Morgunblaðið - 28.10.2005, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. OKTÓBER 2005 27
DAGLEGT LÍF
Kjartan
í 3. sætið
Veljum traustan
og öflugan
málsvara borgarbúa
í borgarstjórn!
RAFN Jónsson sér um áfengis- og vímuvarn-
armál hjá Lýðheilsustöðinni, hann segir að
þessar óskipulögðu skemmtanir séu aldrei á
vegum skólans og nemendafélaganna beint
heldur á vegum einhverra einstaklinga innan
nemendafélaganna. Aldurinn inn á skemmti-
staði er samkvæmt lögum 18 ár og áfeng-
iskaupaaldurinn er 20 ár
„Bjórkvöldin eru haldin á skemmtistöðum og
þá er það oftast einhver sem hefur aldur til sem
er að leigja húsnæðið og við því er ekkert hægt
að amast en það sem er agalegt er að boðin
ganga um skólann og samkoman er eftirlits-
laus,“ segir Rafn. „Lögreglan fylgist með þess-
um samkomum og að þeirra sögn eru ákveðnir
skemmtistaðir virkari í að leigja framhalds-
skólanemendum en aðrir. Ef lögreglan fréttir af
slíku eru þeir fljótir á staðinn.“
Hann segir að það hafi komið fyrirspurnir á
Lýðheilsustöð frá foreldrum sem eru að athuga
lögmæti slíkrar samkomu.
„Ef við fáum fyrirspurnir um slíka skemmtun
látum við lögreglu vita sem er oft þá búin að fá
veður af þessu. Ef foreldrar vita af svona sam-
komum, þar sem hugsanlega verður veitt
áfengi, er um að gera að tilkynna það til lög-
reglu, sérstaklega ef verið er að auglýsa það til
fólks undir lögaldri.“
Bannaðar skemmtanir
Ingibjörg Guðmundsdóttir, skólameistari
Kvennaskólans í Reykjavík, segir að svona
skemmtanir séu bannaðar. „Það er rosalega erf-
itt að eiga við slíkar skemmtanir því þær fara
leynilega fram og fara framhjá skólanum. Við
reynum að stemma stigu við þessu og höfum
rætt þetta á skólaráðsfundum við stjórn nem-
endafélagsins og beðið þau um að standa ekki
fyrir svona löguðu. Við höfum einnig gert at-
hugasemdir við skemmtistaði sem eru að taka
þetta að sér.“ Ingibjörg segir að það fylgi leyni-
legu auglýsingunum yfirleitt að samkomurnar
séu bannaðar innan 18 ára en að sumir staðir
hleypi yngra fólki inn og selji því áfengi.
„Okkur finnst þetta slæm þróun og viljum
ekki sjá að þetta gangi innan skólans. Við vitum
af því að nemendafélagið hefur staðið fyrir
svona og höfum rætt þetta við þau á alvarlegum
nótum.“ Hún segir að foreldrar hafi verið að
hringja í skólayfirvöld vegna þessa. „Börnin
þeirra eru að fá skilaboðin og þeir hringja og
spyrja hvort þetta sé á vegum skólans sem það
er ekki. Félag framhaldsskóla hefur rætt þetta
sín á milli og verið í samstarfi við lögregluna, en
það er erfitt við að eiga,“ segir Ingibjörg og
bætir við að á auglýstum skemmtunum á vegum
skólans sé meðferð áfengis bönnuð.
Í samstarfi við nemendur
Yngvi Pétursson, rektor Menntaskólans í
Reykjavík, hefur svipaða sögu að segja. Hann
segir að það sé bannað að skipuleggja slíkar
samkomur og auglýsa til nemenda og þau hafi
rætt þetta við stjórn nemendafélagsins. „Skila-
boðin eru skýr frá okkur, slík skemmtun er ekki
á vegum skólans. En við getum aldrei komið í
veg fyrir að einhver hópur komi saman eitt-
hvers staðar og þá er það á ábyrgð staðarins
sem heldur skemmtunina. Félagsstarfið hér í
MR er alltaf í samstarfi við nemendur. Þeir
þurfa að fá skemmtanaleyfi sem er á ábyrgð
lögreglunnar, og það eru þær skemmtanir sem
eru á vegum skólans. Ef við fréttum af óskipu-
lögðum skemmtunum, sem er verið að auglýsa á
milli nemenda, þá reynum við að stöðva slíkt í
samstarfi við lögregluna.“ Yngvi segir að skóla-
yfirvöld í MR séu að styðja nemendur í því að
efla félagslífið á forsendum skólans og að það
hafi tekist vel.
