Fréttablaðið - 29.03.2003, Qupperneq 2
VIÐSKIPTI Sameiginlegt mark-
aðsvirði Búnaðarbanka og Kaup-
þings er rúmir 60 milljarðar
króna og samanlagður hagnaður
eftir skatta á síðasta ári var 5,4
milljarðar. Heildareignir þessara
tveggja fyrirtækja eru 433,9
milljarðar og eigið fé þeirra til
samans er 33 milljarðar.
„Samkeppnisyfirvöld verða
væntanlega að fjalla um samein-
inguna og taka ákvörðum um
hvort hún sé leyfileg,“ segir Guð-
jón Ármann Guðjónsson, sjóðs-
stjóri SPH-verðbréfa, um fyrir-
hugaða sameiningu Kaupþings og
Búnaðarbankans. Guðjón segir að
markmið með sameiningu sé að
auka markaðsvirði. Hann segir
erfitt að meta hvort svo verði. „Ef
af sameiningu verður, verður
þetta öflugasti banki landsins með
gríðarlega sterka eiginfjárstöðu.
Hann mun verða í dýrari kantin-
um ef miðað er við það sem hluta-
bréfamarkaður á Íslandi er að
greiða fyrir banka,“ segir Guðjón.
„Ekkert hefur borist til okkar
um þessa sameiningu, það sem ég
veit um málið hef ég lesið í blöð-
unum. Ef af sameiningu verður
ber að tilkynna það til Samkeppn-
isstofnunar, en hvort eða hvenær
það verður veit ég ekki,“ segir
Georg Ólafsson, forstjóri Sam-
keppnisstofnunar.
„Markmiðið með sameiningu
er að hagur viðskiptavina, starfs-
manna og hluthafa fylgist að.
Sameinaður banki verður betur í
stakk búinn til að þjónusta við-
skiptavini okkar hér á landi,“ seg-
ir Sigurður Einarsson, stjórnar-
formaður Kaupþings. Sigurður
segir sameinaðan banka verða um
tíunda stærsta banka á Norður-
löndum sem ætti að gefa tækifæri
til að bjóða samkeppnishæfari
þjónustu hér heima. „Aukin stærð
auðveldar okkur til muna sam-
keppnina á þeim alþjóðamörkuð-
um sem við störfum á, fyrst og
fremst á Norðurlöndum. Með
þessu verður bankinn áhugaverð-
ari fyrir fjárfesta, þar sem við-
skiptin aukast og arðsemin verður
meiri, og um leið verður bankinn
áhugaverðara fyrirtæki til að
starfa hjá,“ segir Sigurður.
hrs@frettabladid.is
2 29. mars 2003 LAUGARDAGUR
“Þetta er afskaplega góður lands-
fundur. Byrjaði af miklum krafti og
framhaldið leggst vel í okkur.“
Birgir Ármannsson, verðandi þingmaður, situr
landsfund Sjálfstæðisflokksins í Laugardalshöll
ásamt 1.200 öðrum.
Spurningdagsins
Birgir, er gaman?
■ Evrópa
SKIPULAG Héraðsdómur vísaði
máli Ragnars M. Magnússonar og
sona hans frá en þeir stefndu bæj-
arstjóra Garðabæjar vegna stöðv-
unar framkvæmda við húseign
þeirra að Stekkjarflöt 21. Ragnar
hafði áður fengið tilskilin leyfi hjá
byggingarfulltrúanum Agnari
Ástráðssyni. Í frétt Fréttablaðsins
í gær staðhæfir Ragnar að hann
sé fórnarlamb í pólitískum hrá-
skinnaleik. Bæjarstjóri hafi skip-
að byggingarfulltrúa að stöðva
framkvæmdir, ekki vegna þess að
veggur reyndist of hár, heldur af
því að Ragnar hafi reynst henni
óþægur ljár í þúfu.
„Það er ekki verið að beita
Ragnar einhverjum brögðum,“
segir Guðjón E. Friðriksson, bæj-
arritari í Garðabæ, og hafnar því
alfarið að þetta mál sé pólitískur
leikur.
