Morgunblaðið - 25.11.2005, Blaðsíða 78

Morgunblaðið - 25.11.2005, Blaðsíða 78
78 Jólablað Morgunblaðsins 2005 HANN byrjaði ungur að fara á veið- ar með föður sínum og segist hafa átt með honum dýrmætar sam- verustundir í veiðiferðunum sem barn og unglingur, auk þess að hafa öðlast nýja sýn á náttúru landsins. „Hvort sem farið er í stangveiði, skotveiði eða á lundaveiðar, er úti- vistin öðruvísi en þegar ferðast er um landið ferðalagsins vegna. Við veiðar er maður fjarri daglegu amstri og færist einhvern veginn nær náttúrunni, nánast eins og mað- ur verði órjúfanlegur hluti hennar. Samskipti manna verða líka öðruvísi við veiðar en undir öðrum kring- umstæðum.“ Skúli tilheyrir hópi áhugamanna um veiðar sem gengur undir heitinu Harðfiskarnir. „Við erum um 20 fé- lagarnir sem förum árlega saman á urriðasvæðið í Laxá í Mývatnssveit. Stór hluti okkar stundar líka skot- veiði og báðir þessir hópar halda einskonar uppskeruhátíðir, þar sem menn máta sig hver við annan í elda- mennsku og nýtingu matarins. Þetta eru mjög skemmtilegar samkomur, þar sem við bjóðum mökum okkar uppá sælkeraveislu,“ segir Skúli og iðar næstum því af félagslyndi sem er greinilega eitt af einkennum hans. Djarft teflt í matreiðslu Skúli segir að þeir félagsmenn sem eru slakari í eldamennsku sjái um að koma með meðlæti og vín, en hinir leggi mikinn metnað í mat- reiðsluna. Á honum má heyra að fyr- ir þessar veislur ljá menn hug- myndafluginu vængi og tefla stundum djarft. „Það skiptir suma okkar máli að nýta það sem aðrir nýta ekki og þá er mottóið að með- höndla villibráðina af virðingu. Svartfugl og skarfur, sem sumir álíta argasta tros, er til dæmis hægt að matreiða þannig að úr verður al- gjört lostæti.“ Dæmi um þetta er svartfuglspate Skúla sem hefur farið sigurför um vinahóp og fjölskyldu hans, en hann setur pate-ið í fallegar krukkur og tekur gjarnan með sér í boð í staðinn fyrir blómvönd eða vínflösku. Upp- skriftin fylgir hér á síðunni undir heitinu Óður veiðimanns. Nú hefur þú stundað veiðar frá barnsaldri. Finnst þér veiðimennska hafa breyst mikið á þessum árum? „Ég fór raunar ekki að stunda skotveiði sjálfur fyrr en um tvítugt, þótt ég hafi fylgt föður mínum á veiðislóðir frá barnsaldri. En svo ég svari spurningunni; já, ég hef ég orð- ið var við mjög mikla hugarfars- breytingu meðal veiðimanna. Áður fyrr státuðu menn aðallega að því eftir veiðitúr að hafa veitt sem allra mest. Nú er frekar rætt um ánægj- una sem fylgdi ferðinni, veður og þessháttar. Enginn veiðimaður með sómatilfinningu skilur nú eftir sig tóm skothylki eða annað drasl úti í náttúrunni, en á árum áður skeyttu menn minna um umhverfið.“ Skúli vekur athygli á því að á síð- ustu árum hefur mikið verið skrifað um veiði, og allskyns fræðslu- og kennsluefni þar að lútandi er orðið mjög aðgengilegt, ekki síst með til- komu Netsins. Breyttir tímar og breytt viðhorf „Tímabundin friðun og veiðibann hefur vakið okkur til vitundar um mikilvægi þess að umgangast nátt- úruna af nærgætni og virðingu. Menn eru langt í frá jafn skamm- sýnir nú og áður. Mér finnst að smám saman höfum við tileinkað okkur viðhorf í líkingu við það sem ríkt hefur í áratugi í nágrannalönd- um okkar. Þar er veiðimennska skemmtilegt áhugamál sem tengist útivist, en ekki fæðuöflun líkt og hungursneyð væri í aðsigi. Jafn- framt taka menn virkan þátt í að við- halda ákveðnu jafnvægi í lífríkinu og eru sér mjög meðvitandi um stofn- stærðir og annað sem skiptir máli í náttúrunni.“ Skúli segist sjálfur ekki veiða meira en hann þarf til að geta haldið villibráðarveislur fyrir fjölskyldu og vini. „Raunar er það svo að þeir sem koma hingað í matarboð ganga að því sem vísu að villibráð sé á borð- um, enda vita allir sem mig þekkja af þessum áhuga mínum. Ef ég sé fram á að geta ekki verkað, matreitt og borið á borð meira en það sem ég hef veitt, þá einfaldlega hætti ég að veiða það árið.