Morgunblaðið - 15.09.2005, Qupperneq 38
38 FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
DAGBÓK
Sudoku
© Puzzles by Pappocom
Lausn síðustu gátu
Þrautin felst í því
að fylla út í reit-
ina þannig að í
hverjum 3x3-reit
birtist tölurnar
1-9. Það verður
að gerast þannig
að hver níu reita
lína bæði lárétt
og lóðrétt birti
einnig tölurnar
1-9 og aldrei má
tvítaka neina tölu
í röðinni.
Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Krossgáta
Lárétt | 1 akkeri, 4 krani,
7 hreyfill, 8 meðulin, 9
kraftur, 11 fífl, 13 heið-
urinn, 14 ládeyðu, 15
heilnæm, 17 ójafna, 20
púki, 22 spillt, 23 verð-
leiki, 24 hinn, 25 ávöxtur.
Lóðrétt | 1 sorti, 2 stríðin,
3 sjá eftir, 4 hæð, 5 spak-
ur, 6 út, 10 pússar, 12
reið, 13 espa, 15 refsa, 16
dáin, 18 kind, 19 fæddur,
20 aular, 21 blóðsuga.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 fýsilegur, 8 grund, 9 ilmur, 10 inn, 11 skarð, 13
solls, 15 flagg, 18 smátt, 21 róm, 22 tuggu, 23 áttan, 24
vitgranna.
Lóðrétt: 2 ýsuna, 3 ildið, 4 efins, 5 urmul, 6 uggs, 7 hrós,
12 róg, 14 orm, 15 fáti, 16 angri, 17 grugg, 18 smára, 19
ástin, 20 tonn.
Staður og stund á mbl.is.
Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að
finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is
Meira á mbl.is
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Tónlist
Laugarborg | Sigurður Flosason og
kvartett hans leika m.a. af nýrri plötu
Leiðin heim. Flytjendur auk Sigurðar eru
Eyþór Gunnarsson, Pétur Östlund og
Valdimar K. Sigurjónsson.
Vinaminni, safnaðarheimili Akra-
neskirkju | Hymnodia, Kammerkór Ak-
ureyrarkirkju, heimsækir Akurnesinga og
endurtekur þar efnisskrá sumartónleika
sem haldnir voru í Akureyrarkirkju í júlí.
Þetta er 14 manna hópur af vönu söng-
fólki.
Á efnisskránni eru verk úr ýmsum átt-
um, bæði hefðbundin kórlög og mjög
krefjandi verk eftir eldri og yngri höf-
unda. Stjórnandi er Eyþór Ingi Jónsson.
Tónleikarnir hefjast kl. 20.
Stykkishólmur | Sinfóníuhljómsveit Ís-
lands. Einleikari Stefán Jón Bernharðs-
son. Stjórnandi Bernharður Wilkinson. Kl.
19.30
Myndlist
Artótek Grófarhúsi | Ingimar Waage
myndlistarmaður sýnir olíumálverk á 1.
hæð Grófarhúss, Tryggvagötu 15.
www.artotek.is. Til 25. sept.
BANANANANAS | Þuríður Helga Krist-
jánsdóttir og Tinna Ævarsdóttir til 24.
sept.
Café Karólína | Arnar Tryggvason. Húsin
í bænum. Til 30. september.
Epal | Til sýnis innsetning eftir myndlist-
armanninn Finn Arnar. Í verkinu, sem
nefnist ,,Stígur“, er gestum sýning-
arinnar boðið í stuttan göngutúr ,,úti í
ósnortinni náttúrunni þar sem m.a. má
heyra vindinn gnauða“. Verk Finns er
m.a. unnið úr GRID, nýju efni frá Mont-
ana. Sýningin er til mánaðamóta.
Gallerí BOX | Darri Lorenzen. Stað sett.
Hljóðverk, ljósmyndir og teikning. Til 17.
sept. Opið fim. og lau. 14 til 17.
Gallerí Gyllinhæð | Sýning nemenda LHÍ,
Snæviþakið svín. Til 18. september. Opið
15–18 fim.–sun.
Gallerí I8 | Ólöf Nordal til 15. okt.
Hafnarborg | Eiríkur Smith til 26. sept.
Hrafnista Hafnarfirði | Sesselja Hall-
dórsdóttir sýnir í Menningarsal málverk
og útsaum til 4. okt.
Iða | Guðrún Benedikta Elíasdóttir. Und-
irliggjandi.
Kaffi Sólon | Víðir Ingólfur Þrastarson.
Olíumálverk. Til 24. sept.
Kirkjuhvoll Akranesi | Björn Lúðvíksson
til 18. sept. Opið alla daga nema mán.
15–18.
