Fréttablaðið - 19.09.2002, Blaðsíða 13
13FIMMTUDAGUR 19. september 2002
Eitthvað nýtt
í hverri viku
Lagerútsala
Fjölbreytt úrval
leikfanga.
Ódýrar
brauðristar
og kaffivélar.
Veiðivörur,
verkfærakassar
o.fl.
Veiðafæri
Opið
Mánud.-fimmtud.
kl. 10-12 og 13-17
Föstudaga
kl. 10-12 og 13-16
11
36
/
T
A
K
T
ÍK
Verð áður: 1.745 kr.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
H
U
S
18
79
0
0
9/
20
02
Loftljós Miramar, hvítt.
995 kr.
Vinnukastari, 500 w.
789 kr. Vinnukastari á fæti, 500 w.
3.794 kr.
40 og 60 w.
Ljósaperur.
460 kr.
10
saman
í pakka
Ljósadagar
15-50% afsláttur
Útiljós Classica úr áli.
Verð áður: 6.795 kr.
4.345 kr.
NEW YORK, AP Körfuboltakappinn
Patrick Ewing hefur ákveðið að
leggja skóna á hilluna eftir 17 ára
farsælan feril í NBA deildinni.
Ewing, sem kosinn var einn af 50
bestu leikmönnum deildarinnar
frá upphafi, gerði garðinn frægan
hjá New York Knicks þar sem
hann spilaði í 15 ár. Með liðinu
skoraði hann að meðaltali 22,8 stig
og tók 10,4 fráköst í leik. Fyrir
tveimur árum skipti Ewing yfir í
Seattle og fór síðan fyrir síðasta
tímabil til Orlando Magic, þar
sem hann endaði feril sinn.
Hinn 40 ára gamli miðherji
skoraði 34.815 stig á ferli sínum
og tók 11. 606 fráköst. „Það var
kominn tími fyrir breytingar,“
sagði Ewing á blaðamannafundi
er hann tilkynnti ákvörðun sína.
„Þetta var frábær ferð. Ég er von-
svikinn yfir því að hafa ekki unn-
ið meistaratitil á meðan á ferðinni
stóð, en ég er samt rólegur yfir
því.“
Ewing hefur verið ráðinn sem
aðstoðarþjálfari hjá Washington
Wizardz þar sem hann mun hitta
fyrir þann mann sem helst stóð í
vegi fyrir því að hann ynni NBA-
titilinn; Michael Jordan. Jordan
var í sexföldu meistaraliði
Chicago Bulls sem sló Knicks
fjórum sinnum út úr úrslita-
keppninni.
Patrick Ewing lagði skóna á hilluna:
17 ára ferill í NBA að baki
EWING
Patrick Ewing tekur skot yfir Alonzo Mo-
urning í leik New York Knicks gegn Miami
Heat árið 1996.
AP
/M
YN
D
LYFJANOTKUN Dómstóll Íþróttasam-
bands Íslands hefur dæmt knatt-
spyrnumann úr Þrótti Reykjavík í
sex mánaða keppnisbann eftir að
hann féll á lyfjaprófi. Í sýni sem
tekið var í leik Þróttar og Vals
þann 21. júní síðastliðinn fannst
efedrín og pseudoefedrín sem
bæði eru á bannlista Alþjóða
Ólympíunefndarinnar. Leikmað-
urinn, sem spilar með meistara-
flokki karla, er óhlutgengur til
þátttöku í æfingum, keppnum og
sýningum á vegum ÍSÍ frá og með
23. júlí.
Knattspyrnufélagið Þróttur
hefur sent frá sér yfirlýsingu í
kjölfar dómsins. Þar segir að um-
ræddur leikmaður hafi tjáð félag-
inu og íþróttayfirvöldum að hann
hafi ekki neytt ólöglegra lyfja til
að bæta árangur sinn. Hann hafi
hins vegar tekið inn hóstasaft,
sem hann fékk frá lækni sínum, á
leikdag sem gæti hafa innihaldið
ólögleg efni. Læknir hans hefur
staðfest þetta.
Í yfirlýsingunni kemur jafn-
framt fram að Þróttur fordæmi
alla lyfjamisnotkun í íþróttum
sem annars staðar. Liðið mun nota
þetta tilefni til að efla fræðslu
innan félagsins um ólögleg efni,
bæði þau sem eru þekkt og eins
þau sem finna má í fæðubótaefn-
um hvers konar.
Leikmaður úr Þrótti Reykjavík:
Dæmdur í sex mánaða
keppnisbann af ÍSÍ
Alzheimersjúkdómur
Minnissjúkdómar
Heilabilun
Laugardaginn 21. sept. kl. 13:00-16:00
á alþjóðardegi Alzheimersjúkra verður
FRÆÐSLUFUNDUR
Félag áhugafólks og aðstadenda Alzheimersjúkra
og annarra minnissjúkra í húsi Pharmanor Hörgslandi 2, Garðabæ.
Dagskrá:
13:0-14:00
1. Fundasetning. María Th. Jónsdóttir formaður FAAS
2. Hver er munurinn á eðlilegri gleymsku og Alzheimersjúkdómi
Erindi Smára Pálssonar taugasálfræðings.
3. Hvað getur erfðafræðin sagt okkur? Erfðaráðgjöf.
Erindi Íslensk erfðagreining.
14:30-14:45
Kaffi í boði Pharmanor
14:45-16:00
4. Söngur. Halldór Torfasson og félagar
5. Úrræði fyrir sjúklinga með minnissjúkdóma.
Erindi Hönnu Láru Steinsson félagsráðgjafa.
6. Alzheimersjúklingar undir sýri.
Erindi Jóns Snædal yfirlækni minnismóttöku á Landakoti.
Fyrirspurnir og umræður eftir því sem tími leyfir.
Fundastjóri verður Soffía Egilsdóttir Félagsráðgjafi
Allt áhugafólk velkomið.
RÚÐUVÖKVI
Engar tímapantanir.
Komdu núna!
REYKJAVÍK • AKUREYRIAB
X
/
S
ÍA