Fréttablaðið - 24.03.2003, Side 30
Hrósið 46 24. mars 2003 MÁNUDAGUR
HARMONIKULEIKARI Finnski tónlist-
armaðurinn Matti Kallio kom
fyrst hingað til lands á þúsalda-
mótunum til þess að syngja með
Röddum Evrópu á menningarhá-
tíð Reykjavíkur.
„Við æfðum í Reykholti og
ferðuðumst um Evrópu og ég fann
hér kærustuna mína,“ segir Matti
Kallio. „Átta mánuðum síðar kom
ég hingað aftur og var hér í mán-
uð.“
Síðastliðið haust fluttist Matti
svo hingað til lands og hefur ekki
setið auðum höndum. Í síðustu
viku komu til landsins þrír félag-
ar hans frá Finnlandi til þess að
leika írska tónlist með hljómsveit-
inni Red Rum, sem þeir stofnuðu
fyrir nokkrum árum.
Nú á fimmtudaginn var frum-
sýnt í Borgarleikhúsinu leikritið
Púntila og Matti eftir Bertolt
Brecht. Matti Kallio var fenginn
til þess að semja tónlistina í þetta
leikrit, bæði sönglög og stemn-
ingstónlist.
„Þegar ég fyrst hitti Guðjón
Pedersen leikstjóra sagði hann
mér að hann vildi nota finnskan
tangó sem grunn að tónlistinni í
leikritinu. Hann vildi nota orkuna
sem er í tangónum, þennan takt
sem drífur fólk áfram. Tangóinn
er kjarninn í tónlistinni í leikrit-
inu, þótt ég noti ekki bara tangó.“
Hann stendur sjálfur á sviðinu
í Borgarleikhúsinu og leikur á
harmonikkuna sína ásamt hljóm-
sveit. „Svo ætlum að fara til Finn-
lands seint í vor. Ég hef starfað
lengi sem tónlistarmaður í Finn-
landi og er enn að læra tónlist í Sí-
belíusarakademíunni. Hér hef ég
verið að vinna að þessu leikriti og
reyna að koma mér á framfæri í
tónlistinni. Kærastan mín var að
klára BA-próf í heimspeki.“
Matti Kallio segir að leikritið
Púntila og Matti hafi oft verið sett
upp í Finnlandi og jafnan notið
vinsælda. Sjálfur getur hann ekki
orða bundist vegna frammistöðu
Theodórs Júlíussonar, sem leikur
Púntila. „Mér finnst honum hafa
tekist ótrúlega vel að ná finnskum
eldri manni.“ ■
MATTI KALLIO
Kom fyrst hingað til lands til þess að
syngja með Röddum Evrópu árið 2000.
Persónur
■ Finnski harmonikkuleikarinn Matti
Kallio semur tónlistina í leikritinu
Púntila og Matti, sem frumsýnt var í
Borgarleikhúsinu í síðustu viku.
Að gefnu tilefni skal tekið fram að
Íslendingar eru ekki aðilar að stríðinu á milli
Michael Jackson og breska sjónvarpsmanns-
ins Martin Bashir.
■ Leiðrétting
Ég veit ekki til þess að þettahafi verið gert áður. Þetta er
tilraunaverkefni sem verður í
gangi næstu fimm
mánuði,“ segir
Kristjana Sig-
mundsdóttir, deild-
arstjóri á bæjar-
skrifstofunum í
Árborg, en sveitar-
félagið hefur gert
samning við leigubílastöðina
Faxa um akstur fyrir eldri borg-
ara. Þeir geta nú tekið leigubíla
þegar þeir þurfa til læknis eða
sinna öðrum brýnum eindum og
greiða aðeins 150 krónur fyrir
hverja ferð. Sveitarfélagið greiðir
mismuninn: „Fólkið má að sjálf-
sögðu ekki nota leigubílana til að
fara út í búð og við verðum að
treysta hverjum fyrir sig og bíl-
stjórnunum líka því ekki getum
við alltaf verið í leigubílunum,“
segir Kristjana.
Gefin hafa verið út sérstök
leigubílakort sem allir íbúar í Ár-
borg, 67 ára og eldri, geta sótt um.
Síðan er eftirleikurinn auðveldur í
leigubílaflota Faxa sem telur sjö
bíla en stöðin var stofnuð skömmu
eftir miðja síðustu öld.
„Þetta er gott fyrir okkur og
gott fyrir gamla fólkið,“ segir
Ingvar Ólafsson, framkvæmda-
stjóri leigubílastöðvarinnar Faxa.
