Morgunblaðið - 15.09.2005, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2005 29
MINNINGAR
Mágur minn og vinur
Siggeir Ólafsson lést
hinn 17. ágúst síðastlið-
inn. Kynni okkar Sig-
geirs hófust fyrir u.þ.b.
fjörutíu árum þegar
Ester systir kom með hann heim til
okkar í Mosgerði og kynnti fyrir fjöl-
skyldunni. Ég man það enn mjög vel
hvað móður okkar leist strax vel á pilt-
inn og hafði á orði hvílíkan gæðasvip
hann hafði. Þessi gæðasvipur fylgdi
Siggeiri alla hans tíð og lýsti innræti
hans vel. Hann var góður drengur sem
vildi öllum vel, var bæði greiðvikinn og
hjálpfús.
Fljótlega eftir að þau Siggeir og
Ester gengu í hjónband tókst með okk-
ur Siggeiri ágætis vinskapur. Þó svo að
Siggeir hafi mest allan sinn starfsaldur
unnið hjá Mjólkursamsölunni þá
fannst honum tilbreyting í því að koma
til okkar í Háfelli á sumrin og verja
hluta af sumarfríinu sínu í að aka vöru-
bílum. Það gerði hann af mikilli trú-
mennsku og lipurð, var gætinn og góð-
ur bílstjóri. Það var þó ekki í fyrsta
skipti sem við Siggeir unnum saman
því á námsárum mínum keyrði ég
mjólkurbíl með honum eitt sumar. Við
sáum þá um að keyra mjólk í búðirnar í
Hafnarfirði sem var afar líflegt og
skemmtilegt starf. Þá kom vel í ljós
hvað Siggeir var vel liðinn og ábyrgur
starfsmaður sem hafði þó gaman af því
að stríða stelpunum í mjólkurbúðunum
svolítið.
Siggeir var mikill fjölskyldumaður
og hugsaði vel um sitt fólk. Þau Ester
keyptu sér fokhelda íbúð á Borgar-
holtsbrautinni á fyrstu árunum og
standsettu hana sjálf, unnu allt frá
múrverki til endanlegs frágangs. Það
var gaman að sjá hversu samhent þau
hjónin voru, bæði við byggingu á þess-
ari fyrstu íbúð sinni og svo ætíð síðan
við að koma þaki yfir fjölskylduna og
búa sem best að börnum sínum. Síðar
meir byggðu þau sér raðhús í Rauða-
hjalla þar sem þau bjuggu í nokkur ár
en fluttu svo aftur á Borgarholtsbraut-
ina þar sem þau bjuggu lengst af.
Þau eru eftirminnileg jólaboðin sem
þau hjónin héldu þar og buðu til sín
stórfjölskyldum sínum úr báðum ætt-
um. Þar var Siggeir í essinu sínu við að
taka á móti fólki og bera í það veitingar
allan liðlangan daginn og það var auð-
séð að hann naut þess að hafa fólkið sitt
hjá sér og gera vel við það.
Siggeir varð sextugur nú í sumar og
kom þar enn í ljós höfðingsskapur
þeirra hjóna þegar þau héldu stór-
veislu fyrir vini og vandamenn og var
þar ekkert til sparað til að gera sem
best við gestina.
Það er með mikilli eftirsjá sem ég
kveð þennan ágæta vin minn sem fór
frá okkur svo langt fyrir aldur fram.
Nú brosir hann sínu góðlátlega brosi á
öðrum vettvangi og skilur eftir sig
minningu um góðan og heiðarlegan
dreng. Ester systur minni og börnun-
um þeirra votta ég mína dýpstu samúð.
Eiður.
Mér fannst mest gaman þegar ég
fór með afa í ísbílnum að setja ís í búð-
irnar. Ég hjálpaði honum að setja ísinn
í frystinn í búðunum. Það var líka gam-
an þegar hann kitlaði mig, sem hann
gerði oft. Hann gaf mér stundum ís
þegar ég kom heim til hans og ömmu.
