Morgunblaðið - 28.11.2005, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. NÓVEMBER 2005 F 5
einstakir eigendur gætu við þess-
ar aðstæður leitað til sýslumanns
og krafist þess að framkvæmdir
yrðu stöðvaðar með lögbanni.
Sé um byggingarleyfisskylda
framkvæmd að ræða liggur bein-
ast við að leita til byggingaryf-
irvalda með kröfu sína en skipu-
lags- og byggingarlög veita þeim
heimild til þess að stöðva fram-
kvæmdir sem hafnar eru án til-
skilins byggingarleyfis. Í þessu
sambandi skal þess getið að eitt af
skilyrðum byggingarleyfis, þegar
framkvæmdir snerta sameign fjöl-
eignarhúss, er að samþykki hús-
fundar liggi fyrir.
Í fjöleignarhúsum skuluákvarðanir um sameig-inlegar framkvæmdir tekn-ar á húsfundi. Er eigendum
því óheimilt að ráðast í fram-
kvæmdir sem snerta sameign
hússins án sam-
þykkis hús-
fundar, nema í
sérstökum und-
antekning-
artilvikum. Um
hinar sérstöku
undantekning-
arreglur verður
fjallað um síðar
á þessum vett-
vangi. Hér verð-
ur hins vegar
vikið að því hverjar séu afleið-
ingar þess ef ráðist er í fram-
kvæmdir án samþykkis húsfundar
og að úrræðum annarra eigenda
þegar svo háttar.
Ráðist einstakir eigendur í ein-
hliða framkvæmdir á sameign
hússins geta þeir ekki treyst því
að sameigendur taki þátt í kostn-
aði vegna þeirra. Gildir þá einu
hvort framkvæmdirnar komi sér
vel fyrir húsið og eigendur þess
eða ekki. Framkvæmdaglaður eig-
andi kann t.d. að hafa ráðist í að
mála húsið að utan, framkvæmt
þarflegar viðgerðir á ytra byrði
þess eða ráðist í nýframkvæmdir á
lóð sem aðrir eigendur hafa í
sjálfu sér ekkert á móti.
Þeim er því að sjálfsögðu heim-
ilt að taka þátt í að greiða kostnað
við framkvæmdirnar en þeir eru
hins vegar ekki skyldugir til þess.
Til þess að kostnaður við fram-
kvæmdir teljist sameiginlegur eig-
endum og þeir skyldugir til að
greiða sinn hlut í honum verður
hann að leiða af löglegri ákvörðun
húsfundar.
Stöðvun framkvæmda
Ef öðrum eigendum eða hús-
félagi hugnast ekki þær ráðstaf-
anir sem aðrir eigendur hafa ráð-
ist einhliða í og snerta sameign
hússins geta þeir krafist þess að
framkvæmdin verði stöðvuð. Skelli
þeir sem framkvæma skollaeyrum
við kröfum húsfélags eða annarra
eigenda verða þeir að snúa sér til
réttra yfirvalda til að fá kröfum
sínum framgengt. Húsfélag eða
Ef framkvæmdir eru um garð
gengnar og sá eigandi sem fram-
kvæmdi, hefur ekki aflað tilskilins
samþykkis húsfundar, geta ein-
stakir eigendur eða húsfélagið
krafist þess af honum að hann
fjarlægi hinar ólögmætu ráðstaf-
anir og komi sameigninni í upp-
haflegt horf. Verði eigandi ekki
við slíkum tilmælum geta aðrir
eigendur krafist þess fyrir dómi
að hinar ólögmætu framkvæmdir
verði fjarlægðar. Áfellisdómi í
slíku máli væri unnt að framfylgja
með aðstoð sýslumanns.
Hafi verið um byggingarleyf-
isskylda framkvæmd að ræða geta
aðrir eigendur leitað til bygging-
aryfirvalda en þau hafa, eins og
áður sagði, heimild til þess að
stöðva óleyfisframkvæmdir en
jafnframt hafa byggingaryfirvöld
heimild til þess að knýja á um að
óleyfisframkvæmdir verði fjar-
lægðar. Feli einhliða fram-
kvæmdir eigenda í sér breytingar
frá samþykktum teikningum húss-
ins getur húsfélagið átt þann kost
að taka um það ákvörðun á hús-
fundi að koma sameigninni í upp-
haflegt horf og í samræmi við
samþykktar teikningar.
