Fréttablaðið - 29.03.2003, Síða 12
12 29. mars 2003 LAUGARDAGUR
HÁRPRÚÐUR
Moochie Norris, hinn hárprúði leikmaður
Houston Rockets, dripplar boltanum fram-
hjá Speedy Claxton, leikmanni San Anton-
io Spurs, í leik liðanna í NBA-deildinni í
körfubolta í fyrrakvöld. Spurs vann leikinn
með 98 stigum gegn 85.
Körfubolti
hvað?hvar?hvenær?
26 27 28 29 30 31 1
MARS
Laugardagur
FÓTBOLTI Berti Vogts, þjálfari
skoska landsliðsins í knattspyrnu,
mun treysta á eldri leikmenn liðs-
ins til að drífa liðið áfram í leiknum
gegn Íslandi.
Paul Lambert, leikmaður Celtic,
og Barry Ferguson, leikmaður
Rangers, verða að öllum líkindum á
miðjunni og Steven Pressley, fyrir-
liði Hearts, mun stjórna vörninni.
Pressley, sem er að leika sinn
sjötta landsleik, segir þá Lambert
og Ferguson vera góðar fyrir-
myndir. „Lambert er afar ákveð-
inn. Maður vinnur ekki Evrópu-
keppni bikarhafa, leikur með Bor-
ussia Dortmund og er fyrirliði
Celtic án þess að vera það. Barry
Ferguson er fyrirliði Rangers og
Christian Dailly [leikmaður West
Ham] er afar sterkur persónu-
leiki.“
Talið er að þeir Dailly og Lee
Wilkie hjá Dundee leiki með
Pressley í vörninni. Gary
Naysmith, leikmaður Everton, og
Paul Devlin hjá Birmingham verða
líklega á köntunum. Einnig er búist
við því að Stevie Crawford, leik-
maður Dunfermline, verði í fram-
línunni og með honum verði annað
hvort Don Hutchison, leikmaður
West Ham, eða Kenny Miller hjá
Wolves. ■
Berti Vogts, þjálfari Skotlands:
Treystir á
eldri leikmenn
VOGTS
Þjóðverjinn Berti Vogts leiddi þýska landsliðið til Evrópumeistaratitils árið 1996.
13.00 Ásgarður
Stjarnan tekur á móti FH í 8 liða úrslit-
um kvenna í handbolta.
13.00 Ásvellir
Haukar og Grótta KR eigast við í 8 liða
úrslitum kvenna í handbolta.
13.00 Valsheimili
Valur fær Víkinga í heimsókn í 8 liða
úrslitum kvenna í handbolta.
13.00 Vestmannaeyjar
Eyjastúlkur taka á móti Fylki/ÍR í 8 liða
úrslitum kvenna í handbolta.
14.40 Sjónvarpið
Bein útsending frá leik Skota og Íslend-
inga í undankeppni EM í fótbolta.
17.15 Sýn
EM 2004. Bein útsending frá leik
Liechtensteins og Englands í 7. riðli.
17.30 Keflavík
Keflavík tekur á móti KR í úrslitum 1.
deildar kvenna í körfubolta.
11.00 Fífan
Stjarnan og Afturelding eigast við í
deildarbikarkeppni karla í fótbolta.
13.00 Fífan
Eyjamenn mæta Haukum í deildarbik-
arkeppni karla í fótbolta.
14.00 Reykjaneshöll
Keflvíkingarog KA-menn eigast við í
deildarbikar karla í fótbolta.
16.00 Reykjaneshöll
Grindavík mætir Víkingi í deildarbikar-
keppni karla í fótbolta.
16.00 Njarðvík
Njarðvík og Keflavík eigast við í undan-
úrslitum karla í körfubolta.
16.00 Sauðárkrókur
Tindastóll tekur á móti Grindavík í
undanúrslitum karla í körfubolta.
16.15 Ásgarður
Stjarnan tekur á móti Þór í Esso-deild
karla í handbolta.
16.15 Ásvellir
Haukar og ÍR eigast við í Esso-deild
karla í handbolta.
16.15 KA heimilið
KA mætir ÍBV í Esso-deild karla í hand-
bolta.
16.15 Selfoss
Selfyssingar taka á móti HK-mönnum í
Esso-deild karla í handbolta.
16.15 Seltjarnarnes
Grótta KR og FH eigast við í Esso-deild
karla í handbolta.
16.15 Valsheimili
Valur mætir Aftureldingu í Esso-deild
karla í handbolta.
16.15 Víkin
Víkingur tekur á móti Fram í Esso-deild
karla í handbolta.
18.00 Reykjaneshöll
FH-ingar og Valsmenn eigast við í
deildarbikarkeppni karla í fótbolta.
hvað?hvar?hvenær?
27 28 29 30 31 1 2
MARS
Sunnudagur
FÓTBOLTI „Við þurfum náttúrlega að
verjast í byrjun leiks,“ sagði Atli
Eðvaldsson landsliðsþjálfari þegar
Fréttablaðið spurði hann um leik
Skota og Íslendinga á Hampden
Park í dag. „Það er bara eðlilegt því
þeir verða á heimavelli, drifnir
áfram af 50 þúsund áhorfendum og
ætla sér ekkert annað en sigur á
móti okkur.“
„Við verðum að standa af okkur
fyrsta áhlaupið, svo fáum við örugg-
lega okkar möguleika þegar líður á
leikinn. Við megum alls ekki byrja
leikinn eins og þennan í haust og fá
á okkur mark í byrjun. Markið kom
eftir röð af mistökum og það var
mjög niðurdrepandi. Síðan kom
góður 20 mínútna kafli hjá okkur
þar sem við fengum nokka mögu-
leika. Eiður skaut t.d. í slá,“ sagði
Atli.
