Morgunblaðið - 14.11.2005, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. NÓVEMBER 2005 27
MINNINGAR
✝ Bjarni ÞórirGuðmundsson
rafvirki fæddist á
Efri Völlum í Gaul-
verjabæjarhreppi í
Árnessýslu 11. jan-
úar 1929. Hann lést
á hjúkrunarheim-
ilinu Eir 2. nóvem-
ber síðastliðinn.
Foreldrar hans voru
Guðmundur Jó-
hannesson, bóndi á
Arnarhóli í Gaul-
verjarbæjarhreppi,
f. í Skaftholti í Gaul-
verjabæjarhreppi 9. september
1900, d. 20. febrúar 1968 og Ingi-
björg Árnadóttir húsfreyja á Arn-
arhóli, f. í Seljatungu í Gaulverja-
bæjarhreppi 6. júní 1895, d. 22. des
1971. Bræður Bjarna eru Árni og
Jóhannes, f. 13. mars 1926.
Bjarni kvæntist 11. janúar 1969
Jónu Sigríði Tómasdóttur, f.
Tómas Valur Hlíðberg, f. 3. apríl
1958, kona hans Marianne Beck, f.
12. júní 1963, börn þeirra Davíð,
Sara og Jakob Jón. b) Rafnar Hlíð-
berg, f. 29. maí 1960, kona hans
Saida Rumapea, f. 30. ágúst 1978,
sonur þeirra Eric Mac. c) Jórunn
Dóra Hlíðberg, f. 12. apríl 1962,
maður hennar Agnar Sigurbjörns-
son, f. 19. ágúst 1959, börn þeirra
Guðrún Valdís, sambýlismaður
Stefán Már Ársælsson, Kolbrún og
Bjarni Valur.
Bjarni ólst upp í Gaulverjabæj-
arhreppi, lærði rafvirkjun í Iðn-
skólanum í Reykjavík og lauk
sveinsprófi 1952, síðar meistara-
prófi. Hann vann alla starfsævina
við iðnina, fyrst hjá Segli hf víða
um land á meðan landið var að raf-
væðast, hjá Íslenskum aðalverk-
tökum og síðustu 2 áratugina á
tækjaverkstæði Loftleiða (síðar
Flugleiða) í Keflavík. Bjarni var
einn stofnfélaga Árnesingakórsins
í Reykjavík og var ásamt konu
sinni mjög virkur í félagsstarfi
kórsins.
Útför Bjarna fer fram frá Selja-
kirkju í dag og hefst athöfnin
klukkan 13.
23.október 1930, frá
Fljótshólum í Gaul-
verjabæjarhreppi.
Foreldrar hennar
voru Tómas Tómas-
son bóndi og oddviti
á Fljótshólum, f. í
Efri-Gegnishólum í
Gaulverjabæjar-
hreppi 24. febrúar
1895, d. 18. júní 1973
og Guðríður Jóns-
dóttir, húsfreyja á
Fljótshólum, f. þar 1.
janúar 1903, d. 4. jan-
úar 1985. Sonur
þeirra er Guðmundur Ingi, f. 17.
júlí 1969, maki Kolfinna Guð-
mundsdóttir, f. 1. desember 1965.
Börn þeirra eru Ásþór Bjarni og
Freyja Kristín. Sonur Kolfinnu er
Guðmundur Ragnar. Fósturbörn
Bjarna og börn Jónu Sigríðar og
Vals Hlíðberg, f. 24. febrúar 1929,
d. 28. september 1964, eru: a)
Frændurnir Bjarni Guðmundsson
og Árni Sighvatsson hafa kvatt með
fárra daga millibili. Báðir voru þeir
félagar í Árnesingakórnum í Reykja-
vík og var Bjarni einn af stofnfélög-
um. Frá upphafi var hann ein styrk-
asta stoð kórsins bæði í söng og
félagslífi og er fallega bassaröddin
hans okkur ógleymanleg. Bjarni var
ætíð glaður, jákvæður og traustur fé-
lagi. Hann vildi hvers manns vanda
leysa og bar ávallt hag annarra fyrir
brjósti. Það sama má segja um eig-
inkonuna því svo samhent voru þau
hjón Sísí og Bjarni að nefndi maður
nafn annars þeirra var nafn hins kom-
ið fram á varirnar. Gestrisni þeirra
var annáluð og stóð heimili þeirra öll-
um opið ef eitthvað stóð til hjá kórn-
um. Í minningunni ber hæst laufa-
brauðsbakstur þar sem allur kórinn
kom saman hjá þeim og skar út laufa-
brauð til fjáröflunar.
