Morgunblaðið - 28.10.2005, Síða 24
24 FÖSTUDAGUR 28. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
LANDIÐ
AUSTURLAND
Grundarfjörður | „Ég er dellukarl í
sögu og hef sérstaklega gaman af
öðruvísi söguskýringum. Út úr því
koma ýmis skrítin tilvik,“ segir Ingi
Hans Jónsson sagnamaður og for-
stöðumaður Eyrbyggju – sögumið-
stöðvar í Grundarfirði. Hann heldur
fyrirlestur í Bæringsstofu í næstu
viku sem hann nefnir „Snæfell-
ingurinn James Bond“. Fyrirlest-
urinn, sem endurtekinn verður
nokkrum sinnum, er liður í menn-
ingarhátíðinni Rökkurdögum sem
nú stendur yfir í Grundarfirði.
Ingi Hans tengir sögupersónuna
James Bond við Snæfellsnes í gegn-
um Vestur-Íslendinginn sir William
Stephenson en höfundur njósna-
sagnanna, Ian Flemming, sagðist
hafa verið undir áhrifum frá honum
og því hefur líka verið haldið fram
að Stephenson hafi verið bein fyrir-
mynd Flemmings að James Bond
og segist Ingi Hans hafa séð margt
sem bendi til þess að það sé rétt.
William Stephenson fæddist í ná-
grenni Winnipeg í Kanada 1896 en
var ættaður frá Klungubrekku á
Skógarströnd á Snæfellsnesi. Ingi
Hans styðst við rannsóknir Vigfús-
ar Geirdals sagnfræðings á uppruna
hans og ævi auk þess sem hann hef-
ur sjálfur kynnt sér söguna. Hann
segir að foreldrar Williams hafi ver-
ið Kristín Guðlaugsdóttir og Vigfús
Stefánsson (Stephenson) sem fluttu
frá Klungubrekku til Vesturheims.
Á Bondslóðum í Skotlandi
Hann átti afar viðburðaríka ævi.
Barðist í fyrri heimsstyrjöldinni og
efnaðist síðan á iðnrekstri í Bret-
landi. Ævintýralegasti kaflinn í ævi
hans er þó leynilegt starf hans í
þágu Breta fyrir og í seinni heims-
styrjöldinni. Fyrir orð Winstons
Churchills forsætisráðherra byggði
Stephenson upp og stjórnaði
njósnaneti fyrir Breta vestanhafs,
undir njósnaranafninu Intrepid, og
tók þátt í undirróðursstarfsemi í
þeim tilgangi að fá Bandaríkjamenn
til liðs við Breta í styrjöldinni. Vitað
er að Ian Flemming, höfundur
James Bond-bókanna, var sam-
starfsmaður hans í New York.
Leyniþjónusta Bandaríkjanna, CIA,
var byggð upp á þeim grunni sem
þar var lagður. Stephenson var að-
laður í Bretlandi 1945 og fékk einn-
ig æðstu borgaralegu viðurkenn-
ingar sem veittar eru í Banda-
ríkjunum og Kanada.
Ingi Hans segir að ótrúlega
margt hafi lengi vel verið á huldu
um ævi Williams Stephensons þótt
hann hafi verið mikill auðmaður og
ævintýramaður og látist í hárri elli.
Þetta eigi ekki síst við um bernsku
hans enda hafi hann ekki haft neitt
samband við fjölskyldu sína í
Kanada frá því á millistríðsárunum
og hafi ýmist gefið í skyn að hann
væri af skoskum eða norskum ætt-
um. Þó hafa á seinni árum verið
skrifaðar bækur um ævi hans og
gerð heimildarmynd.
Ingi Hans hefur undanfarna daga
verið í Englandi og Skotlandi, meðal
annars í Edinborg á slóðum Ians
Flemmings og Seans Connerys sem
lék njósnara hans hátignar, 007, á
eftirminnilegan hátt. Ingi Hans tek-
ur fram að hann byggi mikið á rann-
sóknum Vigfúsar Geirdals en hafi
síðan sökkt sér ofan í þessa sögu,
eins og hann geri gjarnan þegar
hann fái dellu fyrir einhverjum hlut-
um. „Við Snæfellingar eigum að
monta okkur af því sem við eigum,
ekki veitir af,“ segir Ingi Hans og
neitar því staðfastlega að langsótt
sé að kalla James Bond Snæfelling.
Ingi Hans flytur fyrirlestur sinn
næstkomandi þriðjudag, 1. nóvem-
ber, og endurtekur hann fimm sinn-
um en menningarhátíðin stendur
framundir miðjan nóvember. Ein-
hverjir atburðir eru á hverjum degi.
Eftir fyrirlesturinn er síðan sýnd
valin kvikmynd með söguhetjunni.
Ingi Hans Jónsson sagnamaður segir að James Bond sé Snæfellingur
Fyrirmynd njósnarans er
bóndasonur frá Klungubrekku
007 Sean Connery sem James Bond.
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
Sir William
Stephenson
Ingi Hans Jónsson
sagnamaður.
