Morgunblaðið - 07.11.2005, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 07.11.2005, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 302. TBL. 93. ÁRG. MÁNUDAGUR 7. NÓVEMBER 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is 3. til 12. nóvember í Upphafning listarinnar Gestir í Hallgrímskirkju kynntust bestu vímu sem til er | Menning Fasteignir og Íþróttir í dag Fasteignir | Kunna vel við sig í 150 ára gömlu húsi  Nýtt fjölbýlishús við Kirkjuvelli  Biðröð eftir íbúðum á Langeyrarmölum Íþróttir | Sig- urganga Chelsea á enda  Guðmundur Hrafnkelsson fór á kostum LANDSVIRKJUN og landeigendur Reykja- hlíðar ehf. gengu í gær frá kaupum Landsvirkj- unar á eignum og lóð Kísiliðjunnar í Reykjahlíð við Mývatn. Um er að ræða verksmiðju og skrif- stofuhúsnæði ásamt 4 hektara lóð. Kaupverð er trúnaðarmál. Með samningnum hefur verið náð heildarsam- komulagi milli aðila um nýtingu á svæðinu og gefið leyfi til rannsókna og forgang Landsvirkj- unar að orkunýtingu á Sandabotnasvæði og Gjá- stykki. Að sögn Friðriks Sophussonar forstjóra Landsvirkjunar er æskilegt að fyrirtækið eigi aðgang að álitlegum jarðhitasvæðum í eigu Reykjahlíðar. Auk þess hafi fyrirtækið keypt þriðjungshlut í Þeystareykjum ehf. „Allt þetta er gert til þess að Landsvirkjun hafi þá stöðu á svæðinu að geta samið við hugsanlega stórkaup- endur ef sú staða kemur upp að þeir vilji kaupa rafmagn. Þess vegna höfum við staðið í þessum samningum við Reykjahlíð. Það skiptir verulegu máli að einn aðili geti samræmt jarðvarmavirkj- anir á svæðinu og rekið þær eins og um eina virkjun væri að ræða.“ Að sögn Ólafs H. Jónssonar formanns landeig- enda gera þeir sér vonir um gott samstarf aðila en samkvæmt öruggum heimildum er í burð- arliðnum samningur Landsvirkjunar og Grænna lausna um að nýta húsnæði Kísiliðjunnar undir vörubrettaframleiðslu Grænna lausna. Gæti það í fyrsta áfanga veitt 15–20 manns atvinnu og þar með fyllt upp í það gat sem myndaðist við enda- lok Kísiliðjunnar. Mjög góður samningur „Við teljum þetta mjög góðan samning sem bindur enda á ýmis ágreiningsmál milli aðila. Hér er verið að ræða um heildarlausn sem var markmið allra frá upphafi,“ segir Ólafur. Hann segir samninginn tímamótasamning fyrir landeigendur ásamt því að Skútustaða- hreppur fái vonandi að njóta þess sem kemur til með að gerast á svæðinu næstu árin. Vörubretta- verksmiðjan geti vonandi dregið til sín starfsfólk sem hvarf af svæðinu eftir að Kísiliðjan var lögð niður. „Við höfum unnið eftir kjörorðinu Arðinn heim í hérað og við teljum að með þessum samn- ingi sé arðurinn kominn heim í hérað. Jónas A. Aðalsteinsson hrl. og lögmannsstofa hans LEX Nestor á þakkir skildar fyrir sinn þátt í þessu ferli. Auk þess eiga forstjóri Landsvirkjunar og samningamenn hans þakkir skildar fyrir að samningurinn skyldi komast á.