Listasafn Árnesinga | Sýningin Tívolí til
25. sept.
Listasafnið á Akureyri | Jón Laxdal til
23. október.
Listasafn Ísafjarðar | Katrín Elvarsdóttir
fram í október.
Listasafn Íslands | Íslensk myndlist
1945–1960 – Frá abstrakt til raunsæis.
Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn |
Meistari Kjarval 120 ára. Afmælissýning
úr einkasafni Ingibjargar Guðmunds-
dóttur og Þorvaldar Guðmundssonar. Til
2. október.
Listasafn Reykjanesbæjar | Eiríkur
Smith og konurnar í baðstofunni til 16.
okt.
Listasafn Reykjavíkur, Ásmundarsafn |
Maðurinn og efnið. Sýning á úrvali verka
úr safneign. Til 2006.
Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús |
Guðrún Vera Hjartardóttir til 30. des.
Erró til 23. apríl. Hvernig borg má bjóða
þér? til 2. okt.
Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir |
Úrval verka frá 20. öld til 25. september.
Norræna húsið | Sýning 17 danskra lista-
kona á veggteppum í anddyri.
Nýlistasafnið | Ásta Ólafsdóttir, Daði
Guðbjörnsson og Unnar Jónasson Auð-
arson til 2. okt.
Safn | Ólafur Elíasson „Limbo lamp for
Pétur“ til nóvember. Stefán Jónsson
„Við Gullna hliðið“ til miðs október.
Skaftfell | Listamaðurinn Carl Boutard –
„Hills and drawings“ í sýningarsal Skaft-
fells. Listamaðurinn Dodda Maggý með
sýningu sína „verk 19“ á vesturvegg
Skaftfells. Til 18. sept.
Skriðuklaustur | Helga Erlendsdóttir
sýnir 13 olíumálverk til 18. sept.
Suðsuðvestur | Gjörningaklúbburinn/
The Icelandic Love Corporation. Til. 25.
sept. Opið fim. og fös. 16–18 og helgar
14–17.
VG Akureyri | Sex ungir myndlist-
armenn. Alla föstudaga 16 til 18. Til 14.
október.
Þjóðminjasafn Íslands | Sýningin er af-
rakstur rannsókna Þóru Kristjánsdóttur
á listgripum Þjóðminjasafnsins. Markmið
sýningarinnar er að kynna til sögunnar
listamenn frá 16., 17. og 18. öld sem
hægt er að eigna ákveðin listaverk í eigu
Þjóðminjasafns Íslands.
Listasýning
Bæjarbókasafn Ölfuss | Ágústa Ágústs-
dóttir, söngkona og listamaður, sýnir
verk sín á Bæjarbókasafni Ölfuss, Þor-
lákshöfn. Listaverkin eru m.a. búin til úr
hlutum sem Ágústa hefur fundið í fjör-
unni.
Söfn
Bókasafn Kópavogs | 11. september
verkefnið er samvinna bókavarða um
heim allan sem hvetur til kynningar á
frelsi og lýðræði. Sjá slóðina http://
www.theseptemberproject.org Safnið
minnist atburðanna með kvikmyndasýn-
ingum 7.–30. sept. o.fl. Sjá heimas.
Bókasafnsins http://www.bokasafnkopa-
vogs.is.
Gljúfrasteinn – Hús skáldsins | Gljúfra-
steinn er opinn kl. 10–17 alla daga nema
mánudaga í vetur. Hljóðleiðsögn um hús-
ið, margmiðlunarsýning og gönguleiðir.
Nánar á www.gljufrasteinn.is.
Þjóðmenningarhúsið | Handritin – saga
handrita og hlutverk um aldir, Þjóðminja-
safnið – svona var það, Fyrirheitna land-
ið – fyrstu Vestur-Íslendingarnir, Bók-
minjasafn. Auk þess veitingastofa með
hádegis- og kaffimatseðli og lítil en
áhugaverð safnbúð.
Þjóðmenningarhúsið | JAM-hópurinn –
haustsýning. Sýnt íslenskt bókband gert
með gamla laginu eins og það var unnið
á 17. og 18. öld. Til 12. okt.
Þjóðminjasafn Íslands | Þjóðminjasafn
Íslands varðveitir minjar sem veita okkur
innsýn í menningarsögu okkar. Grunn-
sýning safnsins er hugsuð sem ferð í
gegnum tímann, hún hefst í skipi land-
námsmanns sem sigldi yfir opið haf til
nýrra heima og henni lýkur í flughöfn
nútímans.
Opið kl. 10–17 alla daga.
