Fréttablaðið - 29.03.2003, Síða 6

Fréttablaðið - 29.03.2003, Síða 6
6 29. mars 2003 LAUGARDAGUR BAGDAD, AP Hörðustu loftárásirnar á Bagdad um nokkurt skeið áttu sér stað í gær. Írösk stjórnvöld greindu frá því að sjö manns hið minnsta hefðu látist í árásunum. Al-Jazeera sjónvarpsstöðin greindi frá því að átta til viðbótar hefðu látið lífið þegar sprengjum var varpað á höfuðstöðvar Baath- flokksins. Talsmenn bandaríska hersins segja að markmiðið með loftárás- unum í gær hafi verið að rjúfa tengslin milli ríkisstjórnar Sadd- ams Husseins og hers hans. Tveimur risasprengjum, svoköll- uðum byrgjasprengjum sem vega rúm tvo tonn hver, var beitt gegn fjarskiptamiðstöð. Árásir á hana stóðu yfir alla þar síðustu nótt. ■ KJARAMÁL „Málið er í því ferli að við ætlum að koma því fyrir Mann- réttindadómstólinn,“ segir Magn- ús M. Norðdahl, deildarstjóri lög- fræðideildar Alþýðusambands Ís- lands, vegna úrskurðar stjórnar- nefndar Alþjóðavinnumálastofn- unarinnar sem telur ríkisstjórn Ís- lands hafa brotið lög með lagasetn- ingu á kjaradeilu sjómanna. Magnús segir að niðurstaðan feli í sér ótvíræðan sigur fyrir ís- lenska verkalýðshreyfingu en bar- áttunni sé síður en svo lokið. Mál þetta fór á sínum tíma fyrir Hæstarétt þar sem verkalýðs- hreyfingin tapaði. Nú er horft til Mannréttindadómstólsins en að sögn Magnúsar er fyrsta skrefið að fá dómstólinn til að samþykkja að taka málið fyrir. Farið svo að Alþjóðadómstóll- inn komist að sömu niðurstöðu og Alþjóðavinnumálastofnunin um að íslensk stjórnvöld hafi reynst brot- leg gæti slíkt kostað íslenska ríkið háar skaðabætur. „Sú niðurstaða myndi í það minnsta þýða að stjórnvöld yrðu að breyta starfs- háttum sínum og láta af ólögmætu inngripi í frjálsa kjarasamninga,“ segir Magnús. Í áliti stjórn- arnefndar Al- þjóðavinnumála- stofnunarinnar er meinleg ábending til ís- lenskra stjórn- valda um að þau eigi kost á aðstoð vegna umræddrar áráttu sinnar að setja lög á deiluaðila í verkfalli. „Um leið og nefndin harmar fjölda sambærilegra mála þar sem staðfest hafa verið brot á sam- þykktum nr. 87 og 98, mælist hún til þess að ríkisstjórnin breyti fyr- irkomulagi og reglum um máls- meðferð er varða gerð kjarasamn- inga til að koma í veg fyrir endur- tekin afskipti löggjafans af kjara- samningagerð í framtíðinni. Nefndin vekur athygli ríkisstjórn- arinnar á þeirri tæknilegu aðstoð sem skrifstofa stofnunarinnar get- ur veitt.“ Þess má geta að skrifstofa Vinnumálastofnunarinnar er fyrst og fremst önnum kafin við að veita stjórnvöldum þróunarríkja laga- tæknilega aðstoð vegna samskipta við verkalýðshreyfingar. Ekki náðist í Pál Pétursson fé- lagsmálaráðherra, sem telst ábyrgur fyrir umræddum lögum, en hann hefur undanfarið verið á tíðum ferðalögum um heims- byggðina og er ekki væntanlegur til Íslands fyrr en 4. apríl. rt@frettabladid.is LÖGREGLUMÁL Tveir karlmenn létu lífið og tveir slösuðust í alvarlegu umferðarslysi sem varð á Reykja- nesbraut klukkan hálf sjö í gær- morgun. Slysið varð á Strandar- heiði skammt austan Vogaaf- leggjara. Slysið varð með þeim hætti að fólksbifreið á leið til Reykjavíkur lenti á vinstra fram- horni lítillar rútu og síðan á fólks- bifreið sem kom á eftir henni. Mennirnir sem létust voru öku- menn á sitt hvorum fólksbílnum. Voru þeir að sögn lögreglu látnir þegar komið var að þeim. Annar þeirra, fæddur árið 1978, var einn í bílnum. Hinn maðurinn, fæddur árið 1946, var ásamt eiginkonu sinni og syni. Þau voru bæði flutt