Morgunblaðið - 07.11.2005, Page 14

Morgunblaðið - 07.11.2005, Page 14
Jurtir til lækn- inga henta börnum vel Jurtir eru svo miklu mildarien lyf og því eru þær frá-bær leið til að hjálpa börn-um þegar einhver veikindi koma upp,“ segir Kolbrún Björns- dóttir grasalæknir sem ætlar að halda erindi næstkomandi mið- vikudag 9. nóvember í Yggdrasil undir yfirskriftinni Jurtir fyrir börn. „Börn eru miklu viðkvæmari en fullorðnir og þurfa því minni skammta af jurtum en við sem eldri erum. Sama gildir um gamalt fólk, það er líka viðkvæmt og því henta jurtir þeim mjög vel til að lækna hverskonar kvilla. Flestar jurtir fyrir börn eru það mildar að nákvæm skammtagjöf er ekki nauðsynleg og það skaðar ekkert þó tekið sé aðeins of mikið.“ Kolbrún segir muninn á jurtum og lyfjum vera þann að jurtirnar hjálpa líkamanum fyrst og fremst til að laga sig sjálfur. „Á meðan lyf vinna fyrir þig og þau taka oft ekki á grunnvandanum. Til dæmis þegar börn fá eyrnabólgu og eru sett á sýklalyf, þá fá þau oft eyrnabólgu fljótlega aftur, meðal annars vegna þess að flóran í ristlinum verður léleg vegna sýklalyfjanna, sem er slæmt vegna þess að einn þriðji ónæmiskerf- isins er í ristlinum. Þetta verður því oft vítahringur þegar sýklalyf eru gefin aftur og aftur og ónæm- iskerfið verður veikara og veik- ara.“ Barnafólk ætti að eiga jurtir heima Kolbrún er með sérstaka eyrna- olíu til að setja í eyru barna með eyrnabólgu, en hún inniheldur meðal annars hvítlauk sem er bakteríudrepandi, kamillu sem er bólgueyðandi og fleiri jurtir. „Þessir dropar lækna eyrnabólg- una á tveimur til þremur dögum. Þá er líka gott að nota Acidophi- lus til að laga flóruna í ristlinum hjá þeim börnum sem hafa verið mikið á sýklalyfjum og þar með er vítahringurinn rofinn og ónæm- iskerfið fær að byggja sig upp í friði.“ Kolbrún segir gott fyrir barna- fólk að eiga alltaf nokkrar jurtir heima. „Til dæmis þegar börnin fá spennuverki í maga, þá slær pip- armynta strax á slíka verki. Ég er með jurt sem lækkar hita og jurt sem róar börn sem eru of ör og til eru jurtir sem eru taugastyrkjandi fyrir óvenju viðkvæm börn. Maga- kveisu er líka mjög auðvelt að lækna með jurtum.“ Kolbrún segir mjög vaxandi að fólk leiti til hennar vegna vanda- mála hjá börnum. „Góður árangur spyrst út og hingað koma margir foreldrar á hverjum degi til að fá eyrnaolíu, magakveisujurtir eða eitthað annað fyrir börnin sín.“ En getur ekki verið erfitt að koma jurtum í börn, ef þær eru rammar eða bragðvondar? „Jú, það þarf vissulega að hugsa fyrir því. Jurtir sem ég er með í hylkjum fyrir fullorðna, er til dæmis ekki hægt að gefa börnum og þá verður að leita annarra leiða. Það er hægt að búa til frost- pinna úr jurtatei og sumu dufti er hægt að hræra út í mat eða blanda í drykki. Ég er líka með blómavötn sem eru rosalega snið- ug fyrir börn því þá þarf ekki að drekka heilan bolla af einhverju seyði sem er kannski ekkert sér- staklega gott, heldur taka aðeins eina teskeið og auk þess eru blómavötnin yfirleitt frekar góð og mild á bragðið. Magakveisublanda, kvefmixtúra fyrir börn og róandi blanda eru til dæmis bragðgóð blómavötn,“ segir Kolbrún og bætir við að blómavötn séu vatn sem inniheldur ilmolíur og er miklu sterkara en te en þó miklu daufara en hreinar ilmolíur. Lyf eru líka unnin úr jurtum Ár er síðan Kolbrún opnaði Jurtaapótekið og hún segir það vissulega auðvelda aðgengi allra að jurtunum. „Hér eru jurtirnar tilbúnar og fólk getur gengið inn og keypt þær án þess að panta sér tíma hjá mér eins og fyr- irkomulagið var áður. Hingað kemur sama fólkið aftur og aftur og ég fæ mjög góð viðbrögð frá viðskiptavinum mínum.