Morgunblaðið - 07.11.2005, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. NÓVEMBER 2005 11
MINNSTAÐUR
AR
G
US
/
05
-0
73
5
STARFI
NÁM
S A M H L I ‹ A
Fasteigna-, fyrirtækja-
og skipasala
Námið hefst í febrúar 2006 og er þriggja missera langt en hverjum hluta
lýkur með prófum. Um nám og próf gildir reglugerð nr. 837/2004 sem
námsvísir Endurmenntunar byggir á og framkvæmd námsins fylgir.
Markmið námsins er að þátttakendur öðlist fræðilega þekkingu og faglega
hæfni til að annast alla þætti fasteigna-, fyrirtækja- og skipasölu.
Dómsmálaráðuneytið hefur falið Endurmenntun
Háskóla Íslands að hafa umsjón með réttindanámi og
prófum til löggildingar fasteigna-, fyrirtækja- og skipasala.
• Námstími: Febrúar 2006 til júní 2007
Nánari uppl‡singar og umsóknir á
www.endurmenntun.is e›a í síma 525 4444.
Athygli er vakin á skilyrðum til próftöku en próftaki skal
a) hafa setið námskeið til undirbúnings prófi
b) hafa að baki að minnsta kosti tólf mánaða ráðningartíma í fullu starfi
hjá löggiltum fasteignasala
c) hafa lokið stúdentsprófi eða hafa sambærilega menntun að mati
prófnefndar
Beiðni um undanþágu frá ofangreindum skilyrðum skal fylgja umsókn.
Umsóknarfrestur er til 1. desember
GERT er ráð fyrir að íbúum í Reyk-
holti í Borgarfirði fjölgi um helming
á næsta ári. Búið er að skipuleggja
ellefu lóðir með tólf íbúðum við nýja
götu ofan við núverandi íbúðar-
húsabyggð og eru tvö hús þegar fok-
held. Linda Björk Pálsdóttir sveit-
arstjóri í Borgarfjarðarsveit segir
brýnt að auka þjónustu á svæðinu.
Nú er aðeins ein rútuferð í viku í
Reykholt, verið er að loka pósthús-
inu á staðnum og núverandi rekstr-
araðili einu verslunarinnar er að
hætta.
Samt sem áður er Linda Björk
bjartsýn. Hún segir gaman að lifa á
þessum tímum uppbyggingar og
vonar að hægt verði að bjarga mál-
unum á næstu dögum. Eigandi
verslunarhúsnæðisins, Olíufélagið
ehf, Essó, hefur auglýst eftir nýjum
rekstraraðila að versluninni, en
samningur hefur verið um að sá sjái
um afgreiðslu eldsneytis á staðnum.
Þegar hafa nokkrir sótt um og segist
Linda vonast til að samið verði fyrir
15. nóvember næstkomandi.
Vonandi tekst að semja
áður en frestur rennur út
„Til stóð að loka pósthúsinu 1.
nóvember síðastliðinn en gefinn var
frestur til 15. nóvember vegna þess
að fram kom hugmynd um að semja
við rekstraraðila verslunarinnar um
að sinna póstþjónustu sem Íslands-
póstur samþykkti. Þetta er mjög góð
lausn, en svo háttar til núna að sú
sem rekið hefur verslunina er að
hætta. Ég vona að samið verði við
nýjan rekstraraðila áður en frest-
urinn rennur út,“ sagði Linda.
Pósthúsið í Reykholti var opið á
hverjum virkum degi frá 10 til 16.
Linda segir íbúa og rekstraraðila í
Reykholti auk íbúa í sveitunum í
kring einnig mikið hafa notað póst-
húsið fyrir bankaþjónustu. Þegar
póstgíróþjónusta var lögð niður var
komið upp heimabankaþjónustu sem
margir nýttu sér.
„Þótt fólk sé mikið farið að nota
heimabankaþjónustu sjálft eru það
alls ekki allir. Maður skilur að það er
ekki verksvið pósthúss að reka
bankaþjónustu og því hefði ég viljað
sjá Sparisjóð Mýrasýslu eða aðrar
bankastofnanir setja upp lítið útibú,
eins og t.d. hefur verið gert á Bif-
röst. Fjöldi ferðamanna leggur leið
sína í Reykholt og því væri einnig
gott að hafa gjaldeyrisþjónustu.
Einnig er brýnt að bæta almenn-
ingssamgöngur. Áður voru sérleyf-
isferðir hingað á hverjum degi, en nú
er aðeins ein ferð í viku. Það er því
ekki óalgengt að ferðamenn verði
strandaglópar í Reykholti því þeir
gera ráð fyrir betri samgöngum en
nú er boðið upp á.“
Stórar lóðir skipulagðar í
Breiðabólsstaðarlandi
Til viðbótar þeirri fjölgun íbúa
sem verður á næsta ári verður hún
væntanlega ennþá meiri í náinni
framtíð. Unnið er að deiliskipulagi í
landi Breiðabólsstaðar, en fyrir eru í
því landi, verslunin og bensínstöðin
auk verkstæðis og skrifstofu Borg-
arfjarðarsveitar og nokkurra íbúð-
arhúsa. Þar er gert ráð fyrir 50–70
stórum lóðum, t.d. með plássi fyrir
hesthús.
