Morgunblaðið - 18.12.2005, Side 35
Það varð þó úr að eftir stúd-
entspróf fór Tinna til Bret-
lands í opið fornám fyrir
myndlist og hönnun í Bright-
on Polytechniháskólanum.
„Þetta átti að vera hvíld eftir
stúdentsprófið en virkaði eig-
inlega þveröfugt því að áhugi
minn kviknaði um leið. Ég
held ég hafi aldrei unnið meira
en einmitt þetta ár.“
Í framhaldinu hóf hún nám
í þrívíðri hönnun með áherslu
á málma og útskrifaðist með
BA-gráðu árið 1992 frá West
Surrey College of Art and De-
sign. Árið 1997 lauk hún síðan
MA-gráðu frá Domus Aca-
demy í Mílanó.
Tinna segir að það hafi alltaf
staðið til að koma heim til Ís-
lands að BA-náminu loknu.
„En það var erfitt að koma heim. Bæði að koma á svona afskekkta eyju og svo fannst
mér ég sjálf vera eins og afskekkt eyja á eyjunni. Ég gat ekki talað við neinn um það
sem tengdist faginu því að vinir mínir þekktu ekki þann heim.“
Hún lét þó ekki hugfallast og tæpu ári eftir heimkomuna stofnaði hún Gallerí
Greip sem hún rak til ársloka 1996. Galleríið nýtti Tinna einnig sem vinnustofu en
hún segir að það hafi verið skemmtilegur suðupottur, þar hafi orðið til grasrót-
arhreyfing ungs fólks sem var að stíga sín fyrstu skref á vettvangi listanna, flestir í
myndlist.
Á þessum þremur árum sýndu meira en 100 manns í galleríinu en sjálf hélt Tinna
þar tvær einkasýningar, annars vegar á barmnælum og hins vegar á húsgögnum sem
hún vann út frá íslensku bárujárnshefðinni.
Gallerí Greip leiddi af sér ýmis skemmtileg verkefni. Upp úr barmnælusýning-
unni kviknaði hugmynd um örgalleríið Barm sem starfrækt var árin 1996–1998.
„Listamenn gerðu verk inn í barmnælu sem var lítill gúmmírammi,“ segir Tinna.
„Síðan báðu þeir einhvern að bera verkið í mánuð, þannig að sýningin stóð yfir í
mánuð.“
Hún bætir því við að þetta hafi verið skemmtileg útvíkkun á litla galleríinu henn-
ar því sumir þátttakenda hafi fengið fólk í útlöndum til að fara með næluna sína inn
í fræga sýningarsali, t.d. Guggenheimlistasafnið í New York. Því hafi þeir myndlist-
armenn strangt til tekið sýnt á þessum stöðum.
Tinna segir að sér finnist einmitt þetta gráa svæði á milli hönnunar og myndlistar
spennandi. „Myndlist sem tengist hönnun að einhverju leyti höfðar mjög til mín og
eins finnst mér hönnun sem fer inn á myndlistarsviðið bæði örvandi og áhugaverð.“
Hún hefur unnið töluvert við innanhússhönnun fyrir fyrirtæki og skrifstofur síð-
ustu ár, en segir slíkt ekki gefa mikið rými fyrir persónulega nálgun. „Það er kannski
þess vegna sem mér finnst algjört lykilatriði að vera frjáls í hugsun þegar ég er að
vinna mín eigin verk, þau eru mín ástríða. Það væri ekki fyrr en að hluturinn færi í
framleiðslu sem ég þyrfti að fara að hugsa um að gera hann framleiðsluvænni.“
Sækir innblástur í náttúruna | Tinna kveðst stundum einfaldlega vera drifin áfram af
löngun til að skapa eitthvað fallegt. „Stundum er ég bara að vinna með falleg form,
svolítið á sömu forsendum og kona fyrir hundrað árum sem var að hekla dúk,“ segir
hún en bætir við að fegurðarskynið sé þó auðvitað síbreytilegt og hún sé sömuleiðis
Kollar með geymslu-
plássi, fyrirmyndin
er eldhúskollar
hjá ömmu í Vík.
FLOTTAR JÓLAGJAFIR
Útsölustaðir eru: Lyfja, Hagkaup Smáralind, Lyfjaval Mjódd og Hæðarsmára, Fjarðarkaup, Heilsuhornið Akureyri,
Apótekið, Gripið & greitt, Spar, Apótekið Vestmannaeyjum, verslunin Hrund Ólafsvík og femin.is.
Allison jólapakkar fyrir dömur
Grape/Kiwi og
Mango/Papaya ávaxtailmur
Húðkrem 200ml
Sturtugel 250m
- frábært verð!
Allison snyrtitaska fyrir herra
Rakakrem 75ml
Sturtugel 150ml
Svitalyktareyðir 75ml
Frískandi ilmur
- frábært verð!