Morgunblaðið - 28.10.2005, Blaðsíða 18
18 FÖSTUDAGUR 28. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Berlín. AFP. | Frúarkirkjan í
Dresden, sem er táknræn fyrir
ólýsanlegar hörmungar óbreyttra
borgara í einum mestu loftárásum
síðari heimsstyrjaldar, verður end-
urvígð á sunnudag. Nú er hún ris-
in á ný sem eins konar sáttargjörð
gamalla fjandmanna og til marks
um ást Þjóðverja á sögu sinni og
menningu.
Þýska vikuritið Der Spiegel seg-
ir að endurgerð kirkjunnar, sem
er í barokkstíl, beri „hinni sið-
væddu föðurlandsást“ Þjóðverja
fagurt vitni en kirkjan var gjör-
eyðilögð í óskaplegum loftárásum
Bandamanna undir lok stríðsins, í
febrúar 1945. Þjóðverjar sjálfir
áætla að um 100.000 manns hafi
farist í eldhafinu en á þessum tíma
var borgin yfirfull af flóttafólki.
Þegar árásunum lauk stóð varla
steinn yfir steini í „Flórens við
Saxelfi“ eins og Dresden var köll-
uð vegna glæsilegra barokkbygg-
inga.
Í hálfa öld og allan tíma komm-
únismans var Frúarkirkjan bara
ein grjóthrúga og það var ekki
fyrr en 1994, fimm árum eftir fall
Berlínarmúrsins, að hafist var
handa við að reisa hana úr rústum.
Kostaði það rúmlega 13 milljarða
íslenskra króna.
Þýski sagnfræðingurinn Arnulf
Baring segir að endurreisnin hafi
verið hverrar krónu virði:
„Frúarkirkjan var meira en
kirkja. Hún var táknræn fyrir eyð-
ingu heillar borgar. Við eigum,
alltaf þegar það er unnt, að end-
urheimta hluta gamalla borga. Það
hjálpar okkur við að skilja hver við
erum, okkar eigin sögu,“ segir
Baring.
Gullinn kross frá Coventry
í Bretlandi
Bretar, sem stóðu fyrir loftárás-
unum, að margra mati einhverjum
svartasta bletti á stríðsrekstri
Bandamanna í styrjöldinni, gáfu
rúmlega 70 milljónir króna til end-
urreisnar á kirkjunni og hertoginn
af Kent verður fulltrúi bresku
konungsfjölskyldunnar við vígsl-
una. Er hann jafnframt verndari
Dresden-sjóðsins, sem safnað hef-
ur fé til verksins.
Búist er við að allt að 100.000
manns safnist saman við kirkjuna
á sunnudag en þá mun fulltrúi
ensku borgarinnar Coventry gefa
Frúarkirkjunni gullinn kross
ásamt veldishnetti. Coventry var
mjög illa leikin í loftárásum Þjóð-
verja.
Meðal þeirra, sem unnu að smíði
krossins, er silfursmiðurinn Alan
Smith en faðir hans tók þátt í loft-
árásunum á Dresden á sínum tíma.
Frúarkirkjan í Dresden risin á ný
Táknræn fyrir sættir gamalla fjandmanna og óður til ástar Þjóðverja á sögu sinni
AP
Rústir Frúarkirkjunnar áður en hafist var handa við endursmíðina 1994.
Frúarkirkjan í allri sinni dýrð. Endurreisnin kostaði rúmlega 13 milljarða
ísl. kr. Búist er við, að allt að 100.000 manns verði við vígsluna á sunnudag.