„Margar hugmyndir hafa kviknað
og má búast við gríðarlegum breyt-
ingum í Reykholti og svæðinu í
kring. Meðal þeirra sem áhuga hafa
á lóðunum er ungt fólk sem vill flytj-
ast aftur á sínar heimaslóðir auk
fólks af höfuðborgarsvæðinu og víð-
ar sem ýmist er að hugsa um at-
vinnumöguleika í héraðinu eða með
tvöfalda búsetu í huga.“
Linda segir uppbyggingu víðar og
megi segja að með þessu framboði á
lóðum í Reykholti sé að bætast við
enn einn vísir að þéttbýli í héraðinu.
Mikil uppbygging eigi sér einnig
stað á Hvanneyri en þar hafa allar
lóðir selst sem búið var að skipu-
leggja og orðið brýnt að skipuleggja
fleiri.
Stærri frístundahús
og dulin búseta
„Það sama má segja um frí-
stundabyggðir. Sífellt er verið að
skipuleggja fleiri lóðir fyrir heils-
árshús víða um héraðið og er óhætt
að segja að í Borgarfirði sé mikil
dulin búseta því fólk dvelst mikið í
húsum sínum allt árið. Hér er til
dæmis fjöldi fólks yfir jól og áramót.
Fólk byggir stærri og stærri hús og
er algengt að hús séu orðin um 100–
150 fermetrar að stærð.“
Linda telur ýmsar ástæður liggja
að baki þessum mikla áhuga á bú-
sestu í Borgarfirði. „Að miklu leyti
er það fjarlægðin frá höfuðborg-
arsvæðinu sem skiptir máli og þar
hafa Hvalfjarðargöngin mikið að
segja. Það tekur ekki nema rúmlega
klukkutíma að aka hingað upp eftir.
Þá hafa tveir öflugir háskólar, á
Hvanneyri og á Bifröst, mikið að-
dráttarafl svo og undirbúningur fyr-
ir stofnun menntaskóla í Borgarnesi.
Það er eins og undirbúningur hans
hafi hleypt miklu lífi í framtíð-
arhugmyndir um héraðið. Þá hefur
ferðaþjónustan mikið að segja. Hér
eru náttúruperlur víða og margir
sögufrægir staðir svo sem Reykholt.
Fólki sem dvelur hér virðist líka vel.
Snorrastofa hefur leigt út íbúð fyrir
fræðimenn og hefur a.m.k. einn
þeirra sem þar hefur dvalið fest
kaup á húsnæði í Reykholti.“
Sameining á besta tíma
Fjölgun íbúa kallar á aukna þjón-
ustu og segir Linda að á sama tíma
og þessi uppbygging eigi sér stað sé
framundan sameining sveitarfélag-
anna, Borgarfjarðarsveitar, Borg-
arbyggðar, Hvítársíðuhrepps og
Kolbeinsstaðahrepps.
„Sameiningin kemur á besta tíma
því nú störfum við aðeins þrjár á
skrifstofu Borgarfjarðarsveitar og
því er ekki um neina sérhæfða þjón-
ustu að ræða. Við rekum ýmsa þjón-
ustu sameiginlega með öðrum sveit-
arfélögum, en kostir
sameiningarinnar eru meðal annars
þeir að hægt er að bjóða upp á þjón-
ustu á sérsviðum og ýmsa sérþekk-
ingu.“
Linda telur að með betri þjónustu
og aðstöðu megi laða ýmsar stofn-
anir að svæðinu. Hún telur það
liggja í augum uppi að það sé fýsi-
legra fyrir ýmsa rekstraraðila að
hefja starfsemi í Reykholti þegar
íbúum fjölgar þar. Sem dæmi um
gott framtak sveitarstjórnarinnar
nefnir hún skrifstofubygginguna
sem Borgarfjarðarsveit byggði á
Hvanneyri með það í huga að laða að
ýmsar stofnanir tengdar landbúnaði.
Nú hefur sveitarfélagið selt bygg-
inguna til félags sem sérhæfir sig í
rekstri bygginga.
„Þetta hefur tekist vel og í húsinu
hafa ýmsar stofnanir aðsetur sem
eðlilegt má teljast að starfi í því um-
hverfi sem skapast hefur í kringum
Landbúnaðarháskóla Íslands.“
Mikil uppbygging er fyrirhuguð í Reykholti í Borgarfirði og er búist við að íbúum fjölgi mikið
Fleiri íbúar kalla á aukna þjónustu
Eftir Ásdísi Haraldsdóttur
asdish@mbl.is
Unga fólkið sækist eftir að byggja sér hús í sveitinn. Tvö hús eru orðin fokheld í nýrri götu í Reykholti. Búið er að
skipuleggja ellefu lóðir með tólf íbúðum sem verða við nýja götu fyrir ofan núverandi íbúðarhúsabyggð.
„Gaman að lifa á uppbygging-
artímum.“ Linda Björk Pálsdóttir.
Morgunblaðið/Ásdís Haraldsdóttir
Vonast er til að samið verði við nýjan rekstraraðila verslunarinnar í Reykholti fyrir miðjan mánuðinn og að þar
verði einnig póstþjónusta. Talið er brýnt að bæta samgöngur, en fjöldi ferðamanna leggur leið sína í Reykholt.
VESTURLAND