Emmessís-derhúfan hans var svo flott
og ég veit að ef hann væri ennþá að
vinna hjá Emmessís mundi hann fá
nýjan ísbíl. Mér fannst fyndið þegar
hann setti neftóbakið á höndina á sér
og tók í nefið. Stundum var afi óþekkur
og skammaði mig og sagði mér að fara
frá, þá var það reyndar bara ég sem
var óþekkur. Ég fór upp á svið að
syngja í afmælisveislunni hans afa þeg-
ar hann varð 60 ára.
Ég held að það hafi verið rúm í ís-
SIGGEIR
ÓLAFSSON
✝ Siggeir Ólafssonfæddist á Þor-
láksstöðum í Kjós
14. júní 1945. Hann
lést 17. ágúst síðast-
liðinn og var útför
hans gerð frá Graf-
arvogskirkju 13.
september.
bílnum hans afa. Ísbíll-
inn hans var flottur og
ég held að hann hafi
verið svona tíu metrar.
Ég samdi vísu sem ég
vil senda afa.
Hann fór.
Hann fór að renna sér.
Hann fór að leika sér.
Hann fór að hjóla.
Hafþór Andri
Helgason.
Lífið er hverfult.
Fyrir örfáum mánuðum fögnuðum við
með Siggeiri Ólafssyni og fjölskyldu 60
ára afmæli hans, en í dag kveðjum við
þennan mæta mann hinstu kveðju. Sig-
geir var virkur þátttakandi í starfi
Óháða safnaðarins, en hann „giftist inn
í söfnuðinn“ þegar hann gekk að eiga
Ester Haraldsdóttur. Hann var kjör-
inn í stjórn safnaðarins fyrir um tólf ár-
um og tók alla tíð virkan þátt í störfum
stjórnarinnar, auk þess að vera einn
helsti bakhjarl kvenfélagsins, en Ester
kona hans var formaður þess í um tíu
ár. Siggeir var ötull og ósérhlífinn
starfsmaður, sem lét verkin tala, og
ekki var hávaðanum fyrir að fara þegar
hann átti í hlut. Óháði söfnuðinn þakk-
ar Siggeiri öll hans góðu störf fyrir
söfnuðinn.
Kæra Ester og fjölskylda, stjórn
Óháða safnaðarins sendir ykkur öllum
innilegar samúðarkveðjur. Megi Guð
veita ykkur styrk á erfiðum tímum
Jóhann Árnason formaður.
Látinn er langt um aldur fram góður
samstarfsmaður til margra ára, Sig-
geir Ólafsson, en hann lést 17. ágúst
síðastliðinn, þá nýlega orðinn 60 ára
gamall.
Mig langar að kveðja samstarfs-
mann minn með örfáum orðum og
þakka honum samfylgdina, en við
störfuðum saman til margra ára. Sig-
geir kom til starfa hjá Emmessís hf. í
Reykjavík 17 ára gamall hinn 15. júlí
1962 og starfaði þar til dauðadags eða í
43 ár. Hann starfaði lengst af sem sölu-
maður/bílstjóri og sá um dreifingu á ís-
afurðum til viðskiptavina á Austur- og
Vesturlandi og síðustu árin á ísbíl í
Reykjavík. Hann hugsaði vel um sína
viðskiptavini og kallaði þá sitt fólk. Sig-
geir Ólafsson var vinur vina sinna og
við sem þekktum hann vel vissum að
þar fór góður drengur.
