verður
réttasöngur að hætti Tungnamanna undir
hefðbundinni stjórn. Skálholtskórinn mun
síðan sjá um réttadansleik í Aratungu eins
og þeim einum er lagið. Hljómsveitin Blek
og byttur heldur uppi réttarstuðinu þetta
árið.
létust í flugslysi í Gler-
árdal í Eyjafirði.
Af því tilefni hafa for-
eldrar þeirra lagt fram
150 þúsund kr. til að
stofna sjóð sem skal
varið til þess að reisa
minningarstein um látna
Tíu ár voru í gær,14. september,liðin frá því að
þrír ungir menn frá
Patreksfirði, þeir Finn-
ur Björnsson, Kristján
Rafn Erlendsson og
Svanur Þór Jónasson,
í kirkjugarði Patreks-
fjarðar. Þeim sem vilja
minnast þeirra og
leggja málefninu lið er
bent á reikning nr.
1118-05-350041 í Spari-
sjóði Vestfirðinga á Pat-
reksfirði.
Stofna minningarsjóð
Davíð Hjálmar Har-aldsson fór ígöngur:
Í leitunum smalaði lagð-
prúðum ám,
lömbum og hrútum og sauðum
(nú er ég þreyttur frá nára að
tám)
og nokkrum ég gekk víst frá
dauðum.
Einar Kolbeinsson
grípur það á lofti:
Svona enda sagan fær,
samt er ég nú litlu nær.
Þegar Davíð eltir ær,
oft og tíðum deyja þær.
Davíð Hjálmar svarar:
Hví þeim kindum fatast fjör?
Svo feitar verða löngum
og safna þá svo miklum mör
að margar springa í göngum.
Þá sr. Hjálmar Jónsson:
Kvöldið okkur friðinn fær
fagurt sumar grátum.
Davíð hann er orðinn ær
út af gömlum skjátum.
Loks Friðrik
Steingrímsson:
Hann Davíð ei vöngunum veltir
um víðáttur rollurnar eltir.
Í kirkjuna skálmar
svo kokhraustur Hjálmar,
úr stólnum á Guðslömbin
geltir.
Ort í göngum
pebl@mbl.is
Þingeyjarsýsla | Fjallað var um atvinnu-
mál og atvinnuástand á svæði Verkalýðs-
félags Húsavíkur á síðasta stjórnarfundi
þess, en það er almennt gott.
Atvinnuástandið mætti þó vera betra á
Raufarhöfn. Í máli formanns félagsins kom
fram að töluvert væri um að fyrirtæki ósk-
uðu eftir undirskrift frá félaginu um að
mega flytja inn erlent starfsfólk til starfa
þar sem vöntun væri á fólki til starfa segir í
frétt á vef félagsins. Ásóknin hefði aldrei
verið meiri, sem staðfesti ekki síst gott at-
vinnuástand á svæðinu. Stjórnarmenn
voru sammála um að atvinnuástandið væri
með því besta sem verið hefði undanfarin
ár.
Atvinna með
mesta móti
Þingeyjarsveit | Sveitarstjórn Þingeyj-
arsveitar ákvað á dögunum að frá og
með næstu áramótum yrði leikskóli
gjaldfrjáls fyrir elsta árganginn í leik-
skólum sveitarfélagsins, í Stórutjarna-
skóla og Litlulaugaskóla. Með þessu er
ætlunin að auðvelda foreldrum að hafa
börnin í leikskólanum enda fer þá fram
talsverð aðlögun að grunnskólanáminu
og elstu nemendur leikskóla fá að taka
þátt í skólastarfi grunnskólans að ein-
hverju leyti. Þetta er gert að tillögu
fræðslunefndar.
Jóhann Guðni Reynisson sveitarstjóri
Þingeyjarsveitar sagði misjafnt eftir ár-
um hversu mörg börn væru í hverjum
árgangi, en að þessu sinni væru þau
fremur fá, „en svo getur komið stór ár-
angur næst.“ Hann sagði því erfitt að
reikna nákvæmlega út hvað þessi
ákvörðun myndi kosta sveitarfélagið,
enda væru sum börn allan daginn í leik-
skólanum en önnur hálfan. „Við erum
fyrst og fremst að horfa til þess að
skapa samfellu í skólastarfinu og þetta
er líka viðleitni í þá veru að viðurkenna
leikskólann sem sérstakt skólastig. Það
verður samt varla gert fyrr en allur leik-
skólinn er orðinn gjaldfrjáls, en ég held
að sú verði þróunin,“ sagði Jóhann
Guðni.
Gjaldfrjáls
leikskóli
fyrir elsta
árganginn
♦♦♦Laugarfell ekki matsskylt | Efnistaka
á vegum Landsvirkjunar úr námu í suð-
urhlíðum Laugarfells á Fljótsdalsheiði er
ekki háð mati á umhverfisáhrifum. Nið-
urstaða Skipulagsstofnunar um þetta ligg-
ur nú fyrir. Taka á um 80 þúsund rúm-
metra af efni neðst úr hlíðum Laugarfells,
á um þriggja hektara svæði og nota það
sem kjarnefni fyrir Ufsarstíflu, eina af
hliðarstíflum Kárahnjúkavirkjunar. Frest-
ur til að kæra ákvörðun Skipulagsstofn-
unar til umhverfisráðherra er til 12. októ-
ber n.k.
Slökkvitækjum stolið | Öll slökkvitæki í
jarðgöngunum um Oddsskarð voru tekin
ófrjálsri hendi um helgina og fundust þau
tóm í Oddsdal. Málið er talið alvarlegt þar
sem neyðarástand getur hæglega skapast
ef öryggisútbúnaður í göngunum er ekki
fyrir hendi og í fullkomnu lagi. Lögregla
vinnur að málinu.