Einkasamkvæmi
Eva Reynisdóttir er formaður nemenda-
félags Kvennaskólans, hún segir að skóla-
yfirvöld hafi rætt þessar óskipulögðu skemmt-
anir við sig. „Það er ekki stefna að láta fólk,
undir aldri, drekka áfengi og dyraverðir
skemmtistaða eigi að sjá til þess að of ungt fólk
komist ekki inn á þá.“ Hún segir þau í nemenda-
félagi Kvennaskólans reyna að vinna með skóla-
yfirvöldum. „Það eru flestir skemmtistaðir farn-
ir að loka á þessar framhaldsskólasamkomur,“
segir Eva og tekur skýrt fram að nemenda-
félögin hvetji ekki til drykkju undir lögaldri.
Gunnar H. Guðmundsson er inspector skóla-
félags MR. Aðspurður segir hann að skóla-
félagið í MR hafi ekki haldið slíkar samkomur
undir sinni stjórn. „Það eru oft partí í gangi en
þá eru það bara einkaaðilar sem halda þau, það
kemur ekki nálægt skólanum né skólafélaginu.
Mér finnst fáránlegt ef nemendafélög stuðla að
unglingadrykkju, það ætti ekki að líðast.“ Hann
segir skólafélagið aðeins halda skipulögð böll
sem séu reyklaus og áfengislaus með öllu.
UNGLINGAR | Sms-skilaboð um bjórkvöld ganga milli nemenda í framhaldsskólum
Eftirlitslausar
samkomur
Nokkuð hefur borið á því í framhaldsskólum að auglýstar séu
áfengisskemmtanir, með sms-skilaboðum til nemenda.
Í framhaldsskólum eru flestir á aldrinum 16 til 20 ára og sam-
kvæmt lögum, of ungir til þess að neyta áfengis.
Borið hefur á því að nemar haldi bjórkvöld og auglýsi þau til nemenda undir lögaldri.
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
TAÍLENSKIR dagar eru í Nettó
fram til 1. nóvember en þeir eru
þáttur í átaki sem nefnt er Góm-
sætir alþjóðaréttir Nettó. Leitast
er við að kynna þá fjölskrúðugu
matarmenningu sem nú er á Ís-
landi og Íslendingum frá ólíkum
heimshornum gefsttækifæri til að
kynna menningu sína og færni í
matargerð. Samstarf Alþjóðahúss-
ins og Nettó-verslana um land allt
hófst sl. sumar og hefur leitt af sér
kynningu á indverskri, kínverskri
og tyrkneskri matargerð. Að þessu
sinni verður boðið upp á taílenska
rétti.
Somjai Sirimekha, upphaflega
frá Nakhonratchasima-borg í
Phimai-héraði Taílands, mun elda
fljótlega rétti í verslunum Nettó og
leyfa viðskiptavinum að bragða á
kræsingunum.
Steiktar hrísgrjónanúðlur
lítil skál af hrísgrjónanúðlum
1 laukur, skorinn í strimla
2 gulrætur, smátt skornar
2–3 msk. Exotic sojasósa,
2 egg
1 msk. sykur
púrrulaukur, skorinn í bita
olía
Leggið núðlurnar í heitt vatn (úr
krana) í 3–4 mín.
Steikið 1 egg, hrærið í olíu, bæt-
ið lauki og gulrótum saman við og
hrærið.
Setjið núðlurnar út í, hellið soja-
sósunni yfir og blandið öllu saman.
Bætið við eggi og sykri og hrærið
saman. Púrrulaukurinn er settur í
síðast og blandað vel saman við.
NEYTENDUR
Taílenskir
dagar í
Nettó