Morgunblaðið - 07.11.2005, Page 2

Morgunblaðið - 07.11.2005, Page 2
2 MÁNUDAGUR 7. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR ER FÆDDUR! ÍSLENSKU SAKAMÁLASÖGUNNAR KRÓNPRINS F í t o n / S Í A F I 0 1 4 9 1 5 KROSSTRÉEFTIR JÓN HALL STEFÁNSSON KEMUR ÚT Á MORGUN Fertugur arkitekt finnst lífshættulega slasaður við sumarbústað sinn við Þingvallavatn. Við rannsókn kemur í ljós að hinn slasaði er flæktur í þéttan vef svika og lyga þar sem fjölskylda hans, ástkona og samstarfsmenn eru bæði fórnarlömb og þátttakendur. EKKERT LÁT Á ÓEIRÐUM Jacques Chirac, forseti Frakk- lands, sagði í gærkvöldi eftir skyndi- fund með æðstu ráðherrum landsins að það væri „algert forgangsverk- efni“ franskra stjórnvalda að koma á lögum og reglu í borgum landsins eftir óeirðir sem geisað hafa í ellefu daga. Eru þetta mestu óeirðir í Frakklandi í nær fjóra áratugi. Ekk- ert lát var á ofbeldinu í gærkvöldi eftir að óeirðirnar breiddust út um helgina til nær allra helstu borga landsins og til miðborgar Parísar. Alls hafa 3.500 bílar verið brenndir og lögreglan hefur handtekið yfir 800 manns vegna óeirðanna. Mannskæður skýstrókur AÐ minnsta kosti 20 manns létu lífið þegar skýstrókur gekk yfir suð- vesturhluta Indiana og norðurhluta Kentucky í Bandaríkjunum í fyrri- nótt. Óttast var að tala látinna myndi hækka. Um 200 manns slös- uðust í óveðrinu. Ævaforn kirkja fannst Fornleifafræðingar hafa fundið leifar ævafornrar kristinnar kirkju, ef til vill einnar þeirrar elstu í heim- inum, undir fangelsi í bænum Megg- ido í norðurhluta Ísraels. Hefur m.a. fundist mósaíkmynd með grískri áletrun þar sem segir að staðurinn sé helgaður Jesú Kristi. Vilhjálmur oddviti Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson varð í 1. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokks- ins í Reykjavík um helgina. Hanna Birna Kristjánsdóttir lenti í 2. sæti og Gísli Marteinn Baldursson í því 3. Þær fimm konur sem gáfu kost á sér komust allar í tíu efstu sætin. Kísiliðjan seld Landsvirkjun og landeigendur Reykjahlíðar ehf. gengu í gær frá kaupum Landsvirkjunar á eignum og lóð Kísiliðjunnar í Reykjahlíð við Mývatn. Með samningnum hefur verið náð heildarsamkomulagi milli aðila um nýtingu á svæðinu. Bæjarfulltrúar héldu velli Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði, varð í fyrsta sæti í próf- kjöri Samfylkingarinnar í Hafn- arfirði á laugardag fyrir sveit- arstjórnarkosningar næsta vor. Ellý Erlingsdóttir varð í 2. sæti og Guð- mundur Rúnar Árnason varð í 3. sæti. Allir bæjarfulltrúar Samfylk- ingarinnar sem buðu sig fram náðu kjöri. Y f i r l i t Í dag Sigmund 8 Minningar 26/28 Fréttaskýring 8 Dagbók 30/34 Vesturland 11 Myndasögur 30 Viðskipti 12 Víkverji 30 Erlent 13 Staður og stund 31 Menning 17 Leikhús 33 Daglegt líf 14/16 Bíó 34/37 Umræðan 18/25 Ljósvakar 38 Bréf 25 Veður 39 Forystugrein 20 Staksteinar 39 * * * Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi, orri@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir, ingarun@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkju- starf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is ÞORGERÐUR Katrín Gunnarsdóttir mennta- málaráðherra segir að fyrirætlanir um uppbygg- ingu framtíðarhúsnæðis fyrir Tilraunastöðina á Keldum í Vatnsmýrinni sé ástæða þess að ekki hafi verið veitt fjármagn til uppbyggingar á Keldum, en ef sérstakar aðstæður kalli á aðstöðu eins og möguleg koma fuglaflensunnar hingað til lands verði auðvitað brugðist við því. Í Morg- unblaðinu í gær kom fram að ekki hafi fengist fjárveiting til uppbyggingar öryggisrannsókna- stofu á Keldum í sex ár. Þorgerður Katrín sagði að heilmikil vinna sé í gangi varðandi málefni Tilraunastöðvarinnar á Keldum og núna sé nefnd að störfum sem skipuð hafi verið fyrr á þessu ári til að gera forathugun á því hver húsnæðisþörfin sé. Eins og kunnugt er hafi verið búið að ákveða að flytja Keldur og það sé helsta ástæða þess að ekki hafi verið ráð- ist í frekari uppbyggingu þar. Tengist skipulagi háskólasjúkrahúss „Það má í rauninni segja að við séum farin á stað með því að huga að þessum flutningi Keldna og það tengist meðal