Morgunblaðið - 07.11.2005, Qupperneq 8
8 MÁNUDAGUR 7. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Dansi, dansi, dúkkurnar mínar.
Auðvitað gengurþetta, en hins veg-ar er ekki nóg af
tollvörðum,“ segir Aðal-
steinn Guðmundsson,
deildarstjóri tollgæslu
Sýslumannsembættisins á
Eskifirði. Umdæmið
spannar allar hafnir S-
Múlasýslu, frá Mjóafirði
suður á Djúpavog. „Það
eru hér tvær aðaltollhafn-
ir, Eskifjarðarhöfn og
Norðfjarðarhöfn, sem eru
þær hafnir þar sem skip-
um er gert að koma til
tollafgreiðslu, hvort sem
um er að ræða inn- eða út-af-
greiðslur. Hins vegar stöndum við
ekki í vegi fyrir því óski skip eftir
að koma í aðrar hafnir svo sem á
Reyðarfjörð, þar sem allur helsti
innflutningur á sér stað varðandi
álverið. Þau geta þó þurft að hlíta
okkar áætlun varðandi tollaf-
greiðslutíma og fleira.“
Ítrekað hefur verið reynt að fá
til embættisins annan tollvörð því
tvö stöðugildi tollvarða eru fyrir
hendi hjá sýslumanninum á Eski-
firði. „Við erum að leita að manni
og höfum auglýst tvisvar,“ segir
Aðalsteinn. „Hér er bara svo mikil
þensla og ríkið stendur halloka í
svoleiðis uppgangi.“ Hann segir
þó að gangi eftir atvikum vel að
sinna eftirliti og leit.
Þyrfti fjóra tollverði
„Hjá embættinu er starfsmaður
á skrifstofu í hálfu starfi sem að-
stoðar við þjónustuhlutann á
skrifstofunni og það léttir töluvert
undir, sem síðan gerir mér kleift
að vera á vettvangi og sinna eftir-
liti og leit. Við förum í öll skip sem
koma eða fara frá landinu og í því
er fólgið heilmikið eftirlit. Þar að
auki höfum við fíkniefnaleitar-
hund innan embættisins sem er
óspart notaður með góðum ár-
angri. Eins eru farmskrár skoð-
aðar og mikil vinna unnin rafrænt
við tölvuna. Í þeirri vinnu fer
ákveðin áhættugreining fram sem
ræður því svo hvað er skoðað og
hvað ekki.“
Tollvörðurinn nýtur aðstoðar
lögreglunnar þegar mikið er að
gera og í sameiningu er þannig
sinnt margvíslegu eftirliti í góðri
samvinnu. Það er þó full þörf á að
fá hingað annan tollvörð og nóg
störf fyrir fleiri; á Austurlandi
öllu þyrftu að starfa hið minnsta
fjórir tollverðir ef vel ætti að
vera.“
Ekki búist við aukningu
Hann segir að í umdæminu öllu
hafi tollafgreiðslur skipa verið 486
talsins allt árið í fyrra, en eru
orðnar um 600 það sem af er
þessu ári. „Ef við miðum við ágúst
nú og í fyrra þá voru þær 353 á
síðasta ári, en 537 í ár sem er 52%
aukning. Ég er ekki viss um að
skipakomum eigi eftir að fjölga
svo mjög á næstunni og líklegast
mun fjöldi afgreiðsla standa í stað
um einhvern tíma. Þeir í Kára-
hnjúkum segja t.d. að nú stefni í
aukinn útflutning hjá þeim á því
sem þeir eru búnir að flytja inn.
Það krefst minna eftirlits hjá okk-
ur heldur en með því sem kemur
inn, þar sem eftirlit með innflutn-
ingi krefst nákvæmari skoðunar
eins og t.d. að bera reikninga sam-
an við vöruna, tollflokka og sann-
reyna uppruna svo fátt eitt sé tal-
ið og að sjálfsögðu að koma í veg
fyrir smygl þegar svo ber undir.
