Fréttablaðið - 29.03.2003, Síða 20
20 29. mars 2003 LAUGARDAGUR
Eilífðarstúdent í matargerð
Fyrir þó nokkru áttaði ég migá takmarkaðri getu minni til
að elda en ég hneigist vissulega
til bjartsýni í þeim efnum. Ég
hef svo oft verið ósátt við mat-
seld mína í gegnum tíðina og
reyni því ekki að eyða orku í að
þvinga fram niðurstöður sem
eru bragðgóðar,“ segir Ellý Ár-
mannsdóttir, sjónvarpsþula hjá
Sjónvarpinu. „Ég kann samt að
meta matargerðarlist og nýt
þess að læra sem eilífðarstúdent
þegar matseldin er annars veg-
ar.“
Ellý segist yfirleitt fá sér
eitthvað fljótlegt að borða á
morgnana, ristaðar beyglur og
gott kaffi. Hún segist ekki vera
dugleg að elda heima og kemur
því oft við á Grænum kosti.
„Ég fer mjög oft þangað,“
segir Ellý, en þvertekur fyrir að
kostnaðurinn við það sé mikill.
„Ég sleppi öðrum munaði fyrir
matinn, ég tala nú ekki um ef fé-
lagsskapurinn er góður.“
Eldhúsið hjá Ellý er þessa
daganna eins og opið sár þar
sem Eva Sólan, stalla hennar og
vinkona, er að taka eldhúsið í
gegn fyrir þáttinn Innlit-Útlit.
Ellý getur því lítið sem ekkert
aðhafst þar um þessar mundir.
Ellý segist yfirleitt panta
kræsingar þegar hún býður
fólki heim í mat svo hún geti
frekar sinnt gestunum. Þá eru
grænmetisréttir og sushi í
miklu uppáhaldi.
Hún segir kjúkling einnig
vera í miklu uppáhaldi og notar
Netið mikið til að leita upp-
skrifta. Vefsvæðið uppskriftir.is
hefur oftar en ekki bjargað
henni fyrir horn, sérstaklega
þegar mikið liggur við. Á vef-
svæðinu er því haldið fram að
Dijon-sinnep sé oft kallað
Mekka sinnepsunnenda og er
Ellý sammála því. Hún gefur því
uppskrift að kjúklingi með
Dijon-sinnepi og notar mulið
Ritzkex í stað rasps.
kristjan@frettabladid.is
Dverghagur Sindri
Það er löng hefð í minni föðurættfyrir nöfnum sem eru í sér-
stæðari kantinum, eða voru það á
sínum tíma,“ segir Sindri Freysson
rithöfundur, sem er mjög sáttur
við nafnið sitt og hefur verið það
alla tíð. „Þetta nafn var sjaldgæft
þegar ég var yngri, en upp úr 1985
reið yfir mikil flóðbylgja af Sindr-
um. Faðir minn setti í spaugi fram
þá kenningu að verðlaunasaga eft-
ir mig, sem birtist í unglingablaði
fyrir einhverjum áratugum, hafi
haft þau áhrif að krakkarnir sem
lásu blaðið hafi orðið skotnir í
nafninu og ákveðið að nota það á
sín börn.
Sindri segir mikinn kost við
nafnið að fátt ef nokkuð rími við
það. „Það gerði auðvitað „hefð-
bundnum“ hrekkjusvínun í skólan-
um erfitt fyrir að uppnefna mig.“
Sindri segir afa sinn hafa verið
heillaðan af norrænni goðafræði
og föðurbræður sína bera nöfn
goðanna. „Það er líka dæmi um
Sindra í goðafræðinni, talað um
dverghagan Sindra sem smíðaði
mikla dýrgripi, en nei, ég er ekki
mjög hagur í þeirri merkingu,“
segir hann hlæjandi, „kannski
frekar á óáþreifanlega hluti.“
Þess má geta að Sindri er hrif-
inn af sjaldgæfum nöfnum og á tvö
börn sem voru þau fyrstu til að
bera sín nöfn. Þau heita Snærós og
Seimur og þurfti að fara fyrir
mannanafnanefnd með bæði nöfn-
in. ■
ELLÝ ÁRMANNSDÓTTIR
Er ekki dugleg að elda þó hún meti matargerðalist. Segist vera eilífðarstúdent þegar matargerð er annars vegar.
■ MATUR
Kjúklingur
með Dijon í
Ritzkex-raspi
Hráefni:
Salt og svartur pipar
Hveiti til að þekja kjúklingabringurnar
2 pakkar Ritzkex
3 msk. matreiðslurjómi
3 msk. ferskt estragon
2 msk. Dijon sinnep
6-8 kjúklingabringur
2 eggjarauður (pískaðar)
Aðferð:
Krydda bringurnar með salti og pipar.
Eggjarauðurnar pískaðar saman og sinn-
epi og rjóma bætt út í. Ritzkex-raspinu og
estragoninu er blandað saman. Kjúklinga-
bringunum velt upp úr hveitinu, síðan
sinnepsblöndunni og þar á eftir upp úr
Ritzkex-raspinu. Kjúklingurinn er því næst
settur inn í ísskáp í 3-8 klukkustundir.
Mjög mikilvægt.
Bringurnar eru síðan steiktar á hvorri hlið
í tíu mínútur eða þar til þær eru gegn-
steiktar og orðnar mjúkar undir tönn.
Borið fram með salati og hýðishrísgrjón-
um.
■ NAFNIÐ MITT
SINDRI FREYSSON
Er hrifinn af sjaldgæfum nöfnum og nefndi börn sín Snærós og Seim.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/T
H
O
R
ST
EN
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T