Morgunblaðið - 14.11.2005, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 14.11.2005, Blaðsíða 40
* +, ' #&  ()*+,- $ ? ! B ? .-/0-*123/ $ ? ! B ?  %# 81  ! -,,) ! -,,/ 2   '  ! '   '  ! '  3((B1B-,,) 65*.0 .5*/( (- -(- (- (- 3((B1B-,,/ 6(*05 5-*/, "C $"C &"#C !#"&C 3 2  %"#C #"C JÓLAPAKKAR Icelandair eru umtalsvert dýrari nú en fyrir einu ári síðan og er hækkunin á bilinu 16,7%–37,6%. Gengi Bandaríkja- dals er á hinn bóginn tæplega 9% lægra en á sama tíma í fyrra og gengi evru er um 17% lægra. Á móti kemur að verð á flugvéla- eldsneyti hefur hækkað mikið á heimsmarkaði á síðustu misser- um. Jólapakkar Icelandair eru sér- tilboð sem flugfélagið hefur lengi boðið upp á fyrir jól. Sala á jóla- pökkunum hófst í gær og gilda þeir til allra áfangastaða Ice- landair í beinu áætlunarflugi frá 10. janúar til 14. maí 2006. Hægt er að kaupa jólapakkana til og með 27. janúar 2006. Handhafar Vildarkorts Visa og Icelandair geta greitt með Vildarpunktum og peningum fyrir jólapakka á al- mennu farrými. Guðjón Arngrímsson, upplýs- ingafulltrúi Icelandair, gat ekki tjáð sig um málið þegar eftir því var leitað í gærkvöldi. Veruleg verðhækkun auglýst á jólapökkum Icelandair MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MÁNUDAGUR 14. NÓVEMBER 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK. DÆLUR FYRIR SJÁVARÚTVEGINN Sími 568 6625 BYRJAÐ er að reisa íbúðarhús í Norðlingaholti á jaðri öryggis- svæðis sprengiefnageymslu á veg- um Reykjavíkurborgar á Hólms- heiði. Samráðsnefnd um stór- slysavarnir benti á að færa þyrfti geymsluna árið 2003, en nýtt hús- næði fyrir geymsluna hefur enn ekki verið reist. Hægt að minnka magn sprengiefna Reiknað er með að geymslunni verði fundinn staður ofar á Hólms- heiðinni, en beðið er eftir svari við erindi til Brunamálastofnunar um heimilaðar stærðir á geymslum á tilteknum stað, segir Ólafur Bjarnason, aðstoðarsviðsstjóri á framkvæmdasviði Reykjavíkur- borgar. Reiknað er með því að bæði sprengiefna- og flugelda- geymslur verði í nýju geymslunni. Eftir að Brunamálastofnun hef- ur svarað erindinu þarf að deili- skipuleggja landið, sem er í eigu Reykjavíkurborgar, áður en hafist verður handa við að byggja sprengiefnageymsluna. Sú fjarlægð sem hafa verður á milli sprengiefnageymslunnar og íbúðarbyggðar, skóla, leikvalla og fjölfarinna gatna er mismikil eftir því hversu mikið magn sprengiefna er geymt þar, en miðað er við um 1.000 metra miðað við það magn sem geymt er í geymslunni. Ólafur segir að ef dragist að færa geymsl- una sé sá möguleiki fyrir hendi að minnka það magn sem þar er geymt til að uppfylla allar reglur, þó stefnt sé að því að flytja fyrr en síðar. Hugmyndir hafa verið uppi um að færa sprengiefnageymsluna úr bæjarfélaginu, jafnvel suður á Reykjanes, en Ólafur segir að ekki sé reiknað með því eins og sakir standa. Ef ekki verði sátt um geymsluna ofar á Hólmsheiði geti hins vegar þurft að líta til þess. Byggð í Norðlingaholti farin að nálgast sprengiefnageymslu á Hólmsheiði Byrjað að reisa hús innan öryggissvæðis Eftir Brján Jónasson brjann@mbl.is Morgunblaðið/Brynjar Gauti Byggðin í Norðlingaholti færist nær sprengiefnageymslunni. HÆNA frá bænum Borgarhóli í Blönduhlíð gerði víðreist og húkkaði sér far með bíl um fimmtán kílómetra leið í Varmahlíð á miðvikudagskvöldið. Hænan er ung en hvort það var æv- intýraþrá eða mót- þróaskeið sem réð ferðinni er ekki vitað. Hún lét eigendur sína að minnsta kosti ekki vita af fyrirætlunum sínum heldur hélt af stað út í heiminn á eig- in forsendum. Hænan birtist óvænt í bílskúrnum hjá Bryn- leifi S. Tobíassyni í Út- hlíð í Varmahlíð. „Kunningi minn kemur oft í skúrinn hjá mér og fær að bóna bílinn og svoleiðis,“ segir Brynleifur. „Eitt kvöldið kom hann til mín og hafði stoppað í kaupfélaginu á leiðinni. Hann fór með bíl- inn inn í skúr og fór að sprauta tjöruhreinsi á hann og sér þá allt í einu að hæna kemur undan bílnum. Hér eru engar hænur og ég varð álíka hissa og hann.