Veitingahús
Vín & Skel | Opnaður hefur verið á
Laugavegi 55b veitingastaður sem sér-
hæfir sig í skelfiski. Á einföldum mat-
seðli er að finna krækling, skelfiskveislu,
Hrefnukjöt og fleira góðgæti. Tengist
staðurinn Fjöruborðinu á Stokkseyri og
mun andrúmsloft og matseld verða í lík-
ingu við það.
Fundir
Aðalþjónustuskrifstofa Al-Anon | Ala-
teen fundur í Aðventkirkjunni Ingólfs-
stræti 19. kl. 18. Alateen er fyrir ungt
fólk sem hefur orðið fyrir áhrifum af
drykkju einhvers annars og miðast við
börn 13–17 ára. Nánar á www.al–anon.is.
Jónshús | Íslendingafélagið í Kaup-
mannahöfn stendur fyrir nýbúakynningu
kl. 18–20.
Fulltrúar frá stjórn ÍFK, upplýsingaþjón-
ustunni Hallo Norden, sendiráðinu og
fulltrúi stúdenta verða á staðnum. Reynt
verður að leita svara við algengum
spurningum og vandamálum sem upp
koma við flutning til Danmerkur.
Kópavogsdeild RKÍ | Kópavogsdeild
Rauða kross Íslands óskar eftir fleiri
sjálfboðaliðum í mannúðarverkefni deild-
arinnar.
Kynningarfundur fyrir nýja sjálfboðaliða
verður haldinn í sjálfboðamiðstöðinni
Hamraborg kl. 20. Allir áhugasamir vel-
komnir að kynna sér Rauðakrossstarfið í
Kópavogi. Nánari uppl. á www.redc-
ross.is/kopavogur.
UNIFEM á Íslandi | Félagsfundur UNI-
FEM á Íslandi verður haldinn í Miðstöð
SÞ í Skaftahlíð 24, kl. 20–21.30. Á fund-
inum verður sagt frá áherslum í starfi
UNIFEM og umfangsmikil dagskrá vetr-
arins kynnt. Rædd verður staða kvenna í
Íran, Írak og Afganistan. Allir velkomnir,
léttar veitingar.
Fyrirlestrar
Háskóli Íslands | Rabb-fyrirlestur verður
hjá RIKK í stofu N132, Öskju, 15. sept. kl.
12.15–13.45. Lára Marteinsdóttir fjallar
um konur og kristsmýtuna í kvikmynd-
um. Einnig verður brugðið upp sýn-
ishornum úr gömlum og nýjum kvik-
myndum.
Rannsóknastofa í kvenna- og kynja-
fræðum við HÍ | Fyrirlestur í dag kl.
12.15–13.15. Frá upphafi kvikmyndasög-
unnar hefur verið um það deilt að hve
miklu leyti kvikmyndir endurspegli sam-
tíð sína og/eða móti hana. Tekist er á
um túlkun kvikmynda; t.d. um vægi hug-
myndafræði eða mýta í persónusköpun
og að hve miklu leyti hið persónulega
endurspegli hið pólitíska.
Málþing
Radisson SAS Hótel Saga | Málþing
Lögfræðingafélags Íslands í samstarfi
við stjórnarskrárnefnd verður haldið kl.
12–17. Verð 11.000 kr. en 9.000 kr. fyrir
félaga í LÍ. Skráning fer fram í síma
568 0887 milli kl. 13–15 til 14. sept. eða
á netfangið logfr@logfr.is.
Námskeið
Heilsustofnun NLFÍ | Námskeið gegn
reykingum verður haldið 23. til 30. októ-
ber 2005. Upplýsingar og innritun í
Heilsustofnun NLFÍ, Hveragerði; beidni-
@hnlfi.is; www.hnlfi.is.
Laugardalurinn | Námskeið fyrir byrj-
endur og lengra komna í Stafgöngu
hefst 27. sept. kl 17.30. Skráning og
upplýsingar á www.stafganga.is eða sím-
um 616 8595 og 694 3571.
Staðlaráð Íslands | Námskeið 22. sept-
ember, ISO 9000 gæðastjórnunarstaðl-
arnir – Lykilatriði, uppbygging og notkun.
Markmið: Að þátttakendur geti gert
grein fyrir megináherslum og uppbygg-
ingu kjarnastaðlanna í ISO 9000:2000
röðinni og þekki hvernig þeim er beitt
við að koma á og viðhalda gæðastjórn-
unarkerfi.
Upplýsingar á www.stadlar.is.
www.ljosmyndari.is | 3ja daga
ljósmyndanámskeið fyrir stafrænar
myndavélar verður 19., 21. og 22. sept-
ember kl. 18–22.
Farið er í allar helstu stillingar á mynda-
vélinni, myndatökur og tölvuvinnslan út-
skýrð ásamt Photoshop og ljósmyndast-
údíói. Leiðbeinandi Pálmi Guðmundsson.
