Morgunblaðið - 07.11.2005, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. NÓVEMBER 2005 19
UMRÆÐAN
SJÁLFSTÆÐISMENN héldu
prófkjör nú um helgina um skipan
framboðslista flokksins í næstu
borgarstjórnarkosningum. Engin
ástæða er til annars en að óska
Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni, núver-
andi oddvita flokksins, til ham-
ingju með góðan
varnarsigur þegar að
honum var sótt.
Sömuleiðis er árang-
ur hinna borg-
arfulltrúanna sem
gáfu kost á sér
áfram, Hönnu Birnu
Kristjánsdóttur og
Kjartans Magn-
ússonar, prýðilegur.
En átökin sem fylgdu
prófkjörinu munu
fylgja flokknum
áfram. Nýkjörinn for-
maður flokksins, Geir
Haarde, er áreið-
anlega ánægður með
úrslitin en hið sama
verður varla sagt um
þá sem dyggast
fylgdu forvera Geirs í
blindni. Engum dylst
að það tókust á hin
mýkri gildi gömlu
sjálfstæðisstefnunnar
sem einu sinni var
kennd við Gunnar
Thoroddsen og svo
hins vegar nakin
frjálshyggja sem pró-
fessor Hannes Hólm-
steinn er stundum
talinn persónugerv-
ingur fyrir. En þótt
Gísli Marteinn sé þó
snöggtum geðþekkari
frambjóðandi hefur
hann þótt standa fyr-
ir hörð hægri gildi.
En um leið og þetta er sagt, er
mikilvægt að hafa í huga að Sjálf-
stæðisflokkurinn mun leggja allt
undir til að vinna meirihluta í
borgarstjórn Reykjavíkur í vor.
Benda skoðanakannanir til þess að
það gæti jafnvel tekist. Raunar
hafa skoðanakannanir á þessum
árstíma oftar boðað sigur D-
listans en það síðan ekki orðið
raunin þegar á hólminn var komið.
Engu að síður þurfum við hin, sem
síst viljum að Sjálfstæðisflokk-
urinn nái meirihluta, að hafa okk-
ur öll við og beina spjótum okkar
sameiginlega að íhaldinu. Það er
margt til í því sem sagt var í
blaðagrein hér í Morgunblaðinu
nýlega að núverandi meirihluti í
borgarstjórn hefur náð marghátt-
uðum og mikilsverðum árangri á
flestum sviðum borgarmálanna.
Aftur til fortíðar?
Hin nýkjörna forystusveit Sjálf-
stæðisflokksins stendur fyrir gam-
aldags viðhorf í skipulagsmálum,
þau viðhorf að þenja eigi byggðina
upp um allar þorpa grundir og
byggja dreift, leggja helming af
öllu borgarlandinu undir einkabíl-
inn og þjónkun við hann, flytja
miðborgina í Kringlu og svo síðar
jafnvel enn lengra frá gamla bæn-
um, og láta kylfu ráða kasti um
það hvernig starfsemi dafnar og
vex í miðborginni. Muna menn
e.t.v. enn hvernig skuldasöfnun
borgarinnar var háttað á vormán-
uðum 1994 þegar flokkurinn hugð-
ist kaupa sér atkvæði með gegnd-
arlausri sóun og jók skuldir
borgarinnar um milljóna tugi dag
hvern sem síðasti borgarstjóri
flokksins sat undir árum og reri
lífróður? Og muna borgarbúar bið-
listana á leikskólana, það er að
segja þeir sem náðarsamlegast
fengu að sækja um leikskóladvöl
fyrir börnin sín!? Það var nefni-
lega líka stundað að banna fólki að
sækja um þjónustu, til þess að bið-
listarnir yrðu ekki eins hrópandi!
Á síðasta kjörtímabili sem D-
listinn fór með stjórn borgarinnar
var farið í einkavæðingarævintýri
með Strætó, sem núverandi meiri-
hluti sneri síðan við, og unnin var
sérstök einkavæðingarskýrsla þar
sem m.a. var lagt upp með einka-
væðingu orkugeirans. Nýafstaðinn
landsfundur Sjálfstæðisflokksins
hefur líka boðað einkavæðingu á
raforkumarkaði, en
það leiðir til hækkaðs
orkuverðs til almenn-
ings og minna öryggi í
orkuafhendingu eins
og dæmin víða að
sanna.
Hvert beina
vinstrimenn
kröftum sínum?
Nei, það er ekki
svona stefna sem við
þurfum í Reykjavík.
Við þurfum að halda
áfram á braut auk-
innar þjónustu við
fjölskyldufólk í borg-
inni, með gjald-
frjálsum leikskóla,
sem VG hefur barist
sérstaklega fyrir,
ódýrari tómstunda-
þjónustu, samfélags-
legri eign og rekstri í
orkugeiranum og al-
menningssamgöngum,
áframhaldandi lýð-
ræðisvæðingu og vald-
dreifingu, en á því
sviði hefur verið unnið
þrekvirki og fátt eftir
nema ef vera skyldi
Ráðhúsið sjálft. Og
áfram verða skuldir
borgarsjóðs greiddar
niður og þjónusta auk-
in og bætt. Þetta er
lítið eitt af því sem
núverandi meirihlutaflokkar geta
unnið að áfram, eins og þeir hafa
gert undanfarin ár í góðri sátt við
borgarbúa.
Það er á þessum tímamótum
sem það er því mikilvægara, þar
sem virðing er borin fyrir borg-
arbúum og þörfum þeirra, og þar
sem hver aðili að meirihluta-
samstarfinu starfar á grundvelli
eigin forsendna og hefða. Það er
einmitt það sem gefur samstarfinu
dýpt og breidd. Falli menn á hinn
bóginn í gryfju sjálfsafneitunar og
„umkenningarleiks“, eins og örlað
hefur á í vissum herbúðum, er eins
víst að illa fari. Við í VG munum
ekki haga starfi okkar þannig og
hvetjum aðra til að fylgja forystu
okkar í baráttunni fyrir fé-
lagshyggju- og umhverfisstjórn,
bæði í borg og á landsvísu. Í því
liggja skyldur okkar við almenning
í landinu.
Verkefnin
í borginni
Árni Þór Sigurðsson
skrifar um borgarpólitík
Árni Þór Sigurðsson
’… tökumhöndum saman,
beinum spjótum
að sameigin-
legum andstæð-
ingi og vinnum
að því að núver-
andi meiri-
hlutaflokkar
geti haldið
áfram að þróa
sjálfbært borg-
arsamfélag …‘
Höfundur er oddviti
VG í borgarstjórn.
Fréttir á SMS
Rakarastofan
Klapparstíg
S: 551 3010
Hair play frá
Rakarastofan
Klapparstíg