Morgunblaðið - 28.10.2005, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. OKTÓBER 2005 25
MINNSTAÐUR
Reykholt | Hundrað ára afmælis
var minnst á dögunum með sam-
komu í hátíðarsal gamla Héraðs-
skólans í Reykholti. Þeir sem stóðu
að afmælishófinu voru Snorrastofa
og afkomendur og ættingjar stofn-
enda Hvítárbakkaskólans, Sigurðar
Þórólfssonar og Ásdísar Þorgríms-
dóttur.
Á meðal þeirra sem tóku til máls
voru Ármann Snævarr, fyrrverandi
háskólarektor, sem er 86 ára að
aldri og kona hans, Valborg Sigurð-
ardóttir, fyrrverandi skólastjóri og
dóttir stofnenda skólans. Valborg
minntist sérstaklega á þátt móður
sinnar í hinu mikla skóla- og braut-
ryðjendastarfi Sigurðar. Rekst-
urinn á Hvítárbakkaskólanum hefði
ekki gengið upp, hefði hennar ekki
notið við. Kröpp kjör nemenda
komu ekki í veg fyrir að þeir fengju
að stunda nám á Hvítárbakka. Einn
ræðumanna minntist nemanda sem
kom ríðandi til skólans að hausti,
lagði reiðskjótann inn í mötuneytið,
og gekk svo heim að lokinni skóla-
vist um vorið.
Hátíð á aldarafmæli
Hvítárbakkaskóla
Morgunblaðið/Davíð Pétursson
Siglufjörður | Tveir húsbrunar urðu
í Siglufirði með nokkurra vikna milli-
bil í haust. Í seinna tilvikinu, þegar
íbúðarhús við Hvanneyrarbraut
stórskemmdist, er grunur um
íkveikju, samkvæmt upplýsingum
sem fengust hjá lögreglunni í Siglu-
firði.
Lögreglumenn úr Reykjavík
komu norður til að aðstoða heima-
menn við rannsókn málsins og mun
skýrsla frá þeim væntanleg innan
skamms.
Tveggja hæða hús
illa farið eftir bruna
Í fyrri brunanum kviknaði í út frá
frystikistu. Þá brann tveggja hæða
hús við Mjóstræti sem eftir útliti að
dæma virðist ónýtt.
Siglfirðingar hafa á undanförnum
árum verið blessunarlega lausir við
eldsvoða, síðasti húsbruni þegar svo-
kallað Blöndalshús brann varð fyrir
nokkrum árum.
Morgunblaðið/Örn Þórarinsson
Skemmdir Húsið við Mjóstræti er
mjög illa farið eftir brunann.
Grunur um
íkveikju
í húsbruna
Egilsstaðir | Landsvirkjun og
Impregilo hafa lagt fram 5 milljónir
króna til kaupa á búnaði sem gerir
úrvinnslu röntgenmynda á heil-
brigðisstofnuninni á Egilsstöðum
stafræna. Að sögn Einars Rafns
Haraldssonar, framkvæmdastjóra
Heilbrigðisstofnunar Austurlands,
HSA vinnst margt með þessari
breytingu. „Myndgæði aukast veru-
lega, hægt er að senda röntgen-
myndir samstundis til úrlestrar
hvert sem er og fá álit sérfræðinga
og hætt verður að nota filmur og
framköllunarvökva og þar með
hverfur efnamengun vegna þessarar
starfsemi“ segir Einar Rafn. Tækin
eru keypt af Hans Pedersen.
Einar Rafn segir búnaðinn til
stórfellds hagræðis fyrir starfsmenn
og sjúklinga, því öryggi meðferðar-
innar aukist mjög mikið. Stofnunin
tengist á rafrænan hátt sérfræði-
þjónustu Fjórðungssjúkrahússins á
Akureyri og nýtir sér hana. Stuðn-
ingssjóður Alcoa hefur gefið Fjórð-
ungssjúkrahúsinu í Neskaupstað
sams konar tæki.
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Röntgenmynd með hraði Óttar
Guðmundsson, læknir hjá HSA,
Egilsstöðum, sýnir búnaðinn.
Landsvirkjun
og Impregilo
styðja HSA
Kópal Glitra þekur betur, ýrist sama og ekkert og er svo til lyktarlaus.
Spurðu um KÓPAL.
Útsölusta›ir Málningar: Byko Kópavogi • Byko Hringbraut • Litaver Grensásvegi • Byko Hafnarfir›i • Málningarbú›in Akranesi
Byko Akranesi • Axel fiórarinsson, málarameistari, Borgarnesi • Verslunin Hamrar, Grundarfir›i • Litabú›in Ólafsvík
Núpur byggingarvöruverslun, Ísafir›i • Vilhelm Gu›bjartsson, málarameistari, Hvammstanga • Verslunin Eyri, Sau›árkróki
Byko Akureyri • Verslunin Valberg, Ólafsfir›i • Byko Rey›arfir›i • Verslunin Vík, Neskaupsta› • Byko Selfossi
Mi›stö›in Vestmannaeyjum • Byko Keflavík • Rúnar Sig. Sigurjónsson, málarameistari, Grindavík
Erlendur Eiríksson málari:
„Einfaldlega besta málningin sem ég hef notað.“
Þekur betur
KÓPAL Glitra
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
M
A
L
29
79
3
1
0/
20
05