Það verða í raun ekki svo margar
skipakomur vegna byggingar ál-
versins, þó er innflutningur gríð-
arlegur hér og voru innheimt að-
flutningsgjöld hjá embættinu í
fyrra um 2,4 milljarðar kr. Eins
má ekki gleyma öllum erlendu
fiskiskipunum sem hingað koma
og þeim íslensku þegar þau hafa
verið að landa afla í útlöndum.
Ferjutollun umfangsmikil
Sérstaða Seyðisfjarðar felst í
hinum mikla farþegafjölda sem
fer þar í gegn, einkum yfir sum-
artímann. Norröna siglir núorðið
allt árið með fólk, farartæki og
fragt. Jóhann Freyr Aðalsteins-
son er yfir tollgæslunni á Seyðis-
firði. Hann nýtur aðstoðar toll-
varðar Eskifjarðarembættisins,
fíkniefnahundsins og gæslumanns
hans og lögreglu. Jafnframt vinna
menn úr Reykjavík við tollgæsl-
una, sem er mjög umfangsmikil,
einkum á háannatíma að sumri.
Tollgæslan er talin ágætlega skil-
virk á Seyðisfirði og ekki er óal-
gengt að tollgæslumenn finni
smygl af ýmsu tagi hjá farþegum,
auk þess sem nokkuð hefur borið
á flóttafólki með skipinu og þurfa
mál þess sérstakrar úrlausnar. Á
tímabili voru tveir tollverðir á
Seyðisfirði, en hefur fækkað aftur
í einn.
„Stundum er nægur mannskap-
ur og í annan tíma hefur lítið mátt
út af bera til að allt færi í handa-
skolum,“ segir heimildamaður
Morgunblaðsins. „Það er fárán-
legt að á sama tíma og á Austur-
landi er byggð virkjun og álver
með tilheyrandi þenslu, sé skorið
niður hjá sýslumannsembættinu á
Seyðisfirði,“ segir heimildarmað-
urinn.
Á flugvellinum á Egilsstöðum
virðist tolleftirlit ganga skaplega,
þar eru þokkalegar aðstæður til
eftirlits, m.a. gegnumlýsingar-
tæki fyrir farangur, sem ekki er í
tollafgreiðslu Norrönu og nægur
mannskapur til að sinna af-
greiðslu vegna millilandaflugs.
Fréttaskýring | Áhyggjur eru af ónógri
tollgæslu á Austurlandi
Tollgæslan á
harðaspretti
Tollgæslan vill fleiri menn en segir
eftirlit viðunandi þrátt fyrir annríki
Eskifjarðarhöfn þar sem oft er annríki.
52% aukning á toll-
afgreiðslu frá fyrra ári
Vegna vaxandi umsvifa og
íbúafjölgunar á Mið-Austurlandi
hafa spurningar vaknað um skil-
virkni tollgæslu í höfnum þar.
Rætt er um að þeir tveir toll-
verðir sem starfa á svæðinu anni
ekki eftirliti, þrátt fyrir að njóta
m.a. aðstoðar lögreglu við toll-
afgreiðslur. Tollgæslan sé að
mestu pappírsvinna og miðað við
öll þau umsvif sem eru á Austur-
landi um þessar mundir standi
þar allar gættir opnar.
Eftir Steinunni Ásmundsdóttur
austurland@mbl.is
SAMKVÆMT mánaðarlegri verð-
könnun SÁÁ á ólöglegum fíkniefn-
um hafa litlar verðbreytingar átt sér
stað á síðustu vikum og mánuðum. Á
síðustu fimm árum hefur verð hins
vegar lækkað umtalsvert og má
nefna að hinn 28. september árið
2000 kostaði eitt gramm af hassi
2.210 krónur en kostar 1.920 krónur
í dag. Þá kostaði e-pilla 3.000 krónur
fyrir fimm árum en kostar 1.920
krónur í dag, eins og hassið.
Verðkönnunin er gerð meðal allra
innritaðra sjúklinga á Vogi sem
heilsu hafa til og athugað hversu
margir þeirra hafi keypt umrædd
efni á síðustu tveimur vikum og
hvaða verð hafi verið greitt fyrir
þau.
Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir
á Vogi, segir að reynt sé að túlka
niðurstöður þessara kannana út frá
því hvað sé að gerast í samfélaginu
hverju sinni.
„Þetta er þróaður markaður og
við erum hissa á hvað verðið er stöð-
ugt,“ segir hann. „Það veldur manni
umhugsun og rennir stoðum undir
það sem menn segja um að þarna
séu talsverðir fjármunir í húfi.
Skipulagið á markaðinum er orðið
talsvert mikið og menn virðast nýta
sér alla hugsanlega tækni til að
halda honum gangandi. Þetta virðist
allt vera mjög þróað.“
Framboð á efnum mikið núna
Verðlækkunin á efnunum undan-
farin fimm ár virðist vera umtals-
verð og Þórarinn segir verð vera
lágt núna. Þá segir hann að samfara
lækkun á e-pillunni hafi færst í vöxt
að ungt fólk noti efnið reglulega.
„Það er tvennt sem virðist ráða
verðinu,“ segir Þórarinn. „Annars
vegar er það eftirspurnin og hins
vegar framboðið. Framboðið virðist
vera talsvert mikið núna og það þarf
kannski að berjast með öflugri hætti
við að minnka eftirspurnina.“
Þórarinn segir að verð á hassi og
e-pillum hafi verið svipað í nokkuð
langan tíma og segir aðspurður hætt
við að sé verð hið sama aukist líkur á
að fólk leiðist út í neyslu sterkari
efna.
„Svo er samt spurning hvað eru
sterk efni í huga fólks, það er skil-
greiningaratriði,“ segir hann. „Ég
hugsa að margt ungt fólk líti ekki á
e-pilluna sem sterkt efni þótt menn
hafi af þessu efni miklar áhyggjur.
Menn virðast hafa aðra sýn á þetta
unga efni og oft er maður hissa á
hvað unga fólkið veit lítið um þessi
mál.“
SÁÁ gerir mánaðarlega verðkannanir meðal sjúklinga
Ólögleg fíkniefni hafa lækkað
í verði á seinustu árum
Eftir Hrund Þórsdóttur
hrund@mbl.is
TAFLFÉLAG Reykjavíkur veitti á
laugardaginn þeim unglingum sem
best hafa staðið sig og sýnt mestar
framfarir á mótum og æfingum, á
fyrsta fjórðungi vetrarstarfsem-
innar, viðurkenningu.
Á laugardaginn var einnig teflt
mót þar sem allir helstu sigurveg-
arar móta í september og október
leiddu saman hesta sína.
Á því móti sigraði hinn 14 ára
Daði Ómarsson með því að vinna alla
andstæðinga sína.
Viðurkenningar í flokki 10 ára og
yngri hlutu:
1. Friðrik Þjálfi Stefánsson 20,5 stig
2. Breki Ingibjargarson 18,5 stig
3. Arnar Geir Geirsson 9,5 stig
Í flokki stúlkna:
1. Geirþrúður Anna Guðmundsdóttir
18 stig
2. Stefanía Bergljót Stefánsdóttir 15
stig
3. Gyða Katrín Guðnadóttir 10 stig
Í opnum flokki:
1. Daði Ómarsson 34 stig
2. Matthías Pétursson 30 stig
3. Friðrik Þjálfi Stefánsson 20,5 stig.
Vakti sérstaka athygli sá árangur
Friðriks Þjálfa að ná 3. sæti í opnum
flokki, þar sem hann er aðeins 9 ára
gamall.
Fengu viðurkenningar fyrir góðan
árangur og framfarir við taflborðið
Ungmennin sem fengu viðurkenninguna hjá TR, frá vinstri: Arnar Geir
Geirsson, Breki Ingibjargarson, Matthías Pétursson, Friðrik Þjálfi Stefáns-
son, Gyða Katrín Guðnadóttir,Geirþrúður Anna Guðmundsdóttir, Stefanía
Bergljót Stefánsdóttir, Daði Ómarsson.