“ Landsvirkjun kaupir eignir og lóð Kísiliðjunnar við Mývatn Einn aðili geti samræmt varmavirkj- anir á svæðinu Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson orsi@mbl.is JACQUES Chirac, forseti Frakklands, sagði í gærkvöldi eftir skyndifund með æðstu ráð- herrum landsins að það væri „algert forgangs- verkefni“ frönsku ríkisstjórnarinnar að koma á lögum og reglu í borgum landsins eftir óeirðir sem geisað hafa í ellefu daga. Eru þetta mestu óeirðir í Frakklandi í nær fjóra áratugi. „Þeir sem vilja sá fræjum ofbeldis eða ótta verða handteknir og dæmdir til refsingar,“ sagði Chirac. Dominique de Villepin forsætis- ráðherra sagði að fleiri lögreglumenn yrðu sendir á staði þar sem óeirðir blossa upp. Ekkert lát var á ofbeldinu í gærkvöldi eftir að óeirðirnar breiddust út um helgina til nær allra helstu borga landsins og til miðborgar Parísar. Kveikt var í nær 1.300 bílum í fyrri- arhverfum og bæjum, meðal annars í Marseille, Nice, Lille, Bordeaux og Montpellier. Eldar hafa verið kveiktir í verslunum, fyrirtækjum, skólum, pósthúsum og lögreglustöðvum. Daði Runólfsson mannfræðinemi býr í París og segir hann ástandið í miðborginni í raun ekki það slæmt því óeirðirnar eigi sér að mestu leyti stað langt frá henni. Segist Daði þó hafa orðið var við aukið eftirlit lögreglu en hann býr í 1. hverfi. Þá hafi einni leið neðanjarðarlestakerfis Parísar verið lokað á ákveðnum kafla en sú lest gengur til og frá Charles de Gaulle-flugvell- inum og í gegnum hverfi þar sem óeirðir hafa átt sér stað. Kveðst Daði einnig hafa heyrt á fólki að það hafi áhyggjur af bílum sínum, sér- staklega eftir að kveikt var í tveimur bílum á Republique-torgi í fyrrinótt. nótt og alls hafa 3.500 bílar verið brenndir, flestir þeirra í úthverfum Parísar þar sem margir íbúanna eru innflytjendur eða afkom- endur þeirra. Aukið eftirlit lögreglu Lögreglan hefur handtekið yfir 800 manns vegna óeirðanna og svo virðist sem sumir hóp- anna séu að herða árásir sínar á lögreglu- og slökkviliðsmenn. Fregnir herma að um 30 lög- reglumenn hafi særst, þar af tveir alvarlega, í skotárásum seint í gær sunnan við París. Óeirðir hafa blossað upp í allt að 200 borg- Jacques Chirac lofar að koma á lögum og reglu Óeirðir hafa breiðst út til nær allra helstu borga Frakklands Eftir Boga Þór Arason og Sigurhönnu Kristinsdóttur  Segja óeirðirnar | 13 SÆNSKI kaupsýslumaðurinn Mattias Santesson hefur í hyggju að stofna keðju ódýrra tann- læknastofa í Svíþjóð og Dan- mörku ásamt austur-evrópskum tannlæknum, að sögn danskra og sænskra fjölmiðla í gær. Santesson ætlar að opna tann- læknastofu í Stokkhólmi á næstu dögum og segir að tannlæknar frá Austur-Evrópu geti boðið upp á miklu ódýrari þjónustu en nor- rænir tannlæknar. Hann hyggst opna aðra tannlæknastofu í Kaupmannahöfn og síðan færa út kvíarnar í Svíþjóð og Danmörku, að sögn danska dagblaðsins Extra Bladet. Santesson er nú að kanna markaðinn og dönsk lög um tann- læknastofur. „Verðið hjá tann- læknum í Svíþjóð og Danmörku er alltof hátt,“ hafði blaðið eftir Santesson. „Við getum lækkað verðið um helming á venjulegri tannlæknaþjónustu, meðal annars með lægri launum og minni inn- kaupakostnaði. Svíar njóta góðs af þessu núna en ef allt gengur vel þá kemur bráðlega að Dön- um.“ Formaður stéttarfélags danskra tannlækna, Per Gaunø Jensen, kvaðst hafa miklar efa- semdir um áform sænska kaup- sýslumannsins. „Ég tel að ekki sé hægt að lækka verðið verulega án þess að þjónustan versni,“ hafði Extra Bladet eftir Jensen. Boðar ódýrari tannlæknastofur Morgunblaðið/Kristinn Vængjum þöndum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.