Morgunblaðið - 07.11.2005, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 07.11.2005, Qupperneq 30
Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn ÞETTA VAR FRÚ GUÐRÚN ÞAÐ VAR FREKAR ERFITT AÐ SKILJA HANA EN ÞAÐ HAFÐI EITTHVAÐ AÐ GERA MEÐ TENNURNAR HENNAR EF HÚN VILL FÁ ÞÆR FÖLSKU AFTUR, ÞÁ VERÐUR HÚN AÐ SLÁST VIÐ BRÚÐUNA MÍNA HANN SITUR BARA ÞARNA... ÉG HEF ALDREI SÉÐ NEINN SVONA NIÐURDREGINN ÉG HÉLT AÐ ORMA- SAMLOKAN MYNDI HRESSA HANN VIÐ ... SÉRSTAKLEGA ÞAR SEM ÉG GAF HONUM LÍKA HEITT ORMA SÚKKULAÐI SIGGA, HVAR ER KALVIN? ÞAÐ VEIT ÉG EKKI, HANN VAR HÉRNA RÉTT ÁÐAN KANNSKI FÓR HANN Á KLÓSETTIÐ Á KLÓSETTIÐ! HANN FER Á SVIÐ EFTIR 2 MÍNUTÚR RENNILÁSINN Á BÚNINGNUM MÍNUM ER FASTUR HVAR ER HINN HUGRAKKI STRÍÐSMAÐUR SEM MUN KLÍFA ÞENNAN VEGG OG LEIÐA OKKUR TIL SIGURS?! HANN ER GREINILEGA EKKI MÆTTUR Í DAG GRÍMUR, HVAÐ KOM FYRIR ÞIG MIG LANGAR EKKI AÐ TALA UM ÞAÐ! HUNDURINN Í NÆSTA HÚSI GAF HONUM EINN Á HANN OG GRÍMUR STEINLÁ MIG LANGAR EKKI HELDUR AÐ ÞÚ TALIR UM ÞAÐ! ÉG LEYFI ÞÉR EKKI AÐ SKJÓTA HANN! ÞAR MUNAÐI MJÓU! MAMMA, ÉG HEF ÁHYGGJUR AF PABBA ÞAÐ ER ENGIN ÁSTÆÐA TIL. ALLIR GETA LENT Í ÁREKSTRI EN PABBI ER TEKINN AÐ ELDAST HANN ER EKKERT FARINN AÐ ELDAST ELSKAN MÍN HVERNIG GETURÐU VERIÐ VISS VEGNA ÞESS AÐ HANN HEFUR ALLTAF VERIÐ SVONA HEI! Dagbók Í dag er mánudagur 7. nóvember, 311. dagur ársins 2005 Víkverji dagsins hef-ur lengi dáðst að þrautseigju og þrjósku íslensku þjóð- arinnar. Hann verður þó að játa að síðustu árin hefur aðdáunin smám saman breyst í undrun yfir einni af birtingarmyndum þrjóskunnar: þeirri áráttu Íslendinga að leggja þjóðvegi yfir fjöll og firnindi. Það er skiljanlegt að Íslendingar skyldu hafa lagt vegi yfir fjöllin um miðja öldina sem leið. Núna er þetta hins vegar tímaskekkja vegna þess að við búum yfir tækni sem gerir okkur kleift að leysa vandamálið í eitt skipti fyrir öll – með því að leggja vegina í gegnum fjöllin, ekki yfir þau. Þessi tækni er orðin tiltölulega ódýr. Til að mynda hefur komið í ljós að það kostar aðeins 16 milljarða króna að bora veggöng milli Eski- fjarðar, Norðfjarðar, Mjóafjarðar, Seyðisfjarðar og Héraðs. Slík göng hljóta að borga sig á nokkrum ára- tugum. Líklegt er þó að Íslendingar haldi áfram að rembast eins og rjúpa við staur og ríghaldi í fjallvegina. Sú árátta er stór- furðuleg. Fyrst eyðum við miklum fjár- munum á hverju ári í rannsóknir á því hvar best sé að leggja fjall- vegina með tilliti til fannfergis. Síðan er fúlgum fjár eytt í flutninga á jarðvegi til að gera vegina eins háa og nokkur kostur er. Samt dugir það ekki og á hverjum vetri er tugum millj- óna króna eytt í snjó- mokstur til að halda vegunum opnum. Að lokum er keppst við að malbika fjall- vegina, jafnvel á stöðum þar sem malbikið getur verið stórhættulegt vegna hálku. Síðan þarf að malbika fjallvegina aftur og aftur vegna vatnsskemmda, skriðufalla og af öðrum náttúrulegum ástæðum. x x x Skammsýnir þingmenn samþykkjaþennan glórulausa fjáraustur ár eftir ár. Þeir virðast jafnvel standa í þeirri trú að það sé til marks um að- hald í ríkisfjármálum að sólunda fjármunum í bráðabirgðafram- kvæmdir í stað þess að leggja vegi til frambúðar. Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is    Listdans | Ítalski dansarinn Mara Galeazzi er hér í titilhlutverkinu í ballett- inum Manon á aðalæfingu Konunglega dansflokksins í Covent Garden um helgina. Verkið var samið 1974 og er skilgreint sem nútímaklassík. Reuters Manon í Covent Garden MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug- lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.600 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr. Orð dagsins: Fyrir því segi ég yður: Hvers sem þér biðjið í bæn yðar, þá trúið, að þér hafið öðlast það, og yður mun það veitast. (Mark. 11, 24.)

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.