“ Hann vill meina að þeir sem að hausti eiga eins, að ekki sé talað um tveggja ára gamlar gæsir í frysti- kistunni, hafi gengið of langt í veiði. Með hundinum á veiðum Átta ára gömul labradortík fylgir Skúla ávallt til veiða. „Ég átti áður annan labradorhund sem kom líka með mér á veiðar og satt að segja þætti mér óþægilegt að hafa ekki hund með mér. Allir veiðimenn geta lent í þeim aðstæðum að missa frá sér særðan fugl, sem þeir geta ekki með nokkru móti leitað uppi. Þá er ómetanlegt að hafa þjálfaðan veiði- hund meðferðis sem finnur fuglinn fljótt þannig að hægt sé að binda enda á þjáningar hans. Mér finnst þetta mikilvægt út frá dýravernd- arsjónarmiði og auk þess er af- skaplega skemmtilegt að hafa góðan hund með sér á veiðar.“ Í upphafi samtalsins minntist Skúli á dýrmætar samverustundir með föður sínum þegar hann fylgdi honum barn að aldri á veiðislóðir. Hann segir að það skipti sig miklu máli að geta sjálfur átt slíkar stundir með eigin börnum, en hann á eina dóttur á unglingsaldri og 10 ára son. „Strákurinn hefur oft komið með mér og er mjög áhugasamur. Hann bíður spenntur eftir því að verða 12 ára því þá fær hann að ganga með mér til rjúpna.“ Hvað borðar veiðimaður og fjöl- skylda hans á aðfangadagskvöld? „Rjúpu ef hún er til, annars gæs. Helst viljum við hafa rjúpu og borð- um þá og gæs á gamlárskvöld. Fjöl- skyldan kann öll vel að meta villi- bráð og raunar er svo komið að börnin verða spæld ef þau vita að til stendur að borða villibráð í góðra vina hópi og þau eru ekki boðin með.“ Góð ráð frá veiðimanni Eitt af því sem skiptir meginmáli áður en haldið er til veiða er að huga að skotvopnaleyfi og veiðikorti, en núorðið þurfa menn að sækja nám- skeið og þreyta próf áður en þeir fá leyfi til að veiða villibráð og nota skotvopn. Skúli leggur mikla áherslu á að fara vel búinn til veiða, ekki síst þeg- ar hann gengur til rjúpna. Áttaviti og GPS-staðsetningartæki eru mik- ilvæg hjálpartæki og auk þess er ál- poki og annar neyðarbúnaður nauð- synlegur. Hann bendir jafnframt á að ekki sé nóg að eiga tæki og búnað, menn þurfi að kunna að nota græj- urnar ef á reynir. „Í raun ætti maður alltaf að gera ráð fyrir því að villast eða lenda í erfiðleikum þegar maður er fjarri mannabyggðum,“ segir hann. Meðferð villibráðar Nýveidda fugla þarf að hengja upp til að kjötið nái að brjóta sig og eru þeir hengdir upp á hálsinum, en ekki löppum. Annars er hætt við að leki úr meltingarvegi fari inn í fugl- inn en ekki úr honum. Veðurfar hefur mest áhrif á þann tíma sem fuglar þurfa að hanga. Ef hitastig er fyrir ofan frostmark er ekki mælt með því að þeir hangi lengur en 2–3 daga, en ef frost er, er hægt að láta þá hanga í viku til tíu daga. Þykir kjötið meyrara og betra ef fugl hefur hangið lengi í frosti. Ungar gæsir þurfa ekki að hanga jafnlengi og eldri gæsir, en Skúli segir það algengan misskilning að gamlar gæsir séu óætar. „Þær þurfa bara lengri tíma en þær ungu til að kjötið nái að brjóta sig vel.“ Skúli leggur mikla áherslu á að nýta vel þá bráð sem hann veiðir. „Ég nota eins mikið af fuglinum og unnt er, meðal annars innmatinn, sem alltof fáir hirða um að mat- reiða.“ Hvönn er góð í salat Það fer ekki milli mála að Skúli er mikið náttúrubarn. Hann notar sum- arið til að tína jurtir og haustið til að afla berja til að nota með villibráð- inni. „Blóðberg og vallhumal er gott að tína á sumrin. Kerfill finnst mér líka mjög skemmtilegt krydd, því hann gefur örlítinn anískeim sem rímar til dæmis vel við grillaðan silung og sal- at. Mér finnst hvönn líka mjög gott krydd og tíni hana í júní eða byrjun júlí meðan blöðin eru ljósgræn og umlykja blómin. Ég nýti bæði blöðin og blómin af ungum jurtum til dæm- is í salat.