Skráning á www.ljosmyndari.is eða í
síma 898 3911.
Ráðstefnur
Nordica hotel | Norræn ráðstefna um
landupplýsingar er á Nordica. Allt það
nýjasta á sviði landupplýsinga og notk-
unar landupplýsingakerfa. Fimmtíu fyr-
irlesarar og sýning. Nánari upplýsingar
á: http://www.meetingiceland.com/
ginorden2005/.
Markaður
Kattholt | Flóamarkaður til styrktar kis-
unum opinn þriðjudaga og fimmtudaga
kl. 14–17.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Hrúturinn veit hvaða stefnu á að taka og
þarft því að beina öðrum inn á réttar
brautir. Hann hlýtur viðurkenningu fyrir
óvenjulegustu þættina í fari sínu, ef hann
er ekki að nýta þá nú þegar á hann að
byrja á því strax.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Nautið lætur freistast til þess að kenna
öðrum um óreiðuna í lífi sínu þegar bilbug
er á því að finna, það er að segja þangað
til það man eftir því að það tók sjálft að
sér öll verkefnin. Þá er ekki um annað að
ræða en standa sína pligt.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þýðingarmikið samband er rétt nýbyrjað
en tvíburanum finnst sem hann hafi verið
með viðkomandi einstaklingi frá því að
sólkerfið varð til. Sumir ákveða að skuld-
binda sig fyrir lífstíð í því ljósi.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Krabbinn vaknar við fuglasöng og kemur
meiru í verk fyrir hádegi en hann er van-
ur á heilum degi. Skrýtið hvað vinsældir
hans vaxa með kvöldinu, án þess að hann
leggi nokkuð á sig.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Einhver virðist halda að hann þekki til
ljónsins persónulega, þótt það kannist
varla við viðkomandi manneskju. Fólk
keppist við að fá að vera í félagsskap
ljónsins, sem gleður það. Ekki samt láta
það stíga þér til höfuðs.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Foreldrahlutverkið er meyjunni eðlilegt
og hún á gott með að stuðla að vellíðan og
stöðugleika hjá þeim sem finna til eirð-
arleysis og óöryggis. Það er vel hægt án
þess að taka upp veskið, vel að merkja.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Í hverjum hópi leynist fortölumaður og
vogin situr einmitt uppi með þannig
manneskju í dag. Sittu fast við þinn keip,
hið góða er vel hugsanlegt, meira að segja
líklegt. Sýndu svegjanleika og taktu öllu
með opnum huga.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Mörkin milli raunveruleika og ímyndunar
hafa máðst, en það gerir kannski ekkert
til. Ef maður gefur ímyndunaraflinu laus-
an tauminn nógu lengi verður það raun-
verulegt. Deildu draumum þínum með
einhverjum í fiskamerkinu ef þú vilt hafa
heppnina með þér.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Ef þú neitar þér um nógu mikið kemur
hin hliðin ósjálfrátt upp á yfirborðið og
tekur af þér ráðin. Allt er best í hófi, hófið
líka. Bogmaðurinn á að lyfta sér upp í
kvöld, sleppa fram af sér beislinu og
skemmta sér.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Það er ekki alltaf tekið út með sældinni að
vera viðmótsþýður. Ef þú berð aldrei í
borðið glatar þú hæfileikanum til þess að
láta að þér kveða. Sérfræðiþekking hjálp-
ar steingeitinni til þess að brjóta ísinn í
kvöld, aflaðu þér frekari upplýsinga um
allt sem þú hefur áhuga á.
Vatnsberinn
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Sumir tapa þræðinum undir álagi en
streita eykur orku vatnsberans að þvílíku
marki að hið eina sem hann tapar er lík-
amsmassi. Hann á gott með að fá sam-
starfsfólk í lið með sér, með því að kveikja
á persónutöfrunum. (Í dag væri upplagt
að skipta um háralit).
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Áætlanir þínar ætla bersýnilega ekki að
ganga eftir. Ekki gefast upp, en ger-
breyttu nálguninni. Franz Kafka skrifaði
eitt sinn að sumu geti maður bara áorkað
með því að stefna í þveröfuga átt.
Stjörnuspá
Holiday Mathis
Vaxandi tungl í vatnsbera
minnir okkur á að forðast
stöðnun. Við þurfum að
fylgjast með hræringum í samfélaginu,
stjórnmálunum og tækninýjungum til þess
að standa okkur vel í hlutverkunum sem við
gegnum. Óhindrað hugmyndaflæði er lyk-
ilatriði. Viðurkennum vanþekkingu, leitum
svara og deilum vitneskju okkar með öðrum.