Morgunblaðið - 28.10.2005, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. OKTÓBER 2005 19
ERLENT
Amsterdam. AFP. | Eldur kom upp í
fangelsi á Schiphol-flugvelli í Amst-
erdam í fyrrinótt og varð hann 11
ólöglegum innflytjendum að bana.
Mörgum öðrum tókst að sleppa og
er nú leitað.
Eldurinn kom upp í einni álmu
byggingarinnar, sem hýsti 350
manns, en ekki var enn í gær ljóst
hvað olli honum. Martin Bruinsma,
talsmaður hollenska ríkissaksókn-
araembættisins, sagði, að menn-
irnir, sem létust, hefðu verið ólög-
legir innflytjendur og Michel
Bezuijen, bæjarstjóri í Harlemm-
ermeer, þar sem Schiphol er, sagði,
að búið væri að handtaka aftur þrjá
menn, sem sloppið hefðu út, en ekki
væri alveg ljóst hve margir gengju
enn lausir.
Eldurinn náði til 12 klefa af 24 og
furða margir sig á því hve fljótt
hann breiddist út. Einn fanganna
sagði, að öryggisverðir hefðu
brugðist seint við hrópum þeirra á
hjálp en yfirvöld neita því. Um 15
manns slösuðust, þar af einn alvar-
lega.
Reuters
Bruninn í Amsterdam í gær, 11 ólöglegir innflytjendur létu lífið.
Eldur varð ellefu
að bana á Schiphol
RÍKISSTJÓRN
Bretlands hefur
náð samkomulagi
um lagafrumvarp
þar sem kveðið
er á um takmark-
að reykingabann
í lokuðu rými á
opinberum vett-
vangi í Englandi.
Þetta þýðir að
krár og klúbbar sem ekki selja mat
mega heimila reykingar.
Deilt var um málið í ríkisstjórn
Tonys Blairs en ýmsir vildu að
bannið yrði afdráttarlaust og án
undantekninga. Niðurstaðan er á
hinn bóginn í samræmi við það sem
kveðið er á um í stefnuskrá breska
Verkamannaflokksins og í anda
þess sem hinir frjálslyndari innan
flokksins höfðu lagt til. Þá kom og
fram sú tillaga að reykingar yrðu
heimilaðar á krám og veitingastöð-
um sem ekki seldu mat á þann veg
að þar yrðu innréttuð reykherbergi
og búið svo um hnútana að þangað
inn þyrfti starfsfólk ekki að fara.
Þessari málamiðlun var hafnað og
þess í stað horfið aftur til stefnu-
skrárinnar en það var fyrrum heil-
brigðismálaráðherra Bretlands,
John Reid, sem á sínum tíma lagði
til að slík málamiðlun yrði skrifuð
inn í stefnu flokksins.
Patricia Hewitt, núverandi heil-
brigðisráðherra, hélt uppi vörnum
fyrir frumvarpið sem lagt var fram
á þingi í gær. Lagði hún áherslu á
að 99% vinnustaða í Englandi yrðu
nú reyklausir. Lög sem banna reyk-
ingar í lokuðu, opinberu rými hafa
þegar verið samþykkt í Skotlandi,
Wales og á Norður-Írlandi.
Talsmaður bresku læknasamtak-
anna hefur lýst yfir „miklum von-
brigðum“ sökum niðurstöðu ríkis-
stjórnarinnar.
Takmarkað reyk-
bann í Englandi
Patricia Hewitt
Gautaborg. Morgunblaðið. | Bosse Ring-
holm, varaforsætisráðherra Svíþjóðar
og fyrrverandi fjármálaráðherra, er í
vandræðum þessa dagana vegna þess
að sænsk skattayfirvöld staðhæfa nú
að íþróttafélagið Enskede IK í Stokk-
hólmi hafi dregið 950 þúsund sænskar
krónur undan skatti á árunum 2002–
2003. Ringholm var stjórnarformaður
íþróttafélagsins á þessum tíma en upp-
hæðin samsvarar um 7,3 milljónum ís-
lenskra króna.
Sænska ríkisútvarpið sagði frá því í
fyrrasumar að grunur léki á að
Enskede IK hefði borgað þjálfurum
svart en Ringholm vísaði því þá frá.
Ringholm, sem einnig gegnir embætti
ráðherra íþróttamála, segir nú að þær
upphæðir sem þjálfarar hafi fengið,
hafi ekki verið skattskyldar þar sem
um ferðauppbót hafi verið að ræða.
Sænska ríkisútvarpið hefur nú
greint frá samningi sem gerður var á
milli íþróttafélagsins og þjálfara og
segir hann sanna að Enskede IK hafi
boðið svört laun
sem að hluta hafi
verið dulbúin sem
uppbót fyrir ferðir
á vegum félagsins.
Ringholm seg-
ist ekki taka
ábyrgðina á þess-
um samningi,
hann hafi ekki séð
hann áður. Hluti
stjórnarandstöðunnar, þ.e. talsmenn
Kristilegra demókrata og Þjóðar-
flokksins, krefst nú afsagnar Ring-
holm þar sem hann hafi brotið traust.
Talsmenn Hægriflokksins og Mið-
flokksins ganga ekki svo langt.
Göran Persson forsætisráðherra
segist í samtali við TT fréttastofuna
bera fullt traust til Ringholm og segir
frekari rannsókn munu leiða í ljós
hvað býr að baki staðhæfingum
skattayfirvalda. Samflokksmaður
Ringholm, Susanne Eberstein, er for-
maður skattanefndar sænska þingsins
og það er hennar skoðun að ráðherr-
um eigi ekki að leyfast að sitja í stjórn-
um félaga og fyrirtækja.
Þrýst á Ring-
holm um afsögn
Bosse Ringholm
Eftir Steingerði Ólafsdóttur
steingerdur@telia.com
!
"##$" %$# ### ### &
'
(
)
(
!
" #
$ %
& ' ( ') ''
' *(+ !& '
,$ + !& ' - .
) & ' / 0), 1 +
' 2
+34 1.
556
-
(341' * (
'
" !
"##$* $# ### ### &
'
(
"
)
(
!
" #
$ %
& ' ( ') ''
' *(+ !& '
,$ + !& ' - .
) & ' / 0), 1 +
' 2
+34 1.
556
-7
(341' * (
'
* !
+"##$*,# ### ### &
'
(
"&
*
)
( "
2 ''(
!8
$ 9
$ *(
+ '' )(''
+'
/'
'+ '
: ;) -
/ / 0), 1 +
' 2 . "2
5565 -
(341' * (
'
* !
-"##$.# ### ### &
'
(
-
*
)
( "
< ''
!
$ 9
$ *(
+ '' )(''
+'
/''
' + '
: ;) - /
/ 0), 1 + ' 2 . "<
5565 &
(341' * (
'
, !
"##$/## ### ### &
'
(
7
)
( &
!
" 7#
$ %
4' ( ') '''
$=>
+ !
( - .
)
( < '44=>)
(
)
*44*( /
0), 1 + ' 2
+341. &
556
(341' * (
'
?')(
+3411
3) @!)
+ :
'
+*' 0)')(