“ Kolbrún kaupir aðeins jurtir í sína framleiðslu sem eru lífrænt ræktaðar og með eins mikil gæði og mögulegt er. „Vegna þess að slíkar jurtir hafa meiri virkni. Og það skiptir öllu máli. Jurtir eru svo miklu vænni fyrir líkamann heldur en lyf og þess vegna er miklu eðlilegra að fólk prófi jurt- irnar fyrst þegar eitthvað er að en fari á lyf ef þær duga ekki, en ekki öfugt. Stundum eru jurtirnar vissulega ekki nógu sterkar, til dæmis ef vandamálið er mjög krónískt eða eitthvað alvarlegt á ferðinni sem þarf að meðhöndla með sterkum lyfjum og þá er auð- vitað eðlilegt að fólk fari yfir í lyf.“ Kolbrún segir fólk hafa áttað sig á að lyf eru meira og minna unnin úr jurtum, sem hlýtur að þýða að það eru virk efni í jurtum. „Það er búið að rannsaka mjög mikið af efnum í jurtum og ég veit að virtir læknar eru að gera rann- sókn á Ítalíu með inntöku á ilm- olíum til lækninga.“  GRASALÆKNINGAR | Kolbrún Björnsdóttir grasalæknir heldur erindi um jurtir og börn Morgunblaðið/Brynjar Gauti Kolbrún segir að daglega komi til hennar fólk vegna krankleika sem hrjái börnin eins og eyrnabólgu, magakveisu eða óróleika. Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur khk@mbl.is Auk erindis Kolbrúnar eru eftirfar- andi fyrirlestrar um börn og heil- brigði í boði hjá Yggdrasil Skóla- vörðustíg 16: Hollt fæði fyrir börn (16. nóv), Homópatía fyrir börn (23. nóv), Börn og ofnæmi (1.des). Skráning í síma: 562-4082 14 MÁNUDAGUR 7. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LÍF | HEILSA Umbo›s- og sölua›ili sími: 551 9239 Vali› fæ›ubótarefni ársins 2002 í Finnlandi Minnistöflur VEFSÍÐAN www.missir.is er aðgengilegur vefur á ís- lensku þar sem fólk getur sótt sér fræðslu og upplýs- ingar um sorg og sorgarviðburði. Vefurinn er eink- um hugsaður fyrir einstaklinga, sem vilja leita sér aðstoðar á erfiðum stundum og sækja sér fræðslu og styrk. Honum er jafnframt ætlað að koma til móts við þarfir fagfólks í starfi, svo sem hjúkrunarfólks, lækna, djákna, presta, lögreglumanna, félagsráð- gjafa, sálfræðinga og ýmissa annarra stétta. Á missir.is er að finna rafræna skrá yfir íslenskar og þýddar bækur, bókakafla og sérvalið efni úr tíma- ritum. Í skránni má finna tilvísun í sannar frásagnir einstaklinga, einnig skáldrit og greinar sérfræðinga, allt tengt sorgarúrvinnslu og viðbrögðum við lífs- reynslu er breytti lífi einstaklinga. Má þar nefna áföll samfara greiningu alvarlegra sjúkdóma, bæði lík- amlegra og andlegra, brottnám líffæra og lima, sorg samfara ástvinamissi og lífshættulegar aðstæður, t.d. þegar fólk verður fyrir slysi eða upplifir nátt- úruhamfarir. Gagnaskráin geymir þannig upplýsingar um miss- inn í íslenskum veruleika. Á ævinni getum við öll átt von á því að verða fyrir áföllum. Hver og ein lífs- reynsla er sérstök og viðbrögð okkar persónubundin. Margt er þó sameiginlegt og þegar við kynnum okk- ur sýn annarra getur það veitt okkur aukinn skilning á eigin líðan. Þegar fólk verður fyrir missi upplifir það oft myrkur og einmanaleika. Hjálp er víða að finna og hún getur falist í því að lesa frásögn annars einstaklings. Hægt er að leita eftir höfundum efnis, orðum úr heiti titils og eftir efnisorðum, t.d. nöfnum sjúkdóma. Á vefnum er einnig hægt að leita eftir nöfnum fé- lagasamtaka og ýmissa aðila, sem vinna að heilli sjúkra og syrgjenda. Ennfremur er þar skrá yfir ís- lensk bókasöfn. Í starfshópnum, sem staðið hefur að vefnum, eru bókasafnsfræðingarnir Jón Sævar Baldvinsson, Krist- ín H. Pétursdóttir, Ragnhildur Bragadóttir, Sig- urbjörg Björnsdóttir og Stefanía Júlíusdóttir, Val- gerður Sigurðardóttir læknir og sjúkrahúsprestarnir Bragi Skúlason og Guðlaug Helga Ásgeirsdóttir.  NETIÐ | Vefur um missinn í íslenskum veruleika Hver lífsreynsla er sérstök Morgunblaðið/Ásdís Vefurinn er einkum hugsaður fyrir einstaklinga, sem vilja leita sér aðstoðar á erfiðum stundum og sækja sér fræðslu og styrk. TENGLAR .................................................................................. www.missir.is join@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.