Morgunblaðið - 28.11.2005, Blaðsíða 52
52 F MÁNUDAGUR 28. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Opið mán.-fim.
frá kl. 9-12
og 13-17.30,
fös. frá kl. 9-12
og 13-17
SÝNISHORN ÚR SÖLUSKRÁ
Sölumenn FM aðstoða
Sjá mikinn fjölda eigna og mynda
á fmeignir.is og mbl.is
Einbýli
Brekkuhvarf - Kópavogi
Erum með í sölu eldra einbýlishús sem
stendur á 2.344 fm lóð á þessum frábæra
stað í grennd við Elliðavatn. Eign sem býð-
ur upp á mikla möguleika. Tilboða er ósk-
að í eignina. Nánari upplýsingar á skrif-
stofu Fm, sími 550-3000 eða fmeignir.is
7820
Kópavogsbraut - Kópavogi
Erum með í sölu töluvert endurnýjað ein-
býlishús, ásamt stórum bílskúr, á þessum
vinsæla stað í vesturbæ Kópavogs. Húsið
stendur á 1.435 fm lóð. Afar rólegt um-
hverfi og má nánast segja að um sé að
ræða sveit í borg. Eign sem vert er að
skoða. Nánari uppl á skrifstofu Fm, sími
550-3000. 70761
Hæðir
Öldugata - Hafnarfirði
Erum með í einkasölu hæð og ris í eldra
húsi, byggðu 1932, við Öldugötu. Hluti
íbúðarinnar hefur verið endurnýjaður. Gólf-
efni upprunalegar gólffjalir. Áhugaverð
eign á góðum stað. Tilboða er óskað í
eignina. Nánari upplýsingar á skriftstofu
FM, sími 550-3000.
4ra herbergja
Engihjalli - Kópavogi
Erum með í einkasölu 4ra herb íbúð á 5.
hæð með stórkostlegu útsýni til austurs og
suðurs. Stutt í alla þjónustu. Gólfefni nýtt
parket. Íbúðin er öll ný máluð. Snyrtileg
sameign. Sameiginlegt þvotthús á hæð.
30861
3ja herb.
Hlynsalir - Kópavogi
Erum með í sölu fallega 3ja herb. íbúð á
fyrstu hæð, ásamt stæði í lokaðri bíla-
geymslu. Gólfefni parket. Þvottahús í íbúð.
Stór ca 30 fm afgirt hellulögð suðurver-
önd. Snyrtileg sameign. Örstutt í Salaskóla
og sundlaug og aðra þjónustu. Nánari
upplýs. á skrifstofu Fm, sími 550-3000.
Verð 25,9 millj. 21168
Torfufell - Breiðholti
Erum með í einkasölu þriggja herb. íbúð á
efstu hæð í snyrtilegu húsi við Torfufell.
Hluti innbús getur fylgt með í kaupum.
Nánari upplýsingar á skrifstofu Fm, sími
550-3000. Verð: 13,7millj
Hverfisgata
Erum með í einkasölu 71fm fallega íbúð á
fyrstu hæð í litlu fjölbýli við Hverfisgötu.
Gólfefni parket. Nýir gluggar og gler í íbúð-
inni. Skipt hefur verið um þak á húsinu. Ný
rafmagnstafla. Eign sem vert er að skoða.
Nánari uppl á skrifstofu FM sími 550-3000
Verð: 14,9millj. 21162
2ja herb.
Garðhús - Grafarvogur
Erum með í sölu snyrtilega 2ja herb íbúð á
annari hæð(miðhæð), auk bískúrs. Þvotta-
hús í íbúð. Gólfefni parket. Rúmgóðar suð-
ur svalir.Snyrtilleg sameign. Stutt í skóla
og þjónustu. Nánari uppl á skrifstofu FM
sími 550-3000. Verð 18,3millj. 1847
Sími 550 3000
fmeignir@fmeignir.is
www.fmeignir
FJÁRFESTAR BYGGINGAVERKTAKAR
Til sölu nokkrar einbýlis- og raðhúsalóðir í Kópavogi og Mosfellsbæ.
Hjá Fasteignamiðstöðinni er einnig til sölumeðferðar umtalsvert af væntan-
legu byggingalandi í Reykjavík og nágrenni. Nánari upplýsingar á skrifstofu
Fasteignamiðstöðvarinnar, sími 550-3000.