„Hefðin vinnur með Skotum. Það
eru aðeins fimm ár síðan þeir léku
opnunarleikinn á HM við Brasilíu.
Skoska knattspyrnan er líka á upp-
leið að nýju. Celtic er t.d. komið í
undanúrslit í Evrópukeppni eftir að
hafa slegið út Liverpool. Berti Vogts
segist líka hafa náð fram ástríðunni
í leik Skotanna, nokkuð sem þá hef-
ur vantað á undanförnum árum.“
„Við verðum líka að gera okkur
grein fyrir því að ef að við missum
tvo af okkar sterkustu mönnum þá
eigum við ekki menn í sama styrk-
leikaflokki til að hlaupa í skarðið. Ef
þeir missa leikmenn úr sínum hópi
koma aðrir álíka sterkir í staðinn.
Það er langt liðið á keppnistímabilið
á Bretlandseyjum og Skotar eiga að
vera í góðri leikæfingu. Keppnis-
tímabilið hjá sex af okkar strákum
er hins vegar ekki byrjað.“
Atli rifjaði upp umræðuna fyrir
leikinn í fyrra þegar Skotar voru
taldir í lægð og Íslendingar sigur-
stranglegri. „Ég sagði þeim að þessi
umræða gangi ekki fyrir þennan
leik. Þeir eru klárlega sigurstrang-
legri. Það er ekki nokkur fjölmiðill í
Skotlandi sem býst við öðru en
skoskum sigri. Við göngum bara út
frá því að Skotar séu sigurstrang-
legri.“ ■
Skoska landsliðið
sigurstranglegra
Við eigum engu að
síður möguleika, segir
Atli Eðvaldsson.
LANDSLIÐSHÓPURINN
Leikmenn Íslands félag, landsleikir mörk
Birkir Kristinsson ÍBV 73 -
Árni Gautur Arason Rosenborg 25 -
Rúnar Kristinsson Lokeren 96 3
Guðni Bergsson Bolton 77 1
Arnar Grétarsson Lokeren 57 2
Þórður Guðjónsson Bochum 43 11
Lárus Orri Sigurðsson WBA 37 2
Brynjar Björn Gunnarsson Stoke 34 3
Pétur Hafliði Marteinsson Stoke 25 -
Tryggvi Guðmundsson Stabæk 29 8
Arnar Þór Viðarsson Lokeren 22 -
Eiður Smári Guðjohnsen Chelsea 20 6
Marel Baldvinsson Lokeren 11 -
Ívar Ingimarsson Brighton 9 -
Jóhannes Karl Guðjónsson Aston Villa 9 1
Bjarni Þorsteinsson Molde 8 -
Gylfi Einarsson Lilleström 7 -
Indriði Sigurðsson Lilleström 6 -
FYRRI VIÐUREIGNIR
ÍSLANDS OG SKOTLANDS
12. okt. 2002 Ísland 0 Skotland 2
28. maí 1985 Ísland 0 Skotland 1
17. okt. 1984 Skotland 3 Ísland 0
27. júlí 1964 Ísland 0 Skotland 1
Samanlagt: L H Úti U J T
Ísl.-Skotl. 4 3 1 0 0 4
Ísland hefur aldrei náð í stig gegn Skot-
um og aldrei skorað mark í fjórum viður-
eignum liðanna.
STAÐAN Í 5. RIÐLI:
Lið L S
Þýskaland 2 6
Skotland 2 4
Ísland 2 3
Litháen 3 3
Færeyjar 3 1
LEIKIR DAGSINS:
Skotland-Ísland
Þýskaland-Litháen
ATLI EÐVALDSSON
Skotar eru sigurstranglegri sagði Atli við skoska blaðamenn. Umræðan frá því haust geng-
ur ekki fyrir leikinn í dag.
ÍSLAND
Lokakeppni EM kvennalandsliða verður
haldin á Englandi sumarið 2005.
Evrópukeppni
kvenna 2005:
Keppnin
er hafin
FÓTBOLTI Undankeppni Evrópu-
keppni kvennalandsliða hófst sl.
miðvikudag með leik Hollands og
Spánar. Spánverjar sigruðu 1:0 með
marki Laura del Rio á 72. mínútu.
Daginn eftir unnu Þjóðverjar
Skota 5:0. Birgit Prinz skoraði
tvisvar í sínum 100. landsleik en
Michelle Barr og Nicky Grant, leik-
menn ÍBV, léku með Skotum.
Ísland leikur í riðli með Frökk-
um, Ungverjum, Pólverjum og
Rússum. Fyrsti leikurinn í riðlinum
verður milli Póllands og Ungverja-
lands 19. apríl. Fyrsti leikur Íslands
í undankeppninni verður á heima-
velli gegn Ungverjum þann 14.
júní. ■
Skoðaðu alla söluskrána á heimasíðunni www.fyrirtaekjasala.is
Síðumúla 15 Sími: 588 5160
Gunnar Jón Yngvason
Löggiltur fasteigna-
og fyrirtækjasali.
3 góð framleiðslufyrirtæki/ búnaður til sölu
200 mót 8 teg-
undir , hellu-
mót, traust og
góð mót, mjög
lítið notuð. Getur veri starfrækt
hvar sem er á landinu, verð aðeins
kr 2.000.000,-
Kleinugerð (ekki í
rekstri) með öllum
búnaði , umbúðum
og tækjum, hentugt
leiguhúsnæði getur fylgt, verð aðeins
kr 600 þús
Hellusteypa Kleinugerð Bátamót
Vönduð mót fyrir
framleiðsu úr trefja-
plasti á þessum vatna-
bát. Góðir tekju-
möguleikar Hentugt sem aukavinna , getur
verið hvar sem er á landinu verð aðeins
kr 600 þús + 2 bátar úr mótunum