Fréttablaðið - 24.03.2003, Side 20
20 24. mars 2003 MÁNUDAGUR
KOURNIKOVA Í BARÁTTU
Rússneska tenniskonan Anna Kournikova
slær boltann af krafti í leik gegn landa sín-
um Dinara Safina á Nasdaq-100 mótinu
sem haldið var á Flórída. Safina vann leik-
inn í tveimur lotum, 6:1 og 6:4.
Tennis
hvað?hvar?hvenær?
21 22 23 24 25 26 27
MARS
Mánudagur
FÓTBOLTI Norski knattspyrnumað-
urinn Lars Bohinen hefur sett
fram nýstárlega tillögu. Hann vill
að laun sín byggi á einkunnagjöf
dagblaðanna Dagbladet, VG,
Aftenposten og Dagsavisen. Kjet-
il Siem, framkvæmdastjóri Vaal-
erenga, hélt fyrst að Bohinen
væri að grínast en svo var ekki.
Bohinen leggur til að einkunnir
blaðanna verði lagðar saman,
deilt í með tveimur og margfaldað
með þúsund krónum. Sem dæmi
nefnir hann að ef öll blöðin gæfu
honum sex í einkunn (skalinn er 1
til 10) þá fengi hann 12.000 krónur
norskar fyrir leikinn en það sam-
svarar um 128 þúsund íslenskum
krónum.
Bohinen hóf feril sinn hjá
Vaalerenga árið 1988 en fór til
Viking í Stafangri árið 1990.
Sama sumar gerðist hann at-
vinnumaður hjá svissneska fé-
laginu Young Boys og lék með
þeim til nóvember 1995, þegar
hann gekk til liðs við Nottingham
Forest. Hann lék einnig með
Blackburn og Derby áður en
hann lokaði hringnum og gerðist
leikmaður Vaalerenga að nýju. ■
Nýstárleg tillaga Lars Bohinen:
Laun byggð á einkunnagjöf
JOHN CAREW
John Carew hjá Valencia er einn fjölmargra launahárra norskra atvinnumanna hjá stór-
liðum í Evrópu. Einkunnagjafir dagblaða hafa tæplega áhrif á launaumslagið hans.
ÍÞRÓTTAFÉLÖG Íþróttafélagið Stjarn-
an í Garðabæ hefur sent bæjar-
stjórn ósk um að bærinn hjálpi til
við að greiða upp stóran hluta af
skuldum félagsins eða sem nemur
15 milljónum
króna. Bæjarráð
samþykkti á fundi
sínum 11. mars að
láta félagið hafa
fimm milljóna
króna styrk til að
leysa brýnasta
vanda félagsins. Þá
var bæjarstjóra
falið að ræða við
forráðamenn fé-
lagsins um frekari
styrki. Heimildir
F r é t t a b l a ð s i n s
herma að umrædd-
ar skuldir hafi
komið nokkuð flatt upp á bæjarfull-
trúa.
Einar Sveinbjörnsson, bæjar-
fulltrúi Framsóknarflokks, segir
vera samþykkur því að bærinn
leysi þennan
vanda gegn því
að stjórnendur
félagsins taki til
hendinni í rekstr-
inum. Hann segir
vanda Stjörnunn-
ar að miklu leyti
vera tilkominn
vegna kaupa
meistaraflokka
félagsins á leik-
mönnum.
„Skuldabaggi Stjörnunnar getur
að óbreyttu riðið félaginu að fullu
að mínu mati. Réttlætanlegt er að
bærinn komi að greiðslu þessara
skulda upp á um 15 milljónir króna,
en gegn því að hemill verði settur á
útgjöld félagsins, einkum er varðar
launagreiðslur til leikmanna og því
tengt,“ segir Einar.
Hann segir að vandamál Stjörn-
unnar sé ekki einsdæmi. Í þessu
sambandi er rétt að halda því til
haga að Garðabær greiðir í dag til
Stjörnunnar myndarlega fjárhæð
til styrkingar barna- og unglinga-
starfi. „Íþróttahreyfingin í landinu
verður að mínu mati að trappa sig
niður. Það gengur ekki lengur að
sveitarfélögin sitji uppi með
óreiðuskuldirnar sem hallarekstur
meistaraflokkanna skilur eftir
sig.“
Ásdís Halla Bragadóttir, bæjar-
stjóri í Garðabæ, segir að viðræður
standi yfir vegna þessa máls en
engin niðurstaða sé enn fundin.
Valgeir Baldursson, fram-
kvæmdastjóri Stjörnunnar, sem tók
við starfi sínu fyrir hálfu ári, segir
að fjárhagsstaða félagsins sé síst
verri en gengur og gerist með önn-
ur sambærileg félög.