Bjarni var góður harmonikkuleik-
ari og var nikkan jafnan meðferðis ef
farið var í ferðalög eða hist á manna-
mótum. Stundum voru söngæfingar
haldnar á heimili þeirra hjóna og sat
Bjarni þá við orgelið og stjórnaði
söng.
Bjarni starfaði með kórnum á með-
an heilsan leyfði og var alla tíð einn
dyggasti stuðningsmaður okkar. Á
þrjátíu ára afmæli kórsins var hann
gerður að heiðursfélaga.
Að leiðarlokum viljum við þakka
góðum vini og félaga samfylgdina.
Sísí og fjölskyldunni allri viljum við
votta dýpstu samúð.
Nú hnígur sól að sævar barmi
sígur húm á þreytta jörð.
Nú blikar dögg á blóma hvarmi,
blundar þögul fuglahjörð.
Í hljóðrar nætur ástar örmum,
allir fá hvíld frá dagsins hörmum.
(Axel Guðmundsson.)
Félagar í Árnesingakórnum í
Reykjavík.
Oft er umtalað hve margir Íslend-
ingar taka þátt í söng- og kórastarfi
og margir bindast vinarböndum í
þeim félagsskap. Í Árnesingakórnum
í Reykjavík kynntumst við öðlingnum
Bjarna frá Arnahóli og Sísí konu
hans. Jákvætt viðmót Bjarna, fé-
lagslyndi og lagvísi gerði hann að úr-
vals kórmanni, hann greip í nikku
sem oft gat komið sér vel og ekki er
hægt að gleyma kaffibrúsunum sem
hann hafði meðferðis þegar lengri
ferðalög voru framundan svo hægt
var að halda söngfélögunum kaffiboð í
aftursæti rútunnar. Uppruni hans og
uppeldi í söngglöðum Flóanum fylgdi
honum alla ævi. Innilegar samúðar-
kveðjur til Sísíar og aðstandenda.
Harpa og Ingi Heiðmar.
Vinur minn og starfsfélagi, Bjarni
Guðmundsson, er látinn eftir langvar-
andi og erfið veikindi. Við Bjarni raf-
virki, eins og hann var ávallt nefndur,
vorum starfsfélagar á tækjaverk-
stæði Loftleiða og síðan Flugleiða á
Keflavíkurflugvelli.
Margar góðar minningar á ég um
þennan ljúfa og trygglynda dreng,
fyrir þær vil ég þakka þér kæri vinur.
Eitt var sem auðkenndi þig öðrum
fremur, það var hvað þú varst hjálp-
samur og greiðvikinn og skipti ekki
máli hver átti í hlut. Reyndar áttir þú
marga vini á hinum ýmsu vinnustöð-
um sem komu að flugrekstrinum. Þú
trúðir ávallt á það góða í öllu fólki, ég
er ekki frá því að það hafi stundum
þvælst fyrir þér þegar þú kynntist
einhverju öðru í fari fólks. Aldrei sá
ég þig reiðast við nokkurn mann, en
þó vissi ég að þú værir ekki skaplaus
maður, en þú gast orðið sár, það sá ég
stundum, en þú erfðir það ekki lengi,
það var ekki þinn stíll. Þú varst fljótur
að ná til barna sem komu við á verk-
stæðinu, það sýnir best hvaða mann
þú hafðir að geyma.
Matmaður var Bjarni. Eitt sinn er
við félagarnir vorum í mat þá var ein-
hver að fjasa yfir gæðum matarins, þá
sagði Bjarni, „strákar, látið ekki
svona, það er enginn matur vondur,
hann er bara misjafnlega góður.“
Ég kveð þig með þökk og söknuði.
