Fréttablaðið - 29.03.2003, Side 22
29. mars 2003 LAUGARDAGUR
Ég hefði aldrei trúað samstöð-unni sem fólk sýnir hérna,“
segir Robert N. Mosco í Flórída,
bróðir Lucille Yvette Mosco sem
myrt var í bænum Pensacola 14.
mars síðastliðinn.
Robert segir nágranna, veit-
ingastaði og verslanir hafa sýnt
ótrúlega mikinn samhug eftir
morðið á systur hans, sem alltaf
gekk undir nafninu Sissý. Sér-
staklega hafi hlýhugur streymt til
sonar Sissýjar, Jóns Atla Júlíus-
sonar, sem sjálfur slapp særður
undan morðingjanum.
Faðir Jóns Atla, Júlíus Haf-
steinsson og bróðir, Robert
Wayne, eru komnir frá Íslandi.
Feðgarnir gista allir hjá Robert
Mosco.
„Það er komið hingað með mat
á hverjum einasta degi handa öll-
um. Þeir gerðu við bílinn hans
Nonna ókeypis á einum stað. Það
hefur líka borist fullt af pening-
um. Þetta er ótrúlegt,“ segir
Robert.
Heyrði mömmu biðjast
vægðar
Jón Atli, sem er aðeins sextán
ára, sýndi ótrúlegan viljastyrk og
þrek þegar hann slapp undan
meintum morðingja móður sinnar.
Jón Atli segir Sebastian „Dexter“
Young, fyrrverandi stjúpföður
sinn, hafa myrt móður hans.
„Dexter braust inn um bak-
dyrnar hjá Sissý og Nonna klukk-
an fimm um morguninn. Þjófa-
varnarkerfið fór af stað og vakti
strákinn. Hann fór fram og heyrði
mömmu sína öskra „Nei, Dexter,
nei!“ Svo heyrði hann skotið,“ lýs-
ir Robert.
Að sögn Roberts hljóp Jón Atli
út um bakdyrnar til að fara og
hringja á lögregluna:
„Þá elti Dexter hann uppi og
skaut hann í bakið. Strákurinn
datt og karlinn náði honum. Hann
dró Nonna á hárinu og reyndi að
komast bak við búð þar sem eng-
inn sæi til hans. Hann sagði við
strákinn að í nótt skyldi hann
deyja. Nonni sárbað hann að
drepa sig ekki.“
Átta tommu stunga í bakið
Árásarmaðurinn hafði hins veg-
ar ekki í huga að skilja eftir vitni.
„Hann stakk Nonna í andlitið og
fjórum sinnum í líkamann. Ein
stungan var nærri átta tommu
djúp í neðanvert bakið. Allt loft fór
úr öðru lunganu. Svo braut Dexter
haglabyssuna á höfðinu á strákn-
um. Þá náði Nonni að pota fingri í
augað á karlinum og hrinda honum
frá sér,“ segir Robert.
Í nótt skaltu deyja
Robert N. Mosco, bróðir hinnar hálfíslensku Lucille Mosco sem myrt var 14.
mars, segir systurson sinn hafa verið stálheppinn að sleppa lifandi frá morðingj-
anum. Robert segir samhug íbúa í Pensacola vera ótrúlegan.
Klukkan fimm að morgni föstu-dagsins 14. mars hringdu
bjöllur þjófavarnarkerfis í heima-
húsi einu í Pensacola í Flórída.
Sextán ára piltur vaknaði og
heyrði móður sína hrópa. Hún var
að biðja fyrrverandi eiginmann að
þyrma lífi sínu. Eftir skothvellinn
sem þá fylgdi kom þögn.
Jón Atli Júlíusson var sann-
færður um að eitthvað skelfilegt
hefði gerst. Hann þaut í átt að
bakdyrunum til að komast út og
ná í hjálp. Áður en það tókst skaut
fyrrverandi stjúpfaðirinn til Jóns
Atla af haglabyssu. Yfir 40 högl
boruðust í bak piltsins.
Stjúpfaðirinn, Sebastian
„Dexter“ Young, beið réttarhalda
vegna ákæru frá í febrúar fyrir að
hafa brotist inn til fyrrverandi
eiginkonu sinnar, hinnar hálf-
íslensku Lucille Yvette Mosco.
Dexter hafði hótaði Lucille lífláti
þar sem hann stóð allt í einu með
hníf í hendi yfir henni í rúminu
um miðja nótt.
Stunginn að húsabaki
Dexter dró særðan piltinn á
hárinu bak við verslun í nágrenn-
inu. Haglabyssan brotnaði þegar
stjúpinn braut hann á höfði
drengsins. Þá dró Dexter upp
hníf og sagðist mundu stytta pilt-
inum aldur. Jón Atli bað árás-
armanninum að vægja sér en það
var til einskis. Maðurinn lagði
fjórum sinnum til hans, bæði í
búk og andlit. Dýpsta stungan í
líkama piltsins reyndist vera átta
þumlunga djúp.
