Morgunblaðið - 18.12.2005, Side 28
Gullveski, 2.995 kr. Skór.is,
Smáralindinni og Kringlunni.
Gylltir skór, 8.990 kr.
Ozio, Smáralindinni
og Laugaveginum.
Madonna með nýja hárgreiðslu þar sem bylgjurnar
sveigjast mjúklega frá andlitinu.
R
eu
te
rs
Silfurjakki og stígvél Madonnu
skína skært og gallabuxurnar
settar ofan í stígvélin.
Naglalakk, 294 kr.
Lyf og heilsa.
Gulltaska, 6.990 kr. Ozio.
Madonna, geisladiskur,
1.999 kr. Skífan.
Diskókúla, 960 kr.
Íhlutir, Skipholti 7,
Reykjavík.
Glimmertoppur, 6.990 kr., Oasis,
Smáralindinni og Kringlunni.
Svartur bolur, 3.590 kr. Oasis.
Svartar gallabuxur „Acne Jeans“,
13.990 kr. Retro, Smáralindinni og
Kringlunni.
Belti, 2.995 kr. Skór.is.
Freyðivín, 1.090 kr.
þrjár litlar flöskur
saman í pakka, ÁTVR.
Glimmer í hárið,
975 kr. Lush,
Kringlunni og
Laugaveginum.
TÍSKA | HARPA GRÍMSDÓTTIR OG SIGURBJÖRG ARNARSDÓTTIR
Lj
ós
m
yn
di
r:
Ár
ni
S
æ
be
rg
MADONNA GEFUR
DISKÓTÓNINN
Gull, brons, silfur og glitrandi pallíettur: allt hlutir sem minnaóneitanlega á tísku og tónlist sjöunda og áttunda áratugarinsþegar diskóið var sem heitast. Margir hafa reynt að endurvekja
þetta skemmtilega og litskrúðuga tímabil og hin svokölluðu eighties-
partí en með mismunandi árangri. Nú er það poppdrottningin Madonna
sem blásið hefur nýju lífi í diskóið með útgáfu á nýjasta diskinum sínum
„Confessions on a Dance Floor“. En það er ekki bara taktur sjöunda ára-
tugarins sem hefur heillað hana heldur tískan líka.
Pallíettutoppar og niðurþröngar buxur eru aðalmálið. Gyllt belti og
veski, ásamt flottum háhæluðum gullskóm eða stígvélum utan yfir bux-
urnar og þau auðvitað með mjög háum hælum. Hárgreiðslan er fersk
með stórum bylgjulokkum sem sveigjast frá andlitinu. Til að ná
Madonnu-„lookinu“ segir Solla á Hárhönnun að best sé að blása hárið
með rúllubursta til að ná lofti og fyllingu í það. Slétta það svo með
keramiksléttujárni og að lokum rúlla upp hárið með sléttujárninu sjálfu
út frá andlitinu eins og maður væri með krullujárn, þannig verða krull-
urnar grófar og fallegar. Til þess að ná diskóáhrifunum í förðuninni er
nauðsynlegt að vera með gerviaugnhár og glimmersteina auk þess að
nota glitrandi gloss á varirnar og naglalakk sem stirnir á. Svo er bara að
setja diskókúluna í loftið, taka sér litla kampavínsflösku með röri í hönd,
diskinn á fóninn og skella sér á dansgólfið. | harpa@mbl.is, sibba@mbl.is