Morgunblaðið - 07.11.2005, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 07.11.2005, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. NÓVEMBER 2005 13 ERLENT Le Blanc-Mesnil. Washington Post. | Mo- hammed Rezzoug, 45 ára umsjónar- maður íþróttahúss og knattspyrnu- vallar í einu úthverfa Parísar, veit miklu meira um ungmennin, sem kasta þar bensínsprengjum og kveikja í bílum, en lögreglu- og leyni- þjónustumennirnir sem reyna að hafa uppi á sökudólgunum. Rezzoug þekkir flesta þeirra sem taka þátt í óeirðunum í Le Blanc- Mesnil, úthverfi Parísar. „Þetta eru krakkarnir mínir,“ sagði hann. Óeirðirnar breiddust út um helgina til miðborgar Parísar og bæja og borga víða um Frakkland. „Ekki pólitísk bylting“ Franskir stjórnmálamenn rekja óeirðirnar til skipulagðra glæpahópa en íbúar Le Blanc-Mesnil segjast vita betur. Margir þeirra sem taka þátt í óeirðunum léku fótbolta á vellinum hans Rezzougs. Þeir eru börn verka- manna sem starfa við að flytja far- angur á Charles de Gaulle-flugvelli, hreingerningamanna í skólum borg- arinnar eða fólks sem hefur lengi ver- ið atvinnulaust. „Þetta er ekki pólitísk bylting eða múslímsk bylting,“ sagði Rezzoug. „Krakkarnir eru að springa af reiði. Með íkveikjunum eru þeir að segja: ég er til, ég er hérna!“ Þessi krafa um athygli og við- urkenningu endurspeglar gjána milli þess hluta franska samfélagsins, sem stækkar mest, og pólitíska valdakerf- isins sem hefur ekki brugðist við sam- félagsbreytingunum. Ungmennin sem ganga berserksgang um fátæk- ustu hverfi Frakklands fæddust þar í landi en eru börn innflytjenda frá Afríku- og arabalöndum og tilheyra þeim samfélagshópi sem hefur verið vanræktur mest. Mörg ungmenn- anna koma úr röðum múslíma sem eru um 10% af 60 milljónum íbúa Frakklands. „Viljum breyta frönsku stjórninni“ Einn af „krökkunum“ hans Rezz- ougs er kraftalegur 18 ára sonur hjóna sem fluttu til Frakklands frá Fílabeinsströndinni áður en hann fæddist. Þegar blaðamaður The Washington Post talaði við hann klukkan þrjú e.h. á laugardag var ungi maðurinn nývaknaður eftir að hafa gengið með félögum sínum um göturnar nóttina áður og kveikt í bíl- um. „Við viljum breyta frönsku stjórn- inni,“ sagði ungi maðurinn og vildi ekki láta nafns síns getið af ótta við handtöku. „Það ekki hægt að ná at- hygli hennar. Íkveikjurnar eru eina leiðin til að fá fólk til að hlusta.“ Ungi maðurinn og félagar hans virtust ekki hræðast lögregluna þeg- ar þeir lýstu íkveikjunum nóttina áð- ur fyrir yngri piltum sem hlustuðu með mikilli athygli. Skammt frá ung- mennunum gengu nokkrir af eldri íbúum hverfisins og dreifðu miðum þar sem hvatt var til þess að óeirð- unum yrði hætt. „Skipuleggjum ekki neitt“ Einn unglinganna þáði miða af öld- ungi, leit snöggvast á áskorunina og brosti til gamla mannsins. Ungling- urinn braut síðan miðann saman og hélt áfram að lýsa því hvernig skot- mörkin í næturárásunum eru valin. „Við skipuleggjum ekki neitt,“ sagði hann. „Við bara ráðumst á það sem fyrir er og hentar okkur þá stundina.“ Í Le Blanc-Mesnil hafa ungmennin kveikt í íþróttahúsi, félagsmiðstöð unglinga og tugum bíla. Íbúar hverf- isins segja þetta mestu óeirðir sem blossað hafa upp í fátækustu hverfum Parísar og útbreiddustu óeirðir í Frakklandi frá mótmælum náms- manna fyrir nær fjórum áratugum. Rezzoug sagði að um 18 ungmenni á aldrinum 15–25 ára ættu sök á flest- um íkveikjum og árásum á lögreglu í Le Blanc-Mesnil en ungir menn frá nágrannabæjum tækju nú einnig þátt í óeirðunum. Ungmennin segjast reyna að komast hjá handtöku með því að skipta sér í litla hópa og nota farsíma og SMS-skilaboð til að láta hvert annað vita af lögreglu- og slökkviliðsmönnum. Í augum ungmennanna í út- hverfum Parísar er einn maður skýrt dæmi um allt það versta við frönsku ríkisstjórnina: Nicolas Sarkozy inn- anríkisráðherra, sem er talinn líkleg- ur til að verða kjörinn forseti Frakk- lands í kosningum árið 2007. Hann lýsti í síðasta mánuði yfir „stríði án miskunnar“ á hendur glæpahópum og öðrum sem taldir eru til vandræða í fátækustu hverfunum. Viku síðar dóu tveir unglingar úr röðum