Morgunblaðið - 15.09.2005, Síða 48
ÉG skil í raun og veru ekki hvaðan
bækurnar mínar koma,“ segir
bandaríski rithöfundurinn Paul
Auster í viðtali við Morgunblaðið en
hann er gestur Bókmenntahátíðar í
Reykjavík. „Ég skil ekki hvernig
hugmyndirnar verða til. Það gerist
einhvers staðar djúpt í undirvitund-
inni. Bækurnar eru allar skrifaðar af
ósjálfráðri hvöt. Ég get í rauninni
ekki útskýrt það.“
Paul Auster segist líta á nýja
skáldsögu sína, The Brooklyn Foll-
ies, sem gamansögu í þeim skilningi
að flestar persónur hennar eru betur
settar í lok hennar en þær voru í
upphafi hennar. Bókin er komin út í
Frakklandi en er væntanleg í
Bandaríkjunum í október og í ís-
lenskri þýðingu á næsta ári.
Í bókinni er að finna marga af
þeim þráðum sem liggja í gegnum
höfundarverk Austers. Hann segir
sjálfur að allt sem hann skrifi sé
tengt.
„Ég reyni að nálgast hverja bók
út frá nýju sjónarhorni, ég reyni að
ganga þvert á það sem ég hef áður
gert, en einhvern veginn enda ég
alltaf innan í sjálfum mér.“ Aldeilis | 24
Einn þessara þráða er tilviljunin
sem Auster segist vera heltekinn af.
„Ég er ekki að segja að allt sem
gerist sé tilviljunum háð. Við veljum
og skipuleggjum fram í tímann, við
mótum þarfir okkar og þrár. En það
vita allir að umhverfið hefur áhrif á
val okkar og skipulag og þarfir okk-
ar og þrár. Og það er einmitt þegar
þessir tveir heimar, sá innri og ytri,
skella saman sem eldglæringar
myndast og sögur verða til,“ segir
Auster.Paul Auster segist líta á nýjustu
skáldsögu sína, The Brooklyn
Follies, sem gamansögu.
Morgunblaðið/Einar Falur
Skil ekki hvaðan bækurnar koma
KJARTAN Ólafsson, nýráðinn
prófessor í tónsmíðum við
Listaháskóla Íslands, gagn-
rýnir stjórnvöld fyrir ákvarð-
anatöku í tónlistarhússmálinu,
þar sem „gleymst“ hafi að ráð-
færa sig við fagaðila og fyrir
það að leggja niður Listdans-
skólann án samráðs við fag-
fólk. Hann segir að listafólk
muni ekki láta sniðganga sig
endalaust.
„Listamenn munu ekki sitja undir þessum
vinnubrögðum. Ef stofna þarf pólitískan flokk
til að koma þessum sjónarmiðum á framfæri
og gæta hagsmuna listamanna í samfélaginu
verður það gert.“ | 23
Munu ekki láta
sniðganga sig
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
Opið 8-24 alla daga
í Lágmúla og Smáratorgi
VÍGLUNDUR Kristjánsson, torf- og steina-
hleðslumaður á Hellu, vinnur nú að því að láta 15
ára gamlan draum verða að veruleika, að reisa svo-
nefnda Íslandsveröld þar sem hægt verður að skoða
og lifa sig inn í Íslandssöguna allt frá víkingaöld til
vorra daga. Um er að ræða lifandi safn, fræðasetur
og afþreyingargarð sem gæti kostað um þrjá millj-
arða króna í uppbyggingu og skapað 70 störf árið
um kring.