LANGÞRÁÐUR draumur Kópa-
vogsbúa er senn að rætast á næstu
vikum þegar síðustu steypueiningun-
um verður komið fyrir ofan á gjánni
og bæjarhlutarnir sameinast á ný eft-
ir áralanga skiptingu frá því að Hafn-
arfjarðarvegurinn var grafinn í gegn-
um hálsinn. Mörgum þóttu þessar
hugmyndir ævintýralegar á sínum
tíma en þegar gerður var samningur
við verktakafyrirtækið Ris ehf. um
fyrsta áfanga verksins og Gunnar
Birgisson bæjarstjóri sem þá var for-
maður bæjarráðs, tók fyrstu skóflu-
stunguna á eystri bakka gjárinnar
var öllum ljóst að ráðamönnum í
Kópavogi var alvara með þessa fram-
kvæmd.
Árið 1998 hrinti meirihluti bæjar-
stjórnar af stað verðlaunasamkeppni
um tillögur að yfirbyggingu á gjánni.
Tillaga Benjamíns Magnússonar
arkitekts, sem hann og Auður
Sveinsdóttir landslagsarkitekt sendu
inn ásamt ráðgjöf verkfræðistofunn-
ar Hamraborg, vann fyrstu verðlaun.
Í framhaldinu var húsið Hamraborg
8 hannað með tilheyrandi undirstöð-
um sem byggðar voru á sömu tækni-
legu útfærslunum og brúarsmíði að
viðbættum veltiáhrifum sem tveggja
hæða hús ofan á gæti skapað.
„Upphaflega varð að leysa marg-
vísleg flókin vandamál sem við
blöstu. Húsið var hannað samhverft,
symmetrískt, en vegna veltiáhrif-
anna var það rökrétt form í slíku brú-
armannvirki svo kraftarnir virki alls
staðar eins í mannvirkinu,“ sagði
Benjamín Magnússon arkitekt, í
samtali við Morgunblaðið og bætti
við að nú ári seinna eftir að húsið var
tekið í notkun hefði ekkert komið á
óvart. Byggingar- og kostnaðaráætl-
anir hefðu gengið eftir eins og lagt
var af stað með og tæknilega séð væri
ekkert til að hrella þá sem að verk-
efninu stæðu.
Landsbankinn opnaði útibú í hús-
inu í byrjun ársins og er nú að stækka
við sig. Heilsugæslan í Fannborg
flytur í efri hæð hússins í næsta mán-
uði og senn verður opnað þar apótek
á vegum Lyfja og heilsu. Í framhald-
inu var ákveðið að láta ekki staðar
numið heldur klára að loka gjánni yf-
ir að Digranesvegi.
Húsið sem þar kemur verður álíka
stórt og það fyrra, tæpir 2000 ferm.
og er hönnun lokið í meginatriðum.
Það verður tilbúið að utan í vor en í
því eru fyrirhugaðar verslanir og
skrifstofur. Húsið verður gjörólíkt að
formi til en úr stáli og gleri eins og
það fyrra. Vestari endinn verður
spísslaga en hinn endinn byggist ut-
an í steyptan gafl á eystri bakkanum
þar sem biðskýli Strætó stóð áður.
Efri hæðin fer síðan alla leið yfir
sneiðinginn sem liggur niður á Hafn-
arfjarðarveginn auk þess sem stræt-
isvagnaakreinin fer þar einnig undir.
Myndarleg göngubrú liggur síðan frá
Fannborginni yfir á torgið með teng-
ingu við efri hæð hússins.
Benjamín segir að torgið, sem
verður útivistarsvæði og útitónleika-
svæði með hljómsveitarpalli, verði
hellulagt með snjóbræðslukerfi og
ýmsum leiðslum sem þarf vegna
húsanna og tenginga við umhverfið.
Áætlað er að ljúka verkinu í lok
næsta árs.
„Ljóst er af því sem nú er komið að
mannvirkið verður hið glæsilegasta
bæði undir og yfir, og fer vel á því á
þessari Akrópólishæð Íslands,“ segir
Benjamín og bætir við að mikil breyt-
ing hafi orðið á hans vinnustað sem
snýr út að gjánni. „Umferðarniður-
inn er þagnaður,“ segir hann.
Benjamín Magnússon arkitekt segir engin tæknivandamál hafa komið upp
Kópavogsgjáin endanlega að lokast
Eftir Kristin Benediktsson
Unnið er dag og nótt við að brúa
Kópavogsgjá.
Morgunblaðið/Kristinn Benediktsson
Unnið hefur verið við Kópavogsgjá undanfarin ár og lokast hún brátt. Húsið kemur ofan í opna kaflann.
Nýja húsið við Digranesveg brúar Hafnarfjarðarveg og nær yfir á austurbakk-
ann við Fannborg. Húsið verður tæplega 2.000 fermetrar.