Morgunblaðið - 18.12.2005, Page 30
Vinur okkar allra og félagi, Wolfgang Amadeus Mozart, yrði 250 ára nú í jan-úar – ef svo ósennilega vildi til að hann lifði enn. Þessi heimskunni snill-ingur, Austurríkismaður, kvennabósi og vinnuþjarkur liggur hins vegar
stilltur í St. Marx kirkjugarði í Vínarborg, þótt ekki sé vitað nákvæmlega hvar, og
hefur gert frá því hann lést í byrjun desember 1791, tæpra 36 ára að aldri.
En Mozart er samt með okkur og það í giska fjölbreytilegum myndum. Tónlist
hans ómar daglega í aðskiljanlegustu kimum veraldarinn-
ar, flutt af sinfóníuhljómsveitum, leikin af hikandi börn-
um, spiluð í útvarpi, afbökuð í hringitónum farsíma og þar
fram eftir götum. Þá er nafn mannsins víða orðið að vöru-
merki og nægir þar að nefna súkkulaðihjúpað marsipan
sem kemur tónsmíðum lítið við en selst eins og heitar
lummur undir heitinu Mozart-kúlur. Lítum á fleiri dæmi:
Mozart, The Music Processor er hugbúnaður til nótna-
ritunar á tölvur frá Microsoft. Hægt er að slá inn nótur,
eins auðveldlega og bókstafi, hlusta svo á laglínurnar,
lagfæra og prenta út nótnablöð fyrir hvern hljóðfæra-
leikara. Vörumerkið er skrásett og Mozart-hugbún-
aðurinn er þróaður og afgreiddur frá Bretlandi.
W.A.Mozart-flugvöllurinn í Salzburg í Austurríki. Á
síðasta ári fóru rúmar 1,4 milljónir farþega um völlinn
og eykst umferð um hann frá ári til árs. Tónskáldið
Mozart fæddist í Salzburg og eru borgarbúar, líkt og
landsmenn allir, afar stoltir af landa sínum. Og þó.
Þegar Arnold Schwartzenegger var kjörinn ríkisstjóri í
Kaliforníu í hitteðfyrra var ferðamálafulltrúi í hans
fæðingarsveit ekki lengi að lýsa því yfir að „Mozart
væri ekki lengur frægasti sonur landsins“.
Mozart Café stendur við 154 West 70th Street í New
York, skammt frá Broadway, og sérhæfir sig í „evrópsku andrúmslofti“ og bakk-
elsi. Þar hefur nýlega verið ráðinn nýr kokkur.
Mostly Mozart Festival hefur verið haldin í 39 sumur í New York, á vegum Lin-
coln Center of the Performing Arts. Þar er flutt tónlist eftir Beethoven, Schu-
bert, Haydn – og Mozart vitanlega, oftar en ekki af
vonarstjörnum framtíðarinnar og gjarnan með
dansívafi, gjörningum og í ferskum flutn-
ingi.
The Mozart Effect, eða Mozart-áhrif-
in, er hugtak sem notað hefur verið
til þess að lýsa ummyndandi afli tón-
listar á heilsufar, líðan og námshæfi-
leika fólks. Ef marka má upplýsinga-
setrið The Mozart Effect Resource
Center, hóf dr. Alfred Tomatis skipu-
lagðar tilraunir á heyrnarörvun barna
með talmein og samskiptaraskanir í
kringum 1950, og síðan hafa margir not-
að tónlist, sér í lagi fiðlukonserta og sinfóníur
Mozarts, til þess að hjálpa börnum sem
stríða við stam og lesblindu. Gefnir hafa
verið út geisladiskar til heyrnarörvunar, slökunar og svo framvegis, hver og einn
með sérvalinni tónlist. Þá fara í Englandi fram rannsóknir á áhrifum Mozart-
tónlistar á flogaveiki. Þeir sem unnið hafa með Mozart-áhrifin hafa ritað fræði-
greinar um músíkmeðferð gegn geðrænum og líkamlegum kvillum, hvernig tón-
list bætir heilsufar einstaklinga og hópa, um almenna notkun tónlistar til að
þjálfa minni og vitund, og hvernig tónlist eflir myndræna hugsun, virkjar sköpun
og vinnur gegn depurð og kvíða.