Á ótrúlegan hátt tókst Jóni Atla
að snúa sig frá Dexter, pota fingri
í augu hans og komast í skjól inn í
verslunina. Stúlka sem þar var
faldi hann undir borði enda bjugg-
ust þau bæði við að Dexter myndi
elta drenginn uppi. Tilræðismað-
urinn lét sig hins vegar hverfa.
Neitar allri aðild
Eftir skilnaðinn við Lucille
flutti Dexter frá Flórída til
Louisiana. Þar bjó hann í um 400
kílómetra fjarlægð frá Lucille.
Lögregla telur að Dexter hafi
ekið að heiman um nóttina, þvert
yfir fylkin Alabama og Missippi,
þar til hann kom að heimili Lucille
og Jóns Atla í Pensacola klukkan
fimm að morgni. Eftir ódæðið hafi
hann ekið sömu leið heim.
Dexter var handtekin að kvöldi
morðdagsins þar sem hann dvald-
ist á heimili vinkonu sinnar. Hann
neitar allri aðild að óhæfuverkinu
í Pensacola. Vitnisburður Jóns
Atla og blóð í bíl hans og á fötum
reyndust hins vegar nógu afger-
andi vísbendingar til þess að yfir-
völd í Louisiana samþykktu að
framselja hann til Flórída.
Dauðarefsingar krafist
Saksóknari í Pensacola segist
hafa næg gögn til að fá Dexter
ákærðan fyrir morð að yfirlögðu
ráði. Við slíkum glæp liggur
dauðarefsing í Flórída.
Tæpur tveimur vikum eftir
morðið, síðastliðinn fimmtudag,
var Dexter fluttur til Pensacola.
Þar á að taka afstöðu til þess 8.
apríl hvert ákæruefnið verður.
Eins og áður segir á enn eftir
að rétta yfir Dexter vegna inn-
brotsins hjá Lucille og líflátshót-
unarinnar sem hann setti þá fram.
Þetta atvik varð í nóvember í
fyrra. Í þeim mánuði varð skilnað-
ur þeirra hjóna endanlegur eftir
fimm ára hjónaband.
Lucille sætti stöðugum ofsókn-
um og ofbeldi af hendi Dexters og
hafði fengið sett á hann nálgunar-
bann. Hann virti ekki bannið.
Ákall um hjálp hunsað
Ættingjar Lucille Mosco eru
hneykslaðir og vonsviknir yfir
framgöngu yfirvalda í máli Luc-
ille og Dexters á meðan hún lifði.
Robert N. Mosco segir Lucille
systur sína ítrekað hafa leitað
skjóls hjá lögreglu og öðrum
stofnunum. Enga vernd hafi verið
að fá þrátt fyrir ofbeldisfulla
framgöngu Dexters.
Einnig svíður fjölskyldunni að
skilorðsfulltrúi skuli hafa beitt
áhrifum sínum til að fá Dexter
frjálsan ferða sinna eftir að
ákæra var gefin út í febrúar fyrir
atvikið í nóvember. Dexter slapp
eftir sólarhringsdvöl í fangelsi
gegn 80 þúsund króna tryggingu.
Lucille kemur heim
Jón Atli dvelur nú hjá Robert
föðurbróður sínum í Pensacola.
Þar eru einnig faðir hans, Jón Júl-
íus Hafsteinsson, og bróðir,
Robert Wayne. Þeir komu frá Ís-
landi eftir morðið á Lucille.
Jón Atli var heppinn. Hann
fékk fljótlega að fara heima af
sjúkrahúsi þrátt fyrir að hann
hafi verið stunginn gríðardjúpu
sári og sé enn með yfir 40 högl í
bakinu. Læknir sem skoðaði hann
á miðvikudag segir hann spjara
sig vel og ekki þurfa að koma á
sjúkrahúsið til skoðunar.
Minningarathöfn um Lucille
hefur verið haldinn á heimili Ro-
berts Moscos. Þar voru um 50
nánustu ættingjar hennar og vin-
ir. Þar til ljóst verður hvernig
ákæra verður gefin út á hendur
Dexter munu synir Lucille og fað-
ir þeirra dvelja í Pensacola. Síðan
hyggjast feðgarnir flytja saman
heim til Íslands. Meðferðis hafa
þeir ösku Lucille Yvette Mosco.
Hún verður jarðsett í íslenskri
grund við hlið móður sinnar og
ömmu. Lucille varð aðeins 37 ára.
Fyrrverandi eiginmaður þykist blásaklaus þrátt fyrir vitnisburð stjúpsonar:
MOSCO-FRÆNDURNIR
Kelly W. Mosco, Jón Atli Júlíusson, Robert N. Mosco og Robert Wayne Love. Tveir bræðra
Lucille Y. Mosco með syni systur sinnar. Myndin er tekin fyrir nokkrum dögum á heimili
Roberts Moscos. Hann segir fjölskylduna munu krefjast skaðabóta til handa sonum systur
sinnar vegna vanrækslu yfirvalda.
MINNING UM MÓÐUR
Lucille Yvette Mosco féll fyrir morðingja-
hendi fyrir tveimur vikum. Minningarathöfn
fór fram á heimili bróður hennar sem einn-
ig hefur búið í bænum Pensacola í Flórída.
Myrti ekki íslenska móður