Ef til er æðra stig sem okkur er ætl-
að, þá vona ég að við eigum eftir að
hittast þar, kæri vinur. Sísí, ég votta
ykkur mína dýpstu samúð og megi
góður Guð blessa ykkur.
Ólafur Ingvi Kristjánsson.
Kær vinur Bjarni Guðmundsson er
kvaddur í dag.
Ég varð þeirrar gæfu aðnjótandi að
kynnast Bjarna og hans góðu konu
Sísí, eins og hún er alltaf kölluð, fyrir
hartnær 30 árum. Ég og við fjölskyld-
an höfum átt margar gleði- og
ánægjustundir með þeim hjónum á
þessum árum og stend ég í mikilli
þakkarskuld við þau. Bjarni var mikill
mannvinur og gleðigjafi sem vildi öll-
um vel.Var alltaf boðinn og búinn,
einstaklega hjálpsamur í garð allra
hvernig sem á stóð og á þetta sann-
arlega líka við um Sísí konu hans,
enda mjög samhent hjón. Öllum leið
einkar vel í návist þeirra. Mjög
músíkalskur var hann og hafði yndi af
allri fallegri tónlist. Söng í kór til
margra ára meðan heilsan leyfði og
spilaði dável á harmoniku, orgel og
jafnvel fleira.
Bjarni og nikkan voru alltaf ómiss-
andi ef eitthvað stóð til.
Það var ákaflega sárt þegar Bjarni
fékk áfall og missti heilsu sína fyrir 13
árum. Þessi duglegi, sterki maður
sem alltaf var að. En þá og allar götur
síðan hefur Sísí okkar sýnt styrk sinn
og kærleika. Hún hefur stutt og
hjálpað Bjarna öll árin og varla vikið
frá honum.
En nú hefur hann kvatt.
Innileg samúð, elsku Sísí, til þín og
þinna frá okkur fjölskyldunni. Bless-
uð sé minning Bjarna.
Fríða.
BJARNI ÞÓRIR
GUÐMUNDSSON
REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST
Þegar andlát ber að höndum
Önnumst alla þætti útfararinnar
ÚTFARARSTOFA
KIRKJUGARÐANNA
Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is
LEGSTEINAR
Steinsmiðjan MOSAIK
Hamarshöfða 4 • 110 Reykjavík
sími 587 1960 • www.mosaik.is
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og
langafi,
ÞÓRHALLUR ÁSGEIRSSON
fv. ráðuneytisstjóri,
Einimel 6,
andaðist laugardaginn 12. nóvember.
Útförin verður auglýst síðar.
Lilly Ásgeirsson,
Sverrir Þórhallsson, Inga Helgadóttir,
Dóra Þórhallsdóttir, Magnús B. Einarson,
Ragna Þórhallsdóttir, Flosi Kristjánsson,
Sólveig Þórhallsdóttir, Gunnar Jóakimsson,
barnabörn og fjölskyldur þeirra.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
MAGNÞÓRA G. MAGNÚSDÓTTIR,
Furugerði 1,
Reykjavík,
lést föstudaginn 11. nóvember á Landakotsspítala.
Jarðarförin auglýst síðar.
Sigurður K. Guðjónsson,
Katrín Guðjónsdóttir, Jónas Ragnarsson,
Helgi Már Guðjónsson, Ingveldur Kristófersdóttir,
Þóra Þ. Guðjónsdóttir, Sturla Erlendsson,
Arna Guðjónsdóttir, Sigurður Jónsson,
barnabörn og langömmubörn.
Elskuleg sambýliskona mín, móðir okkar, tengda-
móðir, amma og langamma,
DAGBJÖRT ELÍASDÓTTIR
Vogatungu 61,
sem lést að heimili sínu þann 8. nóvember, verður
jarðsungin frá Digraneskirkju föstudaginn 18.
nóvember kl. 13.00.
Ágúst Bjarnason,
Margrét Sigmundsdóttir,
Sigrún Jónína Sigmundsdóttir, Einar Sveinsson,
Sigmundur Örn Sigmundsson,
Dagbjört Erna Sigmundsdóttir, Jóhann Grétarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Það tekur oft lang-
an tíma að átta sig á staðreyndum
lífs og dauða og það er ástæðan fyr-
ir því að ég rita þessi fátæklegu orð
fyrst nú um hinn ágæta mann Gunn-
ar.