Einar Sveinbjörnsson, bæjar-
fulltrúi Framsóknar og óháðra í
Garðabæ, tekur undir með Ragn-
ari: „Þessi úrskurður héraðsdóms
þar sem málinu er vísað frá af
lagatæknilegum ástæðum bætir
ekki málstað Garðabæjar. Ljóst er
að þeir feðgar voru með öll til-
skilin leyfi þegar þeir hófu fram-
kvæmdir og jafnframt þegar
byggingarstöðvun var sett á þá.
Það er búið að fara illa með þá og
er málið allt bænum til vansa.“ ■
Húsasmiðjan:
705 milljóna
hagnaður á
síðasta ári
VIÐSKIPTI Hagnaður Húsasmiðj-
unnar var 705 milljónir eftir
skatta á síðasta ári, sem er mun
meira en árið áður, þegar hagnað-
urinn var 186 milljónir króna.
Munur milli ára er því 519 milljón-
ir króna.
„Við seldum mikið af fasteign-
um með myndarlegum söluhagn-
aði á síðasta ári. Einnig nutum við
góðs af gengisstyrkingu krónunn-
ar eins og mörg önnur fyrirtæki,“
segir Árni Hauksson, forstjóri
Húsasmiðjunnar, um umskiptin. ■
LÍFEYRIR „Hús Gísla var keypt og
selt á nánast sama verði,“ segir
Eiríkur Ólafsson, stjórnarmaður
hjá Lífeyrissjóði Austurlands,
um kaup sjóðsins á einbýlishúsi
fyrrverandi framkvæmdastjóra.
Hann segir skýringuna á 25
milljóna króna starfslokasamn-
ingi fyrrverandi framkvæmda-
stjóra sjóðsins vera þá að Gísli
hafi á sínum tíma verið ráðinn
úr bankakerfinu og þess vegna á
bankastjórakjörum. Samningur-
inn beri þess merki.
Eiríkur segir óvíst að allt sé
eins og sýnist varðandi bókað
tap sjóðsins. „Það er óvíst að
þessir peningar séu tapaðir þótt
þeir hafi verið afskrifaðir,“ seg-
ir hann. Eiríkur kveðst munu
sitja áfram í stjórn sjóðsins
þrátt fyrir skellinn.
„Það er annara að ákveða
hverjir sitja í stjórn,“ segir
Eiríkur. Ekki náðist í Hrafnkel
A. Jónsson, stjórnarformann Líf-
eyrissjóðs Austurlands, sem
þessa dagana situr landsfund
Sjálfstæðisflokksins. ■
Gæsluvarðhald:
Grunaður
um mansal
LÖGREGLA Rúmlega þrítugur maður
með bandarískan ríkisborgararétt
hefur verið úrskurðaður í viku
gæsluvarðhald vegna gruns um að
hafa aðstoðað fjóra Kínverja að
komast ólöglega til landsins. Í úr-
skurði Héraðsdóms Reykjaness
kemur fram að vitnisburður fjór-
menningana þyki samhljóða um
veigamikil atriði málsins. Ekki sé
víst um sekt mannsins en kanna
þurfi betur framburð hans með
hliðsjón af ferðum hans í Hamborg,
dvöl hans á Íslandi fyrr á þessu ári,
tíðum ferðalögum á undanförnum
misserum, þrátt fyrir atvinnuleysi
og loks því að kærði hafði í fórum
sínum ríflega 600.000 krónur í
reiðufé. ■
Berti Vogts:
Síðasta tæki-
færi Íslands
FÓTBOLTI Berti Vogts, þjálfari
skoska landsliðsins í knattspyrnu,
telur að Íslendingar þurfi nauðsyn-
lega á sigri að halda gegn liði sínu
í undankeppni EM í dag til að eiga
möguleika á að komast áfram í úr-
slitakeppnina.
„Þetta er síðasta tækifæri Ís-
lendinga. Ef þeir tapa eru þeir bún-
ir að missa af lestinni,“ sagði Vogts
í gær.
Ísland er í þriðja sæti 5. riðils,
einu stigi á eftir Skotum. Þjóðverj-
ar, sem leika við Litháen í dag, eru
í efsta sæti með sex stig. ■
ARNAR OG BJARKI
Leika saman á ný – nú með KR.
