Morgunblaðið - 07.11.2005, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 07.11.2005, Qupperneq 10
10 MÁNUDAGUR 7. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Um- ræðan Daglegt málþing þjóðarinnar á morgun ÞAU voru galvösk og vöfðu fast utan um sig kuldaúlp- unum sjónvarpshópurinn frá ZDF í Þýskalandi sem kom hingað á heimskautsbaug ásamt leiðsögumanni, Sigurði Grímssyni, til að taka upp hluta af efni héðan frá Íslandi í vetrarsögu sem þau ætla að segja á sjónvarpsstöðinni eftir jólin. Það er fastur liður á hverjum vetri að taka upp áhugaverða vetrarsögu. Eitt sinn var það Egyptaland sem varð fyrir valinu. Í annað skipti Feneyjar. Rauði þráður vetrarsögunnar í ár er líf í Norður- höfum. Frans Jósepsland-Svalbarði og Ísland. Hingað komu þau til að sjá hvernig lífið við heimskautsbaug gengur fyrir sig. Þar sem það snýst um fiskveiðar, aðalatvinnuveginn. Þau fengu að fara með Þorleifi EA 88 í veiðiferð og fannst sú ferð bæði stórfróðleg og skemmtileg. Það voru þeir Gylfi Gunnarsson skipstjóri og synir hans Bjarni og Svafar sem lýstu daglega lífinu. Þau mynduðu fjölskyldu Bjarna, sem býr á Borgum syðst á eyjunni, ásamt konu sinni og þremur litlum dætrum. Niðurstaða sjónvarphópsins eftir heimsóknina var að fólk í Grímsey væri bæði bjartsýnt og vel upplýst. Þrátt fyrir öðruvísi líf á lítilli eyju með langa dimma vetrar- daga og oft óblítt veðurfar eru íbúarnir fullir af krafti, bjartsýni og una glaðir við sitt. Héðan fór hópurinn á vit nýrra ævintýra á öðrum stöðum á Íslandi til að sýna fleiri tilbrigði við veru fólks við nyrsta haf. Sjónvarpshópur frá Þýskalandi tók upp efni í Grímsey Morgunblaðið/Helga Mattína Sjónvarpshópurinn frá ZDF-sjónvarpsstöðinni ásamt skólabörnum í Grímsey. Sýna á myndina eftir jólin. Fullir af krafti og bjart- sýni og una glaðir við sitt HERMANN Jón Tómasson varð í efsta sæti í prófkjöri Samfylking- arinnar á Akur- eyri vegna bæjarstjórnar- kosninganna á vori komanda. Samtals greiddu 411 at- kvæði í prófkjör- inu sem haldið var sl. laugar- dag. Þar af voru 394 atkvæði gild og ógild atkvæði voru sautján talsins. Samkvæmt prófkjörsreglum eru aðeins birtar upplýsingar um röð fjögurra efstu í prófkjörinu, en þau sæti skulu skipa tveir karlar og tvær konur. Sigrún Stefánsdóttir í öðru sæti Í öðru sæti varð Sigrún Stef- ánsdóttir, í þriðja sæti Helena Þuríður Karlsdóttir og 4. sæti Ás- geir Magnússon. Tólf einstaklingar gáfu kost á sér í prófkjörinu, 5 konur og 7 karlar. Tveir í þeim hópi sóttust eftir fyrsta sæti listans, þeir Her- mann Jón Tómasson, áfangastjóri í VMA, og Hermann Óskarsson, dósent við HA. Samfylkingin er með einn bæjarfulltrúa í bæjar- stjórn Akureyrar. Prófkjör Samfylking- arinnar á Akureyri Hermann Jón varð í efsta sæti Hermann Jón Tómasson LÚÐVÍK Geirsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði, fékk flest atkvæði í 1. sætið í prófkjöri Samfylkingarinnar í Hafnarfirði sem fram fór á laugar- dag til undirbúnings sveitarstjórna- kosningunum næsta vor. Fékk Lúðvík 656 atkvæði af 730 gildum atkvæðum í 1. sætið eða nærri 90% atkvæða. Ellý Erlingsdóttir, bæjarfulltrúi, varð í 2. sæti og fékk hún 507 at- kvæði í 1. og 2. sæti og Guðmundur