Fréttablaðið - 29.03.2003, Blaðsíða 17
Frjálslyndir eru svo með afskap-
lega óljósar hugmyndir. Þeir vilja
skipta þessu upp í flokka og úthluta
þessu. Hverjir eiga ekki og hverjir
eiga að fá? Það fylgir ekki sögunni.
Ég skil þá ekki svo að þeir vilji
mikla gjaldtöku. Sé svo vitum við
ekki hverjir eiga að borga og
hverjir ekki. Ég held að þessir þrír
flokkar yrðu í miklum vandræðum
að koma sér niður á sameiginlega
fiskveiðistefnu.“
En ef fulltrúi þessara flokka
sæti nú í þínu sæti?
„Já, hann getur breytt mjög
miklu og getur skaðað atvinnu-
greinina mikið. Miðað við það sem
menn hafa talað um myndu þær
breytingar skaða í fyrsta lagi sjáv-
arútveginn, einkum landsbyggðina
og hagkerfið í heild alveg gríðar-
lega mikið. Ef Samfylkingin réði
yrðu fyrirtækin mjög veikburða
því þeir þyrftu að greiða seinustu
krónuna fyrir kvótann á uppboði og
geta ekki tekið þátt í þróunarstarfi
og verið leiðandi á alþjóðlegum
vettvangi. Vg myndu frysta at-
vinnugreinina í ákveðinni stöðu.
Hún væri niðurnjörvuð í eitthvað
regluverk og gæti ekki nýtt sér ný
tækifæri. ‘Ofstjórn er versti varg-
ur allra lýða’ segir Davíð Stefáns-
son. Þetta er ofstjórnarkerfi sem
myndi virkja sem hlekkir á at-
vinnugreinina. Engin útrás né nýt-
ing á þekkingu okkar og reynslu.
Og Frjálslyndir... jahh, ég veit það
eiginlega ekki.“
Bindur ekki hendur
hugsanlegs arftaka
Skoðanakannanir sem sýna ít-
rekað að Samfylkingin er stærri
en Sjálfstæðisflokkurinn? Þetta
hlýtur að valda verulegum hrolli í
Valhöll?
„Áhöld eru þar um en ég ætla
ekki að rífast um skoðanakannan-
ir við Fréttablaðið. Og auðvitað
getum við ekkert útilokað að þetta
geti gerst í kosningum. En okkar
kosningabarátta mun að sjálf-
sögðu miða að því að koma í veg
fyrir það. Og við skulum hafa í
huga hvers konar mynstur væri
að koma út úr slíku. Miðað við
þessar síðustu kannanir er ekki
nema ein tveggja flokka stjórn
inni í myndinni: Samfylking og
Sjálfstæðisflokkur. Ég hlýt að
koma með klisjuna: Við göngum
óbundnir til kosninga. En miðað
við umræðuna undanfarið er ekki
hægt að telja það líklegt. Og þrig-
gja flokka stjórnir hafa ekki
reynst okkur vel, hafa aldrei setið
út heilt kjörtímabil. Við þurfum á
stöðugleika að halda, ekki síst til
dæmis blað eins og Fréttablaðið
sem er að verða víðlesnasta blað
landsins. Þann stöðugleika fáum
við ekki ef Samfylkingin leiðir
þriggja flokka stjórn. Tveggja
flokka stjórn þar sem Sjálfstæðis-
flokkurinn hefur forystu í hefur
reynst best.“
Og Árni vekur á því athygli ef
Samfylkingin myndar þriggja
flokka stjórn hafa minni flokkarn-
ir mikið um að segja hver verður
forsætisráðherra. Hefð er fyrir
því að Framsóknarflokkurinn leiði
slíkt stjórnarsamstarfið og for-
maður þar verður þá forsætisráð-
herra. En haldi ríkisstjórnin velli...
sérðu þá sjálfan þig fyrir þér hér
áfram í Sjávarútvegsráðuneytinu?
„Ég gæti vel hugsað mér að
vera hér næstu fjögur árin. Eins
og sjá má af því sem ég hef verið
að gera hérna hef ég verið að und-
irbúa vinnu í ráðuneytinu til
næstu ára. Jafnvel þó ég verði
ekki hér áfram vil ég ekki að sá
sem hér tekur við komi að ein-
hverri eyðimörk. Að ekkert hafi
verið hugsað fyrir því hvað gerist
eftir 10. maí.“
En er það ekki ósanngjarnt
gagnvart arftaka þínum að hafa
markað stefnu fram í tímann?
„Miklu auðveldara er að stöð-
va slíka vinnu en koma henni af
stað. Ef sá, sem hugsanlega tek-
ur við, vill stöðva til dæmis
nefndina um líffræðilega fisk-
veiðistjórnun þá bara afturkall-
ar hann umboð nefndarinnar og
nefndarstarfið fellur niður. Ef
hann er ósáttur við AVS
prógrammið, þá bara afturkall-
ar hann það umboð, leggur af
sjóðinn og sækist ekki eftir fjár-
framlögum til þeirra verkefna á
fjárlögum. Ég er ekki búinn að
binda hendur þess sem hingað
kemur. En það væri mikil synd
og skömm og óheillaspor ef svo
færi að horfið yrði frá markaðri
stefnu.“
jakob@frettabladid.is
17LAUGARDAGUR 29. mars 2003
SJÓMENN RÁÐA MIKLU
Árni segir ákvörðun sína um kvóta ekki síst byggjast á því sem sjómenn segja og nefnir
sem dæmi að í desember var ýsukvóti aukinn verulega, 9 mánuðum áður en niðurstöður
fiskifræðinga lágu fyrir. Sú ákvörðun reyndist rétt og þjóðarbúið hefði orðið af verulegum
verðmætum ef hann hefði beðið með ákvörðunina.
BINDUR EKKI HENDUR HUGSANLEGS ARFTAKA
Þó Árni hafi lagt drög að stefnu og starfi ráðuneytisins til næstu ára lítur hann ekki svo á að þar með sé hann að taka fram fyrir hendur á
þeim sem sest í stól sjávarútvegsráðherra eftir kosningar. „Vil ekki að hér sé einhver eyðimörk.“
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/VILH
ELM
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M