Grundarfjörður | Þótt umferð hafi
verið hleypt á nýjan veg og brú yfir
Kolgrafafjörð í desember sl. lauk
ekki lokafrágangi þessa mannvirkis
fyrr en síðsumars í ár og því þótti við
hæfi að vígja það formlega með til-
heyrandi borðaklippingu. Það var
Sturla Böðvarsson samgönguráð-
herra sem enn á ný var mættur á
Snæfellsnesið til þess verks.
Samgöngumannvirki þetta er hið
þriðja í röð stærri samgöngubóta á
Snæfellsnesi sl. sex ár. Hin tvö voru
nýr vegur um Búlandshöfða haustið
1999 og árið 2001 nýtt vegastæði yfir
fjallgarðinn um Vatnaheiði sem
hlaut nafnið Vatnaleið.
Vegurinn um Kolgrafafjörð er
byggður í vegflokki C1, sjö og hálfur
metri á breidd. Á fyllingunni yfir
fjörðinn er heildarbreidd vegarins
hins vegar 9,5 m. Brúin sem liggur
vestan megin í firðinum við
Hjarðarbólsoddann er 230 m löng og
var lengd hennar miðuð við að sjáv-
arföll yrðu nær óbreytt.
Verkið var boðið út í febrúar 2003.
Samið var við Háfell ehf. og Eykt
ehf. um vinnuna og hófust fram-
kvæmdir í lok apríl. Vegurinn var
lagður bundnu slitlagi og opnaður
fyrir umferð haustið 2004, sex mán-
uðum á undan áætlun. Verktakinn
lauk vinnu sinni sl. sumar.
Með nýjum vegi yfir Kolgrafafjörð
styttist leiðin á norðanverðu nesinu
um 6 km auk þess sem nú verður
komið bundið slitlag á alla leiðina
milli þéttbýlisstaðanna. Þetta styrk-
ir verulega allan samgang milli stað-
anna og eykur möguleika þeirra á
margvíslegri samvinnu.
Brúin yfir
Kolgrafa-
fjörð vígð
Djúpivogur | Nýr og glæsilegur leik-
skóli var vígður með viðhöfn á
Djúpavogi síðastliðinn föstudag. Af
því tilefni var efnt til samkomu í hin-
um nýja skóla með skemmtilegheit-
um af ýmsu tagi. M.a. sungu leik-
skólabörnin af mikilli innlifun fyrir
gesti við góðar undirtektir.
Leikskólinn, sem er hannaður af
arkitektastofunni Arkís, er glæsi-
legur á að líta í alla staði og er að-
staða þar öll hin fullkomnasta. Þá er
leiksvæðið í kringum skólann einnig
mjög vel úr garði gert.
Verktaki að leikskólabyggingunni
var Svarthamar ehf. Djúpavogi, en
SG vélar Djúpavogi sáu að stærstum
hluta til um lóðagerð. Leikskóla-
byggingin kostaði ríflega 62 milljón-
ir en endanlegur kostnaður við lóða-
gerð liggur ekki fyrir. Í leikskólan-
um verða tvær deildir.
Í ávarpi Björns Hafþórs Guð-
mundssonar sveitarstjóra í tilefni
opnunar leikskólans kom fram að þó
að framkvæmdin við hinn nýja leik-
skóla íþyngi sveitarsjóði verulega, er
um mikilvægt atriði að tefla með til-
liti til þjónustu við íbúana. Gamli
leikskólinn uppfyllti heldur ekki
lengur þær kröfur sem gerðar eru í
dag til þjónustu af þessu tagi.
Sveitarfélagið hefur staðið í mjög
viðamiklum framkvæmdum á und-
anförnum árum til að bæta þjónustu
almennt í sveitarfélaginu og er nú
hægt að segja að það sé búið mjög
vel að öllum helstu grunnþjónustu-
þáttum í byggðalaginu.
Nýr leik-
skóli á
Djúpavogi
Váááá Leikskólabörn á Djúpa-
vogi horfa agndofa á aðstöð-
una í nýja leikskólanum sínum.
Morgunblaðið/Andrés Skúlason
Myndarleg aðstaða Nýi leikskólinn
á Djúpavogi var vígður um helgina.
Djúpivogur | Hafin er slátrun á laxi í
fyrsta skipti á Djúpavogi frá því Sal-
ar Islandica hóf sjókvíaeldi í Beru-
firði.
Umsvif Salar Islandica hafa auk-
ist á Djúpavogi og eru þar nú 7
stöðugildi. Þá hefur fyrirtækið verið
í nokkuð umfangsmiklum fjárfest-
ingum, m.a. bættist bátur í flota
fyrirtækisins síðastliðinn föstudag.
Um er að ræða svokallaðan brunn-
bát, sem keyptur var í Noregi.
Skipið er notað til að flytja lifandi
lax að bryggju á Djúpavogi, en það-
an er honum komið inn í fiskvinnslu
Vísis þar sem slátrunin fer fram. Að
sögn Gunnars Steins Gunnarssonar,
framkvæmdastjóra Salar Islandica,
er gert ráð fyrir að slátra um 300
tonnum fram að áramótum og á
árinu 2006 verði slátrað um 1.500
tonnum.
Morgunblaðið/Andrés Skúlason
Nýr brunnbátur Salar Islandica
slátrar nú fiski úr Berufirði.
Laxaslátrun hófst í gær