“ Brynleifur hélt fyrst að um hrekk væri að ræða. „Vinnufélagi minn er þekktur fyrir að gera að gamni sínu og frá honum koma oft góðir og skemmtilegir hrekkir. Ég grunaði hann auðvitað strax. Ég vissi að hann var að vinna hérna í Varmahlíð um daginn og ég hélt að hann hefði laumað hænunni inn í skúrinn hjá mér,“ segir Brynleifur. Hann kannaðist hins vegar ekkert við að hafa flutt hænuna milli húsa. Tilbúin í næsta ferðalag Brynleifur segist hafa frétt af hænunni eftir ævintýrið. „Ég held að henni hafi ekki orðið meint af og skilst að hún sé bara hress,“ segir hann. „Tilbúin í næsta ferðalag sjálfsagt.“ Jakob Stefánsson, frá Borgarhóli í Blönduhlíð, á hænuna víðförlu. „Ég ætlaði að fara að þrífa bílinn en þeg- ar ég lokaði dyrunum sá ég hænuna koma undan bílnum hjá mér. Hún hefur senni- lega verið búin að fara þónokkuð víða með mér. Ég held hún hafi farið eitthvað lengra en þetta eina ferðalag,“ segir hann. „Svo uppgötvaðist bara morguninn eftir að það vantaði eina hænu hjá okkur og þetta var hún.“ Jakob segir erfitt að svara því hvað hafi vakað fyrir hænunni en telur að á ferðalag- inu hafi hún setið á afturhásingu bílsins. Furðulegt ferðalag hænu í Skagafirði Eftir Hrund Þórsdóttur hrund@mbl.is BOÐIÐ var upp á grillað selkjöt og selshreifa í árlegri „Selaveislu“ í nýja Haukahúsinu að Ásvöllum í Hafnarfirði á laugardagskvöldið og gerðu gestir góðan róm að matnum sem á borð var borinn. Guðmundur Ragnarsson, sem er matreiðslu- meistari og fyrrverandi landsliðs- maður í kokkalandsliðinu, bauð til veislunnar en þetta var í þrettánda sinn sem hún er haldin. Meðal rétta á matseðlinum var grillað selkjöt, soðinn og saltaður selur, súrsaðir hreifar og súrsuð selshreifasulta. „Þetta var besta selaveisla sem ég hef haldið, en hún hefur sprengt ut- an af sér öll hús sem ég hef haldið þetta í. Það komu um 230 manns núna,“ segir Guðmundur. „Þetta var fólk á öllum aldri og til dæmis mikið af ungum konum sem þorðu ekki að smakka en létu sig hafa það og urðu fyrir hugljómun.“ Guðmundur segir fólk hafa verið mishrifið af selkjöt- inu enda hafi oft ekki verið farið vel með það. Sjálfur veiðir hann sel og verkar og fer eftir kúnstarinnar reglum í meðferð kjötsins. Morgunblaðið/Árni Torfason Guðmundur Ragnarsson gaf Pétri Guðmundssyni, formanni selabænda, að smakka bita af grillaðri selalund. Selshreifar í „Sela- veislu“ Hefur notað um 200 þúsund tonn af sandi STEINULLARVERKSMIÐJAN hf. á Sauðárkróki notar árlega um 10 þúsund tonn af innlendum fjörusandi í framleiðslu sína og hefur því notað um 200 þúsund tonn af sandi frá því starfsemin hófst fyrir um 20 árum. Með Steinullarverksmiðjunni hófst ákveðið brautryðjendastarf. Raforka var notuð til vinnslunnar en ekki olía eða kol eins og annars staðar. Bræðsluofninn, sem notaður hefur verið frá byrjun, er sá fyrsti í heiminum, sem smíðaður var til nýtingar á raforku við steinullarframleiðslu. Verksmiðjan hefur framleitt meira en 125 þúsund tonn af steinull sem samsvarar 40 sentimetra þykku steinullarteppi á öllum hringvegi landsins. | Fasteignablaðið ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.