Gunnar lést í miðju fjölmiðlafári
þegar blöðin voru yfirfull af yfir-
borðsmennsku um dómsmál og
ásakanir og ákærur og alls kyns yf-
irborðshjali, sem skipta nákvæm-
lega engu máli, en drepa aðeins nið-
ur frumkvæði og fegurð mann-
lífsins.
Fyrir mig var á þeim tíma eina
fréttin sem snerti mig, fréttin um
andlát Gunnars vinar míns Guð-
mundssonar.
Ég átti því láni að fagna að
ferðast með honum þó nokkur skipti
í gegnum árin bæði í lengri og
styttri ferðum. Gunnar var bíl-
stjórnn og ég var leiðsögumaðurinn.
Þó var ansi oft sem Gunnar af
sinni einlægu hógværð og kímni
varpaði fram skemmtilegum viðbót-
um og athugasemdum um svæði þau
sem við fórum um og menn og mál-
efni, enda Gunnar búinn að fara
hringferðir um Ísland ótal sinum
ÞORSTEINN GUNN-
AR GUÐMUNDSSON
✝ Þorsteinn Gunn-ar Guðmunds-
son fæddist í Ytri-
Njarðvík 17. októ-
ber 1948. Hann varð
bráðkvaddur á
heimili sínu Fífu-
sundi 5 á Hvamms-
tanga 17. september
síðastliðinn og var
útför hans gerð frá
Hvammstanga-
kirkju 26. septem-
ber.
með erlenda ferða-
menn og fylgdist vel
með á öllum sviðum.
Gunnar var hvers
manns hugljúfi og
með sínu milda fasi
ávann hann sér ávallt
traust allra. Hann var
réttsýnn en hafði eins
og gengur sínar föstu
skemmtilegu skoðan-
ir á ýmsum málum.
Mér verður oft
hugsað til þeirrar
löngu útiveru sem
hann stundaði fjarri
heimili sínu. Gunnar tók margar
ferðir að sumri til og var þá stað-
settur á Hópferðamiðstöðinni í
Reykjavík og kom stundum ekki
heim á Hvammstanga svo að vikum
og jafnvel mánuðum skipti.
Það eru ekki allir í þjóðfélaginu
sem kunna, geta eða vilja spila með í
fjármálabraski og daglegu verð-
sprengjusprelli. Þeir eru margir
sem vinna við ýmis afar hefðbundin
venjuleg störf og þiggja venjulegt
kaup og skila heim eftir langan
vinnudag. Þetta eru hetjur og burð-
arbitar þjóðfélagsins og fer oft hjótt
um, en heyrist meir í hinum.
Ég vil þakka Gunnari góða við-
kynningu og það var sérstaklega
ánægjulegur dagur þegar við sátum
öll fjölskyldan ásamt Gunnari á
Austurvelli í sumar í sólskininu.
Þetta er góð minning sem ég
varðveiti vel og um leið sendi ég
kveðjur og stuðningsyfirlýsingu til
allra aðstandenda og annarra sem
hann þekktu.
Blessuð sé minning Þorsteins
Gunnars Guðmundssonar.
Friðrik Á. Brekkan.
Morgunblaðið birtir minningargreinar alla útgáfudagana.
Skil Minningargreinar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is
(smellt á reitinn Morgunblaðið í fliparöndinni – þá birtist valkosturinn „Senda
inn minningar/afmæli“ ásamt frekari upplýsingum).
Skilafrestur Ef birta á minningargrein á útfarardegi verður hún að berast fyr-
ir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða
þriðjudegi). Ef útför hefur farið fram eða grein berst ekki innan hins tiltekna
skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er tak-
markað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur renn-
ur út.
Lengd Minningargreinar séu ekki lengri en 2.000 slög (stafir með bilum -
mælt í Tools/Word Count). Ekki er unnt að senda lengri grein. Hægt er að
senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur, og votta þeim sem kvadd-
ur er virðingu sína án þess að það sé gert með langri grein. Ekki er unnt að
tengja viðhengi við síðuna.
Minningargreinar