Morgunblaðið - 15.09.2005, Síða 36
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
PIZZAN ER
KOMIN
ROP! ÉG ÞEKKI VALDAMIKLA
MENN Í
ÚTKEYRSLUNNI
EN EINHVER HEFUR BORÐAÐ
PIZZUNA ÁÐUR EN HÚN KOMST
TIL OKKAR
KALLI, ÞÚ
HEFUR VERIÐ
VALINN
ÞJÁLFARI
ÁRSINS!
ER
ÞAÐ?
NEI,
APRÍL
GABB
ÉG
ÞOLI
ÞETTA
EKKI
ATHÖFNIN VERÐUR HALDIN
FYRIR FRAMAN FJÖLDA
MANNS. ÞÚ MUNT KOMA
AKANDI INN Á LEIKVANGINN Í
GLÆSIKERRU MEÐ
RAUÐHÆRÐRI SKVÍSU
HÆ
PABBI! ÉG ER UPP-TEKINN KALVIN.
HVAÐ ER ÞAÐ?
PABBI, GETURÐU NÁÐ Í
HAUG AF MOLD OG VÆNAN
SKAMMT OF GRASI, Á
LEIÐINNI HEIM?
SJÁLFSAGT!
SONUR SÆLL, HJÁ
OKKUR VÍKINGUNUM
ERU HORNIN TÁKN UM
VÖLD OG VIRÐULEIKA
ÞVÍ STÆRRI SEM
HORNIN ERU, ÞVÍ
MERKILEGRI ER
VIÐKOMANDI
ÞANNIG ER ÞAÐ
SVO SANNARLEGA
HVERNIG
LÍST YKKUR
Á ÞESSI.
ÞAU ERU Í
FLOTTUM
GAMALDAGS
STÍL
ÞETTA ER
SVONA „ANNIE
HALL“ STÍLL
MÉR SÝNIST
ÞETTA FREKAR
VERA
„ANDY ROONEY“
STÍLL
ÞÁ ER ÉG MÆTTUR OG BÚINN
AÐ KLÆÐA MIG UPP EINS OG
HINN MESTI SKÚRKUR
ÞESSI LÖGFRÆÐINGUR ÞYRFTI
AÐ VERA SNARGEGGJAÐUR TIL
AÐ VELJA MIG
ALLIR LÍTA
BETUR ÚT EN ÉG
NEMA HANN!
VIÐ VERÐUM
AÐ VELJA
ÞENNAN
ÞEIR VILDU FÁ
MYNDINA SEM
FYRST...
... EN ÞAÐ
ER
ÓMÖGULEGT
AÐ FINNA BÍL
Í RIGNING-
UNNI
ÞÁ VERÐ ÉG BARA AÐ
GRÍPA TIL ANNARS KONAR
FERÐAMÁTA
SVONA ÞARF ÉG EKKI HELDUR
AÐ STOPPA Á RAUÐU LJÓSI
Dagbók
Í dag er fimmtudagur 15. september, 258. dagur ársins 2005
Víkverji veltir þvífyrir sér hvort
mannekla og erf-
iðleikar við að ráða
starfsfólk á veit-
ingastaði og reyndar
fleiri staði komi til
með að bitna á rétti
gesta á almennilegri
þjónustu umfram það
sem eðlilegt getur tal-
ist. Látum vera að
maður þurfi að bíða
lengur eftir þjónustu
ef fáir eru að vinna en
það sem Víkverji er
að hugsa um er hvort
kvartanir yfir lélegri
þjónustu fái minni hljómgrunn hjá
yfirmönnum á veitingastöðum í
svona ástandi. Segjum að kaffið sé
kalt eða samlokan alveg ómöguleg.
Maður kvartar en starfsmaðurinn
byrjar bara með kjaft, alveg pollró-
legur. Þá vill maður auðvitað tala
við yfirmanninn en getur hugsast að
hann sé í klípu sem lýsir sér í því að
ef hann skammar undirmanninn þá
hóti sá hinn sami að hætta? Og þá
er illt í efni, því starfsfólk er ekki á
hverju strái. Er þetta atvinnumark-
aður í heljargreipum undirmann-
anna? Víkverji hefur aðallega sam-
úð með yfirmönnum á
undirmönnuðum stöðum í því at-
vinnuástandi sem nú
ríkir.
Þetta leiðir hugann
að hinum öfgunum,
djúpstæðu atvinnu-
leysi. Fyrir mörgum
árum heyrði Víkverji
sögu af því þegar Ís-
lendingur nokkur
hugðist reyna að fá
vinnu sem verkamað-
ur á verkstæði fyrir
strætisvagna í Sví-
þjóð. Atvinnuleysi
ríkti í landinu og í at-
vinnuviðtalinu var vin-
urinn spurður sér-
kennilegrar
spurningar, nefnilega hvort hann
áliti að hann ætti það virkilega skil-
ið að fá vinnu þarna á verkstæðinu.
Umsækjandinn vissi ekki svarið og
Víkverji er búinn að gleyma hvort
hann fékk vinnuna.
x x x
En þá aftur til Íslands. Þegarglæpa- og svindlmál koma upp
innan fyrirtækja og stofnana eru
þau alltaf spurð hvort þau krefjist
ekki sakavottorðs hjá nýjum um-
sækjendum. Ætli slakni á kröfunum
hvað þetta varðar, nú þegar vantar
fólk í vinnu? Víkverji veltir þessu
svona fyrir sér.
Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is
Þjóðleikhúsið | Á föstudag og laugardag verður opið hús í Þjóðleikhúsinu þar
sem leikárið verður kynnt í tali og tónum. Dagskráin hefst á Stóra sviðinu kl.
20:00 og er aðgangur ókeypis.
Þegar eru hafnar sýningar á fjórum leiksýningum frá fyrra leikári; Klaufum
og kóngsdætrum, Koddamanninum, Rambó 7 og Edith Piaf. Nú opnar Þjóð-
leikhúsið svo dyr sínar með kynningu á starfsemi næsta leikárs. Tinna Gunn-
laugsdóttir mun fara ofan í saumana á þeim leikverkum sem verða á fjölunum í
vetur, Klaufar og kóngsdætur líta við, leikarar úr Halldór í Hollywood taka lag-
ið, Þorvaldur Þorsteinsson gefur jólatóninn, flutt verða lög úr Túskildingsóper-
unni auk þess sem Jón Atli Jónasson segir frá Rambó 7 og Jón Páll Eyjólfsson
og leikhópurinn í Frelsi koma gestum á óvart. Kynnir er Jóhann Sigurðarson.
Í lok dagskrár verður gestum boðið upp á tónlist og uppákomur í Leik-
húskjallaranum.
Morgunblaðið/Ásdís
Opið hús í Þjóðleikhúsinu
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug-
lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569
1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811,
gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.600 kr. á mánuði
innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
Í kærleika sínum ákvað hann fyrirfram að veita oss sonarrétt í Jesú
Kristi. Sá var vilji hans og náð, sem hann lét oss í té í sínum elskaða
syni. (Ef. 1, 5.-7.)