með sjúkrabíl á Landspítala – há- skólasjúkrahús í Fossvogi. Sam- kvæmt upplýsingum vakthafandi læknis á gjörgæsludeild var gerð aðgerð á konunni í gærmorgun og er ekki talið að hún sé í lífshættu. Sonurinn var minna slasaður. Þótti öruggara að hafa hann undir eftirliti. Um borð í rútunni var flug- áhöfn á leið til vinnu og ökumaður sömuleiðis, og sluppu allir ómeiddir. Rútan skemmdist hins vegar mikið og var flutt af vett- vangi með kranabíl. Loka þurfti Reykjanesbraut í fimm klukkustundir vegna slyss- ins og var fólki vísað um Vatns- leysustrandarveg á meðan. ■ 425 borgarar fallnir ÍRAK, AP Tölur um mannfall í inn- rásinni í Írak eru sem fyrr mjög óöruggar. Allir stríðsaðilar hafa gefið einhverjar upplýsingar um mannfall en þeim verður að taka með fyrirvara. 50 bandarískir og breskir her- menn hafa fallið frá því innrásin í Írak hófst, að sögn þarlendra hernaðaryfirvalda. Engar upplýs- ingar hafa verið gefnar um hversu margir íraskir hermenn hafa fallið í stríðinu. Þó var talið að milli 500 og þúsund íraskir her- menn hefðu fallið í tveggja daga orustu við Bandaríkjaher. Að sögn íraskra yfirvalda hafa 425 íraskir borgarar látist í árásum Breta og Bandaríkjamanna. ■ SEGJA SKOTIÐ Á BORGARA Bresk- ir hermenn segja að vígasveitir Íraka við Basra hafi skotið á nokk- ur þúsund óbreyttra borgara. Fólk- ið gerði til- raun til að flýja borgina. Talsmaður breska hersins sagði að reynt hefði verið að aðstoða fólkið við að komast frá borginni. VANMÁTU EKKI MÓTSTÖÐU Yfir- herstjórn Bandaríkjahers við Persaflóa neitar því að hafa van- metið getu íraska hersins til að verjast innrás. Hermenn á víg- völlunum kunni þó að sjá mót- stöðuna betur í smáatriðum en yfirherstjórninni sé fært. HVATT TIL UPPREISNAR Tveir helstu hópar Kúrda í norðurhluta Íraks hafa hvatt Íraka til að rísa upp gegn valdi Saddams Husseins. Kúrdar hafa yfirtekið nokkrar vígstöðvar sem íraskar hersveitir hafa yfirgefið eftir sprengjuárásir Bandaríkja- manna. ALVARLEGASTA KREPPAN Innrás- in í Írak er alvarlegasta kreppa sem heimurinn hefur staðið frammi fyrir frá lokum Kalda stríðsins, segir Vladimir Pútín Rússlandsforseti. Innrásin vegi að grunni alþjóðaréttar og stöð- ugleika heimsins. HÆTTIR AÐ SKJÓTA YFIR TYRK- LAND Bandarísk hermálayfirvöld hafa ákveðið að hætta að skjóta flugskeytum yfir Tyrkland til árása á Írak. Þrjú flugskeyti hafa hrapað á leið sinni yfir Tyrkland, án þess að skaða nokkurn. Banaslys á Reykjanesbraut: Tveir létu lífið FRÁ SLYSSTAÐ Reykjanesbraut var lokuð í fimm klukku- stundir vegna þessara hörmulegu atburða sem leiddu til þess að tveir menn létu lífið og tveir aðrir slösuðust. M YN D /V ÍK U R FR ÉT TI R/ JÓ H AN N ES K R. Harðar loftárásir á Bagdad: 15 sagðir hafa fallið RÚSTIR FJARSKIPTAMIÐSTÖÐVAR Byrgjasprengjurnar sem notaðar voru í gær eru stærstu sprengjur sem notaðar hafa verið frá upphafi árása. Ríkisstjórnina fyrir Mannréttindadómstól Alþjóðavinnumálastofnunin segir ríkisstjórn Íslands hafa brotið lög með inngripi í kjaradeilur. Ráðherrum bent á meðferðarúrræði í Genf þar sem þeir fái hjálp í landslögum. „Nefndin vekur athygli ríkisstjórnar- innar á þeirri tæknilegu að- stoð sem skrifstofa stofnunarinn- ar getur veitt. PÁLL PÉTURSSON Fær ávítur frá útlöndum vegna lagasetningar á verkföll sjómanna. MANNFALL Í ÍRAK Bandarískir hermenn 28 Breskir hermenn 22 Óbreyttir borgarar 425 ■ Innrás í Írak/ Örfréttir ■ Innrás í Írak/ Mannfall

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.