Fréttablaðið


Fréttablaðið - 29.03.2003, Qupperneq 13

Fréttablaðið - 29.03.2003, Qupperneq 13
LAUGARDAGUR 29. mars 2003 ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S T O Y 20 71 8 0 3/ 20 03 S†NING Nýbýlavegi 2 • 200 Kópavogi • S 570 5300 Opið frá kl. 12 til 16 laugardag og 13 til 16 sunnudag. S U M A R 2 0 0 3 2 9 . - 3 0 . m a r s Komdu á stærstu Yamaha mótorhjólasýningu sem haldin hefur verið frá upphafi. 30 ný mótorhjól, torfæruhjól, götuhjól, hippar og fjórhjól. YAM AHA BLA ÐIÐ KOM IÐ Ú T FÓTBOLTI Thierry Henry, leikmaður Arsenal og franska landsliðsins, seg- ir að Frakkland verði að vinna Möltu í undankeppni EM í dag til að gleyma 2:0 tapinu gegn Tékklandi í vináttu- leik í síðasta mánuði á heimavelli sínum. „Við verðum að vinna til að ná okkur aftur á strik. Fólk býst við miklu af okkur og ég get skilið að það hafi verið óánægt með tapið gegn Tékkum.“ Baulað var á franska landsliðið eftir leikinn, sem jafnframt var fyrsti ósigur liðsins undir stjórn þjálfarans Jacques Santini. ■ FÓTBOLTI Alan Curbishley, knatt- spyrnustjóri Charlton, segist lengi hafa haft augastað á Hermanni Hreiðarssyni áður en hann samdi við hann til þriggja ára í fyrradag. „Ég ætlaði að kaupa hann í sum- ar. Hermann var leikmaðurinn sem ég vildi og það varð að flýta kaupun- um vegna áhuga Portsmouth,“ sagði Curbishley í viðtali á heimasíðu Charlton. „Reynsla hans, fjölhæfni, knattspyrnugeta hans og hungrið í að standa sig vel; þetta eru hráefnin sem mér líkar í fari leikmanna og hann hefur þau öll.“ Hermann sagðist vera ánægður með að vera kominn aftur í úrvals- deildina. „Ég er ánægður með að hafa gert þriggja ára samning við Charlton og vonandi bæti ég þrem- ur árum við eftir það. Það eru spennandi tímar fram undan. Charlton gengur vel í úrvalsdeild- inni og vonandi heldur það áfram. Ég hlakka mikið til þessarar áskor- unar. Þeir hafa lagt hart að sér til að komast þangað sem þeir eru og ég er ánægður með að verða orðinn hluti af því.“ ■ Alan Curbishley: Hefur öll hráefnin HERMANN Hermann Hreiðarsson er staðráðinn í að standa sig með Charlton. HENRY Vinni Frakkland Möltu nær lið- ið 12 stigum í fyrsta riðli og fer fyrir vikið langt með að tryggja sér sæti á EM. Thierry Henry: Verðum að gleyma Tékkaleiknum

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.