Morgunblaðið - 28.11.2005, Side 50
Oddur Sigurðsson málaði alla íbúðina sjálfur og
gerði hana að öðru leyti klára.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Guðbjörg Brá Gísladóttir og Oddur Sigurðsson máluðu einn vegg í heitum gráum lit en annars völdu
þau hvítan lit á veggi og loft.
„VIÐ vildum hafa tvo liti og völdum heitan
gráan lit með hvíta litnum,“ segir Oddur
Sigurðsson um litaval fjölskyldunnar í nýj-
um húsakynnum.
Guðbjörg Brá Gísladóttir og Oddur Sig-
urðsson festu nýlega kaup á íbúð í fjöl-
býlishúsi við Næfurás efst í Árbænum.
„Þar sem við höfum fengið úthlutað lóð
undir einbýlishús í Kópavogi er aðeins um
bráðabirgðahúsnæði að ræða,“ segir Odd-
ur. „Við könnuðum leigumarkaðinn og
komumst fljótlega að því að ódýrara var
að kaupa en leigja,“ bætir hann við.
Að undanförnu hefur Oddur nýtt frítíma
sinn til þess að mála, flísaleggja, leggja
parket og færa til eldhúsinnréttingu. „Það
er ágætt að dunda í þessu einn,“ segir
hann og bætir við að þar sem íbúðin sé
ekki stór sé ekki um svo mikla vinnu að
ræða. „Vegna þess hvað íbúðin er lítil
völdum við að mála hana að mestu hvíta.
Hvíti liturinn stækkar eignina og svo kem-
ur aukin hlýja með þessu heita grá lit,“
segir Oddur.
Aukin hlýja
með gráa
litnum
50 F MÁNUDAGUR 28. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
S
umir eru alltaf að taka til.
Aðrir taka til hendi eftir
árstíðum. Kristján Sig-
urðsson, sölustjóri hjá
Málningu ehf., segir að sala á máln-
ingu taki alltaf ákveðinn kipp í að-
draganda jóla og sem fyrr sé hvítur
litur ríkjandi.
Valið er einfalt
„Í stað þess að skrúbba og skúra
er bara málað því það er miklu
þægilegra,“ segir Kristján og bætir
við að nóvember og desember fram
að jólum sé vinsæll tími til þess að
mála innanhúss. „Liturinn 0500,
sem er nánast alveg hvítur en ekki
snjóhvítur, er á toppnum í augna-
blikinu en marmarahvítt og mál-
arahvítt njóta líka mikilla vin-
sælda,“ segir hann.
Kristján segir að hvítur litur hafi
alltaf fallið í kramið. Helsta skýr-
ingin sé sennilega sú að fólk vilji
hafa birtu hjá sér. Hins vegar vilji
fólk líka hafa aðra liti og valið sé
mismunandi á hverjum tíma.
„Stundum vill fólk hafa einn vegg í
stofu eða herbergi dökkan og á
öðrum tímum er allt málað í sama
lit,“ segir hann og bætir við að í ný-
byggingum sé algengast að allt sé í
sama lit. Þegar eigendur máli sjálf-
ir sé áberandi að loft séu máluð
snjóhvít í mattri málningu en vegg-
ir í öðrum hvítum lit og einn og
einn veggur í öðrum lit. „Núna eru
jarðlitir, til dæmis grábrúnir, mjög
vinsælir, en pastellitir, sem voru
vinsælir fyrir nokkrum árum, eru
ekki í gangi um þessar mundir,“
segir hann.
Litaflóran að dekkjast
Kolbeinn Sigurjónsson, sölustjóri
hjá Slippfélaginu í Reykjavík hf.,
segir að nú séu ljósir og dökkir litir
„inni“ en áfram sé fyrst og fremst
málað í ljósum litum í nýbygging-
um. „Litaflóran er aðeins að dekkj-
ast og fólk vill fleiri liti,“ segir
hann. „Þetta virðist alltaf fara í
hringi og það er greinilegt að við
erum að fara inn í tímabil fleiri lita.
Hvíti liturinn er áfram sterkur en
hann er ekki alls ráðandi. Drapp-
aðir litir, brúnir litir og gráir litir
eru algengir en ekki skærir litir.“
Að sögn Kolbeins er alltaf eft-
irspurn eftir ákveðnum litum.
Hann nefnir sérstaklega marmara-
hvítan lit, apótekaragráan lit og
Kiddahvítan lit. Helsti tíminn til að
mála sé frá mars og fram í sept-
ember og hann merki minni
áherslu á að mála fyrir jól en áður.
Hins vegar sé töluvert mikið að
gera nú á þessum árstíma og ekki
síst vegna mikilla hræringa á fast-
eignamarkaðnum. „Fólk er mikið
að skipta um íbúðir og það er alltaf
málað áður en flutt er inn. Miklir
flutningar eru helsti drifkrafturinn
eins og er.“
Málning frekar en sápa
Vigfús Gíslason, sölustjóri hjá
Flûgger, sem áður hét Harpa
Sjöfn, segir að ljósir litir eins og
beinhvítt og hrímhvítt, hafi áfram
vinninginn innanhúss en mikið selj-
ist einnig af ýmsum öðrum litum,
einkum gráleitum og dröppuðum
litum. „Þó ljóst sé aðalsmerkið
skreytir fólk aðeins hjá sér með
öðrum litum, segir hann.
Að sögn Vigfúsar er algengt að
íbúðareigendur velji einn lit á veggi
og loft en eins sé áberandi að loft
séu höfð hvít og veggir beinhvítir
eða hrímhvítir, ekki síst í nýbygg-
ingum. Aðrir litir séu meira áber-
andi í endurmálningu. „Þá er fólk
meira í bílstjórasætinu en nýbygg-
ingar eru oftast afhentar fullbúnar
og þá er málningarþátturinn oft
einfaldur hvað liti varðar.“
Vigfús segir að góð sala á máln-
ingu fari alltaf saman með mikilli
hreyfingu á fasteignamarkaðnum.
Árstíðin hafi líka sitt að segja.
„Stórhreingerningar á heimilum
fyrir jól eins og viðgengust á árum
áður eru liðin tíð,“ segir hann. „Áð-
ur var gert ráð fyrir að málningin
entist í 10 til 20 ár en nú þarf yf-
irleitt að endurmála á fimm til átta
ára fresti. Áður kom stórfjölskyld-
an saman til að skrúbba hátt og
lágt fyrir jólin en nú er málað.“
Hvítur litur
ríkjandi sem fyrr
Það að mála er gjarnan liður í jólahreingerningu landsmanna. Steinþór Guðbjarts-
son kynnti sér stöðu mála í litadýrðinni og fékk að heyra að víða verða hvít jól.
Morgunblaðið/Golli
Málningarframleiðsla hjá Málningu í Kópavogi.
Algengustu litir eru til á lager og kaupendur fá yfirleitt þá liti sem þeir vilja.
Litir eru blandaðir að óskum kaupenda. Ný málning sett í þar til gerðar málningarfötur.
steinthor@mbl.is