“ Skúli segist nota talsvert af berj- um með villibráðinni, ekki síst að- albláber og krækiber. Stundum seg- ist hann jafnframt nota berjalyng, „en fyrst og fremst er ég þó kræki- berjakarl. Ég geri saft úr krækiberj- um sem ég nota til dæmis til að mar- ínera kjöt. Mér finnst ágætt að miða við að ég geti notað kryddlög af kjöt- inu í sósuna.“ Svartfugls-sushi með fetaosti eða soja Svartfugl segir hann að sé mikið lostæti. „Þetta er vanmetið hráefni og helsta ástæðan held ég að sé sú að menn óttast lýsis- og sjávarbragð. Sumir leggja svartfugl í mjólk, en ég held að lykillinn felist miklu frekar í að fjarlægja alla fitu og allar himnur af vöðvunum áður en kjötið er mat- reitt. Þá er svartfugl ekki síðri mat- ur en gæs. Einn af nýstárlegum réttum Skúla sem vakið hafa mikla kátínu þeirra sem prófað hafa er svarts- fugls-sushi. „Ég marínera svart- fuglsbringur í krækiberjasaft í nokkra klukkutíma, sker þær síðan í litla bita og set í skál. Í aðra skál set ég fetaost í teningum eða sojasósu, því sætt kjötið þarf að fá smá salt sem mótvægi. Þetta er hægt að hafa sem forrétt og með þessu er til dæmis gott að drekka sætt hvítvín eða rósavín.“ Óður veiðimanns Þessa uppskrift á Skúli Pétursson veiðimaður og hann á það til að mæta í gestaboð með krukku af þessu lostæti sem jafnan fellur í góð- an jarðveg. Hann segir að tilvalið sé að nota villisveppi í uppskriftina, ef menn hafa áhuga á að tína þá, en annars megi nota sveppi út úr búð. Hann notar stundum innmat úr lunda í stað svartfuglsins. Gera þarf réttinn a.m.k. sólar- hring áður en ætlunin er að bera hann fram. Þetta er sælkeraréttur sem sýnir hvernig veiðimenn geta nýtt bráðina til fullnustu og segja má að sé óður veiðimanns til náttúr- unnar. Svartfuglspate ½ kg lifur og hjörtu úr svartfugli 1 kg kjöt af svartfugli 100 g hökkuð fallega hvít svína- fita 100 g svínafita í þunnum sneiðum 1 dl krækiberjasaft eða 1,5 dl lítið hlaupin aðalbláberjasulta 10–12 einiber, steytt 1 tsk sage (salvía) 1 tsk basil ¾ tsk rósmarín 1 tsk blóðberg (eða timían) 1 msk steytt piparkorn, græn, rauð, svört og hvít 1 lárviðarlauf 1 bolli villisveppir (eða skóg- arsveppir) 1 bolli aðalbláber 2 egg 2 dl rjómi Kjöt og innmatur er maukað ásamt 100 g af svínafitu, steyttu kryddi og saft (eða sultu). Geymt í kæli yfir nótt. Daginn eftir er eggjum og rjóma hrært saman við og sveppum bætt út í. Að- albláber eru látin á botninn í smurðu eldföstu móti og farsið ofan á. Svínafita í sneiðum er lögð ofan á farsið og lok eða álpappír sett yfir mótið. Bakað í um 2 klst. við 200°C. Bök- unartími fer eftir dýpt mótsins. Gott ráð er að stinga í kæfuna með prjóni til að athuga hvort hún er bökuð. Ef rauð- ur safi lekur úr sárinu þarf að baka hana lengur. Borið fram sem forréttur (eða aðal- réttur ef vill) og hentar sérlega vel með nýbökuðu brauði og cumberlandsósu. Fyllt villigæs Hér er góð uppskrift að fylltri villigæs að hætti Skúla. Fyllingin er rífleg í eina gæs. Afgang má nota til að fylla háls eða jafnvel baka í ofn- föstu móti í 20 mínútur, og bera fram með gæsinni. Hráefni 1 gæs, reytt og sviðin 1 brauð (má vera nokkurra daga gamalt) 1 bolli vatn ½ bolli smjör ½ bolli saxaður laukur 2 msk hnetusmjör 1 msk sage (salvía) 2 msk saxað sellerí 2 msk söxuð steinselja ½ bolli saxaðar pekanhnetur (eða valhnetur ef vill) ½ bolli saxaðar jarðhnetur (eða heslihnetur ef vill) salt, hvítur pipar og sinnepsduft á hnífsoddi Fylling Brauð skorið í teninga og þurrkað í ofni við vægan hita þar til það er þurrt, Villibráð að hætti veiðimanns Morgunblaðið/Þorkell Skúli Pétursson, veiðimaður og listakokkur, ásamt syninum Sturlu. Með þeim er labradortíkin Fluga, traustur félagi. Villibráð er oft á borðum hjá Skúla Péturssyni kennara í Hafnarfirði. Ekki nóg með að hann sé snjall veiðimaður, heldur er hann líka afbragðskokkur, útsjónarsamur og frumlegur. Brynja Tomer tók hús á honum og falaðist eftir uppskriftum milli þess sem þau ræddu um vaxandi siðferðisvitund veiðimanna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.