annars þessu skipulagi sem var kynnt um daginn varðandi háskólasjúkra- húsið og tengingu þar við,“ sagði Þorgerður Katrín. Hún sagði spurð að þegar sérstakar aðstæður kæmu upp yrði kerfið auðvitað að geta brugðist við því. Hins vegar hlytu allir að skilja að það væri ekki rétt að fara að byggja upp umfangs- mikla starfsemi á Keldum sem síðan yrði flutt í miklu betra húsnæði innan fárra missera eða ára, sem rúmaði þá miklu vísindastarfsemi sem Keldur stæðu fyrir. Hún sagðist á hinn bóginn taka heils hugar undir að ef það vantaði eitthvað á aðstæður á Keldum vegna hugsanlegrar komu fuglaflens- unnar þá yrði það skoðað og samkvæmt þeim upplýsingum sem hún hefði fengið eftir fyrir- spurnir þar að lútandi ætti það að vera tiltölu- lega lítið mál að koma til móts við þær þarfir um rannsóknarumhverfi. Menntamálaráðherra um öryggisrannsóknastofu á Keldum Brugðist verður við sérstökum aðstæðum Eftir Hjálmar Jónsson hjalmar@mbl.is NÝLEGA kom út á Írlandi bókin Ferðaþættir frá Írlandi og er um að ræða þýðingu ferðaþátta Einars Ólafs Sveinssonar prófessors. Einar fór árið 1947 til Írlands og skrifaði í kjölfarið ferðaþætti um Írland sem birtust í Skírni sama ár. Segir Sveinn Einarsson, sonur Einars Ólafs, að í hann hafi hringt fornbókasali sem rekur bókabúð í Dyflinni og hann spurt hvort gefa mætti út þessa ferðaþætti á gel- ísku. Er sá maður einn af helstu for- ystumönnum um varðveislu og framþróun gelískrar tungu á Írlandi. Síðar hafi komið í ljós að ferðaþætt- irnir höfðu einnig verið þýddir á ensku. Því varð úr myndarleg bók á þremur tungumálum en allar grein- arnar eru einnig á íslensku auk gel- ísku og ensku. Skrifaði Magnús Magnússon meðal annarra formáls- orð. Segir Sveinn að bókin hafi verið kynnt í Þjóðarbókhlöðu Íra í Dyfl- inni og þar hafi verið mættur mikill fjöldi fólks. Að kynningu á bókinni lokinni var haldið til þorpsins Teelin í Donegal-héraði, en Einar Ólafur lýsti þessum stað í ferðalýsingum sínum. Afhjúpaði landbúnaðarráð- herra Íra þar minnismerki eftir Pál Guðmundsson frá Húsafelli um ferð- ir papa frá Teelin til Íslands. Þá hélt Haukur Ólafsson frá sendiráðinu í London ræðu að afhjúpuninni lok- inni. Auk þessara viðburða var haldið málþing um stöðu írskunnar í dag og tengsl Íslendinga og Íra að fornu og nýju. Kveðst Sveinn það hafa komið sér á óvart hversu mikið hafi verið gert úr þessari bókaútgáfu. Sagði hann skemmtilegt hversu miklu máli sam- skipti Íra og Íslendinga skiptu Íra og vildu menn gjarnan treysta þau traustari böndum. Ferðaþættir Einars Ólafs Sveinssonar gefnir út á gelísku Morgunblaðið/Jim Smart Ferðaþættir frá Írlandi, á kápunni sést minnismerkið um papa eftir Pál Guðmundsson frá Húsafelli, sem nýlega var afhjúpað á Írlandi. Sveinn Einarsson GESTIR heitu potta Laugardalslaugar lesa smásögur eftir Arndísi Þór- arinsdóttur. Munu sögurnar flakka á milli potta sundlauga Reykjavíkur í vetur og eru þær liður í Unglist 2005. Morgunblaðið/Golli Lesið í lauginni FRÆÐSLA og áróður um áfengi hafa lítil áhrif meðal skólanemenda og ef slík fræðsla hefur áhrif fjara þau fljótlega út. Kom þetta fram í máli Robin Room, áfengis- og vímu- varnarráðgjafa, en hann hélt fyrir- lestur á vegum Lýðheilsustöðvar ný- lega. Í fyrirlestrinum kom fram að fræðsla breyti viðhorfum til áfengis og annarra vímuefna en raunveruleg neysla þessara efna minnkar ekki að neinu marki til lengri tíma litið. Þetta hafi fjöldi alþjóðlegra rann- sókna sýnt. Því svari skólafræðsla og upplýsingaherferðir um áfengi og gegn því ekki kostnaði. Það er hins vegar áhrifamikið að stjórna aðgengi og stýra notkun áfengis til að hafa áhrif á neysluna með t.d. lágmarksaldri kaupenda, ríkiseinkasölu og takmakaðan sölu- tíma. Anna Elísabet Ólafsdóttir, for- stjóri Lýðheilsustöðvar, segir að að mörgu leyti standi Ísland ágætlega hvað áfengisstefnu varðar, en skatt- ar á áfengi hafi þó ekki hækkað í raun vegna verðbólgu. Helsta áhyggjuefnið sé unga fólkið og markmiðið sé að laga til drykkju- mynstur þannig að minna verði um fyllerí. Segir fræðslu um áfengi hafa lítil áhrif á neyslu  Áhrifamikið/9

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.