Morgunblaðið - 28.11.2005, Síða 36
36 F MÁNUDAGUR 28. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Foss fasteignasala, Hátúni 6a, sími 512 12 12, Fax 512 12 13, Netfang foss@foss.is
Bragi Björnsson
lögmaður og
löggiltur
fasteignasali
Úlfar Þ. Davíðsson
sölustjóri
Börkur Hrafnsson
lögmaður og
löggiltur
fasteignasali
HÁTÚN 6A
SÍMI
5 12 12 12
FAX
5 12 12 13
Netfang:
foss@foss.is
FASTEIGNASALA
MARÍUBAUGUR - FALLEG
Glæsileg 3ja herbergja eign á einum eftirsótt-
asta stað í Grafarholtinu. Íbúðin er 78,6 fm með
um 25 fm einkalóð. Íbúðin er sérlega vel skipu-
lögð, björt, opin og með vönduðum innrétting-
um. Allar innréttingar sérsmíðaðar. Samliggj-
andi stofa og eldhús. Gengið er út um eldhús í
stóran garð með nýjum leiktækjum. Þvottaher-
bergi með sérsmíðuðum skáp og hillum. Baðherbergi er flísalagt hólf í gólf með
baðkari. Rúmgóð flísalögð geymsla. Glæsilegt útsýni. Verð 18,9 milljónir
ÁLFKONUHVARF - 4RA HERBERGJA
Stórglæsileg 120 fm 4ra herbergja íbúð í fal-
legu fjölbýli með sérinngangi af svölum og
stæði í bílskýli. Stofa og borðstofa með
parketi á gólfi. Rúmgóðar svalir. Eldhúsið
með flísum á gólfi, vönduðum innréttingum
og eldhústækjum, háfur yfir eldavél. Stórt
og fallegt baðherbergi. Þrjú stór og björt
parketlögð svefnherbergi með skápum.
Þvottahús í íbúð. Verð 30,5 millj.
FAGRIHJALLI - KÓPAVOGUR
Vel skipulagt og bjart 228,3 fm parhús á þremur
hæðum á góðum stað í Kópavogi. Fjögur svefn-
herbergi eru í húsinu auk góðs fataherbergis.
Tvær stofur, borðstofa/sólstofa og fallegt opið
eldhús. Parket og flísar eru á gólfum. Tvö bað-
herbergi eru í íbúðinni. 46,3 fm viðarsólpallur
sem gengið er út á frá borðstofu. Góður 46,3 fm
bílskúr fylgir eigninni. Góð eign á eftirsóttum stað. Verð 44,9 milljónir.
SIGTÚN - RIS
Erum með góða 88,7 fm 5 herbergja risíbúð
á eftirsóttum stað við Sigtún í Reykjavík.
Íbúðin er nýstandsett að stórum hluta. Þrjú
svefnherbergi eru í íbúðinni, tvö með fata-
skápum. Eldhús með snyrtilegri eldhúsinn-
réttingu. Borðstofa með flísum á gólfi, falleg
tvöföld hurð með gleri skilur að borðstofu
og stofu. Baðherbergi er nýstandsett á afar
smekklegan hátt, flísar á gólfi og veggjum, fallegur flísalagður sturtuklefi, hand-
klæðaofn, smekkleg tæki. Sameiginlegt þvottahús er kjallara og sérgeymsla. Gott
útsýni er úr íbúðinni. Verð 19,9 milljónir.
FROSTAFOLD - GRAFARVOGI
Góð 3ja herbergja 95,6 fm íbúð ásamt stæði í
bílageymslu við Frostafold í Reykjavík. Forstofa
með skáp. Eldhús er opið, hvít snyrtileg innrétt-
ing. Stofa er stór og björt með parketi á gólfi.
Útgengt er á góðar svalir frá stofu. Baðherbergi
er stórt, tengi fyrir bæði þvottavél og þurrkara. Tvö svefnherbergi. Hús í góðu
ásigkomulagi. Verð 18,9 milljónir.
FUNALIND - ÚTSÝNI
Rúmgóð 3ja herbergja íbúð með góðu útsýni á
efstu hæð í fjögurra hæða fjölbýlishúsi á eftir-
sóttum stað við Funalind í Kópavogi. Parket er
á flestum gólfum nema baðherbergi og þvotta-
húsi. Hol með fataskáp. Tvö svefnherbergi með
góðu útsýni og fataskápum. Baðherbergi er flí-
salagt á veggjum og gólfi. Stofa og borðstofa í
alrými. Útgengt á góðar svalir frá stofu. Eldhús er rúmgott með góðum eldhús-
krók, falleg viðarinnrétting. Innaf eldhúsi er sér þvottahús. Lóð með leiktækjum.
Verð 21,5 millj.