„Við þurftum aðeins að slá af fullu
verði í þessum samningum en það
verður vonandi þess virði,“ segir
hann.
Sveitarfélagið Árborg teygir
sig víða og oft er um langan veg
að fara þurfi menn að bregða sér
af bæ. Engar almenningssam-
göngur eru á svæðinu og því er
gripið til þess ráðs að skjóta
leigubílum undir aldraða. Sem
dæmi má nefna að leigubíll frá
Stokkseyri og í sundlaugina á
Selfossi kostar venjulega um
1.500 krónur. Nú geta aldraðir
skotist þangað fyrir 150 krónur -
eigi þeir þangað brýnt erindi
sem verja má fyrir bæjaryfir-
völdum:
„Auðvitað er þetta dýrt en við
gerum þetta samt,“ segir Krist-
jana Sigmundsdóttir.
eir@frettabladid.is
Ef Hennar Hátign er of mikill
AUMINGI til að opna eina
skitna bílhurð getur hún bara
setið þarna áfram!
Imbakassinn eftir Frode Øverli
Gamla
fólkið í
leigubílum
■ SAMGÖNGUR
Fær Hallgrímur Óskarsson,höfundur Eurovision-lagsins
Segðu mér allt, fyrir að gefast
ekki upp þótt á móti blási.
Fréttiraf fólki
Erótíska nuddstofan Xnuddauglýsir eftir nuddstúlkum á
atvinnutorginu Job.is um þessar
mundir en eins og fram hefur
komið í fréttum er mikill vöxtur
í þessari nýju atvinnugrein. Fyr-
irtækið óskar eftir konum á
aldrinum 18-35 ára og er þeim
heitið „mjög góðum launum“,
„frábærri vinnuaðstöðu“ og
„100% trúnaði“. Ekki eru gerðar
sérstakar menntunarkröfur en
„nuddmenntun er góður plús“ en
ætlast er til að þær séu „ófeimn-
ar“ og það er æskilegt að þær
séu „vel vaxnar“ en þó ekki
nauðsynlegt.
Útgáfusaga bókar HermannsStefánssonar, Sjónhverfing-
ar, er öll með hinum mestu ólík-
indum. Bókin fjallar um kenn-
ingar höfundar um íslenskan
veruleika og það sem virðist
vera en er ekki. Bókin hlaut ein-
mitt þessi örlög viðfangsefnisins
og gufaði bókstaflega upp á út-
gáfudaginn. Hún átti að koma út
síðdegis á miðvikudag en tafðist
á skoskum flugvelli vegna vélar-
bilunar. Útgefendurnir fengu
þær fregnir hins vegar ekki fyrr
en seint og illa og þeir máttu
bíða klukkustundum saman milli
vonar og ótta um afdrif bókar-
innar. Það var engu að síður
haldið líflegt útgáfuteiti á
Súfistanum að kvöldi meints út-
gáfudags en þar sem það hafði
þegar verið tilkynnt að höfund-
urinn yrði ekki viðstaddur töldu
flestir gesta víst að um eina alls-
herjar blekingu væri að ræða
þegar það upplýstist að bókin
væri ekki komin í hús, og hvorki
Hermann né bókin væru í raun-
inni til. Bókin er hins vegar kom-
in til landsins, að minnsta kosti
annar kassinn en von var á
tveimur, og dreifingin er komin
á fullan skrið.
Ólga mun vera meðal flokks-manna Framsóknarflokksins
vegna afstöðu flokksins í Íraks-
málinu. Á lokuðu vefsvæði á
Netinu þar sem framsóknar-
menn skiptast á skoðunum mun
yfirstjórn flokksins hafa verið
gagnrýnd harðlega fyrir stuðn-
ing sinn við innrásina í Írak. Ótt-
ast menn að þessi afstaða flokks-
ins geti komið honum í koll í
kosningunum í maí. Segja menn
að því megi flokkurinn ekki við.
TVEIR GÓÐIR
Hjörtur Þórarinsson, formaður Félags eldri borgara, stígur upp í leigubíl hjá Ingvari Ólafs-
syni, framkvæmdastjóra leigubílstöðvarinnar Faxa á Selfossi.
Brugðist við skorti á
almenningssamgöng-
um á Suðurlandi.
Sveitarfélagið Árborg
greiðir fyrir leigubíla
eldri borgara þegar
þeir þurfa að sinna
brýnum erindum.
Farið á 150 krónur.
■
„Fólkið má að
sjálfsögðu ekki
nota leigubíl-
ana til að fara
út í búð.“
Síðasti
dagurinn í
vinnunni...
Vetrardvöl á Íslandi