Íslensk knattspyrna:
Tvíburarnir
með KR
FÓTBOLTI Arnar og Bjarki Gunn-
laugssynir skrifuðu í gær undir
samning við Íslandsmeistara KR.
Samningur tvíburanna og KR
gildir út leiktíðina. „Við eru mjög
ánægðir að vera komnir í KR. Það
er mjög langt síðan við spiluðum
síðast saman,“ sögðu Arnar og
Bjarki við Fréttablaðið eftir und-
irritun samningsins.
Arnar og Bjarki voru síðast
samherjar í opinberum leik þegar
Ísland lék gegn Slóveníu á Möltu
árið 1998. Þeir léku hins vegar síð-
ast með sama félagi fyrir átta
árum þegar þeir léku með Skaga-
mönnum. ■
Garðabær vann dómsmál:
Bætir ekki
málstaðinn
RAGNAR M. MAGNÚSSON
Máli hans var vísað frá dómi.
Lífeyrissjóður Austurlands:
Framkvæmdastjóri
á bankastjórakjörum
NESKAUPSTAÐUR
Lífeyrissjóðurinn keypti hús framkvæmdastjórans.
Verðmætasta
félag á Íslandi
Ef Kaupþing og Búnaðarbanki sameinast verður til mjög öflugur
banki með sterka eiginfjárstöðu. Verðum tíundi stærsti banki
Norðurlanda, segir Sigurður Einarsson.
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/TH
O
R
STEN
Mannúðaraðstoð:
Mesta aðstoð
sögunnar
SÞ, AP Öryggisráð Sameinuðu þjóð-
anna samþykkti í gær samhljóða að
hefja mesta mannúðarstarf sög-
unnar. Öryggisráðið veitti Kofi
Annan, aðalritara Sameinuðu þjóð-
anna, vald til að stjórna mannúðar-
starfi í Írak sem byggir á því að
nota tekjur af olíusölu úr íröskum
olíulindum til að kaupa matvæli og
aðrar nauðsynjar.
Af 22 milljónum Íraka treysta
60% á matvælagjöf. Sameinuðu
þjóðirnar taka að sér að dreifa mat-
vælum til þessa fólks þegar það
þykir öruggt vegna stríðsátaka. ■
McLOUIS húsbílar
Netsalan
Garðatorgi 3, 210 Garðabær Símar: 565 6241/ 544 4210 Fax: 544 4211
Netfang: netsalan@itn.is Heimasíða: www.itn.is/netsalan www.itn.is/netsalan
Opið á virkum dögum 10:00 - 18:00 laugardaga 10:00 - 12:00
Lagan 251
aðeins kr. 3.990.000.- stgr.
Lagan 410
aðeins kr. 4.170.000.- stgr.
Í fyrsta sinn á Íslandi
Stórkostlegt opnunartilboð
Sölu- og kynningarsýning
KJARNORKUVERIN OPIN ÁFRAM
Hæstiréttur Búlgaríu hefur fellt
úr gildi ákvörðun stjórnvalda um
að loka tveimur kjarnorkuverum
fyrr en upphaflega var stefnt að.
Stjórnvöld tóku þessa ákvörðun
til að uppfylla skilyrði um aðild
að Evrópusambandinu.
SAMANBURÐUR Á STÆRÐ BÚNAÐARBANKA
ÍSLANDS OG KAUPÞINGS
Kaupþing Búnaðarbanki
Markaðsvirði 32,2 milljarðar 29,5 milljarðar
Hagnaður eftir skatta 3,1 milljarðar 2,3 milljarðar
Hreinar rekstrartekjur 9,9 milljarðar 11,5 milljarðar
Eigið fé 18,3 milljarðar 15,1 milljarður
Heildareignir 188 milljarðar 245,9 milljarðar
Fjöldi starfsmanna 539 821
MARKAÐSVIRÐI FIMM STÆRSTU FYRIRTÆKJA LANDSINS
EF AF SAMEININGU VERÐUR
Fyrirtæki Markaðsvirði
Kaupþing/Búnaðarbanki 60 milljarðar
Íslandsbanki 51 milljarður
Landsbanki Íslands 27 milljarðar
––––––––––––––––––––––-
Pharmaco hf. 45 milljarðar
Baugur hf. 25 milljarðar