Að síðustu skal þess getið að
eigendur geta með brölti sínu bak-
að sér skaðabótaábyrgð gagnvart
öðrum eigendum og húsfélaginu.
Dæmi um það er þegar eigandi
hefur með framkvæmdum sínum
fjarlægt hluta sameignar eins og
veggi, grindverk, leiðslur eða aðr-
ar tilfæringar.
Mótmæli og tómlæti
Hvenær skal brugðist við ein-
hliða ráðstöfunum? Meginreglan
er sú að eigendur missa engan
rétt þó þeir mótmæli ekki einhliða
ráðstöfunum annarra eigenda um
leið og þeir verða þess áskynja að
framkvæmt er án samþykkis hús-
fundar. Tryggilegast er hins vegar
að hafa uppi athugasemdir við
framkvæmdunum við fyrsta tæki-
færi.
Tómlæti húsfélags eða einstakra
eigenda við því að bregðast við
einhliða framkvæmdum með at-
hugasemdum þar að lútandi kann
að hafa áhrif á lyktir slíkra mála,
komi síðar fram krafa um að
framkvæmdir verði fjarlægðar. Í
máli einu fyrir kærunefnd fjöl-
eignarhúsamála hafnaði nefndin til
að mynda kröfu eigenda fjöleign-
arhús um að nágranna þeirra yrði
gert skylt að fjarlægja flóttapall
sem reistur hafði verið fyrir utan
glugga þess síðarnefnda um 20 ár-
um áður.
Taldi nefndin kröfu um að fjar-
lægja pallinn niður fallna sökum
tómlætis.
Framkvæmdir án samþykkis húsfundar
Hús og lög
eftir Gest Óskar Magnússon, lög-
fræðing hjá Húseigendafélaginu/
gestur@huseigendafelagid.is
Gestur Óskar
Magnússon
HÆGT er að flota gólf í sturtuklefa
með góðum árangri. Gólfið er flot-
að og lakkað, í fyrstu lakkumferð-
ina er stráð sandi og síðan lakkað
yfir aftur. Gólfið verður því ekki
sleipt þegar það blotnar.
Morgunblaðið/Árni Torfason
Sturtubotninn má flota.
Flotað gólf í
sturtuklefa?
mbl.is/fasteignir/fastis
HLÍÐAR
Vorum að fá í sölu töluvert uppgerða 3ja-
4ra herbergja íbúð á 4. hæð í vel staðsettu
fjölbýli. Eldhús, tvö svefnherbergi,
stofa/borðstofa með vestursvölum og bað-
herbergi með baðkari og glugga. Tvær sér-
geymslur. Verð 17,1 millj. Áhv. 11,3 millj. til
40 ára með 4,15% föstum vöxtum.
LEIFSGATA
Vorum að fá í einkasölu fallega 5 herb. íb. í
fjórb. á jarðh. m/sérinng. á þessum góða
stað. Stofa, fjögur svefnh., eða 2 stofur og
3 svefnh., eldhús og baðh. Góð lóð. Ein-
stefnugata. Nýlegt parket og nýlegur linol-
eumdúkur. Verð 23,5 millj. Áhv. 14,8 millj.
til 40 ára með 4,15% föstum vöxtum.
MIÐBORGIN Vorum að fá í sölu fal-
lega 4ra herb. 106 fm íbúð á 2 hæðum í
fallegu steyptu fjölb. Sérinngangur. Íbúðin
skiptist m.a. í stofu, þrjú svefnh. og fatah.
Nánari uppl. á skrifstofu FÍ. Verð 22,8 millj.