Rúnar Árnason, bæjarfulltrúi varð í 3. sæti með 396 atkvæði í 1. til 3. sæti. Í 4. sæti varð Margrét Gauja Magnúsdóttir, formaður Ungra jafnaðarmanna, með 295 atkvæði í 1. til 4. sæti og í 5. sæti varð Guð- finna Guðmunds- dóttir, mat- reiðslumeistari, með 177 atkvæði í 1. til 5. sæti. Þá urðu Gunnar Svavarsson, forseti bæjarstjórnar, í 6 sæti með 596 at- kvæði í 1. til 6. sæti, Gísli Ósvaldur Valdimarsson, verkfræðingur, í 7. sæti með 257 atkvæði í 1. til 7. sæti, og Eyjólfur Sæmundsson, verkfræð- ingur, í 8. sæti en hann hlaut 310 at- kvæði í 1. til 8. sæti. Sterk og öflug forystusveit „Niðurstaðan sýnir hvað er ríkur samhugur og samstaða í Samfylk- ingunni í Hafnarfirði. Bæjarfull- trúarnir fjórir sem buðu sig áfram til starfa fengu allir afgerandi og trausta kostningur. Síðan bætast í hópinn tvær nýjar og öflugar konur í stað þeirra sem gáfu ekki kost á sér áfram. Þannig að við erum með mjög sterka og öfluga forystusveit. Þetta var ekki neitt átakaprófkjör né smalaprófkjör, fyrst og fremst var verið að stilla upp okkar liði og ég er mjög ánægður og sáttur við alla framkvæmd og niðurstöðu í þessu prófkjöri“, sagði Lúðvík um úrslit prófkjörsins. Spurður um þá afgerandi kosn- ingu sem hann hlaut í fyrsta sætið sagði Lúðvík að það væri ekki hægt að biðja um betri stuðning en hann hlaut 90% allra gildra atkvæða. „Ég met það mikils“, bætti hann við. Alls kusu 765 en á kjörskrá voru 2.046 og var kjörsókn því 37,4%. Gild atkvæði voru 730, ógildir atkvæða- seðlar voru 32, en auðir seðlar 3. 765 kusu í prófkjöri Samfylkingarinnar í Hafnarfirði Lúðvík með afgerandi kosningu í 1. sæti Lúðvík Geirsson Morgunblaðið/Kristinn Um 2.000 manns voru á kjörskrá og alls kusu 765 eða 37,4%. SAMTÖK áhugafólks um skólaþró- un verða stofnuð á Hótel Selfossi 18. nóvember næstkomandi. Samtökun- um er öðru fremur ætlað að verða umræðu- og samstarfsvettvangur þeirra sem áhuga hafa á markvissri þróun skólastarfs, skólaumbótum og rannsóknum. Þess er vænst að til liðs við sam- tökin gangi kennarar, stjórnendur, kennsluráðgjafar og kennaramennt- unarfólk sem áhuga hefur á að efla þátt virkra kennsluaðferða, svo sem sjálfstæðra viðfangsefna, skapandi starfs, samkennslu, teymiskennslu, heildstæðrar kennslu, einstaklings- miðaðs náms og samvinnunáms. Fram kemur í fréttatilkynningu að samtökin eru ætluð áhugafólki um skólaþróun á öllum skólastigum. Samtökin munu gangast fyrir árleg- um ráðstefnum þar sem fólk miðlar af reynslu sinni, skiptist á skoðunum og lærir hvert af öðru. Þá stefnir fé- lagið að útgáfustarfi, m.a. rekstri upplýsingavefjar um skólaþróun. Í tengslum við stofnþingið á Sel- fossi verður fjölbreytt dagskrá. Þema þingsins er Kennarinn sem leiðtogi í breytingastarfi. Aðalfyrir- lesari verður Barry Murphy skóla- stjóri frá Minneapolis. Þá munu kennarar og skólastjórar af öllum skólastigum ræða stöðu skólaþróun- ar á viðkomandi skólastigi. Efnt verður til málstofa um ýmis efni og má þar nefna teymiskennslu, lýð- ræði í skólastarfi, námsmat, nýtingu kennslurýmis, sjálfstæði og ábyrgð í námi og samkennslu aldurshópa. Stofna sam- tök áhuga- fólks um skólaþróun

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.