SELJAVEGUR - RISÍBÚÐ
Opin og falleg 58,7 fm risíbúð á eftirsóttum
stað í gamla vesturbænum. Baðherbergi,
flísalagt hólf í gólf, baðkar. Stofa, borð-
stofa og eldhús í alrými. Eldhús með
snyrtilegri hvítri innréttingu. Rúmgott
svefnherbergi. Í kjallara er geymsla og
sameiginlegt þvottahús. Verð 15,2 milljónir
HEIÐARGERÐI - NÝUPPGERT
Nýuppgert einbýlishús á þremur hæðum á eft-
irsóttum stað í Reykjavík sem búið er að
standsetja á smekklegan hátt. Búið er að
endurnýja nánast allt í húsinu. Bílskúr byggð-
ur 1996 fylgir eigninni. Stofa og borðstofa með
fallegu gegnheilu parketi á gólfi, hægt er að
stækka stofu um ca 16 fm. Rúmgott eldhús. Rúmgott og fallegt baðherbergi. Á 2.
hæð er gott hol, 3 svefnherbergi og baðherbergi. Í kjallara er rúmgott herbergi
með sérinngangi og þvottahúsi. Góð eign sem er mikið endurnýjuð á eftirsóttum
stað í Reykjavík. Verð 43 milljónir.
VESTURVALLAGATA - FALLEG
Falleg og rúmgóð 65,4 fm 2ja herbergja íbúð á
4. hæð við Vesturvallagötu í Reykjavík. Íbúðin
er afar snyrtileg með nýlegum gólfefnum á eft-
irsóttum stað í Vesturbænum. Frábært útsýni.
Stórt eldhús. Björt stofa með útgengi á rúm-
góðar svalir sem snúa til suðurs. Svefnher-
bergi með fataskápum. Baðherbergið er rúm-
gott. Björt og rúmgóð eign með einstöku útsýni á afar eftirsóttum stað í vesturbæ
Reykjavíkur. Verð 15,6 milljónir.
SAFAMÝRI - EFRI SÉRHÆÐ
Björt og falleg mikið endurýjuð efri sérhæð
alls 163 fm, þar af bílskúr 26,2 fm á eftir-
sóttum stað í Reykjavík. Fjögur svefnher-
bergi. Stórar stofur. Rúmgott eldhús. Fal-
legt beyki-parket á gólfum. Tvö baðher-
bergi, bæði flísalögð hólf í gólf. Stórar
svalir. Hús í góðu ásigkomulagi. Verð 41
milljónir.
LÆKJASMÁRI - SÉRINNGANGUR
Falleg 127,1 fm, 4ra herbergja íbúð á jarðhæð
með sérinngangi á afar eftirsóttum stað við
Lækjasmára í Reykjavík. Íbúðinni fylgir stæði í
bílskýli. Flísalögð forstofa. Eldhús er rúmgott
með hvítri innréttingu. Stofa og borðstofa í al-
rými. Afgirtur hellulagður garður. Baðherbergi
flísalagt hólf í gólf. Þrjú svefnherbergi, öll með
fataskápum. Stæði í bílskýli fylgir eigninni. Stutt í alla þjónustu. Verð 33,9 milljónir.
FALLEG 4RA HERBERGJA ÍBÚÐ MEÐ SÉRINNGANGI Á EFTIRSÓTTUM STAÐ Í
KÓPAVOGI.
SÍÐUMÚLI - SKRIFSTOFUHÚSNÆÐI
Mjög gott 605,8 fm skrifstofuhúsnæði á 2. hæð
á góðum stað við Síðumúla í Reykjavík. Hús-
næðið er mjög vel viðhaldið, tilbúið fyrir hvers-
konar skrifstofustarfsemi. Tveir inngangar
þannig að mjög auðvelt er að skipta húsnæð-
inu í tvennt. Húsnæðið skiptist í skrifstofur, stóran fundarsal, gott eldhús/mötu-
neyti og góða móttöku. Næg bílastæði. Verð 65 milljónir.
VANTAR
VEGNA MIKILLAR SÖLU UPP Á SÍÐKASTIÐ VANTAR
OKKUR ALLAR GERÐIR EIGNA Á SKRÁ.
ENDILEGA HAFIÐ SAMBAND VIÐ
SÖLUMENN OKKAR Í S: 512-1212.
Það er engin furða þó mikið sé lagt íbaðherbergið, hvort sem er viðbyggingu húss eða við endurbygg-ingu baðherbergis. Við endurbygg-
ingu er eigendum oft ljósara hvernig þeir
vilja hafa þetta hjarta íbúðarinnar, smátt og
smátt hefur það síast inn hvernig skipulagið
á að vera, hvaða tæki hafa
reynst vel, hver miður.