múslíma af völdum raflosts í spennistöð þar sem þeir földu sig fyr- ir lögreglumönnum sem þeir töldu hafa veitt þeim eftirför. Franskir embættismenn segja að lögreglan hafi ekki elt unglingana. Dauði þeirra varð þó til þess að óeirðirnar blossuðu upp og breiddust fljótt út, einkum þegar Sarkozy lýsti ungmennunum sem „úrþvætti“ og „þorpurum“. „Snýst ekki um trúarbrögð“ „Þeir kalla okkur maðka,“ sagði einn unglinganna í Le Blanc-Mesnil. „Ég er franskur ríkisborgari, en ekki talinn skipta máli,“ sagði 28 ára maður sem fylgdist með ungmenn- unum. „Þetta snýst á engan hátt um trúarbrögð. En fólk sem ekki er ísl- amskrar trúar er hrætt við skeggjaða menn eins og mig. Ég er grun- samlegur í augum fólksins. Mismun- unin er úti um allt í kringum okkur. Við búum við hana á hverjum degi. Hún er orðin að venju. Hún er í loft- inu.“ Segja óeirðirnar baráttu fyrir viðurkenningu AP Ungur Frakki gengur framhjá bílum sem voru brenndir í bílageymslu í Suresnes, vestan við París, í óeirðunum í Frakklandi í fyrrinótt. ’Krakkarnir eru aðspringa af reiði. Með íkveikjunum eru þeir að segja: ég er til, ég er hérna!‘ Mar del Plata. AP. | Tveggja daga fundi leiðtoga Ameríku- ríkja lauk á laugardag án þess að samkomulag næðist um að hefja á ný samningaviðræður um stofnun Fríverslunarsvæð- is Ameríku (FTAA). Leiðtogar 29 ríkja voru hlynntir því að viðræðurnar hæfust á næsta ári en leiðtog- ar fimm ríkja sögðust ekki vilja stofna fríverslunarsvæðið. Þetta var niðurstaða samn- ingaviðræðna á bak við tjöldin sem drógust á langinn og urðu til þess að fundinum var slitið átta klukkustundum síðar en gert hafði verið ráð fyrir. Flestir þjóðarleiðtoganna, þeirra á meðal George W. Bush Bandaríkjaforseti, létu embættismenn sína um við- ræðurnar og héldu heimleiðis áður en fundinum var slitið formlega. Hugo Chavez, forseti Venesúela, sem hefur lagst gegn fríverslunarsvæðinu, sagði niðurstöðuna sigur fyrir andstæðinga þess. Stephen Hadley, þjóðaröryggisráðgjafi Bandaríkjaforseta, gerði hins vegar lítið úr deilunni og sagði að ekki væri nauðsynlegt að undirrita samninga á öllum leiðtogafundum. Náðu ekki samkomulagi um fríverslun Washington. AP. | Að minnsta kosti sextán manns létu lífið þegar skýstrókur gekk yfir suðvesturhluta Indiana og norðurhluta Kentucky í Bandaríkjunum í fyrrinótt. Óttast var í gær að tala lát- inna myndi hækka. Um 200 manns slösuðust. Mörg heimili eyðilögðust í óveðrinu og þúsundir manna voru án rafmagns. Að minnsta kosti tólf manns biðu bana þegar ský- strókurinn gekk yfir hjól- hýsabyggð í Evansville í Indiana. Björgunarsveitir leituðu að fólki sem talið var fast í rústum hjólhýsa. „Fólk- ið bjó í hjólhýsum sem ský- strókurinn einfaldlega tætti í sundur,“ sagði talsmaður lög- reglunnar. Um eitt hundrað hjólhýsi eyðilögðust í Evans- ville og 125 önnur skemmd- ust. Slóð eyðileggingarinnar eftir skýstrókinn er um 30 km löng og 120 m breið. Bandaríska veðurstofan varaði við skýstróknum um hálfri klukkustund áður en hann skall á, en margir íbú- anna voru þá sofandi. Skýstrók- ur olli miklu manntjóni Jerúsalem. AFP. | Fornleifafræð- ingar hafa fundið leifar ævafornrar kristinnar kirkju, ef til vill einnar þeirrar elstu í heiminum, undir fangelsi í bænum Meggido í norður- hluta Ísraels. Hefur m.a. fundist mósaík- eða steinfellumynd með grískri áletrun þar sem segir að staðurinn sé helgaður Jesú Kristi, að sögn fornleifafræðingsins Yo- tams Teppers. Myndin er um 54 fermetrar og heilleg. Á henni eru rúmfræði- myndir og teikningar af fiski, sem var eitt fyrsta kristna táknið, segir Tepper, sem stjórnaði uppgreftr- inum. Telur hann að mósaíkmyndin hafi verið gerð í lok þriðju aldar og sé því á meðal elstu kristnu forn- minja sem til séu. Myndin fannst í byggingu sem var um níu metrar á annan veginn og sex á hinn. Ofan á hana hafði verið reist hús í býsönskum stíl. Fangar í fangelsinu tóku þátt í upp- greftrinum.AP Ísraelskir fangar hreinsa mósaíkmynd sem talið er að hafi verið gerð í lok þriðju aldar. Ævaforn kirkja fannst undir fangelsi í Ísrael

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.