Víglundur, sem hér er að störfum við Odda á
Rangárvöllum í gær ásamt Birni Hrannari Björns-
syni, hefur nokkra staði á landinu í huga fyrir Ís-
landsveröld sína, m.a. undir Eyjafjöllum, við Æg-
issíðufossa hjá Hellu, Krísuvík, Hvalfjörð og
Eyjafjörð. Næsta skref er að afla fjármagns og und-
irbúa verkefnið nánar. „Þetta er ekki spurning um
hvort heldur hvenær þetta verður að veruleika,“
segir Víglundur m.a. í Morgunblaðinu í dag. | 6
Morgunblaðið/RAX
Dreymir um að reisa
hér á landi Íslandsveröld
ÍSLENSKA lyfjafyrirtækið In-
vent farma, sem festi nýverið
kaup á tveimur lyfjaverksmiðjum
á Spáni, hyggst setja upp rann-
sóknar- og þróunardeild í Vatns-
mýrinni í tengslum við fyrirhug-
að svæði Háskólans í Reykjavík.
Dagur B. Eggertsson, formað-
ur skipulagsráðs Reykjavíkur,
segir að tillaga um að fyrirtækinu
verði gefið vilyrði um lóð verði
tekin fyrir, og væntanlega sam-
þykkt, í borgarráði í dag. Hann
segir að svæðið verði deiliskipu-
lagt með fyrirhuguðu svæði Há-
skólans í Reykjavík í Vatnsmýr-
inni, og sé vilyrðið veitt með
sömu formerkjum og vilyrði HR.
Ef allt gangi að óskum geti fyr-
irtækið hafið byggingu húsnæðis
snemma næsta haust, og hafið
starfsemi ári síðar, eða haustið
2007.
Fyrstu áætlanir gera ráð fyrir
30–40 starfsmönnum, og um
2.000 fermetra húsnæði, með
stækkunarmöguleikum upp í
3.000 fermetra, segir Dagur.
„Þetta er gríðarlega áhugavert
mál, því þetta er einmitt drauma-
staðurinn fyrir þekkingarfyrir-
tæki af þessu tagi.“
Þróa samheitalyf
Friðrik Steinn Kristjánsson,
stjórnarformaður Invent farma,
segir að sú rannsóknar- og þró-
unardeild sem sett verði upp hér
á landi verði til viðbótar við þá
þróunarstarfsemi sem fyrirtækið
er þegar með á Spáni. Hann segir
að ákveðið hafi verið að setja
deildina upp hér á landi þar sem
hér sé hægt að þróa ákveðin
samheitalyf sem ekki megi þróa á
Spáni vegna einkaleyfa. Spurður
hvers vegna Vatnsmýrin hafi orð-
ið fyrir valinu segir Friðrik stað-
setninguna góða, miðsvæðis í
borginni, og nálægðin við þekk-
ingarumhverfið sé mikill kostur.
Ekki er upplýst hversu háar
fjárfestingar er um að ræða að
svo stöddu. Invent farma er að
nær öllu leyti í eigu íslenskra
fjárfesta, svo sem Frosta Bergs-
sonar, Jóns Árna Ágústssonar,
Inga Guðjónssonar, Friðriks
Steins Kristjánssonar o.fl. Um
13% fyrirtækisins eru í eigu
starfsmanna á Spáni.
Vilyrði fyrir lóð fyrir
lyfjaþróun í Vatnsmýri
Eftir Brján Jónasson
brjann@mbl.is
ÞRETTÁN ára drengur slasaðist
þegar hann varð fyrir vélhjóli við
Lyngás í Rangárþingi ytra síð-
degis í gær. Samkvæmt upplýs-
ingum lögreglunnar á Hvolsvelli
voru tildrög slyssins þau að þrír
ungir drengir á aldrinum 13 til 14
ára voru á númerslausum vélhjól-
um inni á lokuðu kartöflugarða-
svæði og óku eftir vegslóða þegar
fjórði pilturinn, er sat á spýtna-
hrúgu og fylgdist með akstri
hinna þriggja, varð fyrir einu vél-
hjólanna með þeim afleiðingum
að hann hlaut opið beinbrot á fót-
legg fyrir ofan ökkla.
Læknir frá Hvolsvelli kom á
staðinn og var slasaði drengurinn
í framhaldinu fluttur með sjúkra-
bifreið í sjúkrahús á höfuðborg-
arsvæðinu. Ökumaður vélhjólsins
slapp án meiðsla.