Opið
mán-fimmtud. 9-17:30
föstudaga 9-17
2ja HERBERGJA
FOSSVOGUR - LAUS Vorum að fá í
einkasölu góða einstaklingsíbúð á þessum
góða stað í Fossvogsdalnum. Sameigin-
legt þvottahús á hæðinni. Laus strax. Verð
6,5 millj.
SPÓAHÓLAR - LAUS Vorum að fá í
einkasölu góða 2ja herbergja íbúð í litlu og
vel staðsettu fjölbýli. Baðherbergi nýlega
endurnýjað.
3ja HERBERGJA
VANTAR 3JA HERBERGJA
TRAUSTUR AÐILI HEFUR BEÐIÐ OKKUR
UM AÐ FINNA FYRIR SIG GÓÐA 3JA
HERBERGJA ÍBÚÐ TIL KAUPS SEM
FYRST. GÓÐAR GREIÐSLUR, RÚMUR
AFHENDINGARTÍMI. ÍBÚÐIN MÁ VERA Í
RVK. (EKKI BREIÐHOLTI), KÓPAV. EÐA
GARÐABÆ. NÁNARI UPPL. VEITIR
HAUKUR GEIR, LÖGG. FASTEIGNASALI.
ÆSUFELL Vorum að fá í einkasölu
góða 3ja herbergja 92 fm íbúð í nývið-
gerðu lyftuhúsi. Sjónvarpshol. Eldhús með
nýlegri innréttingu og tækjum, borðkrókur.
Búr inn af eldhúsi. Parket og flísar. Verð
16,7 millj. Áhv. 12 millj. til 40 ára með
4,15% föstum vöxtum.
ORRAHÓLAR - LAUS - ÚTSÝNI
Vorum að fá í einkasölu fallega 3ja her-
bergja 93 fm íbúð í lyftuhúsi með glæsi-
legu útsýni í suður, norður og austur. Stofa
með yfirbyggðum svölum í suður. Tvö
svefnherbergi og baðherbergi í sér svefn-
álmu. Lagt er fyrir þvottavél á baði, sam.
þurrkherbergi er á hæðinni. Góð bílastæði.
TOPPEIGN. Laus fljótlega. Verð 16,9 millj.
KÓPAVOGSBRAUT - LAUS
Vorum að fá í einkasölu góða 3ja her-
bergja 86 fm íbúð á jarðhæð í þríbýli. Suð-
urgarður. Eldhús með nýlegri innréttingu,
björt stofa, tvö svefnherbergi. Hús nýlega
klætt að utan. Ákv. sala. Áhv. 14,1 millj. til
40 ára með 4,15% föstum vöxtum.
4-6 HERBERGJA
MIÐBORGIN - NÝTT Vorum að fá í
sölu þrjár nýjar íbúðir ofarlega í lyftuhúsi
miðsvæðis í Rvk. Íbúðirnar eru 93-123 fm
og verða afhentar fullbúnar með vönduð-
um innréttingum og parketi/flísum á gólf-
um. Teikningar allar uppl. á skrifstofu FÍ.
HÆÐIR
INGÓLFSSTRÆTI
Voru að fá í sölu fallega og mikið endurnýj-
aða um 143 fm hæð í þessu fallega og
virðulega steypta húsi í hjarta Reykjavíkur.
Sérinngangur. Eignin skiptist m.a. í stofu,
sjónvarpsherbergi og fjögur svefnherbergi.
Parket og flísar á gólfum. ÞETTA ER EIGN
FYRIR ÞÁ SEM VILJA VERA MIÐSVÆÐIS.
Nánari uppl. á skrifst. F.Í. Verð 32,4 millj.
EINBÝLI-RAÐHÚS
AUSTURGERÐI -
EINBÝLI/TVÍBÝLI
Vorum að fá í sölu á þessum vinsæla stað
sérstaklega fallegt og vel við haldið einbýl-
ishús á tveimur hæðum með möguleika á
séríbúð á neðri hæðinni. Á efri hæðinni er
forstofuherbergi, eldhús, borðstofa og
stofa, tvö svefnherbergi, baðherbergi og
þvottahús auk bílskúrs. Stigi er á milli
hæða en einnig er neðri hæðin með sér-
inngang. Þar eru fjögur herbergi (eitt er
nýtt sem eldhús í dag), baðherbergi og
stór geymsla. Húsið stendur í enda lokaðr-
ar götu með fallegu útsýni. Góður garður í
mikilli rækt. Næg bílastæði. Teikningar og
nánari uppl. á skrifstofu FÍ. Verð 54,8 millj.
