Morgunblaðið - 28.11.2005, Page 2
2 F MÁNUDAGUR 28. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Fyrir rúmlega hálfri öld út-nefndi FegrunarfélagReykjavíkur hús arki-tektsins Gísla Halldórs-
sonar við Tómasarhaga 31 í Reykja-
vík fallegasta hús borgarinnar byggt
1953. Gísli hefur búið þar síðan og
húsið vekur athygli sem fyrr.
Austurkot hét bær foreldra Gísla
Halldórssonar. Þau keyptu þetta hús
við Ægisíðu eftir að hafa brugðið búi
á Kjalarnesi þar sem Gísli fæddist.
„Þau voru með þrjár kýr, tvo hesta
og nokkrar kindur auk þess sem
pabbi veiddi grásleppu og þyrskling
hérna fyrir utan,“ segir Gísli. „Ég
fékk að fara í styttri veiðiferðir í góðu
veðri og stundum tók ég KR-inga
eins og Steina mosa (Þorstein Ein-
arsson) með. Það þótti þeim gaman,
en við fórum aldrei einir út að Löngu-
skerjum, aðeins að skerjunum hérna
rétt fyrir utan.“
Gísli bjó í foreldrahúsum þar til
hann fór í nám til Danmerkur 1935.
Hann kom aftur til Íslands með konu
og tveggja ára syni þeirra 1940 og
fyrstu þrjú búskaparárin bjuggu þau
í einu herbergi í þriggja herbergja
íbúð foreldra Gísla í húsi bróður hans
við Framnesveg. Hann byggði hús
við Efstasund og þaðan fluttu þau í
Barmahlíð þar sem þau bjuggu í
fimm ár en Vesturbærinn heillaði og
þar vildu þau búa. Kona Gísla, Inger
Margrét Erichsen, féll frá 1987 og
hefur Gísli búið einn í íbúðinni síðan.
Útsýnið aðalatriðið
Gísli hefur tengst íþróttum frá
barnsaldri. Hann var meðal annars
formaður Ólympíunefndar Íslands og
Íþróttasambands Íslands og segir að
nálægðin við KR hafi haft sitt að
segja þegar hann sótti um bygging-
arlóð við Ægisíðuna fyrir meira en 50
árum. Samt hafi útsýnið út á Skerja-
fjörð ráðið mestu. „Ég reyndi í fimm
ár að fá lóð við Ægisíðuna en umsókn
minni var alltaf hafnað,“ segir Gísli.
„Eftir að ég hafði fengið þessa bygg-
ingarlóð við Tómasarhagann, gegnt
hænsnakofum sem hér voru, þurfti
ég að taka í mann sem tók í mann til
að fá leyfi hjá fjárhagsráði ríkisins til
þess að byggja svona stórt hús og allt
tók þetta tíma. Til stóð að byggja hér
fjórbýlishús en svo var ákveðið að
hafa tvíbýlishús á þessu horni og ég
lagði fram teikningu. Fjárhagsráð
ríkisins réð öllum byggingum og þar
var nánast hlegið að teikningunni.
Mér var sagt að það væri enginn svo
brjálaður að byggja eftir svona teikn-
ingu, húsi á súlum, og ég fékk að
heyra að ég ætlaði mér að láta húsið í
hendur Silla og Valda sem vildu allar
hornlóðir bæjarins undir búðir sínar.
Ég sagði þetta fjarstæðu og mín
vegna mætti setja inn í samninginn
að þarna yrði aðeins íbúðarhús.
Vegna alls þessa varð töf á bygging-
unni en við fluttum inn 1. apríl 1954
og ég hef búið hér síðan.“ Einnig sem
forseti borgarstjórnar Reykjavíkur
um tíma, má bæta við.
Útlit hússins var öðruvísi en menn
áttu að venjast og fékk Gísli stundum
að heyra það. „Þegar ég var beðinn
að gera tillögur að fyrirhuguðum
breytingum á húsnæði Menntaskól-
ans á Laugarvatni mótmælti Jónas
frá Hriflu því harðlega. Hann hund-
skammaði mig í grein og sagði að ég
og mínir líkar byggðum bara eins og
villimenn í Afríku, á staurum, til að
villidýrin gætu hlaupið undir húsin.“
Vinnuaðstaða heima
Gísli hefur verið afkastamikill arki-
tekt. Hann teiknaði meðal annars
mörg hús við Tómasarhagann vestan
við eigið hús og fyrir um þremur ár-
um var hann kjörinn heiðursfélagi í
Arkitektafélagi Íslands. Hann byrj-
aði sem einyrki og síðar rak hann
ásamt félögum sínum eina stærstu
arkitektastofu landsins, Teiknistof-
una Ármúla 6, og hélt uppi fyrsta
raunverulega fyrirtækinu í arki-
tektaþjónustu um áratugaskeið.