„Garðabær styrkir okkur mjög
myndarlega. Það var sótt um frek-
ari fjárhagsstyrk til að létta undir
með félaginu. Laun eru vissulega
stærsti hluti rekstrarkostnaðar en
við höfum þegar gert mikla bragar-
bót í þeim efnum. Vandamálið er
tilkomið vegna margra samverk-
andi þátta og launaliður meistara-
flokkanna er ekki einhlít skýring.
Rekstrarumhverfi íþróttafélag-
anna er erfitt og sífellt er erfiðara
að ná í styrki og auglýsingatekjur.
Það hefur þegar verið unnið að fjár-
hagslegri endurskipulagningu sem
leiðir til þess að ekki verður um
frekari skuldasöfnun að ræða,“
segir Valgeir.
rt@frettabladid.is
Leikmannakaup sögð
sliga íþróttafélag
Skuldir Stjörnunnar í Garðabæ geta riðið félaginu að fullu, að mati bæjarfulltrúa sem vill koma
til hjálpar gegn því að hemill verði settur á útgjöld. Bæjarstjóri í viðræðum við Stjörnumenn.
Skuldasöfnun að baki, segir framkvæmdastjóri.
ÁSDÍS HALLA BRAGADÓTTIR
Falið að ræða við stjórnendur Stjörnunnar.
EINAR SVEIN-
BJÖRNSSON
Vill koma Stjörn-
unni til hjálpar
gegn ákveðnum
skilyrðum.
„Skulda-
baggi Stjörn-
unnar getur
að óbreyttu
riðið félaginu
að fullu að
mínu mati.
15.00 Stöð 2
Ensku mörkin. Sýnt frá mörkum helgar-
innar í enska boltanum.
15.20 Sýn
NBA. Útsending frá leik San Antonio
Spurs og Los Angeles Lakers.
16.35 Sjónvarpið
Helgarsportið.
17.50 Sýn
Ensku mörkin. Sýnt frá mörkum helgar-
innar í enska boltanum.
18.50 Sýn
Spænsku mörkin. Sýnt frá mörkum
helgarinnar í spænska boltanum.
19.15 Keflavík
Keflvíkingar taka á móti Njarðvík í úr-
slitakeppni 1. deildar kvenna í körfu-
bolta.
19.15 DHL-höllin
KR og Grindavík eigast við í úrslita-
keppni 1. deildar kvenna í körfubolta.
19.50 Sýn
Enski boltinn. Bein útsending frá leik
Bolton Wanderers og Tottenham
Hotspur.
22.00 Sýn
Gillette-sportpakkinn.
22.30 Sýn
Sportið með Olís. Fjallað er um helstu
íþróttaviðburði heima og erlendis.
22.50 Skjár 1
Mótor. Þáttur um mótorsport.
23.00 Sýn
Ensku mörkin. Sýnt frá mörkum helgar-
innar í enska boltanum.
23.40 Sjónvarpið
Markaregn. Mörk helgarinnar í þýska
boltanum.
1.25 Stöð 2
Ensku mörkin. Sýnt frá mörkum helgar-
innar í enska boltanum.
1.25 Sýn
Spænsku mörkin. Sýnt frá mörkum
helgarinnar í spænska boltanum.
FR
ÉT
TA
B
LA
D
ID
/B
IL
LI
FÓTBOLTI Peter Reid var ráðinn
framkvæmdastjóri Leeds United
í síðustu viku. Reid lék lengi með
Bolton Wanderers og var lykil-
maður í sigursælu liði Everton
um miðjan níunda áratuginn.
Hann var framkvæmdastjóri
Manchester City frá 1990 til 1993
og Sunderland frá 1995 og fram í
október á síðasta ári.
Peter Reid var ráðinn út tíma-
bilið en hefur lýst yfir áhuga á
samningi til lengri tíma. Hann
fær átta leiki til að tryggja stöðu
Leeds meðal þeirra bestu og um
leið að sanna sig fyrir eigendum
félagsins. Reid hræðist ekki
verkefnið. Hann telur sig geta
bætt liðsandann og „ef leikmenn-
irnir leggja sig alla fram í leikj-
unum sem fram undan eru get ég
ekki kvartað,“ sagði Reid við Sky
Sports.
Í apríl leikur Leeds gegn
Charlton (ú), Tottenham (h),
Southampton (ú), Fulham (h) og
Blackburn (h) og í maí við
Arsenal (ú) og Aston Villa (h). ■
Enska úrvalsdeildin:
Reid stýrir
Leeds út tímabilið
LIVERPOOL - LEEDS
Leeds tapaði í Liverpool í fyrsta leik Peter Reid.