Hotel Mozart stendur við Rue Marché aux Fromages
númer 23 í Brussel, höfuðborg Belgíu, og er þriggja
stjörnu. Málverk af Wolfgang Amadeus Mozart hang-
ir í móttöku hótelsins og þegar vefsíðan er opnuð
hljómar Tyrkneskt rondó, eftir sama, í heyrnartól-
unum. Herbergin eru flest hver í barokk-stíl og Moz-
artkúluvínrauðar ábreiður á rúmum.
The Mozart Programming System er forritunarkerfi
sem verið hefur í þróun í áratug og notast við svo-
nefnt Oz-forritunarmál. Vinna við verkefnið hófst í
Saarlands-háskólanum í Þýskalandi, en er nú í hönd-
um þverþjóðlegs teymis sjálfboðaliða. Notendur
Mozarts mynda heilt netsamfélag, en sérstök Mozart-
stjórn ber ábyrgð á þróun forritunarkerfisins. Notkun
þess er öllum gjaldfrjáls.
Hann Tumi fer á fætur er lag eftir Mozart – þetta vill
gleymast. Einnig má nefna jólasálminn góðkunna Í
dag er glatt í döprum hjörtum. Mozart er í röð margra
langafa íslenskrar menningararfleifðar.
Á Akranesi er starfandi Hárgreiðslustofan Mozart.
Og nei, þar er 18. aldar hárkollutíska ekki í hávegum
höfð, þar má fá alla venjulega og hæstmóðins þjón-
ustu, klippingar, litun, hárlengingu og svo framvegis.
Mozart-kúlurnar margfrægu eru framleiddar í nokkrum tilbrigðum, m.a. af
þýska sælgætisfyrirtækinu Reber. Þar samanstanda þær af pistasíumarsipani úr
ferskum, grænum pistasíum, möndlum og heslihnetinúggati, hjúpuðu súkku-
laði. Milljónir Mozart-kúlna eru fluttar árlega út frá þorpinu Bad Reichenhall í
Bæjaralandi, heimabæ Reber, enda eftirspurnin sívaxandi á heimsvísu. Áfast
höfuðstöðvum Reber er starfrækt fallegt kaffihús sem skiptist í nokkra sali. Í
hlutanum sem heitir Terrace-Café er að finna gullslegið píanó, sem píanistar
hússins brúka, og yfir því hangir hið fræga Mozart-málverk sem prýðir Reber-
kúlurnar í rauða bréfinu. The Genuine Reber Mozart Kugeln® er skrásett vöru-
merki. Varist eftirlíkingar.
Í janúar hefst námskeið Endurmenntunarstofnunar í samstarfi við Sinfóníu-
hljómsveit Íslands um feril Mozarts og áhrif hans á tónlistarsöguna, í tilefni þess
að 250 ár verða þá liðin frá fæðingu hans. Fjallað verður um nokkur af hans
helstu tónverkum, í forgrunni verða Júpíter-sinfónían, Sálumessan, og óperurn-
ar Don Giovanni og Mildi Títusar (La clemenza di Tito), sem Sinfóníuhljóm-
sveit Íslands flytur í fyrsta sinn á Íslandi í lok janúar. Sjálfur stjórnaði Mozart
frumflutningi verksins réttum þremur mánuðum fyrir andlát sitt. Úr röðum Sin-
fóníuhljómsveitar Íslands mæta valdir hljóðfæraleikarar og leika úr verkum
meistarans fyrir nemendur, en umsjón með námskeiðinu hefur Árni Heimir Ing-
ólfsson, tónlistarfræðingur. Sjá nánar www.endurmenntun.is. | sith@mbl.is
… OG HÁRGREIÐSLUSTOFA Á SKAGANUM
Wolfgang Amadeus Mozart hefur verið á meðal vor í 250 ár
R
eu
te
rs
L
jó
sm
yn
d:
Á
rn
i S
æ
be
rg
ÁHRIFAVALDUR | SIGURBJÖRG ÞRASTARDÓTTIR
Wolfgang Amadeus
Mozart (1756–1791).
Leikarar, allir í gervi
Mozarts, svífa um sviðið
á æfingu fyrir Mozart-
óperuna Mitridate, Re di
Ponto, sem flutt var í
Salzburg í sumar í leik-
stjórn Günters Krämers.
Eftirspurn eftir Mozart-kúlum
er sívaxandi á heimsvísu.