Þótt Gísli sé á tíræðisaldri er stutt
síðan hann hætti með teiknistofu
sína. Hann byrjaði með vinnuaðstöðu
heima og þar lauk hann teiknistörf-
um sínum – teiknaði síðast Austur-
kot, bæinn sem hann ólst upp í.
„Þegar ég fékk þessa lóð varð ég
að byggja tveggja hæða hús með
tveimur íbúðum,“ segir Gísli. „Ég
hugsaði litlu íbúðina niðri fyrir móður
mína en hún dó áður en við fluttum
inn. Hins vegar hefur íbúðin lengst af
nýst einhverjum í fjölskyldunni. Hús-
ið stendur nokkuð hátt og því er gott
útsýni út á Skerjafjörðinn frá íbúð-
inni uppi og svo vildum við hafa stór-
ar svalir til að njóta umhverfisins sem
best. Baka til er svo garðhúsið sem
ég teiknaði sem teiknistofu. Þar hafði
ég stofuna fyrstu árin áður en við
fluttum fyrirtækið í Ármúlann og að-
staðan er enn notuð fyrir teiknistofu.
En nú vinn ég mest við stofuborðið
eins og þegar ég byrjaði. Er reyndar
hættur að teikna en held áfram að
skrifa og á von á annarri bók minni á
tveimur árum úr prentsmiðju á
næstu dögum. Það er bókin Gísli
Halldórsson, menning, menn og mál-
efni, sem ég gerði með Jóni M. Ívars-
syni.“
Lítil breyting
Þegar Gísli byggði hús sitt við
Tómasarhagann var Vesturbærinn
að taka við sér og sveitabæjum var
fórnað fyrir nýbyggingar. Byggðin
byggðist í vestur frá flugvellinum og
t.d. voru aðeins örfá hús risin við
Tómasarhagann á móts við Fálka-
götu þegar Gísli byggði sitt hús. Frá
hinum enda Fálkagötu lá svo stígur
niður að vörinni við Ægisíðuna.
„Annars hefur lítið breyst, ég hef enn
mitt útsýni og hér er rúmgott,“ segir
Gísli. „Hér er til þess að gera lítil um-
ferð og hér er gott að búa. Ég hef allt-
af verið mikill Vesturbæingur og hef
vaxið með honum og KR. Ég hef ekki
lengur Halldór á Fálkagötunni til að
reykja lambalæri fyrir mig en breyt-
ingin hefur að öðru leyti ekki verið
svo mikil. Ég hef ekkert breytt hús-
inu og ætla ekki að gera það, eins og
ég sagði reyndar fjárhagsráðinu fyrir
meira en 50 árum. Viðurinn í loftinu
uppi er til dæmis sá upprunalegi og
parketið á stofugólfinu hefur verið
þar alla tíð. Svona vildi ég hafa það og
svona er það.“
Gísli Halldórsson á svölum húss síns með útsýni út á Skerjafjörðinn. Bakhúsið er enn notað sem teiknistofa.
Hefur búið í sama húsi í hálfa öld
Gísli Halldórsson teiknaði húsið við Tómasarhaga 31 og flutti inn fyrir meira en
hálfri öld.
Ekkert hefur verið átt við viðarloftið og parketið í stofunni síðan húsið var
byggt.
Eftir Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Gísli Halldórsson teiknaði Austurkot inn á mynd af sér á staðnum þar sem hús-
ið var við Ægisíðuna.
101 Reykjavík ...................... 22–23
Akkurat ....................................... 43
Ás ................................................... 12
Ásbyrgi ........................................... 9
Berg ............................................... 51
Borgir ................................... 62–63
Eignaborg .................................... 54
Eignamiðlunin ...................... 14–15
Eignaval ........................................ 45
Eik fasteignafélag ..................... 49
Fasteign.is .......................... 28–29
Fasteignamarkaðurinn ........ 10–11
Fasteignamiðluninn .................... 8
Fasteignamiðstöðin .................. 52
Fasteignasala Íslands ................. 5
Fasteignasala Mosfellsbæjar .... 3
Fasteignastofan .......................... 37
Fjárfesting ...................................... 6
Fold .......................................... 12–13
Foss ............................................... 36
Garðatorg ..................................... 16
Garður .......................................... 56
Gimli ...................................... 26–27
HB fasteignir .............................. 35
Heimili ........................................... 42
Híbýli ............................................ 44
Hof ................................................ 54
Hóll ................................................ 53
Hraunhamar ............................... 57
Húsakaup .............................. 20–21
Húsavík ......................................... 17
Húsin í bænum ........................... 47
Höfðabakki 9 .............................. 59
>Höfði .................................... 24–25
ÍAV ......................................... 32–33
Kjöreign .......................................... 4
Klettur .................................... 18-19
Lundur .................................... 40–41
Lyngvík ........................................ 55
Miðborg ................................ 38–39
Nethús ......................................... 48
Saga ................................................ 41
Skeifan ............................................ 7
Stakfell ......................................... 21
Valhöll .................................... 30–31
Efnisyfirlit