Fréttablaðið - 24.03.2003, Síða 13
13MÁNUDAGUR 24. mars 2003
IRBIL. AP Kúrdar, bæði í norður-
hluta Íraks og í fjórum ná-
grannalöndum, gera sér vonir
um að árásin á Írak verði til þess
að hagur þeirra batni. Framtíð-
arhugmyndir Kúrda ganga þó
misjafnlega langt og eru að
sama skapi teknar misalvarlega.
Kúrdar eru í heildina um
þrjátíu milljónir. Þeir búa á
landsvæði sem nær til fimm
ríkja og er samtals meira en
tvisvar sinnum stærra en Ís-
land.
Fáir taka alvarlega hugmynd-
ir um að stofnað verði sjálfstætt
ríki, sem myndi sameina Kúrda í
Írak, Íran, Tyrklandi, Sýrlandi
og Armeníu í eitt ríki.
Stóri draumur margra Kúrda
er hins vegar sá að kúrdneski
hluti Íraks verði gerður að sjálf-
stæðu ríki. Svo virðist sem
margir Kúrdar bindi nokkrar
vonir við að þetta geti orðið
raunhæft, ekki síst með hliðsjón
af því að íraskir Kúrdar styðja
nú Bandaríkjamenn gegn
Saddam Hussein.
Loks er hófsami draumurinn
um takmarkaða sjálfstjórn
Kúrda í nýju sambandsríki, sem
stofnað yrði í Írak eftir að stjórn
Saddams Hussein færi frá.
Víst er að Tyrkland reynir
eftir megni að koma í veg fyrir
að stofnað verði sjálfstætt ríki
Kúrda í Írak. Tyrkir óttast að
þar með fái sjálfstæðiskröfur
Kúrda í Tyrklandi byr undir
báða vængi.
Fregnir af innrás tyrkneskra
hermanna í Írak fyrir helgi hafa
ekki fengist staðfestar. ■
KÚRDAR GÆTA LANDAMÆRA
Kúrdar í Írak gera sér vonir um upphefð að stríðinu loknu.
Innrásin í Írak:
Draumar um
sjálfstjórn Kúrda
AP/H
ASAN
SAR
B
AKH
SH
IAN
SKÍÐI Lokað var á skíðasvæðum
höfuðborgarsvæðisins í gær
vegna hvassviðris og snjóleysis.
Í Bláfjöllum var suðvestanátt,
12-17 metrar á sekúndu og gekk
á með éljum. Snjó hefur undan-
farið bætt í fjallið á skjólsælum
stöðum.
Í Skálafelli og á Hengilssvæð-
inu var lokað vegna snjóleysis.
Suðvestanátt, 3-8 metrar á sek-
úndu, var í Skálafelli, slydda og
blautur snjór.
Á Hengilssvæðinu var hiti
rétt yfir frostmarki, suðvestan-
átt, 14 metrar á sekúndu og
slydduél. Snjólaust er orðið í öll-
um lyftum á svæðinu. ■
LOKAÐ Á SKÍÐASVÆÐUM
Veður og snjóleysi kom í veg fyrir að fólk
kæmist á skíði á suðvesturhorninu í gær.
Skíðasvæði höfuðborgarsvæðisins:
Lokað vegna veðurs ERFIÐAR AÐSTÆÐUR Á HOLTA-VÖRÐUHEIÐI Sex bílar lentu ut-anvegar á Holtavörðuheiði að-
faranótt laugardags. Stór flutn-
ingabíll með tengivagn valt á
hliðina og er hann talinn ónýtur.
Engin meiðsl urðu á fólki.
GÓÐ TÍÐ OG RÓLEGHEIT Mikil
rólegheit voru á Siglufirði um
helgina og eru bæjarbúar hreint
til sóma að sögn lögreglunnar.
Skíðasvæðið hefur lítið verið
opið sökum snjóleysis og góðrar
tíðar og eru heimamenn farnir
að skipta yfir á sumardekk.
■ Lögreglufrétir