Á undanförnum áratug-
um hefur baðker verið
sjálfsagt tæki á hverju
heimili, en jafnframt hafa
flestir viljað hafa sturtu,
það er ekki alltaf tími til
að leggjast í afslappandi
bað. Margir sameina
sturtuna baðkerinu en nú
virðist þróunin frekar í þá
áttina að fórna baðkerinu
og setja upp vænan sturtuklefa. Hins vegar
er ekki hægt að sleppa tækifærinu og gagn-
rýna hvernig málið er stundum afbakað þó
hér sé aðeins um eitt orð að ræða. Fyrir
nokkrum áratugum var ekki annað orð not-
að en baðker um þetta ágæta ílát sem við
böðum kroppinn upp úr. Á síðustu árum er
þetta orð að breytast, illu heilli. Nú auglýsa
menn stíft að þeir hafi til sölu baðkör og nú
getur hver og einn dæmt fyrir sig hvort
orðið ker eða kar hljómar betur. Eitt er
víst; engum dettur í hug að svo mikið sem
impra á að náttúruperla ein heiti Karið í
Grímsnesi. Á síðustu öld var orðið kar
vissulega til í mæltu máli, bæði til sveita og
sjávar. Í sveitum var búfénaði brynnt í kör-
um þegar skepnur náðu ekki til vatns í
frostum og til sjávar var fiskur vaskaður í
körum. En engum datt í hug að fara í bað í
kari heldur í keri.
Hversvegna að kasta út orðinu ker fyrir
kar? Svari þeir sem fyrir þessari málþróun
standa, en ekki er víst að þeir finni nein
rök. Þetta gerist yfirleitt þannig að einhver
álpast til að birta þetta á prenti og þá byrj-
ar eftiröpunin, allir jarma eins án nokk-
urrar hugsunar.
Nú fer bylgja sturtuklefanna eins og logi
yfir akur. Oft er það vegna þess að í garð-
inn eða á pallinn er kominn heitur pottur,
þá er að sjálfsögðu engin þörf fyrir baðker
en sturtan þarfaþing. Áður fyrr voru
sturtuklefar einföld smíði, þeirra hlutverk
var fyrst og fremst að halda vatninu, sem
um kroppinn flæddi, í skefjum. En síðan
þróast þeir, fara að verða „mubla“ og síðan
eykst tæknin og fjölbreytnin.
Nú er ein bylgjan að ríða yfir. Það eru að
spretta upp hvert fyrirtækið af öðru sem
falbjóða kínverska sturtuklefa með svo fjöl-
breyttum búnaði að annað eins hefur vart
sést hér á landi. Ekki er nóg að tengja
sturtuklefann við heitt og kalt vatn auk frá-
rennslis, nú verður að raftengja þá líka.
Þetta er nefnilega ekki aðeins sturta heldur
einnig gufubað. Hins vegar bregður svo við
að eitt mikilvægasta öryggistækið, hita-
stýrða blöndunartækið, er stundum horfið
og gamaldags handstýrt blöndunartæki
komið í staðinn.
Hér þarf margt að athuga.
Eru þessir sturtuklefar með þeim vott-
unum sem skylda er að séu með slíkum
tækjum, uppfylla þeir þær kvaðir sem eru á
allri vöru sem er til sölu á Evrópska efna-
hagssvæðinu? Nú nýlega kom í ljós þegar
pakkning um einn kínverskan sturtuklefa
var opnuð að honum fylgdi enginn leið-
arvísir né teikningar sem lýstu búnaði eða
sýndu hvernig ætti að setja klefann saman
og tengja búnaðinn, ekki einu sinni leið-
arvísir á kínversku.
Þetta er skýlaust brot á lögum og reglum
um viðskipti.
Talsvert er um það að eigendur setja
klefana upp sjálfir án þess að nokkur fag-
maður komi þar að.
Hvað um jarðtengingu?
Meira að segja venjulegan sturtubotn eða
baðker er skylda að jarðtengja til að koma í
veg fyrir slys af völdum raflosts. Ef engin
fyrirmæli eða leiðarvísir fylgja er eins víst
að húseigandinn geri sér enga grein fyrir
þessu atriði. Og svo er það gufan, hvað
verður um hana, ef hún er ekki ræst út og
kemst um baðherbergið og jafnvel víðar
getur hún valdið miklum skemmdum.
Það er vissulega búbót að geta keypt fjöl-
hæfa vöru á lágu verði ef gæði eru við-
unandi og engin ástæða til að amast við
vöru þó hún sé kínversk. En annað er ekki
minna virði; að geta gengið að þjónustu
seljandans um ókomin ár. Svo flókið tæki
sem raftengdur sturtuklefi, sem jafnframt
er gufubað, er viðkvæmt tæki sem að öllum
líkindum þarf ýmiskonar þjónustu með
varahluti síðar meir. Ef skipt er við rótgró-
in fyrirtæki, sem flest hafa starfað í ára-
tugi, er nokkuð öruggt að þjónustu muni
ekki bresta síðar meir. En það er einnig
hollt að hafa það í huga að í gegnum tíðina
hafa sprottið upp fyrirtæki sem hafa selt
ákveðna vöru í nokkurn tíma en eru svo
horfin af yfirborði jarðar þegar þjónust-
unnar er þörf.
Það er að mörgu að hyggja þegar kaupa
skal tæki sem nota skal í ár eða áratugi.
Sturtuklefar, ker og kör
Sturtuklefi frá framleiðanda og innflytjanda
sem báðir hafa starfað í ártugi við góðan orðstír.
Sigurður Grétar
Guðmundsson
Lagnafréttir
eftir Sigurð Grétar Guðmundsson
pípulagningameistara/
sigg@simnet.is