Öll sú vinna sem hann vann fyrir fyr-
irtækið úti á markaðnum skyldi vera
vönduð og vel unnin og ekki skyldi
kasta til höndunum. Hann var fylginn
sér og hugsaði vel um sitt fólk, oftar en
ekki gaf hann sér góðan tíma til að
ræða það sem betur mætti fara og
fylgdi því strax vel eftir. Eitt sumarið
fórum við saman á ísbíl á Austfirði og
var lagt í hann kl. sex á mánudags-
morgni. Siggeir hafði mestar áhyggur
af því þegar lagt var af stað að hann
myndi ekki ná að klára „rúntinn“ með
mig með sér, hann var viss um það að
ég myndi bara tefja fyrir. En það fór
þó svo að við kláruðum á réttum tíma
þótt kaffibolli stæði honum til boða á
hverjum stað. Þetta er minnisstæð ferð
sem staðfesti það sem mig grunaði, að
hann var vel kynntur og allir gáfu hon-
um gott orð því hann var mikið prúð-
menni og hvers manns hugljúfi.
Að leiðarlokum þakka ég honum
gott samstarf sem aldrei bar skugga á.
Ég kveð þig með virðingu og þakklæti
fyrir þær stundir sem við áttum sam-
an.
Fjölskyldu Siggeirs votta ég mína
dýpstu samúð.
Guðlaugur Guðlaugsson.
Látinn er langt um aldur fram góður
félagi til margra ára.
Siggeir Ólafsson starfaði hjá Ísgerð
Mjólkursamsölunnar, síðar EMM-
ESSÍS hf., nánast allan sinn starfsald-
ur, þar vorum við vinnufélagar til 20
ára.
Það segir sögu um fólk þegar það
eyðir stærstum hluta lífs síns hjá sama
vinnuveitanda, það segir sögu um sam-
viskusemi og trúnað.
Geiri eins og við kölluðum hann var
ekki margmáll, en gekk rólega um og
sagði oft ekki margt. Honum var trúað
fyrir stærstu og dýrustu tækjum fyrir-
tækisins, frystibílum, og fór hann um
allt land á þeim, oft við misjafnar að-
stæður. Aldrei kvartaði hann undan
því, en gat á sinn hógværa hátt sagt
skondnar sögur af atvikum sem komu
upp. Hans menn voru kaupmennirnir á
landsbyggðinni og viðskiptavinir
þeirra, þessu fólki vildi Geiri þjóna af
alúð og kostgæfni. Oftar en ekki ýtti
hann fast á eftir því að hans menn
fengju ný frystitæki.
Minnist ég með hlýhug allra innlit-
anna til mín og spjalls sem við áttum
saman, þá þurfti hann að segja mér
sögur af landsbyggðinni, af fólki og fyr-
irbærum.
Einu gleymdi þó Geiri, hann
gleymdi að hlúa að og passa sjálfan sig
á holóttum lífsins vegum.
Ekki datt mér þó í hug þegar ég
fékk boð um að mæta í 60 ára afmæli
Geira, fyrr í sumar, að það yrði það síð-
asta sem ég heyrði frá honum.
Það er sárt fyrir Ester og fjölskyld-
una að sjá á bak vini og fjölskyldu-
föður. Við gamlir félagar Geira eigum
eftir að sakna hans.
Ester og fjölskyldunni allri eru
sendar innilegar samúðarkveðjur.
Blessuð sé minning Siggeirs Ólafs-
sonar.
Magnús Ólafsson.
Góður samstarfsfélagi er látinn fyrir
aldur fram. Hinn 17. ágúst sl. lést Sig-
geir Ólafsson en hann hafði verið
starfsmaður MS og Emmessís hf. í 43
ár. Alla sína starfsævi vann hann hjá
þessum tveimur fyrirtækjum. Undir-
ritaður hefur sem framkvæmdastjóri
fyrirtækisins unnið með honum sl.
fimm ár og hefur alla tíð verið ákaflega
gott að vinna með honum. Sigurgeir
byrjaði 1962 sem starfsmaður hjá
Mjólkursamsölunni. Hann var bílstjóri
hjá MS til 1971 en þá hóf hann störf hjá
Emmessís sem ísbílstjóri og keyrði þá
aðallega úti á landi.