Málið er í rannsókn, en ljóst er
að umrædd vélhjól voru bæði
óskráð og ótryggð og mega
drengirnir því búast við sektum.
Þess má einnig geta að til þess að
fá útgefin ökuréttindi á minni vél-
hjól þarf einstaklingurinn að vera
orðinn 15 ára gamall.
13 ára ung-
menni í vél-
hjólaslysi
FRANSKT par sem gisti í Bald-
vinsskála á Fimmvörðuhálsi í
fyrrinótt vissi ekki hvaðan á það
stóð veðrið í dagrenningu í gær
þegar þau litu út og við þeim
blasti snævi þakin jörð. Skyggni
var auk þess með minnsta móti
sökum snjómuggu. Þessi veðra-
brigði komu þeim algjörlega í
opna skjöldu og treystu þau sér
aðeins mátulega vel til þess að
halda gönguferðinni áfram.
Að sögn lögreglunnar á
Hvolsvelli hringdi fólkið í lög-
reglu og bar undir varðstjóra
hvort óhætt væri að ferðast í
þessu veðri. Þó tóku þau jafn-
framt fram að þau væri ekki í
hættu og að ekki væsti um þau
innandyra. Lögregluvarðstjór-
inn ákvað að best væri að senda
björgunarsveitarmenn eftir
fólkinu og bað þau vinsamlegast
um að halda kyrru fyrir í skál-
anum sem þau og gerðu.
Par sótt
á Fimm-
vörðuháls
♦♦♦
♦♦♦
„ÞAÐ er ágætur gangur í viðræðunum,“ sagði
Hannes Smárason, stjórnarformaður FL Group, í
samtali við Morgunblaðið í gærkvöld, þegar hann
var spurður um gang viðræðna forsvarsmanna FL
Group um möguleg kaup á Sterling. „Efnislega er
ekkert annað um málið að segja. Við erum bara að
vinna í þessu af fullum krafti,“ sagði Hannes.
Hannes sagði að það væri ótímabært að spá fyr-
ir um það hvenær viðræðum við eigendur Sterling
lyki og hann kvaðst sömuleiðis ekki geta sagt til
um það hvort hann væri bjartsýnn á að jákvæð nið-
urstaða fengist.
Norrænir fjölmiðlar hafa sýnt málinu nokkurn
áhuga og bendir norska blaðið Dagens Næringsliv
á að verði af kaupum FL Group á Sterling væri
það í annað skipti á árinu sem danska flugfélagið
skipti um hendur, en núverandi eigandi þess, Fons
eignarhaldsfélag, keypti félagið í apríl.
Í blaðinu kemur einnig fram að niðurstaða við-
ræðnanna sem nú fara fram gæti annaðhvort verið
sú að FL Group fjárfesti í Sterling eða tæki það yf-
ir alfarið. | B11
FL Group og Sterling
Góður gangur
í viðræðunum
♦♦♦
Kjartan Ólafsson
LANDSSAMBAND íslenskra útvegsmanna
(LÍÚ) mun ekki fara í skaðabótamál gegn olíufé-
lögunum vegna meints verðsamráðs en vel er
hugsanlegt að einhverjir félagar LÍÚ taki sig sam-
an um að höfða mál með fulltingi félagsins.
LÍÚ var veittur aðgangur að flestum gögnum
Samkeppnisráðs vegna hins meinta olíusamráðs í
lok maí og hafa lögfræðingar samtakanna farið yf-
ir þau gögn í framhaldinu, segir Friðrik J. Arn-
grímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ.
Stjórn LÍÚ átti viðræður við olíufélögin, fyrir
hönd fjölmargra félaga, um það hvort olíufélögin
væru tilbúin til að semja um málið, en svo reyndist
ekki vera.
LÍÚ ekki í skaða-
bótamál vegna
olíusamráðs