ATVINNUHÚSNÆÐI
BÍLSKÚRAR Til sölu nokkrir nýir bíl-
skúrar í Hafnarfirði. Upplagt sem lager fyrir
lítil fyrirtæki eða geymslupláss fyrir ein-
staklinga. Lausir strax. Sanngjarnt verð.
Nánari uppl. á skrifstofu FÍ.
ÓSEYRARBRAUT - HAFN-
ARFJ. Vorum að fá í einkasölu rúmlega
2000 fm atvinnuhúsnæði. Húsnæðið er
nýtt í dag undir fiskvinnslu. Nánari uppl.
gefur Haukur Geir á Skrifstofu FÍ.
SKRIFSTOFUHÚSNÆÐI ÓSK-
AST VIÐ HÖFUM FJÁRSTERKAN AÐLA
SEM LEITAR AÐ 800-1000 fm TIL KAUPS
EÐA LEIGU Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU.
NÁNARI UPPL. Á SKRIFSTOFU.
MIÐSVÆÐIS Til leigu um 200 fm skrif-
stofuhæð í góðu steinhúsi miðsvæðis í
Reykjavík. Laust strax. Nánari uppl. á
skrifstofu.
SUMARBÚSTAÐIR
SUMARHÚS TIL FLUTNINGS
Vorum að fá í sölu nýtt um 50 fm sumar-
hús með ca 20 fm svefnlofti. Timburstigi er
upp á svefnloft sem er með svölum. Sum-
arbústaðurinn er tilbúinn til flutnings. Verð
7,0 millj.
MÁNABRAUT - VESTURHL. KÓP.
Vorum að fá í einkasölu einbýli á einni hæð með rúmgóðum bíl-
skúr á þessum góða stað. Suðurgarður. Björt stofa/borðstofa
með útgangi á suðurverönd, fjögur svefnherbergi, þvottahús,
geymsla, eldhús með borðkrók og baðherbergi með sturtu og
glugga. Parket, flísar og dúkur á gólfum. Eign sem býður upp á
mikla möguleika. Stutt í alla þjónustu. Verð 35,7 millj.
Haukur Geir Garðarsson
viðskiptafræðingur
og lögg. fasteignasali
Albert Bjarni Úlfarsson
sölustjóri
Ólafur Hreinsson
lögfræðingur
FÍFULIND Vorum að fá í sölu góða 111
fm 4ra herb. endaíbúð með sérinngangi af
svölum á góðum stað í Kópavogi. Eldhús
með borðkrók og glugga. Þvottahús. Þrjú
svefnherbergi. Fallegt baðherbergi með
glugga og baðkari. Vandaðar innréttingar.
Mikið skápapláss. Parket og flísar. Björt
stofa og suðursvalir. Verð 24,7 millj.
BOGAHLÍÐ - LAUS STRAX
Vorum að fá í einkasölu góða 4ra her-
bergja íbúð á 1. hæð í góðu fjölbýli. Stofa
með vestursvölum, þrjú svefnherbergi,
eldhús og baðherbergi. Hús nýl. yfirfarið
að utan og málað, gler og gluggar endur-
nýjaðir. Íbúðin er með nýjum gólfefnum og
er nýmáluð. LAUS STRAX. Verð 18,3 millj.
NÝBYGGINGAR
TRÖLLATEIGUR RAÐHÚS
Vorum að fá í sölu gott 5 herb. 192 fm rað-
hús með innibyggðum bílskúr í byggingu í
Mosfellsbæ. Húsið afhendist fullbúið að
utan, fokhelt að innan með gólfhita (án
stýrikerfis) og grófjafnaðri lóð. Allar nánari
upplýsingar á skrifstofu FÍ.