Sigurgeir var dagfarsprúður maður
og alla tíð ákaflega traustur og góður
starfsmaður hjá Emmessís hf. Hann
var í þjónustu framvarðasveitar fyrir-
tækisins og var ákaflega vel liðinn af
viðskiptamönnum þess. Oft geta veður
verið válynd og ófyrirséð á veturna á
Íslandi. Þá reynir á hæfni og dug at-
vinnubílstjóra eins og Sigurgeir var.
Aldrei á ferlinum lenti hann í óhappi
eða slysi á þessum langa tíma. Það sýn-
ir hversu árvökull og góður bílstjóri
hann var alla tíð. Undirritaður vill fyrir
hönd fyrirtækisins og samstarfsfólks
þakka kærlega góð kynni á liðnum ár-
um. Ennfremur sendum við eiginkonu
hans og aðstandendum innilegar sam-
úðarkveðjur.
Jón Axel Pétursson.
Ástkær eiginmaður minn, pabbi okkar, tengda-
pabbi, afi og langafi,
GUNNAR JÓNSSON,
Aratúni 26,
Garðabæ,
er látinn.
Útförin fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn
16. september kl. 13.00.
Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á líknarsjóð Oddfellow-reglunnar.
Elísa Björg Wíum,
Guðfinna Nanna Gunnarsdóttir, Jóhann Ingi Gunnarsson,
Guðmundur Ragnar Gunnarsson, Margrét Káradóttir,
Elín Ebba Gunnarsdóttir, Ármann Haukur Benediktsson,
Áslaug Ásgeirsdóttir, Þorvaldur Ásgeirsson,
afabörn og langafabörn.
Ástkær bróðir okkar, sonur og frændi,
HALLDÓR HJÁLMAR HALLDÓRSSON,
Bogahlíð 24,
Reykjavík,
lést á heimili sínu fimmtudaginn 8. september.
Pía Rakel Sverrisdóttir,
Hrói Kristján Sverrisson,
Halldór Hjálmarsson,
Skafti Þ. Halldórsson,
Örn Þ. Halldórsson,
Anna M. Halldórsdóttir.
Konan mín, móðir okkar og systir,
GUÐRÚN SIGRÍÐUR HAFLIÐADÓTTIR,
Álftamýri 41,
Reykjavík,
andaðist á Landspítalanum í Fossvogi miðvikudaginn 7. september.
Minningarathöfn verður í Háteigskirkju föstudaginn 16. september
kl. 11.00
Jarðarför fer fram frá Oddakirkju á Rangárvöllum sama dag kl. 14.00.
Arngrímur Jónsson,
Hafliði Arngrímsson,
Kristín Arngrímsdóttir,
Snæbjörn Arngrímsson,
Kristján Hafliðason
og fjölskyldur.
Elskuleg móðir okkar, systir, amma og langamma,
SIGURLAUG BARÐADÓTTIR,
Vogatungu 55,
Kópavogi,
andaðist á líknardeild Landakotsspítala þriðjudag-
inn 13. september.
Útför verður auglýst síðar.
Helga Valdimarsdóttir,
Björg Valdimarsdóttir,
Barði Valdimarsson,
Guðrún Margrét Valdimarsdóttir,
Ingibjörg Barðadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
RÍKEY KRISTÍN MAGNÚSDÓTTIR,
áður til heimilis á Mánagötu 18,
Reykjavík,
sem andaðist á hjúkrunarheimilinu Skjóli föstu-
daginn 9. september, verður jarðsungin frá Ás-
kirkju föstudaginn 16. september kl. 15:00.
Guðrún Steingrímsdóttir,
María Steingrímsdóttir,
Magney Steingrímsdóttir,
Bragi Steingrímsson, Elín Magnúsdóttir,
Magnús Steingrímsson, Lilja Pálsdóttir,
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabörn.